Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1984, Blaðsíða 11
Kf>nr ci AT-pA » t r*> rrTt'A » r»T xrr
DV. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR1984.
HUDSON
"•XIF/ERI
„Góð þjónusta
ekki rekin nema
með góðu fólki”
— segír Björa Bjömsson, nýr póstmeistari
Bjöm Bjömsson tók við embætti
póstmeistara i Reykjavík á hádegi
síðastliöinn þriðjudag. Á sama tíma lét
hann af embætti útibússtjóra i póst-
húsinu R 5, þar sem hann hafði starfaö
í 20 ár. I póstþjónustunni hefur hann
verið í 37 ár. Björn var spurður hvort
breytingar á högum hans yrðu
skemmtilegar.
,,Já, mjög skemmtilegar,” sagöi
hann. „Sérstaklega vegna þess að nú
er á lokastigi nýbygging póstsins við
Ármúla. Það er áætlað að flytja þar
inn þann 1. mai og þá er meiningin aö
stórbæta póstþjónustuna.”
Bjöm hefur allan sinn starfstima
veriö m jög virkur í póstmannafélaginu
og var formaður þess síðastliðin átta
ár. Hann sagði að þessi reynsla sín
kæmi sér vel í nýja starfinu.
,,Ég held að það sé gott að hafa bæði
verið í rekstrinum og unnið fyrir
mannskapinn, þegar maður tekur við
svona embætti. Mannlegi þátturinn má
ekki gleymast og góö þjónusta verður
ekki rekin nema með góöu fólki.”
— Þú minntist á nýtt húsnæði áðan,
ætlar pósturinn að fara að brydda upp
á einhverjum nýjungum í því tilefni?
„Þarna verður hægt að koma við
betri vinnubrögðum og póstþjónustan
hefur sett sér það markmiö að bera út
bréf daginn eftir að þau eru póstlögð,
eða að koma þeim um borð i sam-
göngutæki.”
Aðspurður um nýja tækni, sagði
Bjöm að franskir sérfræðingar, sem
hér voru, hefðu ekki talið það borga sig
að koma upp vélasortéringarkerfi, þar
sem póstmagnið væri það lítið. Því
yrðu ekki stórfelldar breytingar á því
sviði.
— Hvað um aö bera póst út tvisvar á
dag, eins og gert var einu sinni?
„Það hefur ekki borið á góma, en
það er kannski ekki þörf á því ef viö
bætum sundurlesturinn.”
— En segðu mér, Bjöm, safnar póst-
meistari frímerkjum í frístundum
sínum?
„Ég gerði það í gamla daga, en nú
kaupi ég alltaf nokkur fyrsta dags
umslög.”
— Hvað gerir þú þá af þér í frístund-
unum?
„Þær hafa farið mikið í póstmanna-
„Póstþjónustan hefur sett sér það
markmið að bera út bréf daginn eftir
að þau eru póstlögð,” segir nýi póst-
meistarinn í Reykjavík, Bjöm Bjöms-
son. -DV-mynd Bj. Bj.
félagið, en ég er mikið fyrir útiveru,
göngur og skíöi og ég syndi 400 metra á
■ dag. Það er mjög mikil heilsubót,”
sagði Bjöm Bjömsson póstmeistari.
Bjöm er kvæntur Jónu Finnboga-
dóttur. Hún vinnur á bæjarsímanum
og þau eiga 4 uppkomin böm.
-GB.
Drangsnes:
Rækjubátar afla sæmilega
Otíð hefur verið mikil á Drangsnesi
að undanförnu, eins og annars staðar.
Ekki hefur verið mokað snjó af leiðinni
á milli Hólmavíkur og Drangsness
síðan fyrir jól, eöa þangaö til 18.
janúar, að hafist var handa að opna
leiðina og er hún nú orðin fær. Leiöina
á að opna á hálfsmánaðarfresti, en
sökum ótíöar hefur ekki verið hægt að
framkvæma þaö. Samgöngur við
Hólmavík hafa farið fram á sjó þennan
tíma og er það eini samgöngumátinn
við Drangsnes þegar svona háttar.
Frá Drangsnesi era gerðir út 5
rækjubátar og hefur veiði gengið
sæmilega að undanfömu. Við vinnslu
rækjunnar í landi vinna um 30 manns á
tvískiptum vöktum.
— Tryggvi Ólafsson/Drangsnesi/-GB.
MHogMR:
Keppa til úrslita í ræðukeppni
— í Háskólabíói í kvöld
Urslitakeppni í ræðumennsku fram-
haldsskóla verður í kvöld klukkan níu í
Háskólabíói.
Liðin sem keppa til úrslita eru
ræðulið Menntaskólans í Reykjavík og
Menntaskólans í Hamrahlíð.
Umræðuefniö er: A að leggja
islenska þjóðfélagið niður? Lið MR
talar með tillögunni en lið MH er á
móti.
Aösókn á undankeppnirnar hefur
verið mjög góð. Þannig komu 600 á-
heyrendur á eina keppnina. Og
stemmningin sem ríkir hjá áhang-
endum liðanna er með ólíkindum.
Það er JC Reykjavík sem hefur
staðiö að þessari keppni. Félagið hefur
einnig haldiö ræðunámskeiö í skólun-
um.
-JGH.
Útsölustaðir:
Amaro, Akureyri
Madam
Nana, Breiðholti
Nafnlausabúðin
Olympía, Glæsibæ
Olympía, Laugavegi
Parísarbúðin
Regnhlífabúðin
Sara, Hlemmtorgi
Stella, Bankastræti
Topclass, Laugavegi
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIS HÚSINUI í JIS HÚSINU
OPIÐ I ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 8 í KVÖLD
Þorramatur Bftint ijr JL grillið
í úrvali. kjötborðinu Grillréttir allan daginn
Munið okkar á þorranum: Réttur dagsins: kl. 12—14.
vinsælu þorrabakka. heitt saltkjöt, svið og rófustappa. \ LAMBASNITSEL Verð aðeins kr. 125,00.
OPIÐ Á MORGUN,
LAUGARDAG, KL. 9-16.
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
JIB
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121
Simi 10600