Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1983, Page 20
20
DV. LAUGARDAGUR1. OKTOBER1983.
Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál Sérstæð sakamál
SKABVALDUR
1LYF JAGLASI
Sex af sjö fórnarlömbum Tylanol.
Efst til vinstri, Mary McFarland,
Paula Prince og Adam Janus.
Neðst til vinstri, Mary Kellerman,
Stanley Janus og Theresa Janus. í
horninu til vinstri er pakki
Tylenol-hylkjum
Milljónir Bandaríkjamanna tóku
Tylenol-hylki daglega við minniháttar
verkjum og slæmsku. En síðastliðið
haust létust sjö manns af völdum þess,
fórnarlömb tilfinningalauss morð-
ingja semkomstílyfiðáðurenþaðfór
í verslanir og setti í það banvænt
efni.. .
Fyrsta dauðsfallið
Það var fallegt haustveður í
Chicago morguninn 29. september
1982. Hin tólf ára gamla Mary Keller-
man vaknaði snemma. Henni var illt í
hálsinum og hún kallaði á mömmu
sína.
Móðirin lagöi hönd á enni stúlkunn-
ar. „Þú ert áreiðanlega með hita.
Komdu meö mér fram, ég ætla að gefa
þér eitthvaö viö þessu... ” Móðirin
opnaöi skáp í baðherberginu og tók út
glas með skrúfuðu loki sem hún hafði
keypt nokkrum dögum áður. Hún tók
lítið, rauðhvítt hylki úr glasinu.
„Þetta er ég vön að taka við höfuö-
verk,” sagði hún, „og venjulega hjálp-
ar það mér. Taktu eitt og renndu því
niður meðvatni.”
Móðirin fór að því búnu aftur inn i
svefnberbergi sitt og lagöist til svefns.
Vekjaraklukkan hringdi svo klukkan
sjö. „Mary var illt í hálsinum í nótt og
ég hugsa aö ég sendi hana ekki i skól-
ann í dag,” sagði hún viö mann sinn.
Hún fór inn í baðherbergið. Hún
æpti upp yfir sig og kallaði í mann sinn.
Mary lá á baðherbergisgólfinu. Hún
hafði kastað upp, augasteinar hennar
voru óvenjulega stórir, hendur hennar
voru ískaldar.
Fimm mínútum síðar kom sjúkraliö
á vettvang, en allt var um seinan.
Læknamir voru ráðþrota. Var hugsan-
legt að tólf ára gamalt bam gæti látist
af heilablóðfalli? Otrúlegt, en þaö virt-
ist eina skýringin.
Fleirí dauðsföll
Arlington Heights er úthverfi
Chicago-borgar. Þar bjó og vann hinn
27 ára gamli póstmaður, Adam Janus.
Þennan miðvikudagsmorgun var hann
líka eitthvaö miður sin. Hann haföi
þyngsli fyrir brjósti.
„Eg verð að taka eitthvað við þessu
ef ég á að geta farið í vinnuna í dag,”
sagði hann við bróður sinn og mágkonu
sem hann leigði íbúð með.
Janus fór út í næstu lyfjabúð. Þar
gat hann fengið ýmis kvalastillandi
lyf, en hann valdi það sem hann var
vanur að kaupa, Tylenol-hy lki, og hann
tók sjálfur glasiö úr hillunni. Tyienol
er mjög vinsælt lyf við minniháttar
verkjum og slæmslu því að það fer vel í
maga.
Janus fór heim og tók eitt rauðhvítu
hylkjanna. Tii allra hamingju var
mágkona hans heima þegar hann datt
niður. Við komuna á sjúkrahúsið voru
augasteinar hans orðnir óeðlilega stór-
ir og blóðþrýstingur mjög lágur.
Hjartalömum var talin orsökin og
Janus var þegar settur í gjörgæslu. En
þótt læknamir gerðu allt sem i þeirra
valdi stóð til að bjarga lífi hans reynd-
ist það árangurslaust. Janus lést um
þrjúleytið þennan dag.
Nánustu ættingjar Adams Janus
söfnuöust saman á heimili hans, bróð-
urins og mákonu. Stanley Janus var
tveimur árum yngri en Adam og kona
hans, Theresa, aðeins nítján ára. Þau
höföu gifst fyrir um mánuði. Umræðan
á heimilinu snerist auövitað um
dauða Adams. Hvernig gat 27 ára gam-
all maöur i blóma lífsins og sem aldrei
hafði kennt sér meins dáið svo skyndi-
lega úr hjartalömum? Ailir vom miður
sín. Theresa tók um ennið. Hún hafði
grátið mikið og hafði höfuðverk.
, jEg skal útvega aspirin,” sagði ein-
hver,
„Það er óþarfi,” sagði Stanley Jan-
us, „Það er Tylenol-glas á eldhúsborð-
inu, ég er líka með höfuðverk.”
Theresa fór fram í eldhús og Stanley
Janus með henni. Þau settust viö eld-
húsborðið og tóku hvort sitt hylkið.
Stuttu síðar fóru þau að finna til óþæg-
inda...
Stanley Janus var allur um átta-
leytið um kvöldið, aðeins fimm tímum
á eftir bróður sínum. Dauðastríð
Theresu tók lengri tíma, en tveimur
sólarhringum síðar dó hún.
Menn fóru að
velta vöngum...
Þegar Mary Kellerman lést datt
engum í hug að „heilablóöfall” hennar
igæti stafaö af eiturefni. Dauði Adams
Janus vakti heldur ekki grunsemdir,
en eftir dauöa hjónanna fóru menn að
velta vöngum...
Þegar náinn vinur Kellerman-hjón-
anna frétti af dauða Janus-fjölskyld-
unnar hringdi hann í mann að nafni
Cappitelli sem vann við sjúkraflutn-
inga og bað hann aö kanna hvort eitt-
hvað sameiginlegt hefði fundist við
dauða Janus-fjölskyldunnar. CappiteDi
komst að því að öll höfðu tekið Tylenol
skömmu áður en þau Iétust. Það hafði
Mary Kellerman líka gert. Gat verið
um eiturbyrlun að ræða? Hann hafði
samband við lögreglu og heilbrigðis-
yfirvöld...
Aðeins upphafið
að öðru og meira?
Læknir sem tekið hafði við Stanley
og Theresu Janus velti vöngum yfir
hinum sameiginlegu einkennum: óeðli-
lega stórum augasteinum og lágum
blóðþrýstingi sem ógjörningur var að
koma upp. Hann sætti sig ekki við að
dauðaorsök væri heilablóöfall. Hann
tók blóðprufu úr fómarlömbunum og
fór með þær inn á rannsóknarstofu.
Þar fann hann að í báðum tilvikum var
um að ræða eitrun af völdum efnisins
cyanid. Læknirinn hafði samband við
lögreglu...
Nú kom í ljós að cyanid fannst einn-
ig í blóði hinna tveggja sem látist
höfðu. Lögreglan lagði þegar hald á
Tylenol-glösin heima hjá Kellerman og
Janus. Bæði voru þau merkt MC 2880
sem þýddi að bæði voru úr sömu vöm-
sendingu.
Tylenol-hylki hafa venjulega að
geyma hvítt duft. En tíu af hylkjunum
sem eftir vora í glösunum höfðu verið
opnuð og í staö hvita duftsins var kom-
ið rakt grátt efni, sem lyktaði mjög.
Þessi hylki voru lítið eitt stærri en hin
og rauði liturinn var dekkri.
Það virtist engum blöðum um það
að fletta aö sá sem hafði átt viö hylkin
hafði gert það í þeim einum tilgangi aö
drepa. Það voru morð að yfirlögðu ráði
og fyrir barðinu urðu saklausar
manneskjur sem morðinginn hvorki
þekkti haus né sporð á.
Hversu mörg morð fengi hann á
samviskuna? Menn voru alveg vissir
um að þessir atburöir vora aðeins upp-
hafiö...
Skorín upp herör
Tylenol er framleitt í Texas
og Pennsylvaniu af fyrirtækinu John-
son & Johnson Það er vinsælasta lyf
sinnar tegundar í Ameríku og árið
1981 seldist þetta lyf fyrir um sex millj-
arða króna. I septemberlok 1982 hafði
fyrirtækið meira en tvær milljónir
glasa af Tylenol-hylkjum á markaði í
Bandaríkjunum, en það er einnig
f ramleitt í töflum og í fljótandi formi.
Nú var haft samband við fyrirtækið
og þaö beðið að innkalla alla fram-
leiösluna númer MC 2880 sem það og
gerði. Inn komu 93.400 glös strax sama
dag.
Samt sem áður geröist það sem
menn óttuðust. 31 árs gömul kona úr
úthverfi Chicagotwrgar, Mary McFar-
land, lést. Dauðaorsökin: eitrun af
völdum cyanid. I tösku hennar fannst
glas af Tylenol-hylkjum, sex þeirra
sem eftir voru höfðu að geyma cyanid.
Enn var tilkynnt dauösfall. Nú var
það 27 ára gömul kona, Mary Rainer,
sem lést. Hún hafði nýlega eignast sitt
fjórða bam. Fjögur hylki af Tylenol
með cyanid fundust í fórum hennar.
Nú var skorin upp herör í Banda-
ríkjunum gegn notkun á Tylenol-
hylkjum. Um máliö hafði farið hljótt
fram að þessu en það var ekki hægt
lengur. Fjölmiðlar vöruðu menn við
notkun Týlenol, um götumar óku lög-
reglubílar búnir kalltækjum, sem aö-
vöraðu menn, veggspjöld voru sett upp
og dreifimiðar bornir í hús. I Chicago
og nágrenni var óttinn mestur, enda
höföu öll dauösföllin oröiö þar.
En ekki var allt búiö enn. Hin 35 ára
gamla flugfreyja, Paula Prince, hafði
ekki mætt tU vinnu i tvo daga án þess
að boða forföU. Vinnufélagar hennar
fóru aö óttast um hana. Hún fannst lát-
in á stofugólfinu heima hjá sér þegar
að var gáð. Við hlið hennar var
Tylenol-glas. Einnig hún bjó í Chicago.
Nú voru fómarlömbin orðin sjö. Svo
virtist sem glösunum með eitrinu hefði
verið komið fyrir í lyfjabúðum og stór-
mörkuðum í Chicago og nágrenni fyrst
ÖU fórnarlömbin voru þaðan. En af
hverjum? Vora margir viðriðnir
þetta? Viðkomandi hafði sjálfsagt
keypt nokkur glös í lyf javerslunum og
stórmörkuðum, sett cyanid í þau og
komið þeim svo aftur fyrir i hiUum
verslananna. Engin munur sást á þeim
glösum sem höfðu að geyma eitrið og
hinum.
Þess vegna var ekki áUtið aö eitrinu
hefði verið komið fyrir í hylkjunum í
verksmiðjunni, auk þess sem cyanid
étur sig í gegnum Umhylkið ef það er of
lengi í því. Moröingjanum hefði reynst
auðvelt að útvega sér cyanid þvi að
það er notaö á næstum öllum rann-
sóknarstofum í iðnaðinum.