Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Page 20
20 DV. LAUGARDAGUR18. FEBRUAR1984. Skúli Páisson átti sér draum um að tengja Óiafsfjarðarbæ saman með video-köpium og hann lét hendur standa fram úr ermum. Þarna er hann i stúdióinu með sjónvarpsvélina. Skúli hefur mikinn áhuga á að fá sér nýja og fullkomnari. prentaðar og koma þannig á skjánum. Svo má líka benda á aö þetta kerfi getur veriö mjög mikilvægt í sambandi við öryggismál, til dæmis aö kalla út slökkvilið. Þaö getur gefið 12 rásir eins og þaö er í dag en meö smáútbúnaöi allt upp í 100 rásir. Möguleikamir eru þvímjög margir.” — Finnst þér þetta kannski of lítið nýtt? „Já, ég er reyndar frekar óhress meö að bæjarstjómin sjálf skuli ekki hafa notað þetta meira. Hún á aökoma fram og láta fólk til dæmis vita meira hvað er á döfinni í bæjarmálunum.” — Þú ert bifvélavirki og rekur bíla- verkstæði. Er stefnan aö lifa á sjón- varpsrekstriíframtíðinni? . „Ég er búinn aö leggja fram óhemju- vinnu í þetta. Reksturinn kemur alveg sæmilega út en ég hef ekkert út úr þessu sjálfur. Þó er ég ekki í nokkmm vafa um að videoið á eftir að skila mér mikluíaðrahönd.” Það er auðvitað ekkert grin að vinna frameftir öllum nóttum. Útsendingarstjóri verður að fylgjast með þvi að allt sé i lagi og þvi gengur ekki að setja myndsegulband i gang frammi i stofu og fara svo i háttinn. Skúli og Guðrún Hlíf sáu við þessu, þau einfaldlega festu sjónvarp með keðjum upp í loftið fyrir ofan höfðalagið. Nú er á auðveldan, hátt hægt að sameina útsendingarstörf og hvild. Jón Birgir Skúlason, sonur þeirra, liggur i rúminu og fylgist með sjónvarpinu. Iliiin video-væddi Ólafsfjörður: Staðarefnid c er vll nsælast i Video- s kann Höfuöiö og heilinn í videovæðingunni í Olafsfiröi er Skúli Pálsson. Þdð eru um 4 ár síðan hann byrjaði með fyrstu húsin en 1982 fékk þetta byr undir báða vængi. Þá var farið að sýna kvik- myndir og innanbæjarefni, svipmyndir úr bænum og af einhverju markverðu sem geröist. Fréttasendingar urðu reglulegar þá um haustið og hefur verið reynt að halda þeim gangandi vikulega á fimmtudagskvöldum siðan. Fréttirnar eru sjaldan minna en í 20 minútur til hálftíma og fara upp í tvo tima. Video-skann: lafnið er til komið af því, sagði Skúli, að hann heitir líka Jóhann, skann er ":oðið upo úr báðum nöfnun- um. En hvenær byrjaði hann aö leggja kapla í hús? ,,Eg byrjaði á því í maí 1982 og vann þá alveg fram að jólum við lagnir í neðri hluta bæjarins. Núna í lok júlí kláraði ég það sem eftir var. Þannig eiga öll hús í bænum þess kost að tengj- ast kerfinu. Eg fékk hlutlaust leyfi frá bænum á þann hátt aö hann skipti sér ekki af þessu. Það yröi á mína ábyrgð ef ég skemmdi eitthvað og líka ef bær- inn skemmdi eitthvað fyrir mér.” — Er ekki mikill kostnaður viö þetta? ,,Jú, þetta er mjög dýrt en ég hef aldrei lagt það saman.” — Hvemigerþettafjármagnað? „Fólk borgar 340 krónur á mánuði og við skuldbindum okkur til að sýna 9 til 10 tíma á viku af nýju efni. ” — Hvaðan færðu efnið? „Þaö er frá ýmsum aðilum fyrir sunnan.” — Hvað er stór hluti bæjarins tengd- urviðkerfiðnúna? „Það em 130 áskrifendur. Þetta er eitthvað nálægt 60% af íbúðum í bænum.” — Nú sýnir þú meira en kvik- myndir. Hvemig er heimatilbúnu efni tekið? Textlog nayndir: Jén Baldvin Halldórsson BLÁAR MYNDIRERU VIMSÆLAR Video-skann sendi út spuminga- lista til áskrifenda síðastliðið haust þar sem lagðar voru fyrir ýmsar spurningar í sambandi við dag- skrána. Send voru 88 blöð og 81 skil- aðiséreða 92,04%. Hér á eftir fara spumingamar og niðurstöður miðaö við þá sem svör- uðu með já eða nei. I svigunum er já áundanogneiáeftir: 1. Finnst þér of mikið endursýnt? (10—62), 2. Viltu ekki endur- sýningar? (55—9), 3. Er dagskráin of löng? (4—69), 4. Finnst þér videoið koma niðuránámi barna? (7—45), 5. Gengur enskunám þeirra betur? (27—12), 6. Er erfitt að koma bömum frá bönnuðum myndum? (14—45), 7. Líkar þér við að myndimar séu kross-sýndar á föstu- dögum og laugardögum (ath. sömu myndir sýndar þessi kvöld en í öfugri röð)? (59-9), 8. Viltu hafa dag- skrána utan við íslenska sjónvarpið? (44-24), 9. Viltu biátt efni? (52-17), 10. Finnst þér dagskrá frá Olafsfirði nauðsynleg? (69—1) 11. Ef svo er og miöað við þá vinnu sem fer í hana og er nokkuð drjúg, þá er spurningin: Viltu borga meira en dagblaðagjald (ath. fólki var gefinn kostur á aö nefna upphæð)? (50—2), 12. Finnst þérdagblaðagjaldofmikið? (2—72). ,,Staðarefnið í kerfinu er alveg númer eitt og fólk er yfirleitt mjög ánægt með það. Iþróttaefniö er þar langstærst. Eg fór til dæmis um daginn sérstaka ferð og tók upp innanhúss- knattspyrnu í Laugardagshöllinni þar sem Olafsfirðingar vom að spila. Eg sýndi líka í sumar alla leikina sem Leiftur spilaði hér í annarri deild í knattspyrnu og fór stundum líka og tók upp annars staöar. Gústi lýsir þessu öllu, það er stóri kosturinn.” „Miklu meira mas að eiga við þetta en tvö til þrjú ungabörn," sagði Guðrún Hlif, eiginkona Skúla. Hún er útsendingarstjóri og hefur tækja- búnað sinn heima í stofu. Hún vinnur flestar helgar fram tH þrjú og fjögur á nóttunni. — Það er talað um bláma í video- kerfum. Eru bláir litir afgerandi í Video-skann? „Það er fastur tími fyrir ljósbláa mynd hálfsmánaðarlega seint á föstu- dagskvöldum. Hins vegar er alls ekki sýnt ef eitthvað er um að vera í bænum og það er alltaf beðið þangaö til krakkarnir eru örugglega farnir frá sjónvarpinu.” — Hefur ekki verið einhver and- staða í bænum við þetta sjónvarps- kerfi? „Ekkert sem heitir harðsnúin and- staða nema við bíóið þar sem við fengum ekkert að taka upp, hvorki fundi né skemmtanir. Nú eru þar komnir nýir ráðamenn, við erum famir að auglýsa fyrir bíóið og það er staðreynd aö aösóknin þar hefur stór- aukist. Þetta kerfi hefur ótrúlega mik- inn auglýsingamátt. Það er þó fyrst núna sem fyrirtækin hér eru farin að nota sér það. Auglýsingarnar eru

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.