Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Side 1
Vt&fiMV
Stórhættulegur maðurgekk laus í Reykjavík ígærkvöldi:
Rændi 2 milljónum króna
vopnaður afsagaðri byssu
ógnaði tveimur starfsmönnum Á TVR og náði dagssölu
verslunarinnar — stolinn bíll ræningjans fundinn
Leigubíllinn
þarsem
hann fannst
íportií
Brautar-
holti
DV-mynd S.
Stórhættulegur, vopnaöur ræningi
gekk laus í Reykjavík seint í gærkvöldi
er DV fór í prentun. Maður þessi hafði
um kvöldmatarleytið náð um tveimur
milljónum króna af starfsmönnum
Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins
viö næturhólf Landsbrnka Islands á
Laugavegi 77. Ræningi m er vopnaður
afsagaöri haglabyssu. Allt lögregluliö
Reykjavíkur leitaði mannsins í gær-
kvöldi og víkingasveit lögreglunnar
var í viðbragðsstöðu, vel vopnum búin.
Til þess að ná peningunum af starfs-
mönnum ATVR beitti maðurinn skot-
vopninu og skaut síðan á bifreið þeirra.
Enginn slasaðist á vettvangi.
Ræninginn tók leigubíl um kl. 19.30 í
gærkvöldi og lét bílstjórann aka sér út í
Nauthólsvík. Er þangað kom dró hann
upp haglabyssuna og skipaði bílstjór-
anum út. Byssumaðurinn tók leigubíl-
inn síðan traustataki og skildi bílstjór-
ann eftir. Byssumaöurinn hélt þá að
Landsbankanum á Laugavegi 77, en
talið er aö hann hafi skilið bílinn eftir
við Hverfisgötu. Þegar hann kom að
aöalinngangi bankans voru tveir menn
frá Áfengisversluninni að leggja inn
andvirði dagssölunnar, u.þ.b. tvær
milljónir króna. Byssumaðurinn
ógnaöi starfsmönnunum tveimur og
heimtaði peningana. Þeir neituöu að
afhenda þá. Maðurinn skaut þá úr
haglabyssunni á Volkswagenbíl starfs-
manna ÁTVR til þess að sýna að
honum væri alvara með hótunum
sínum. Þá afhentu starfsmennirnir
ræningjanum fenginn. Ræninginn tók
þá á rás niður á Hverfisgötu.
Mikil leit stóð yfir í gærkvöldi. Lög-
reglan í nágrannasveitarfélögunum
lokaði akstursleiöum frá Reykjavik.
Talið var að ræninginn væri enn á
leigubílnum, sem er af Peugeot gerð.
Ræninginn var málaður í andliti en
huldi það ekki að öðru leyti. Þegar
síðast fréttist var leitinni beint að
Brautarholti í Reykjavik og svæðinu í
kring lokað. Gert var ráð fyrir því að
vopnuð lögreglusveit færi á staðinn.
Leigubílstjórinn, sem missti bíl sinn
í hendur ræningjans, kom úr yfir-
heyrslu á tiunda tímanum í gærkvöldi.
Hann var greinilega miður sín eftir at-
burðinn.
Auk lögreglunnar í Reykjavík var
kallað út lið Rannsóknarlögreglu
rikisins í gærkvöldi vegna atburðarins.
-JGH/ÖEF/JH.
Síðustu fréttir:
Lelgubíllinn fannst laust fyrir
klukkan 22 í gærkvöldi við Brautarholt
4—6. Ræninginn var enn ófundlnn, en
allt tiltækt lögreglulið hafði verlð kvatt
é staðinn, hverfinu lokað og leit hafin.
gS*
Lögreglumenn fyrir utan Landsbankann ð Laugavegi 77 i gærkvöldi. Þama
náði ránsmaðurinn feng sínum, um tveimur milljónum króna. Hann beitti
afsagaðri haglabyssu og skaut m.a. i bil starfsmanna ÁTVR. Á litlu
myndinni má sjá brettið á Volkswagenbílnum eftir að ræninginn skaut i
það. DV-myndirS.
Lýsing á árásar-
manninum
Leigubílstjórinn, sem rændur
var bílnum, gaf eftirfarandi
lýsingu á árásarmanninum: Hann
er um 180 til 185 sentímetrar á hæð,
um 35 ára gamall, dökkhærður og
með yfirskegg en var jafnframt
með ámálaöan hökutopp. Hann var
klæddur drapplituðum mittis-
jakka, dökkum buxum og með
dökka húfu.