Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1984, Qupperneq 34
34
DV 'LAÚGARDÁGUEÍ8’ FEBRÚAR1984.
Paolo Rossi — sést hér (nr. 9) og viðhlið hans er Michal Platini. Þeir eru nu mestu markaskorarar Juventus.
Þrjár skurdað-
gerðir á úlnlið
Rossi þótti alltof brothættur fyrir
hina hörðu knattspyrnu á Ítalíu
• Paolo Rossi kom til Juventus í heimalandi sínu ítalíu
árið 1972, þá sextán ára gamall. Þá voru hjá Juventus
stórstjörnur eins og José Altafani sem afrekaði það á
ferli sínum að spila fyrir tvö lönd, Brasilíu og ítalíu,
Pietro Anastasi, Roberto Bettega og Dino Zoff voru
einnig í liðinu á þessum tíma og allir ítalskir landsliðs-
menn. Þegar Rossi var að bora sér leið inn í aðalliðið
varð hann fyrir því óhappi að brjóta á sér úlnlið og
þurfti þrjár skurðaðgerðir til að koma honum í samt
lag aftur.
Of brothættur
Þetta var árið 1975 og forráöa-
menn Juventus þóttust sjá að Rossi
væri alltof brothættur fyrir hina
höröu keppni á toppi fyrstu deildar-
innar. Þeir ákváðu því að lána hann
til Como, frekar lélegt l.deildarlið,
en þar spilaði hann aöeins sex leiki
yfir keppnistímabilið 1975—76.
Frá Como lá leiðin niöur í aöra
deild þar sem hann hóf að leika með
Lanerossi á Norður-Italíu. Það var
þar sem hjólin tóku loks að snúast og
Rossi skaust upp á stjömuhimininn í
einu vetfangi. Rossi skoraði eins og
berserkur og keppnistímabiliö 1977—
78 varð hann markahæsti leikmaður
fyrstu deildar með 24 mörk í þrjátíu
leikjum sem þykir nánast ógerlegt í
landi varnarknattspyrnunnar. Þetta
var annað leiktímabil Rossi hjá Lane-
rossi en árið áður hafði hann gert 21
mark um leið og liðiö komst upp í 1.
deild. Fyrsta ár Lanerossi í 1. deild-
inni var dans á rósum, án þyrna.
Með Rossi í fararbroddi náði liöið
sæti í UEFA keppninni og talað var
um þaö sem lið framtíðarinnar.
í landsliðið
Skyndilega var Rossi, sem fram að
þessu hafði aðeins leikiö tvo lands-
leiki, orðinn fastamaður hjá Itölum
og lék í liöinu sem náði þriöja sæti á
HM1978.
Keppnistímabilið á eftir horföi til
verri vegar. Lið Lanerossi reyndist
aðeins vera bóla sem sprakk þegar á
öðru keppnistímabilinu. Þrátt fyrir
að Rossi skoraöi 15 mörk kom þaö
ekki í veg fyrir að þeir féllu í aöra
deild.
Þetta var áriö 1979 og forráöa-
menn Lanerossi ákváðu að lána
Rossi til Perugia fyrir tæpar sautján
milljónir króna til að afstýra fé-
laginu frá gjaldþroti. Perugia liðið
tapaði ekki einum einasta leik en
vegna óhóflegs fjölda jafntefla náði
liðið aðeins þriðja sæti.
Getraunasvindl
En þá var komið að getrauna-
hneykslinu mikla þar sem Rossi og
nokkrir aðrir leikmenn voru fundnir
meðsekir. Þeir voru dæmdir í
þriggja ára leikbann sem seinna var
stytt í tvö ár. Flestir töldu að Rossi
ætti ekki afturkvæmt í fótboltann en
það var nú öðru nær. Hann hélt sér í
toppformi og í maí 1982 var hann á
leið á fornar slóðir. Juventus hafði
samþykkt að greiða 84 miiljónir fyrir
Rossi. Til viðmiðunar þá eru þetta
tvær milljónir punda.
Það olli nokkrum deilum á Italíu
þegar Enzo Bearzot, þjálfari Itala,
valdi Rossi í 22 manna hópinn sem
skyldi taka þátt í lokakeppninni á
Spáni ’82. Rossi hafði sama og enga
leikæfingu, enda nýkominn úr bann-
inu. Margir höfðu það á oröi að hann
hefði ekkert í svo harða keppni sem
HM að gera.
Rossi byrjaði ágætlega, lék vel en
hafði greinilega þjáðst af reynslu-
leysi. Hann skoraði ekki mörk í
fyrstu þremur leikjunum í A-riðli
keppninnar og var tekinn út af í öll-
um leikjunum.
Rossi ræsir
I seinni leiknum í milliriðlinum,
gegn Brössum, fór Rossi svo í gang.
Gerði öll mörk Itala í 3—2 sigri
þeirra og liöið komið í undanúrslit.
Þar mættu Italir Pólverjum og enn
var Rossi á ferð, gerði bæði mörk
ítalska liðsins í 2—0 sigri. I úrslitun-
um voru andstæðingarnir svo V-
Þjóðverjar. Italir sigruðu 3—1 og
gerði Rossi fyrsta mark þeirra og
sitt sjötta í keppninni og tryggði sér
þar með gullskóinn sem markahæsti
maöur keppninnar. Sannarlega
glæsileg endurkoma.
Karl-Heinz Rummenigge — á fullri ferð með knöttinn.
HIN HLIÐIN A
KNATTSPYRNUNNI
Ýmsir fródleiksmolar úr hinum stóra heimi
Það eru æði margir sem finnst timi
til kominn aö lifga upp á nöfn ensku
knattspyrnuliðanna sem oftast heita
eftir heimabæjunum. Nöfn eins og
Barnsley, Sunderland og Southamp-
ton eru óneitanlega nokkuð dauf
miðað við nöfn á amerískum ilðum
eins og Chicago Stings, Tampa Bay
Rowdies og Portland Timbers.
Úti í hinum stóra heimi heyrast
nöfn eins og Engisprettumar, Eikar-
hjartað, Svartaskógarpúkar, Hinir
ellefu ósýnilegu, Grænu bufflarnir,
Eliefu varnarleikmenn, Vígamenn
heilags Jósefs, og Rafalarnir svo
eitthvað sé nefnt.
En það er einnig til aö lið séu skírð
eftir enskum liðum. Þannig heitir
eitt af bestu liðum í Chile, Everton.
Liverpool er frá Urugay og Arsenal
eregypsktliö.
Þeir eru ekkert að tvínóna viö hlut-
ina úti í Sómalíu. Þar lögðu þeir
niður landsliðiö eftir að það hafði
verið rótburstað af landsliði
Rwanda. Annað lið sem var bannað
var lögguliðið. Það voru allir orðnir
svo leiðir á að það vann alltaf deild-
ina að stjórn landsins lýsti yfir aö
þaðværiólöglegt.
Englendingar voru ekki fyrstir til
að koma þriggja stiga kerfinu á.
Lönd eins og Alsír, Marokkó og Túnis
hafa verið með þetta árum saman.
En þeir gefa bara tvö fyrir jafntefli
og eitt fyrir tap svo það kemur út á
eitt.
Annars er Alsír bara meö áhuga-
menn i fótboltanum og sölur á milli
liða eru bannaðar. Það er heldur
ekki vel séö i Senegal að menn séu að
flandrast á milli liða. Þegar lands-
liðsmarkvörðurinn Mansour Wade
ákvað að hætta að leika með knatt-
spyrnuliði lögreglunnar og fara til
erkifjendanna, Jóhönnu af Ork,
brugðust „félagar” hans í löggunni
ókvæða við og vörpuöu honum í stein-
inn.
I mörgum löndum eru mútur sjálf-
sagður fylgifiskur knattspyrnu. I
Suður-Ameríku játuðu þrjú félög að
hafa borgaö 60.000 dollara til að
undanúrslitin í Coba Libertadores
bikarkeppninni færu eins og þeir ósk-
uðu. I þessari keppni virðist allt
leyfilegt og heimaliðin hella laxer-
olíu í vatn gestanna svo að þeir
hiaupa allar 90 minúturnar.
I S-Ameríku eru mútur svo algeng-
ar að þrír dómarar eru alltaf út-
nefndir til að dæma hvem leik, af
þeirri ástæðu að erfiðara sé að múta
þremur mönnum en einum.
Rétt áður enn leikurinn hefst
draga vitringamir þrír um hver á aö
dæma. Hinir tveir verða línuverðir.
I Colombíu var dómaravanda-
máiið orðið svo mikið aö það var
farið að flytja inn dómara og 24
stundum fyrir upphaf helgarleikj-
anna er þeim safnaö saman á af-
skekktan stað uppi á fjalli þar sem
ekki einu sinni er sími. Þannig veit
enginn hvaða dómari dæmir hvaða
leik fyrr en hann hleypur inn á völl-
inn.
Það er heidur ekki svo auðvelt að
vera dómari á Spáni þar sem liðin
geta neitað aö láta ákveðna dómara
dæma leiki sína ef þeim list ekki á
þá. Þetta notfæra liðin sér óspart og
algengt er að dómarar dæmi aðeins
14 leiki eða minna hvert keppnis-
tímabil. Þá missa þeir réttindin
fyrir að vera ekki í æfingu.
Þeir einu sem ekki mega gagnrýna
dómai'a eru leikmenn og fram-
kvæmdastjórar. Enski þjálfarinn
Les Shanon sem starfaði í Grikklandí
var settur í margra leikja bann fyrir
að kalla dómara fataskipting. Sögu-
sagnir segja að dómarinn hafi slegiö
hann í hausinn með handtösku í
búningsherberginu eftir leikinn.