Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.1983, Qupperneq 22
22
DV. ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER1983.
20 tegundir
af silfurplett
gjafavöru
á mjög hagstæöu veröi.
Búsáhöld og gjafavörur
Glæsibæ,
sími 86440.
SMÁAUGLÝSINGADEILD
Þverholti 11. Sími27022.
VERÐUR OPINI
um jóiahátíðina sem hérsegir:
FÖSTUDAG 23. DES.J
OPIÐ TIL KL. 18.
LOKAÐ
•.aðfangadag, •
jóiadag og *
annan íjólum.
OPIÐ
þriðjudag 27. des.
kl. 9-22.
Gleðilegjól!
Gleðilegjól!
Slysavarnarfélaginu
launuð björgunarstörf
— vegna þýska skipsins Kampen sem fórst 1. nóvember
undan suðurströndinni
Otgeröarfyrirtæki þýska skipsins
Kampen, sem fórst undan suöurströnd
Islands þann 1. nóvember síöastliöinn,
færði Slysavarnafélagi Islands aö gjöf
tíu þúsund mörk í þakklætisskyni fyrir
björgun skipverjanna.
Þýski sendiherrann á Islandi afhenti
Haraldi Henrýssyni forseta SVFl
björgunarlaunin fyrir hönd þýsku út-
gerðarinnar.
Haraldur Henrýsson sagöi viö þetta
tækifæri aö peningarnir yröu notaðir
til að tryggja og efla öryggi sjómanna
á hafi úti. Hann sagöi einnig að þessi
gjöf væri virðingarvottur viö alla þá,
sem á einhvern hátt tóku þátt í
björgunaraögeröunum og þar nefndi
hann sjómenn, starfsmenn strand-
stööva, starfsmenn flugumsjónar,
bæði í Vestmannaeyjum og Reykjavík,
og björgunarsveit bandaríska varnar-
liösins. Þá minnti hann á mikilvægi til-
kynningaskyldunnar þar sem þaö
kæmi aö góðum notum aö vita hvar
skip væru stödd svo hægt væri aö senda
þauá vettvangef slysyröu. -GB.
Þýski sendiherrann afhendir Haraldi Henrýssyni, forseta Slysavarna-
fólagsins, ávisun upp A tiu þúsund mörk frá eigendum þýska skipsins
Kampen. DV-mynd GVA.
i
Hljómsveitin Mezzoforte hált tvenna hljómleika í Hðskólabíói á sunnudag. Þeir fyrri voru haldnir á vegum
Flugleiða fyrir ýmsa hópa fólks sem aö öllu jöfnu eiga ekki kost á að sækja skemmtanir af þessu tagi. Þeir
síðari voru öllum opnir og var húsfyllir eins og nærri má geta. Myndin er tekin á fyrri hljómleikunum.
DV-mynd GVA.
NÝMIÓLK
— annállaf
samlagssvæðinu
„Þetta er eins konar malbiksannáll,
sagt frá því helsta sem gerst hefur á
samlagssvæöinu á heilu ári,” sagði
Jónas Guömundsson rithöfundur í viö-
tali viö DV en nú hefur komiö út bókin
Nýmjólk sem er safn blaðagreina sem
birst hafa í DV, Tímanum og víðar á
síðasta ári. Að sögn Jónasar hefst ann-
állinn um þaö bil sem veriö er aö
hleypa til og endar um borö í gull-
skipinu.
Kápa bókarinnar er nýstárleg, í
mjólkurfernulíki, og segir á kápunni
aö innihaldiö sé „geymsluþolið”. En
varðandi þaö hversu bókin er seint á
ferö sagöi Jónas aö sér væri fariö eins
og bóndanum sem eilíft væri aö tapa á
mjólkurfrkamleiðslu. Þó heföi bókin
ekki teppst í f jallasköröum eöa fengið
vont flugveöur eins og mjólkin sem
send er daglega meö skrúfuþotu til
Vestfjarða.
Þaö er bókaforlagiö Skákprent sem
gefur út bókina.
-óbg.
0
Jónas Guðmundsson rithöfundur með
bókina.