Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1984, Page 26
34
DV. FOSTUDAGUR 20. JANUAR1984.
í gærkvöldí______í gærkvöldi
Lítið áhugavert
Ahugi minn á dagskrá ríkisút-
varpsins í gærkvöldi einskorðaöist
við kvöldfréttir og skoöanir Erlings
Sigurðarsonar á islensku máli.
Að vanda gerir ríkisútvarpið ekki
mikiö til þess að tjalda sínu besta þá
daga sem sjónvarpið sendir ekki út.
Að minnsta kosti höfðaði áhugi norð-
lenskra leikara á skáldinu frá Fagra-
skógi ekki til mín né heldur er ég
áhugamaður um ýmsa samleiki í út-
varpssal. Þessi naflaskoðun norð-
lenska útvarpsins er reyndar orðin
til verulegra leiðinda og ég verð stöð-
ugt sannfærðari um að Utvarp Akur-
eyri ætti að verða staöbundin út-
varpsstöð sem aðeins heyrðist til á
Eyjafjarðarsvæðinu. Nær allt efni
þess fjallar um Akureyri, norðlensk
hreppamál og annað það sem vekur
takmarkaðan áhuga okkar sem ekki
þekkjum til þessara sveitahreppa.
Því er ráðið að efla enn frekar Rás 2
og leyfa Norölendingum aö dunda
við að útvarpa sínum áhugamálum
fyrir sitt fólk með sínum norðlensku
mállýtum. Ólafur E. Friðriksson.
Andlát
Hanna Amlaugsdóttir lést 13. janúar
sl. Hún fæddist 29. júlí 1928. Hún sat í
stjórn KFUK í 6 ár, lengst af sem rit-
ari. Um árabil starfaði hún einnig sem
sveitastjóri KFUK. I mörg ár starfaði
Hanna við Borgarspítalann, en hún var
rönkentæknir að mennt. Eftirlifandi
eiginmaður hennar er Bjarni Olafsson,
þeim varð þriggja barna auðið. Utför
Hönnu fer fram frá Neskirkju í dag,
föstudag, kl. 15.
Jón Jónasson frá Efri-Holtum, Lang-
holtsvegi 18 Reykjavík, lést á heimili
sínumiðvikudaginn 18. janúar.
Margrét G. Guðmundsdóttir, Núpa-
bakka 25 Reykjavík, andaðist í Land-
spítalanum 18. janúar.
Lára Kristin Guðjónsdóttir frá Kirkju-
landi, Vestmannaeyjum, verður
jarösungin frá Landakirkju laugar-
daginn 21. janúar kl. 15.
Alls 29árekstrar
íReykjavíkígær:
Tveirfluttir
á slysadeild
Alls urðu 29 árekstrar í Reykjavík í
gær. 1 einum árekstranna urðu meiðsli
á fólki. Það var í árekstri sem varð á
gatnamótum Skógarhlíðar og Suöur-
hlíðar um klukkan hálfátta í gær-
kvöldi.
Tveir voru fluttir á slysadeild, öku-
maður og farþegi, sitt úr hvorum
bílnum. DV er ekki kunnugt um hve
meiðsli þeirra eru alvarleg.
Loðnuskipin
öllíhöfn
Nú eru öll loðnuskip í höfn og ekki út-
lit fyrir að þau fari aftur á veiðar fyrr
en í næstu viku eða undir mánaðamót-
in.
Að sögn Andrésar Finnbogasonar,
starfsmanns loðnunefndar, var enginn
bátur úti i nótt og útlit fyrir næstu daga
er vont. Hann segir menn orðna
þreytta á aflaleysi og meiningúi sé að
bíða svolítið áður en lagt sé út á ný.
,,Það þýöir ekkert að vera að rass-
skella sjóinn,” sagði Andrés ímorgun.
Þó.G.
I dag er til moldar borin Laufey
Markúsdóttir. Hún fæddist í Súðavík 3.
ágúst 1915. Foreldrar hennar voru
hjónin Halldóra Jónsdóttir og Guðjón
Markús Kristjánsson. Arið 1945 giftist
Laufey Bjarna Hálfdánarsyni og
eignuðust þau fjögur börn. Utför
hennar fer fram frá Fossvogskapellu
kl. 15 í dag.
Utför Jóhanns Kristjánssonar frá
Bugðustöðum, Efstasundi 14, verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag,
föstudag, kl. 15.
Kjartan Júlíusson rafmagnstækni-
fræðingur lést 12. janúar. Utför hans
fer fram frá Isafjarðarkirkju laugar-
daginn21. janúarkl. 14.
Sigurður Ólafsson, Hofi Grindavík,
verður jarösunginn frá Grindavíkur-
kirkju laugardaginn 21. janúar kl.
13.30.
Sigurbjörg Björnsdóttlr verður
jarðsungin frá Reykholtskirkju
laugardaginn 21. janúar kl. 14. Bílferð
verður frá Umferðarmiðstöðinni í
Reykjavík sama dag.
Hjörtur Ólafsson, Furugerði 1, verður
jarösunginn frá Eyrarbakkakirkju
laugardaginn 21. janúar kl. 14. Ferð
frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12.
Tilkynningar
Sinfóníuhljómsveit
l'slands
Á morgun, laugardaginn 21. janúar, mun
Sinfóníuhljómsveit Islands halda aukatón-
leika og verða þeir í Háskólabíói og hef jast kl.
14.00. Á efnisskrá tónleikanna eru fjögur
verk.það eru:
J.C. Bach: Sinfónía í D-dúr.
Mozart: Exultate jubilatemotetta.
Bruch: Skosk fantasía fyrir fiðlu og
hljómsveit.
Brahms: Akademiskiforleikurinn.
Þrír voru yfirheyröir hjá Sakadómi
Reykjavíkur í Skaftamálinu svo-
kallaða í gærdag. Það voru Skafti
Jónsson blaöamaður og tveir hinna
kærðu lögregluþjóna.
Þriöji lögregluþjónninn sem kæröur
var verður yfirheyrður hjá Sakadómi í
dag. Þá mun sá varðstjóri er var á
vakt, er umrætt atvik átti sér stað,
Að þessu sinni koma fram með hljðmsveit-
inni tveir burtfararprófsnemendur tónlistar-
skólans í Reykjavík, þær Sigríður Gröndal og
Sigríður Eðvaldsdóttir. Framkoma þeirra
með hljómsveitinni er lokaáfangi burtfarar-
prófsins. Þær stöllur munu innan skamms
halda utan til framhaldsnáms.
Stjórnanda tónleikanna, Pál P. Pálsson, er
óþarfi að kynna. Hann er fæddur í Austurríki
en hefur starfað hér á landi í meira en 30 ár.
Páll hefur stjómað Sinfóníuhljómsveit
Islands ótal sinnum, bæði innan lands og utan.
Þorrablót í
þrítugasta sinn
Árlegt þorrablót Kvenfélags Lágafellssóknar
verður haldiö laugardaginn 28. janúar
næstkomandi, eða um aöra helgi. Er þetta í
þrítugasta sinn sem þær kvenfélagskonur
standa fyrir þorrablóti í Mosfellssveit. Hefst
skemmtunin í Hlégarði klukkan átta en húsið
verður opnað kl. 19.30. Að loknu borðhaldi
spilar hljómsveitin SOS fyrir dansi til klukkan
tvö. Inn í dansinn veröur fléttað heima-
soðnum skemmtiatriðum að vanda.
Miðasala og borðapantanir verða í Hlégarði
mánudaginn 23. janúar og fimmtudaginn 27.
janúarkl. 20.
Á mánudagskvöldið fjölmenna þær
kvenfélagskonur i Hlégarð til að baka laufa-
brauð fyrir þorrablótið. A myndinni má sjá
nokkrar þeirra við laufabrauðsbaksturinn í
fyrra.
80 ára afmæli Fríkirkjunnar í
Reykjavík
1 tilefni 80 ára afmælis Fríkirkjunnar í
Reykjavik hafa verið gefnir út postuhnsvasar
með mynd af kirkjunni. Ágóði af sölu þeirra
rennur í orgelsjóð kirkjunnar.
aöfararnótt 27. nóvember, mæta í
dómsyfirheyrslu í dag.
Eftir helgi, á mánudag, mun svo
fyrsta vitniö fyrir utan Skafta verða
yfirheyrt. Hvenær yfirheyrslunum
lýkur er ekki vitað en ákveðiö verður
jafnóðum, eftir því hvernig mól
þróast, hverjir veröa yfirheyrðir.
Vasarnir eru til sölu hjá eftirtöldum aðil-
um: Islenskum heimilisiðnaði Hafnarstræti 3,
Ágústu Sigurjónsdóttur, Safamýri 52, s. 33454,
Áshildi Daníelsdóttur, Hjallavegi 28, s. 32872,
Bertu Kristinsdóttur, Háaleitisbraut 45, s.
82933. Einnig í kirkjunni á viðtalstíma prests-
’ms.
Opiö hús
I vetur mun verða opið hús í Golfskálanum í
Grafarholti á miðvikudagskvödum fyrir með-
limi Golfklúbbs Reykjavíkur. Þar geta menn
hist, spilað og teflt, leikið borðtennis eða horft
á golfmyndir í video. Veitingar munu vera í
boði. Eru allir kylfingar velkomnir.
Minningarspjöld
Minningarkort
Foreldra- og styrktarfélags Tjaldaness-
heimilisins „Hjálparhöndin” fást á eftirtöld-
tim stööum:
Ingu Lillý Bjarnad., sími 35139,
Ásu Pálsdóttur, sími 15990,
Gyðu Pálsd., sími 42165,
Guðrúnu Magnúsd., sími 15204,
blómaversluninni Flóru, Hafnarstræti, sími
24025,
blómabúðinni Fjólu, Goðatúni 2, Garðabæ,
sími 44160.
Minningarkort
Óháða safnaðarins
verða tii sölu í anddyri kirkjunnar nk. föstu-
dagkl. 13-15 og 16-17.
Minningarkort
Sjálfsbjargar
fást á eftirtöldum stöðum.
Reykjavík:
Reykjavíkurapótek, Austurstræti 16.
Garðsapótek, Sogavegi 108. Verslunin
Kjötborg, Ásvallagötu 19. Bókabúðin
Álfheimum 6. Bókabúð Fossvogs, Grímsbæ v.
Bústaðaveg. Bókabúðin Embla, Drafnarfelli
10. Bókabúð Safamýrar, Háaleitisbraut 58—
60. Vesturbæjarapótek, Melhaga 20—22.
Innrömmun og hannyrðir, Leirubakka 36.
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27. Bókabúðin
Olfarsfell, Hagamel 67.
Hafnarfjörður:
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31.
Kópavogur:
Pósthúsið.
Mosfellssveit:
Bókaverslunin Snerra, Þverholti.
Minningarkort fást einnig á skrifstofu
félagsins Hátúni 12, simi 17868.
Við vekjum athygli á símaþjónustu í sam-
bandi við minningarkort og sendum
gíróseðla, ef óskað er.
Styrktarfélag
vangefinna
Minningarkort Styrktarfélags vangefinna
fást á eftirtöldum stöðum: Á skrifstofu
félagsins, Háteigsvegi 6, Bókabúð Braga,
Lækjargötu 2, Bókaverslun Snæbjarnar,
Hafnarstræti 4 og 9, Kirkjuhúsinu, Klappar-
stíg 27, Stefánsblómi við Barónsstíg og Bóka-
verslun Olivers Steins, Strandgötu 31 Hafnar-
firði.
Vakin er athygli á þeirri þjónustu félagsins
að tekið er á móti minningargjöfumí síma
skrifstofunnar, 15941, og minningarkortin
síðan innheimt hjá sendanda með gíróseðli.
Þá eru einnig til sölu á skrifstofu félagsins
minningarkort Barnaheimilissjóðs Skála-
túnsheimilisins.
Minningarkort
Barnaspítala Hringsins
fást á eftirtöldum
stöðum:
Versl. Geysir hf., Aðalstræti 2.
Jóhannes Norðfjörð hf., Hverfisgötu 49.
Bókabúð Olivers Steins, Strandgötu 31
Hafnarfirði.
Bókaversl. Snæbjamar, Hafnarstræti 4 og 9.
Bókabúðin Bók, Miklubraut 68.
Bókhlaðan Glæsibæ.
Versl. ElUngsen hf., Ánanaustum Granda-
garði.
Bókaútgáfan Iðunn, Bræðraborgarstíg 16.
Kópavogsapótek.
Háaleitisapótek.
Vesturbæjarapótek.
Garðsapótek.
LyfjabúðBreiðholts.
Heildversl. Júlíusar Sveinbjörnssonar,
Garðastræti 6.
MosfellsApótek.
LandspítaUnn (hjáforstöðukonu).
Geðdeild Bamaspítala Hringsins Dalbraut 12.
Olöf Pétursdóttir, Smáratúni 4 Keflavík.
Kirkjuhúsið, Klapparstíg 27. ■
Afmæli
85 ára er í dag Þórhildur B. Jóhannes-
dóttir. Hún fæddist aö Víkingavatni
Kelduhverfi 20. janúar árið 1899. Arið
1932 kvæntist hún Asmundi Eiríkssyni.
Attræður er i dag séra Jakob Jónsson
dr. theol. Hann þjónaöi Hallgríms-
söfnuðu í Reykjavík í aldarfjórðung.
Eiginkona hans er Þóra Einarsdóttir.
Séra Jakob er að heiman í dag.
-JGH
Ráðherra haf nar
kröfugerð BSRB
—við erum f urðu lostnir, segir Kristján Thorlacius
Fjármálaráðherra hafnaði í gær
samningstilboði BSRB um 15 þúsund
króna lágmarkslaun og 4,7% hækkun
launa til að vega á móti minnkun
kaupmáttarfrá 1. október síðastliðn-
um. BSRB gerði einnig kröfu um að
þ&nn kaupmátt skyldi tryggja með
grunnkaupshækkunum á þriggja
mánaða fresti en því var hafnað í
gagntilboði f jármálaráðherra.
I gagntilboði ráðherra segir að
gera skuli samning er feli í sér 4%
meðalhækkun launataxta en þó skuli
gert ráð fýrir því að lágmarksdag-
vinnutekjur félaga í BSRB veröi í
samræmi við það sem um hefur
samist milli ASI og VSl en lágmarks-
laun í landinu eru nú tæpar 11 þúsund
krónur. Tilboð fjármálaráðherra
gerir ráð fyrir framlengingu sér-
kjarasamninga óbreyttra og að
samningurinn skuli gerður til eins
árs.
„Við erum furðu lostnir á þessum
viöbrögðum,” sagði Kristján
Thorlacius, formaður BSRB. „Þetta
tilboö fjármálaráðherra er fráleitt
og við höfum boðið honum að endur-
skoöa afstöðu sina innan viku. Þaö
blasir við öllum að kröfugerð okkar
er í algjöru lágmarki og er sett fram
með tilliti til ástandsins í þjóöfélag-
inu, sérstaklega ástandsins í at-
vinnumálum. Ef við tökum hana til
endurskoðunar þá kemur hún ekki til
meðaölækka.”
Tilboð fjármálaráðherra um 4%
meöalhækkun launataxta nægir ekki
til aö hækka lægstu laun í 15 þúsund
þótt öll hækkunin yrði notuð til þess.
Vegið meðaltal hækkana samkvæmt
kröfugerð BSRB mun vera á bilinu 8
ti!9%. ÖEF
--------------------------------------------------
t
Eiginmaður minn og faðir okkar, Jón Eðwald
Kristjónsson, kaupmaður, Barmahlíð 1, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 20.
janúar kl. 1.30 e.h. Þeim sem vildu minnast hans er
vinsamlega bentá Slysavarnafélag íslands.
Guðlaug Alda Kristjánsdóttir
Gísli B. Jónsson
Kristrún B. Jónsdóttir
Ágústa S. Jónsdóttir.
Skaftamálid hjá Sakadómi:
YFIRHEYRSLUR
ÁFRAM í DAG