Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1983, Blaðsíða 16
16
Spurningin
Hvernig líst þór ó að 16 tón-
listarhús í Reykjavík?
Óli Már Eyjólísson vélstjóri: Þaö ætti
aö vera í lagi en ég fer yfirleitt lítið á
tónleika.
Jðrunn Skúladóttir afgreiöslustúlka:
Mér list mjög vel á það. Eg fer mikiö á
tónleika en þó litiö á klassík.
Kristjana Oladóttlr afgreiðslustúlka:
Mér Ust bara vel á þaö. Eg fer reynd-
ar litið á tónleika en þaö kemur þó
fyrir.
Gunnar Þorsteinsson, sjómaður frá
Neskaupstaö: Eg er utan af landi en
mér líst mjög vel á þaö. Eg fer mikið
á tónleika þegar færi gefst.
Elsa Guðsteinsdóttlr leiðsögumaður:
Eg tel aö það sé þörf fyrir tónlist-
arhús i borg eins og Reykjavík. Eg
fer á tónleika Sinfóníunnar þegar hún
leikur léttari tónlist.
Margrét Signrðardóttir afgreiöslu-
stúlka: Mér líst mjög vel á þaö en ég
fer ekki mjög oft á tónleika.
wnr/iTW v
DV. MIÐVKUDAGUR19. OKTOBER1983.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Málflutningur
Alþýðubandalagsins:
Glórulaust
ofstæki
Guömundur Guðmundsson skrifar:
A fundum Alþýöubandalagsins aö
undanfömu hefur enn komið i ljós að
málflutningur forystumanna þess hef-
ur sem fyrr einkennst af glórulausu
ofstæki. Steininn hefur þó tekið úr aö
því er varðar oröbragö formannsins,
Svavars Gestssonar, sem tók fullan
þátt í fjórtán kjaraskerðingum síöustu
rikisstjómar og sendi þar með launa-
fólki í landinu nöturlegar kveöjur. Þá
má ekki gleymast hversu grátt
„formaðurinn” lék húsnæöiskerfið í
iandinu og setti þann málaflokk í slikt
öngþveiti aö erfitt hefur reynst aö
greiða úr þeirri flækju. Hefur enginn
<1
„Margir hinna greindari manna i Ai-
þýðubandalaginu teija að for-
mannstið Svavars ættiað Ijúka sem
fyrst," segir Guðmundur Guð-
mundsson m.a. í bréfi sínu.
húsnæðismálaráðherra staðið sig jafn-
slælega. Ekki var frammistaðan
beysnari hjá Svavari á öðrum sviðum
og ýmis tiltæki hans og viðbrögð hin
furðulegustu. Má þar minna á tillögu
hans um neyðaráætlun (sem hann af-
neitar nú), heillaskeyti hans til
franskra og griskra krata, hinar tutt-
ugu spumingar við stjórnarmyndunar-
tilraunir og tilraunir til að „hanga á
umboðinu” þar að lútandi.
öll þessi framganga gekk ekki ein-
asta fram af forystumönnum annarra
flokka í landinu heldur og hinum
greindari mönnum í flokki Svavars.
Telja þar margir að formannstíö hans
ætti að ljúka sem fyrst, áður en
uppdráttarsýkin veikir flokkinn meira
en orðiö er. En eins og kunnugt er hafa
flokksmenn Svavars orðið að horfa upp
á fækkun í þingliði Alþýðubandalags-
ins úr fjórtán niður í tiu á fáum árum.
Enda sjá nú fylgismenn annarra
vinstri flokka að fáránlegt er að hugsa
til einhverrar meiriháttar samvinnu
við Alþýöubandalagið undir núverandi
forystuþess.
Leikstjórinn, Stefán Baidursson, ásamt aðalleikendum í framhaldsleikritinu „Tordyfillinn fíýgur i
myrkrinu".
Skemmtilegt
framhaldsleikrit
—en flutt á óhentugum tíma
1 Magnús Ólafsson, Hafnarfirði, skrifar:
Mig langar til að vekja athygli
þeirra sem ekki hafa fylgst með fram-
haldsleikritinu „Tordyfillinn flýgur í
rökkrinu”, sem flutt er á þriðjudags-
kvöldum, að hér er á feröinni, ekki
bara bama- og unglingaleikrit, eins og
auglýst er í dagskrá, heldur þræl-
spennandi leikrit fyrir alla fjöl-
skylduna.
Allur flutningur er til fyrirmyndar
og framsetning leikstjórans á leik-
ritinu stórskemmtileg.
Það furöulegasta er að leikritið
skuli sent út klukkan átta þegar flestir
eru að horfa á fréttir í sjónvarpinu.
Skora ég hér með á þá sem þessu ráða
að færa leikritiö á hentugri tima.
Telex-
truflun
Þorsteinn Garðarsson hringdi og
sagði okkur að hann hefði þurft að
senda telex til fjármálaráðu-
neytisins. Þar sem fjármála-
ráðuneytið hefur ekki eigið telex
fékk Þorsteinn þær upplýsingar
þar að hann skyldi senda það á
telex viöskiptaráðuneytisins, sem
hann og gerði. Hann fékk þá
upphringingu frá starfsmanni
viöskiptaráðuneytisins sem sagöi
honum að hann ætti ekkert með að
senda þetta til þeirra, auk þess
sem hann hefði truflað telexundir-
búning hjá þeim.
Filman
fannst á
Kaldadal
Bjöm Ingi Þorvaldsson leit inn á
ritstjómarskrifstofu DV með filmu
sem hann fann á Kaldadal um
mánaöamótin september-október.
Filman er af tegundinni
Agfachrome 100 Professional.
Eigandi filmunnar getur vitjað
hennar hjá DV, Síðumúla 12—14.