Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1984, Page 13
DV. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR1984.
13
Hvað vantar í
íslenskt stjómkerfí?
Kjallarinn
Islenskt nútímaþjóöfélag skiptist i
þrjá þætti, löggjafarvald, fram-
kvæmdavald og dómsvald, svo sem
segir í kennslubókum.
Nú er svo komið aö mönnum finnst
víöa löggjafarvaldið vera með putt-
ana um of í framkvæmdavaldinu, og
ekki nóg meö aö löggjafarvaldiö ráöi
því hver f er með f ramkvæmdavaldið
hver ju sinni, heldur er aö vasast í því
meira eöa minna sjálf t.
Einnig kemur það oft og einatt
fram að bæði framkvæmdavaldið og
löggjafarvaldið virðast mega brjóta
landslög, þegar svo sýnist, og án
þess að til teljandi hneykslunar eða
vandlætingar komi meðal lands-
manna.
Löngum hefur það verið landlægur
óvani á Islandi að hafa þaö lög sem
mönnum líkar.
Nágrannalönd okkar búa við
áþekkt stjórnkerfi, en þó vantar í is-
lenskt stjómkerfi marga þá þætti
sem þar viðgangast og ætlað er
að hafa hemil á lögbrotum stjórn-
valda.
Einn mikilvægur þáttur er nokk-
urskonar embætti lagaeftirlits-
manns (lagakanslara í Finnlandi,
Riksdagens justitieombudsman í
Svíþjóð).
Valdamikil embætti
Þetta eru valdamikil embætti og
gegna því hlutverki að hafa eftirlit
með því að þjóðþing landanna og
ríkisstjórnir fari að lögum,
sömuleiðis eru þetta stofnanir sem
geta sett þjóðhöfðingja fyrir rikis-
rétt, þó að sjaldan hafi þau stórtíð-
indi gerst.
Til að skýra nánar með hvaða
hætti embættismenn þessara stofn-
ana starfa, er ekki úr vegi að taka
dæmi af íslenskum atburðum.
Fyrir jólaleyfi þingmanna voru
samþykkt á Alþingi fjárlög, sem
öllum bar saman um að brutu gild-
andi lög um úthlutanir til sjóða,
byggingarsjóða og sjóða náms-
manna, svo dæmi séu tekin.
Ef frumvarp þetta heföi verið lagt
fram í Svíþjóö eða Finnlandi hefði
það ekki fengiö að koma fyrir lög-
gjafarsamkundu þessara þjóða,
heldur lent aftur, endursent, á borði
fjármálaráðherra, þar sem vin-
samlega hefði veriö bent á að frum-
varpið bryti í bága við gildandi lög.
Fjármálaráðherra hefðu verið
tveir kostir færir, annars vegar að
leggja fram frumvörp um breyting-
ar á þeim iögum sem fjárlagafrum-
varpiö var í andstöðu viö, eöa breyta
fjárlagafrumvarpinu í samræmi við
gildandilög.
Hefði fjármálaráðherra valið þann
kostinn að halda frumvarpinu til
streitu óbreyttu og án breytinga á
gildandi lögum, hefði hann átt yfir
höfði sér ríkisrétt.
öll frumvörp
Á sama hátt eru öll lagafrumvörp
ríkisstjóma og þingmanna i þessum
löndum látin ganga inn á þing yfir
skrifborð þessa lagaeftirlitsmanns,
sem sker úr um það hvort viökom-
andi lagafrumvörp brjóti í bága við
önnur lög sem í gildi eru, án þess að
breyta þeim.
Þessi aðferð gerir t.d. allar
svonefndar lagahreinsanir óþarfar,
lagasafnið helst hreint af sjálfu sér
með nefndu fyrirkomulagi.
Sömuleiöis bera menn allt aðra
virðingu fyrir landslögum, þar sem
stjómvöld ríða ekki á vaðið með lög-
brot.
Sömuleiðis er réttur ríkisstjórna í
þessum löndum til að gefa út bráða-
birgðalög mjög takmarkaður, og
þarf helst að koma til algert neyðar-
ástand í þjóðfélaginu til að unnt sé að
setja bráðabirgðalög.
Lagaeftirlitsmönnum þessum,
sem hér hafa verið nefndir, ber, ef
þeir geta þvi við komið, að sitja ríkis-
stjórnarfundi og án undantekningar
ríkisráösfundi.
Ef ríkisstjórn tekur athugasemdir
lagaeftirlitsmanns ekki til greina, er
næsta aögerö hans að færa álit sitt í
fundargerö ríkisstjórnar, því næst
hefur eftirlitsmaöurinn samband við
ríkissaksóknara og hæstarétt, með
beiðni um viðeigandi aðgerðir að
lögum.
Þetta er því ótvírætt valdamikiö
embætti, en því verður ekki beitt af
geðþótta, það byggist á eftirliti með
gildandi lagasetningum og kemur í
veg fyrir lögbrot í stjórnsýslu.
Auk þessara lagaeftirlitsmanna er
svo fjöldi annarra lagaeftirlits-
manna, sérstaklega í Svíþjóð, svo
sem lagaumboðsmaður neytenda, al-
mennings o.fl.
Vrturlegrí lausn
Það væri mun viturlegri lausn í
íslensku þjóðfélagi að koma upp
þessu embætti lagaeftirlitsmanns, í
stað þeirra uggvænlegu tíðinda að nú
hafi opinber nefnd lagt til að leggja
niöur embætti ráðuneytisstjóra, slá
BORGÞOR
KJÆRNESTED
FRÉTTAMAÐUR
saman ráðuneytum og setja þau
undir aðstoðarmann pólitísks
ráðherra.
Hér er verið að leggja til nánast
eitthvaö sem jaðrar við einræðis-
hugsunarhátt, þar sem oft á tíöum
pólitískir framagosar æðstu ráða-
manna þjóðarinnar eiga að fá öll
völd yfir ráðuneytum landsins,
stundum um fárra mánaða skeið, en
allt að fjórum árum.
Þá fer nú hugtakið „þingbundið
lýðræði” að verða lítils virði í mínum
huga.
Það er von mín að sem flestir taki.
þátt í umræðu um þessi mál, sem
líkja má við eitt af fjöreggjum ís-
lensks þjóöfélags.
Kjallarinn
Fáein oró um verk-
falloghúsið eiíífa
JÓNAS
GUÐMUNDSSON
RITHÖFUNDUR
Viö sem komin eru á þann aldur að
geta hvenær sem er, svo að segja,
farið að heyra í hjartabílnum í
fjarska, eða getum i versta tilfelli átt
von á þeim svarta ambúlansi
eilífðarinnar, sem hljóölegar fer,
höfum eiginlega lokið, eða lifað sér-
stakan kafla i efnahagssögunni;
sumsé frá einni heimskreppunni í
aðra.
Sú fyrri varð að sögn meðal annars
vegna þess að þá höfðum við ekki
neina hagfræðinga, eða lærða hag-
fræði, en sú síðari mun stafa af hinu
gagnstæða, að við höfum hag-
fræðinga, ef ég les blöðin rétt.
Sú listgrein að stjóma efnahagslífi
þjóöarinnar með sérstökum
íhugunardeildum í bönkum og i
stjómarráðinu virðist nefnilega
aðeins æsa öldugang og sjávarföll í
efnahagskerfinu, fremur en að stilla
storma. Alveg sama þótt þetta sé tal-
inn nútímalegur lífsstíll og nauðsyn-
legur á öld peningafræða.
En við greinum þó ekki þennan
nýja lífsstíl aðeins i hagfræði, heldur
á flestum sviðum. Hið eilífa hús hins
fátæka manns hefur þannig orðið að
víkja fyrir nýrri þjáningu með tvö-
földu gleri og þakleka, þar eð íhugun
af betra tagi telur að þök eigi að vera
flöt á Islandi, eins og í öðram lönd-
um, eins vel þótt úrsynningur sé
annar hér og að bænir vorar fari því
fremur skáhallt tii himna í austan.
Fleira má telja, sem undan hefur
orðið að láta. Meira að segja hafið,
hefur í lærðri íhugun orðið að læstu
fiskabúri, þar sem menn geyma tal-
inn og ímyndaðan fisk sinn á skýrsl-
um, þótt menn hafi annars frá alda
öðli vitað, að það getur orðið upp-
skerubrestur í Atlantshafinu, eða í
heimshöfunum. Þótt á hinn bóginn
heföi það verið ailsherjarregla á
Islandi um aldir, að menn skyldu
komnir að keipum sínum um kyndil-
■messu, eða daginn fyrir vetrar-
vertíð, þá þýddi það samt ekki að
fiskurinn í sjónum lyti sömu lög-
málum. Fiskigöngur vora þá aðeins
væntanlegar — ef þær þá á annað
borð komu, sem gat verið undir hæl-
inn lagt, allt eins vel þótt engir skut-
togarar væru þá á hafinu, eða svo að
segja á hverju heimili, eins og núna.
Heldur voru hér aöeins svört ára-
skip, gerð út úr ruddum vörum, eða
sandi, og svo kannske fáeinir
erlendir duggarar, sem fóra með
lóðir og héldu sig utar.
Menn áttu því ekki aðeins von á
fiski, þegar þeir gengu í verið, heldur
einnig fiskleysi, eða því að uppskeru-
brestur hefði orðiö á hinum mikla
akri, úthafinu, sem var þrisvar sinn-
um stærra en öll lönd jarðarinnar,
enda þótti mönnum nóg um, þegar
það fréttist að höfin þekja rúmlega
sjötiu hundraðshluta af yfirborði
jarðar, eins og það heitir í prentaðri
landafræði.
Og nú virðast þessi fomu sannindi
hafa gleymst líka, eins og kyndil-
messan, og að þessu sinni á bak viö
skrifborð íhugunarinnar, er talar i
lágum hljóðum um sóknarþunga í
fiskabúrinu sínu, meöan vestan-
brimið stynur þungan við eyðilega
ströndina.
Nær alstaðar virðist eymd hafsins
blasa við, að því er virðist. Bátar
snapa gams, togarar fá naumast
annað en ost og konupunga í vörpuna
á eldbjargarmessu og koma svo að
landi, þegar best lætur, með blá-
gómu, nokkur tonn af lífsleiðum
karfa, eða grálúöu, því engan þorsk
er auðvitaö að fá við Island á þessum
tíma, i landinu þar sem menn voru
ekki kallaðir til vetrarvertíðar fyren
um kyndilmessu, er fyrst var talin
von um fiskigöngur.
En það var náttúrlega á þeirri tíð,
meöan hafið var höfuöskepna, en
ekki aðeins skepna, sem setur alla
skrifborðslega íhugun á vonarvöl og
bankakerfið úr skorðum.
Og við okkur sjálf er þarna að
sakast, en ekki bolfiskinn. Við kusum
það sjálf að yfirgefa hið eilífa hús til
að komast undir hið flata þak hag-
fræðilegrar ihugunar, sem þurfti
skrifborð.
Gott fyrir hjartað
Við þessar aðstæður er sérkenni-
legt að sitja við skriftir. Húsið á
sléttunni er niðri og börnin að horfa
á sveitasímann i sjónvarpinu. Komiö
er myrkur. Samt er klukkan ekki
nema sex. Uti brakar draugalega í
frostinu. Jörð er alhvít og svört trén í
kirkjugarðinum bæra ekki á sér, og
það er eins og þau hafi frosið föst í
þessa þjáningarfullu stellingu, eins
og efnahagskerfið.
Lærður maður var að tala um
hjartaö í útvarpinu, en hjartað
heyrir nú á dögum meira undir
læknisfræði og hjartabila en skáld-
skapinn og ástina, eins og i fyrri
„Vonandi kemur því ekki tii átaka, eða mikiiia Leninverkfalla i
Straumsvik þetta árið, meðan stór hluti íslendinga hugsar um það eitt
að eiga fyrir mjólk."
kreppunni.
Þetta var gott erindi og fróðlegt,
en meðal þess sem visindunum var
ráðgáta, var það hvers vegna helm-
ingur af 30 kaupsýslumönnum (ef ég
man rétt) lifði af hjartaáfall, meöan
aðeins tveir verkamenn lifðu slíkt af.
Kannske vissi fyrirlesarinn ekki,
aö þeir sem ekki voru alveg fluttir úr
hinu eilífa húsi, sumsé ólærðir verka-
menn, fóru yfirleitt ekki að kvarta
um hjartaö hér áður fyren þeir vóru
dauðir. Duttu þá niöur á orfin, féllu á
jörðina, með kalt grjótið í fanginu,
eða þeir vöknuðu ekki aftur í sólskini
á árbakka, þar sem þeir höfðu áð út
af svima. Og hesturinn hélt áfram að
bíta og að bíða eftir jarðarförinni.
En þetta er liðin tíð, þótt nú sé líka
erfitt á Islandi. Erfiðara er að lifa í
dag en það var í gær. Allir sjá þetta,
líka þeir sem hafa íhugun fyrir
stafni, lífróður bak við skrif borð hag-
fræðinnar, þvi nú er alvaran sjálf á
ferð. Alvara, sem ekki birtist aðeins
skreiöarbændum, heldur öllum
bændum, sem á sjávarbúskapnum
lifa. Og það er kannske einmitt þá
sem hið eilífa hús birtist upp á nýtt,
með kyndilmessu, soðningu, ýsu-
dúfum og kýrhraunum. Við þurfum
nefnilega lífsbjörg núna, en ekki ráð.
Matvæli og peninga í staðinn fyrir
svartar skýrslur og hagtölur
mánaðarins.
Nær daglega berast okkur fregnir
af því aö hundruðum manna hafi
verið sagt upp störfum í fiskvinnu og
iðnaöi, vegna þess að ekki er komin
kyndilmessa með fiskigöngum, þótt
búið sé að kalla menn undirkeipaog
árar. Og á slíkum stundum vandast
málin á Islandi; þegar stór hluti
manna á ekki lengur fyrir mjólk eða
brennivíni.
Hálaunamenn
í verkfall?
Það hlýtur við þessar aðstæður að
vekja furöu aö þegar þúsundir ganga
atvinnulausar, eru þeir sem nafa
vinnu, og betur borgaða en aðrir
vinnandi menn, aö sagt er, aö búa sig
til verkfalls. Allt eins vel þótt það
geti skaöað þjóöina mikið. Einmitt
núna. Er hér átt við starfsmenn í
álverinu í Straumsvík, en blöðin
segja að þeir heimti nú 40% kaup-
hækkun.
Að vísu mun það vera allt að því
skylda að rangtúlka kaupkröfur
launamanna á Islandi, þannig að
örðugt er að segja tU um það, hvort
þarna er veriö að fara í verkfall sér
til skemmtunar eða ekki.
Það alvarlega við málið var hitt,
að nú stendur yfir nokkurs konar
kyndilmessa stóriðjunnar á Islandi,
en stóriðja borgar þó eftir allt saman
hæstu verkalaun í landinu í dag,
þrátt fyrir aðra ógæfu, samanber
opinberar skýrslur.
Verkfall þetta, ef af verður, mun
draga dilk á eftir sér eða getur gert
það. Orkuverin munu stöðvast inni á
hálendinu, og hugsanlega getur þetta
komið í veg fyrir stækkun álversins, í
veg fyrir japanska aðild að þjáning-
unni hjá jámblendinu í Hvalfirði, og
þá virkjun Blöndu.
G jört hafði veriö ráö fyrir að keyra
orkuverin, sem fullbúin eru, með
fullu álagi á þessu ári og álverið á
fullu, en þaö gefur peninga, bæði þá
aura, sem mældir era í mills og
dollurum, og eins í peningaveltu á
láglendinu.
Þetta eru því ekki átök við Boge-
sen, heldur varða þau þá heimspeki,
sem stunduð var í hinu eilífa húsi,
hins fátæka manns, sumsé að hugsað
sé fyrir næstu dögum. Að vera
kominn að keipum sínum á kyndil-
messu, eða á réttum tíma.
Vonandi kemur því ekki til átaka,
eða mikilla Leninverkfalla í
Straumsvík þetta áriö, meðan stór
hluti Islendinga hugsar um það eitt
að eigafyrir mjólk.
Ennfremur mun það mælast illa
fyrir ef hálaunamenn skemmta sér
mikið í verkföllum, þegar margir
þurfa að draga fram lífið á skóbótum
þeim er menn nefna nú atvinnu-
leysisbætur, ef þeir þá fá þær.
Það skemmir á öörum stöðum líka,
þótt það raski ekki stóriðjuplönum
rikisstjórnarinnar.
Það ber því að sýna aðgát núna,
því við lif um á erfiðum tímum.