Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1984, Blaðsíða 4
4
DV. LAUGARDAGUR17. MARS1984.
Hin hliðin á íþróttamanninum:
Hér með hleypum við af stokkunum nýjum þætti, ef
svo má að orði komast, í helgarblaði DV. Ætlunin er að
ræða vikulega við þekkta íþróttamenn og í stað þess
venjulega, það er að ræða við þá um íþróttirnar sjálf-
ar, munum við reyna að sýna lesendum hina hliðina á
viðkomandi íþróttamanni.
Sá sem fyrstur lendir í klóm okkar er fyrir löngu
landskunnur knattspyrnumaður. Frægastur er hann ef
til vill fyrir það hversu mörg mörk hann hefur skorað á
ferli sínum. Fleira veldur þó frægðinni. Hann er sonur
Alberts Guðmundssonar sem eins og kunnugt er
gegnir embætti f jármálaráðherra. Lengst af hefur Ingi
Björn Albertsson leikið knattspyrnu með Val en einnig
með FH. Þá hefur hann einnig leikið með landsliði voru
og ávallt staðið sig með sóma.
vel með hestamennskunni. Eg hef
aðeins verið að leika mér í golfi og
langar mikið til að spila meira eftir
að knattspyrnuferlinum lýkur. ”
„Oft erfitt að
vera sonur Alberts
Guðmundssonar”
Nú ert þú sonur Alberts
Guðmundssonar fjármálaráðherra.
Hann er þekktur maður. Hefur það
haft einhver áhrif á þinn persónu-
leika?
„Já, sjálfsagt hefur það haft ein-
hver áhrif á persónu mína. Það hefur
ekki alltaf verið auðvelt, oft á tíöum
frekar erfitt, en ég held að það hafi
„Afskipti af stjórnmálum eru
hlutur sem ég get farið út í síðar
meir. I dag hef ég ekki hug á því. Hef
engan áhuga á að setjast á rassinn í
svoleiðis „hobbíi”. Hitt er svo annaö
mál að ég held að allir hafi áhuga á
stjórnmálum að einhverju leyti. Eg
fylgist með úr fjarlægð. Karl faðir
minn sinnir alveg fjölskyldustarfinu
í dag í pólitíkinni og jafnvel meira en
það.”
Ert þú alltaf sammála hans
hugmyndum og ákvörðunum?
„Nei, það er ég ekki. Viö erum tveir
persónuleikar og höfum oft ólíkar
skoðanir á ýmsum málum. Við
fæddhbí
FRAKKlANP'
„Eg er fæddur í Nice í Frakklandi
3. nóvember 1952. I Frakklandi var
ég til þriggja ára aldurs en þá fluttist
ég til Islands og hef verið hér síöan.
Mína skólagöngu hóf ég í Laugarnes-
skólanum en fór síðan í „gaggó” í
Vogaskóla. Þaðan lá leiðin í
Verslunarskólann og þetta er nú öll
menntunin fyrir utan bílprófið.”
Þú starfar við fyrirtæki föður þíns,
ekki satt?
„Jú, það má segja að ég sé nokk-
urs konar heildsali. Viö flytjum inn
margar tegundir af vörum, vín,
tóbak, sælgæti, snyrtivörur og meira
að segja vinnuvélar. Eg gegni flest-
um störfum hjá fyrirtækinu, allt frá
störfum sendilsins og upp í heildsal-
anssjálfs.”
Ahugamál?
„Þau eru mörg. Það er auðvitaö
þetta klassíska, fjölskyldan og
heimilið, en mín persónulegu áhuga-
— DV kynnir hina
hliðina á Inga Birni
Albertssyni,
knattspyrnumanni
og þjálfara
mál tengjast öll sportinu á einn eða
annan hátt. Eg hef lengi haft mikinn
áhuga á hestum og hestamennsku.
Atti hesta ekki fyrir löngu og það er
draumurinn að eignast hesta aftur.
Þaö er gott fjölskyldusport svo
framarlega sem afgangurinn af fjöl-
skyldunni er ekki dauöhræddur viö
hesta og þar á ég auövitað aðallega
við krakkana. Nú, svo er það golfið.
Eg hef mjög gaman af golfinu. Það
er fjölskylduíþrótt og hentar mjög
átt nokkuö mikinn þátt í að herða
mann upp. Eg hef alltaf vitað sonur
hvers ég er og oft hef ég fengið að
heyra þaö. Hann hefur borið marga
titlaumdagana.”
Þú hefur ekki hugsað þér að fara út
í stjórnmálin?
Knattspyrnukappinn
sigurstundu.
Ingi Björn
ræðum mjög sjaldan um pólitík.
Hann er svo upptekinn maður að ég
nánast sé hann ekki dögunum
saman.”
„Einbeiti mér að
fjölskyldunni og
fyrirtækinu í fram-
tíðinni”
Lokaspurning, Ingi Björn. Befur
þú ákveðið að einbeita þér að ein-
hverju sérstöku öðru fremur þegar
afskiptum þinum af iþróttum lýkur
eða lýkur þeim kannski aldrei?
„Það veit ég bara ekki. Jú, ég hlýt
einhvern tímann að hætta í íþróttun-
um. Nú, hvaö fyrri hluta spurningar-
innar varðar þá fer óneitanlega mik-
ill tími í sportið. Eg mun einbeita
mér að því í framtíöinni að byggja
sjálfan mig, fjölskylduna og fyrir-
tækið upp og gera allt þetta þrennt
eins gott og hægt er. Það mun ég
hafa að leiðarljósi eftir að blessuðum
æfingunum og keppninni lýkur,”
sagði Ingi Björn Albertsson. -SK.
Dr. Hook er uppáhaldshljómsveit
Inga Björns.
FULLT NAFN: Ingi Björn Alberts-
son.
HÆÐ OG ÞYNGD: 186,5 cm og 82
kíló.
BIFREIÐ: Plymouth Volare, árg.
1979.
GÆLUNAFN: Módó. Notaðíþröng-
um hópi Valsmanna.
UPPAHALDStÞROTTAMAÐUR, ÍS-
LENSKUR: Elnar Vilhjálmsson
spjótkastari.
UPPAHALDSÍÞROTTAMAÐUR,
ERLENDUR: Carl Lewis frjáls-
íþróttamaður.
UPPAHALDSFELAG, ÍSLENSKT:
Snæfeil frá Stykkishólmi.
MESTA GLEÐISTUND I IÞROTT-
UM: Þegar Vaiur bjargaði sér frá
falliífyrra.
MESTU VONBRIGÐI: Inná- og út-
afskiptingin hjá Tony Knapp hér
forðum.
MINNISSTÆÐASTI LEIKUR: Þeg-
ar Valur vann IBA 6—5, iíkiega ’71.
ÖNNUR UPPÁHALDSIÞROTT: Golf
og hestamennska.
UPPAHALDSMATUR: AUur
franskur matur.
UPPÁHALDSDRYKKUR: Islenskt
vatn.
SKEMMTILEGASTI SJONVARPS-
ÞÁTTUR: Línan.
SKEMMTILEGASTI ISLENSKI
LEIKARINN: Engan æsing. Ég
meina Sigurð Sigurjónsson.
„Það eru nákvæmlega 10 ár frá því
að ég kynntist Inga Birni. Það var á
dansleik í Klúbbnum,” sagði Magda-
lena Helgadóttir, eiginkona Inga
Björns Albertssonar, er við áttum
við hana stutt spjall. Eiginkonur
íþróttamanna þurfa oft á tíðum að
leggja mikið á sig ekki síður en
íþróttamennirnir sjálfir og því lék
okkur forvitni á að heyra öriítið frá
hægri hendi Inga Björns.
„Eg get ekki neitað því að í fyrst-
unni fannst mér Ingi Björn nokkuð
merkilegur meö sig. Bróðir minn
þekkti hann vel og sagði aö þetta
væri ekki rétt hjá mér. Eg átti eftir
aö komast aö því síðar að hann hafði
á réttu að standa. Fljótlega fór hann
að virka á mig sem mjög heilsteypt-
ur strákur og þaö spillti ekki fyrir að
mér fannst hann strax mjög myndar-
legur. Hann kom strax mjög vei fyrir
Sá hann fyrst á
balli í Klúbbnum
- og fannst hann strax mjög myndarlegur, segir Magdelena Helgadóttir,
eiginkona Inga Björns
og ég fékk strax mikinn áhuga á
þessumpilti.”
Nú er Ingi Björn búinn að vera í
íþróttunum lengi, bæði sem leik-
maður og þjálfari. Hvernig er að
vera gift manni sem er í sportinu öll-
um stundum eða því sem næst?
„Ef ég á aö vera alveg hreinskilin
þá verö ég að segja alveg eins og er
að ég hef aldrei kynnst neinu ööru.
Eg veit ekki hvernig hitt er. Þetta
snýst allt í kringum fótboltann og
þaö er aldrei frí um helgar, aldrei
tími fyrir sumarfrí, útilegur eða þess
háttar. Eg vil samt endilega láta
hann klára þennan tíma og ég vona
að það skilji eftir sig góðar
minningar. Eg vona þó samt að hann
verði ekki alla ævi í þessu. En ég ætla
ekki að beita mér fyrir því aö hann
hætti í íþróttum. Þetta bitnar
óneitanlega nokkuð mikið á heimilis-
lífinu en það eru þó til bjartar
hliðar,” sagði Magdalena.
Og að lokum langaði okkur til að
forvitnast svolítið um það hvursu
mikili dugnaðarforkur Ingi Björn
væri á heimilinu.
„Ingi Björn er mjög góður
heimilisfaðir að mínum dómi. Mjög
góður eiginmaður og faðir barna
sinna. Og hann hjálpar mér mikiö
við heimilisstörfin. Hjálpar mér oft
viö uppvaskið þegar hann hefur tíma
til.” -SK.
Ingi Björn Albertsson ásamt eiginkonu sinni, Magdalenu Heigadóttur, og börnum þeirra hjóna.
Texti:
Stefán
Kristjánsson
ERLENDI LEIKARINN: Frank
Sinatra.
SKEMMTILEGASTA BLAÐ EÐA
TIMARIT: Mad.
UPPAHALDSHUOMSVEITIN: Dr.
Hook.
BESTIVINUR: Fjölskyidan mín.
LIKAR VERST I SAMBANDI VH)
ÍÞRÖTTIR: Fólmennska.
ERFIÐASTI ANDSTÆÐINGUR:
Jóhannes Guðjónsson, IA.
HELSTA „MOTTÖ” I LÍFINU: Að
vera heiðarlegur.
HVAÐA PERSONU LANGAR ÞIG
MEST TIL AÐ HITTA: Hef þegar
hitt hana, konuna mína.
RÁÐ TIL UNGA FOLKSINS: Lifa
líflnu.
STÆRSTI KOSTUR ÞINN: Aðrir
verða að benda á hann.
STÆRSTI VEIKLEKI: Ailir jafn-
stórir.
UPPÁHALDSLIÐ í ENSKU KNATT-
SPYRNUNNI: Arsenal.
BESTIÞJÁLFARISEM ÞU HEFUR
HAFT: Júrí Bitchev.
YRÐIR ÞU HELSTI RÁÐAMAÐUR
.ÞJÓÐARINNAR A MORGUN.
HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA
VERK? Að skipa íþróttamálaráð-
herra.
ANNAÐ VERK: Að kippa öUu í lið-
inn. *sk.
Sigurður Sigurjónsson leikari er í
miklu uppáhaldi hjá Inga Birni.