Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1983, Page 8
DV. MIDV1KUDAGUR19- OKTOBER1983.
8
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Þingrof í
Danmörku?
réttindabrotin
— segir Gabriel Lara, fulltrúi
þjóðfrelsisafla El-Salvador, sem
hér eríheimsókn
„Eg vil vekja athygli á afskiptum
Bandaríkjanna efnahagslega, póli-
tískt og hemaöarlega í málefnum E1
Salvador og ranglæti þessara af-
skipta því aö það er engin siöferöileg
réttlæting fyrir þessari íhlutun í inn-
anlandsmál E1 Salvador,” sagöi
Gabriel Lara, fulltrúi FMLD-FDR
samtakanna í E1 Salvador, í spjalli
viö DV í gær.
Gabriel Lara er hér í viku heim-
sókn í boði E1 Salvadomefndarinnar
á Islandi, Alþýöuflokksins, Alþýöu-
bandalagsins, stjómar stúdenta-
ráðsins, Kvennaframboðsins og
fleiri stjómmálafélaga og verkalýös-
félaga.
FMLD-FDR samtökin eru breið-
fylking þjóöfrelsisafla í E1 Salvador.
Aö henni standa hópar úr öllum
flokkum landsins aö undanskildum
hægrisinnaðasta flokknum, sem
styður einn stjómina. 1 samtökunum
eru kristilegir demókratar, sósíal-
demókratar, vinstrimenn og komm-
únistar og þær fimm skæruliöahreyf-
ingar sem halda uppi baráttunni
gegn ríkisstjóminni.
„Stefna samtakanna er í stuttu
máli aö koma á lýðræðislegri stjórn í
E1 Salvador og bylta veldi kaffifjöl-
skyldnanna f jórtán sem eiga nær allt
í E1 Salvador með eignarhaldi á 60%
alls jarðnæðis,” segir Lara.
Lara kemur hér fram á fundum
ýmissa samtaka og stéttarfélaga og
flytur fyrirlestra. Um helgina flutti
hann erindi og sýndi kvikmynd frá
E1 Salvador á fundi í Gamla bíói.
„Okkur er mikilvægt aö fá viður-
kenningu annarra þjóöa sem pólitísk
samtök, sem fulltrúar alþýöu i E1
Salvador,” segir Lara, sem hefur
aðsetur í Stokkhólmi og ferðast
þaðan um Noröurlönd sem diplómat-
ískur sendif ulltrúi samtaka sinna.
,,Viö vonum aö núverandi ríkis-
stjórn fslands muni, eins og sú síð-
asta, fordæma mannréttindabrotin í
E1 Salvador,” segir Lara, sem mun
hitta forseta Islands og hefur óskaö
eftir viðræöum viö utanríkisráö-
herra Islands.
Á ferðum sínum vekur Gabriel
Lara athygli á skorti á læknislyf jum
og öðrum hjálpargögnum, sem ríkir
á yfirráöasvæðum skæruliða, en þeir
hafa nú um fjóröung E1 Salvador á
valdi sínu. Eins segir hann ástandið
mjög alvarlegt í búðum flóttafólks
sem leitaö hefur hælis í nágrannarík-
inu Hondúras.
„Þúsundir eru í hættu, böm og full-
orönir, ef þeim berst ekki rétt lækn-
isaðstoö. Sumir af veikindakvillum,
sumir af sárum, sem þeir hafa hlotið
í skærum eða loftárásum stjórnar-
hersins á borgara,” segir Lara.
Lara hefur sjálfur verið pólitískur
fangi í höndum yfirvalda landsins.
Hann var tekinn fastur 1979, þegar
hann starfaði á vegum jesúíta við
fræðslustörf meðal smábænda, en
losnaöi aftur mest fyrir atbeina
Maríunellu, sem hingað kom um
árið. Lik Maríunellu fannst sundur-
skotið eftir einn bardagann sem
flokkur stjómarhermanna sagðist
hafa lent i við skæruliða. Rannsókn
alþjóðlegra kirkjulegra samtaka
bendir til að hún hafi verið myrt því
að skömmu áður hefði hún verið
handtekin. Hún starfaði þá að
rannsókn á gmn sínum um að
Bandaríkjamenn legðu stjómarher
E1 Salvador í té eiturefnavopn, sem
beitt væri í byggðarlögum, er hliðholl
þættu skæmliðahreyfingum.
Vona að ísland fordæmi mann-
Samningaviðræður eru nú hafnar
milli dönsku ríkisstjómarinnar annars
vegar og Framfaraflokksins og Jafn-
aöarmanna hins vegar, um enn frekari
sparna ðaráætlanir r ík isstj órna rinn ar,
upp á 10 milljarða danskra króna sem
fyrirhugaöar eru á næsta fjárhagsári.
Þessar samningaviðræður eru nauð-
synlegar vegna þess að ríkisstjómin
hefur ekki meirihluta á þingi. Verða
samningar líklega gerðir við Fram-
faraflokkinn þar sem þingmenn hans
hafa bjargað ríkisstjórninni hingað til
þegar þess hefur þurft við.
Framfaraflokkurinn hélt landsfund
nú um síðustu helgi og þar var sam-
þykkt að núverandi stefnu flokksins
yrði haldið óbreyttri. Þar heppnaöist
ekki kbkunni umhverfis Glistrup,
stofnanda flokksins, sem nú situr í
fangelsi, aö fá sín áhugamál fram, en
þar á meðal var að fá konu Glistrups
kjörna formann flokksins. Þar af leið-
andi eru meiri líkur til þess að samn-
ingar við ríkisstjórnina takist. Takist
samningar ekki fyrir miðnætti á
sunnudag, mun Schliiter forsætisráð-
herra Dana að öllum líkindum rjúfa
þing og boða til kosninga þann 15.
nóvember til þess að skýra línurnar í
danskripólitík. GI-Kaupmannahöfn
Banna
norska
tónlist
Pólska útvarpið og sjónvarpiö hefur
samkvæmt áreiðanlegum heimildum
fengið fyrirmæli um að leika ekki
norska , bandaríska og vestur-þýska
tónlist. Bannið tók gildi 10. október og
mun gilda í að minnsta kosti hálfan
mánuð.
Margir óttast að bannið verði eink-
um til skaða aðstandendum alþjóðlegr-
ar djasshátíðar, sem haldin verður í
Varsjá dagana 20,—23. október. Þang-
að er von á ýmsum gestum vestan að,
svo sem Miles Davis, og hinum norska
JanGarbarek.
Nýr menningarsamningur Noregs
og Póllands var undirritaöur í Osló 6.
október síðastliðinn, daginn eftir að
kunngerð var úthlutun friðarverð-
launa Nóbels til Lech Walesa. I samn-
ingnum, sem gildir í þrjú ár, er kveðið
á um gagnkvæmar heimsóknir lista-
manna landanna og er hin alþjóölega
djasshátíö í Varsjá einmitt nefnd sem
ákjósanlegur vettvangur fyrir norska
tónlistarmenn. - PÁ í Osló
Aftökusveit islamskra byltingarvarðliða „afgreiðir" uppreisnarmenn kúrda að fyrirmælum klerkastjórnarinnar.
Kjósa í
sjúkrasamlög
Milljónir manna ganga til atkvæða í
Frakklandi í dag, en í fyrsta sinn síðan
1962 er nú kosið beinni kosningu f
stjómir sjúkrasamlaga landsins. Líta
margir á kosningamar sem prófstein á
fylgi verkalýðsfélaganna, sem bjóða
fram sína menn í sjúkrasamlags-
stjórnimar.
Kosiö er í 300 samlagsstjórnir en
fimm stærstu verkalýðssamtökin
fengu aðbjóðafram.
Samlögin hafa á sínum vegum, auk
sjúkraeyris og dagpeninga vegna veik-
inda, greiðslur á atvinnuleysisbótum,
f jölskyldubótum og fleiru.
30 milljónir hafa atkvæðisrétt. Þar á
meðal útlendir farandverkamenn.
50 þúsund tekin af lífi
af klerkastjórninni?
Einn af uppreisnarforingjum kúrda
heldur því fram í viðtali við franska
blaðið Le Matin að 50 þúsundir manna
hafi verið teknar af lífi í Iran síðan
keisarastjórninni var bylt.
Ghassemlou, formaður lýðveldis-
flokks kúrda, heldur því einnig fram aö
uym 100 þúsundir manna hafi verið
fangelsaðar af pólitískum sökum í Iran
á þessum sama tíma.
Skæruliöar kúrda hafa eldað grátt
silfur við írönsk yfirvöld í 25 ár og áttu
kúrdar um sárt að binda undan
keisaranum, en Ghassemenlou segir
að klerkastjórnin sé enn verri en keis-
arastjómin hafi verið.
„Keisarastjórnin hafði þó í heiðri
einhverjar reglur en byltingastjórnin
alls engar,” segir Ghassemlou.
Kúrdar eru um 16% íbúa Irans og
búa flestir í fjalllendi á landmærum
Irans og Iraks. Þeir hafa barist fyrir
sjálfsstjórn eigin mála.
Ýmsir foringa kúrda hafa boöið
Irak liöveislu í stríði Irans og Iraks og
tugir þúsunda kúrda hafa gerst sjálf-
boðaliðar hjá írökum.