Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1984, Blaðsíða 12
12
Með
málverkin
utan á
húsinu
Viö mótum öll umhverfi okkar á einn eöa annan hátt. Skrif-
stofan, heimiliö og fötin bera smekk okkar vitni. A nokkrum
stööum í bænum má sjá hvernig fólk hefur leitast viö aö mála
grindverk ög húsveggi á frumlegan hátt og til ánægju fyrir
sjálft sig og aðra. Ingvar Angarsson, sem býr aö Hábraut 4 í
Kópavogi, sagöist hafa byrjað að mála fyrir 40 eða 50 árum.
Hann er meö þrjú málverk utan á húsi sínu. Myndirnar eru
málaöar meö venjulegri húsamálningu á hraunaöa húshliöina.
A myndunum er ártal og mátti sjá aö þær höföu verið málaðar
á árunum 1975 til ’80. Ingvar hafði fleira í garðinum. Þar hefur
hann gert litla eftirmynd af gömlum sveitabæ og eftirlíkingu af
fjallinu Vallahnúk í Fróöárhreppi. I garöinum var líka steinn er
hann haföi málað hliö á. Við héldum áfram för okkar og í
vesturbænum í Reykjavík rákumst viö á skreytingar á veggjum
tveggja leikvalla og inni í porti viö íbúðarhús. A heimleiðinni
smelltum viö svo mynd af hluta verks á Tollstöðvarhúsinu viö
Tryggvagötu. Þá mynd gerði Geröur Helgadóttir og hefur hún
oft glatt augað. Gaman væri aö fá ábendingar frá lesendum um
fleiri sem hafa skreytt umhverfi sitt meö þessum hætti, málaö
verk á húsiö, bílinn eöa hvaö sem er.
-Sigurður G. Valgeirsson.
.
DV. LAUGARDAGUR17. MARS1984.
Báðum mcgirt við dyr
Það eru ekki allir meö iítið fjalli garðinum. Þetta er eftiriiking
af Vallahnúk i Fróðárhreppi.
m..........—>
Litill sveitabær sem Ingvar hefur búið til.