Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1984, Blaðsíða 5
DV. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR1984.
5
Þessir kappar sklpa nemendahljómsveit Tónlistarskóla FÍH sem hefur djammiö
á sunnudag.
Djamm-sessíón í Kvosinni
Nýstofnaður Jazzklúbbur Reykja-
víkur hefur starfsemi sína með
djamm-sessíón sunnudaginn 22.
janúar. Leikurinn hefst kl. 15 á
veitingastaönum Kvosinni.
Þrjár sveitir munu koma fram á
sessíóninni. Fyrst verður það sveit
skipuð nemendum úr jassdeild Tón-
listarskóla FÍH, og mun sá háttur
verða hafður á í framtíðinni. önnur
sveitin er undir stjóm Kristjáns
Magnússonar píanóleikara og sú
þriðja er tríó Guðmundar Ingólfsson-
ar.
Djamm-sessíónin verður þó ekki ein-
göngu bundin við þessar þrjár sveitir
því að gestum er heimilt aö koma með
eigin hljóðfæri og lóta í sér heyra.
Komist hins vegar ekki allir að munu
þeir verða settir á biðlista fyrir næstu
sessíón.
-GB
Líkleg orsök vélarbilunarinnar í Engey:
LAUS BOLTI
Talið er liklegt aö orsök
vélarbilunarinnar í togaranum Engey
hafi verið sú aö bolti hafi losnað i vél-
inni. Við það varð sprenging og þung
járnstykki þeyttust um vélarrúmið.
Agúst Einarsson, framkvæmda-
stjóri Hraðfrystistöövarinnar hf., sem
gerir togarann út, sagði að ráðgert
hefði veriðaðhefja vinnslu innan tíðar
en nú yrði að hugsa allar áætlanir upp
á nýtt. Hann sagði að togarinn yrði
frá veiðum í marga mánuði. Erlendir
sérfræðingar eru komnir til landsins til
aö rannsaka atvikið.
„Þetta er stórkostlegt áfall, ekki
bara fyrir útgerðina, heldur einnig
fyrir sjómenn og verkafólk í landi,”
sagðiÁgúst.
Tjón er talið skipta tugmilljónum.
Þó.G.
Magnús Gústafsson, hinn nýi forstjóri
Coldwater:
Fyrst er að kynnast
samstarfsmönnunum
„Þetta hef ur allt gerst svo snögglega
að ég get ekki á þessari stundu sagt
neitt um væntanlegt starf mitt hjá
Coldwater. Nú er ég að vinna að mál-
efnum Hampiðjunnar en á næstunni
mun ég skreppa til Bandaríkjanna til
að kynnast væntanlegum samstarfs-
mönnum mínum þar og ég býst við að
flytja alveg út í apríl,” sagöi Magnús
Gústafsson, núverandi forstjóri
Hampiðjunnar og nýráðinn forstjóri
Coldwater, er DV hafði samband við
hann í Færeyjum í gær.
Magnús hefur í tíu ár unnið að
veiðarfæraframleiðslu en snýr sér nú
að hinum enda sjávarútvegsins,
afurðasölu á erlendum markaði: „Við
lifum öll á þorski og erum svo tengd
honum að hver grein útvegsins er ekki
langt frá hinni,” sagöi Magnús. -gs.
Viltu hagræða
opinberum rekstri?
Samstarfsnefnd um hagræðingu i
opinberum rekstri hefur ákveðiö að
efna til hugmyndasamkeppni um hag-
ræðingartúlögur.
Tillögurnar skulu ekki einungis miða
aö sparnaöi heldur einnig aö því aö
bæta þjónustu opinberra stofnana við
almenning. Þeir sem vilja leggja fram
tiúögur skulu skila þeim ásamt skrif-
legum rökstuðningi til nefndarinnar í
pósthólf 10015, 130 Reykjavík, eða tU
Fjárlaga- og hagsýslustofnunar i
Amarhvoli. Veitt verða þrenn verð-
laun fyrir bestu tUlögurnar, 1. verð-
laun að upphæð 10 þúsund krónur, 2.
7.500 krónur og 3. 5 þúsund krónur.
Nefndin hefur gefið út bækling þar sem
lýst er nánar markmiði samkeppn-
innar og hefur hann verið sendur til
ríkisstofnana og sveitarfélaga.
Samkeppnin hefst formlega 1. febrúar
og lýkur 31. maí. -ÖEF.
MANSTU LAGIÐ?
Nokkrir þekktustu söngvarar
þjóöarinnar munu taka þátt í skemmt-
un á veitingahúsinu Broadway á
næstunni. Skemmtunin heitir „I gegn-
um tíöina. Manstu lagið?” og er
ætlunin að bera á borð fyrir gesti
margar helstu dægurflugumar sem
suðað hafa á Islandi.
Meðal skemmtikraftanna má nefna
Ragnar Bjarnason, Omar Ragnarsson,
Björgvin Halldórsson, Pálma
Gunnarsson, Gunnar Þórðarson og
Þuríði Sigurðardóttur. Frumsýning er
27. janúar og verð meö mat er 750
krónur.
-Þó.G.
Hornafjörður:
FISKKÖKUR í FRYSTIHUSINU
Frá Júlíu Imsland, fréttaritara DV
á Hornafirði.
Fimm bátar eru byrjaðir veiðar á
línu og hefur aflinn verið frá 3 og upp i
6 tonn í róðri. Þetta er aUt úrvals-
fiskur, bæði þorskur og ýsa.
Verkstjórar hjá frystihúsinu bmgðu
sér til Dalvíkur ög Húsavíkur einn
daginn til að kynna sér framleiðslu á
fiskkökum og er byrjuð vinnsla á þeim
hér. Fiskur sem annars fer í blokkir er
notaöur í þessar kökur.
Fiskurinn er settur í formflökunar-
vél sem þjappar honum saman og
mótar 14 mm þykkar 70 g kökur sem
pakkað er fyrir Bandaríkjamarkaö.
Það eru 4 menn sem vinna viö þetta og
afkasta 25 kössum, sem í eru 20,8 kg, á
klukkustund.
Búseti mótmæBr tútam
félagsmálaráðherra
„I viðræðum við félagsmálaráð-
herra og aðstoðarmenn hans hefur
ávaUt komið fram sá skilningur aö
með þvi frumvarpi til laga um
Húsnæðisstofnun rikisins, sem lagt
var fram á Alþingi fyrir síðustu jól,
sé opnaður möguleiki fyrir húsnæðis-
samvinnufélög að fá lán úr
Byggingarsjóði verkamanna. ”
Þannig segir í tilkynningu, sem
Húsnæðissamvinnufélagiö Búseti
hefur sent frá sér, vegna ummæla
sem höfð hafa verið eftir Alexander
Stefánssyni félagsmálaráöherra. I
tilkynningu Búseta segir að i þessum
viðræðum hafi verið vísað til c-Iiðar
33. greinar frumvarpsins um lánveit-
ingar tU félagslegra íbúðabygginga,
þar sem félagssamtökum gæfist
kostur á lánum sem næmu allt að
80% byggingakostnaðar tU 31 árs, til
að reisa leiguibúöir fyrir félagsmenn
sína.
I tilkynningunni segir orðrétt: „I
Húsnæðissamvinnufélaginu Búseta
eru nú nokkuð á þriðja þúsund
félagsmenn og stærstur hluti þeirra
eru leigjendur. Konur eru nærri
helmingur félagsmanna, ekki síst
einstæðar mæður. Þá hefur mikill
fjöldi námsfólks gengið í félagið og
einnig fjöldi eftirlauna- og örorku-
þega. Innan félagasins eru því þeir
þjóöfélagshópar, sem nú eru í
mestum vanda staddir í húsnæðis-
málum, en markmiö nefndrar
greinar er einmitt að leysa sérstak-
lega vanda þeirra sem hafa minnsta
möguleika til að eignast eigiö
húsnæði.”
-ÖEF.
til að hressa upp á híbýlin með Árfellsskil-
rúmum.
Hafið samband og teiknarar okkar koma
og gera tillögur.
Kostnaður við hönnun er innifalinn í
verðinu.
HAGSTÆÐ GREIÐSLUKJÖR.
Opið
laugardag
KI.9-16
Armúla 20,
símar 84630
og 84635.
OPIÐI
ÖLLUM
DEILDUM
mánud. fimmtud. kl. 9
föstudaga kl. 9 20,
laugardaga kl. 9 16.
RAUTT - BLATT
BRÚNT - BEIGE
HAGSTÆÐIR
GREIÐSLU
SKILMÁLAR
Jón Loftsson hf
HRINGBRAUT 12^
SÍM110600
-GB.