Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1984, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1984, Blaðsíða 20
Rannsóknarlögreglumennirnir, Tom Maloney og Tom Basinki, vinna að rannsókn málsins. Á töflunni fyrir aftan þá er uppdráttur af morðstaðn- um. DV. LAUGARDAGUR17. MARS1984. Skikli Bay breiðgatan í Chula Vista var mannlaus og eyðileg, en þau lýsing- arorð eru sjaldan notuö um breið- ------stræti borga í Kalifomíu. Skammt fyrir austan þá breiðgötu er Inter- state 5, sem liggur í gegnum endi- langt Kalifomíufylki. Þaö var um klukkan eitt eftir miö- nætti sem Dick Coulson lögreglu- maður ók bíl sínum eftir Bay breiö- götunni hinn 22. október 1982. Hann var þreyttur eftir mikla vinnu og ákvað að koma við í verslun í grenndinni, sem opin var allan sólar- hringinn, til að kaupa sér appelsínu- safa. Hann ók áfram eftir breiðgöt- unni í áttina að versluninni. A leið- inni tók hann eftir gulum leigubíl, sem lagt hafði verið á auöu svæði, um 20 metrum utan við veginn. I fyrstunni vakti þetta ekki sérstaka athygli hans og hann ók framhjá.En svo fékk hann bakþanka og ákvað að athuga þetta frekar. Leigubílstjórar eru vanir að leggja bílum sínum utan við vegina eða á bílastæðum til að hvíla sig, drekka kaffið sitt eða spjalla viö aðra bílstjóra. En af öryggisástæðum eru þeir þó alltaf á fjölförnum stöð- um þar sem vel sést til þeirra. Það var óvanalegt að sjá leigubíl standa svo langt utan vegar. Coulson beindi bílljósunum að leigubílnum og gekk síðan út með ljóskastara. Ur fjarlægð greindi hann að maður sat í farþegasætinu frammi í bílnum, en enginn var í bíl- stjórasætinu. Þegar Coulson beindi ljósgeislanum í andlit mannsins sýndi hann engin viðbrögð. Hann gekk þá nær og gerði skarkala með þvi aö sparka í stuðara bílsins. Engin hreyfing. Hann gekk upp að fram- hurðinni og beindi ljósinu beint inn í bílinn. Þá fyrst sá hann hvers kyns var og hann tók andköf af hryllingi. Morð I farþegasætinu sat maöur með höfuðið aftur, blóðugur í andliti og föt hans rifin og alblóðug. Coulson opnaði bílhurðina og þreifaöi eftir púlsinum. Þaö tók hann ekki langan tíma að komast að því að það var enginn púls lengur. Coulson hljóp aftur að bíl sínum og kallaði á aöstoö í gegnum talstöð- ina. Nokkrum mínútum síðar hringdi síminn á náttborði mínu, en ég heiti Tom Basinski rannsóknarlögreglu- maöur. Eg ætla nú að greina frá mín- um þætti í þessu máli. Konan mín gerir oft grín að mér fy rir það að raða öllum fötum mínum og þeim hlutum sem fylgja starfinu á einn stað áður en ég fer að sofa. En ég geri þetta til þess að þurfa ekki aö fara að leita að þessu hér og þar um íbúöina í daufri morgunskímunni ef ég þarf að hlaupa fyrirvaralítið út snemma morguns eöa að nóttu til. Þetta kemur líka í veg fyrir að maöur þurfi að standa eins og glópur um miðja nótt og reyna að rif ja upp fyrir sér, illa vaknaöur, hvar maður lagði þessa hluti frá sér. Síminn hringdi nákvæmlega 8 mínútur yfir eitt þessa nótt. Lög- reglumaðurinn á skiptiborði lögregl- unnar sagði mér að leigubílstjóri hefði verið myrtur. Hann gaf mér upp staösetninguna og ég gekk úr skugga um það aö allir aðstoðar- menn mínir hefðu verið ræstir út líka. Á leiðinni til lögreglustöðvarinnar varð mér hugsað til þess að mál sem varöa rán eða morð á leigubílstjór- um eru alltaf þau sem erfiðast er að leysa. Þar eru aldrei neinir sjónar- vottar, fingraför hundraða manna eru út um allan bíl og ræningjamir eru aldrei til á myndböndum eins og þegar rán eru framin í bönkum eða stórverslunum. Þegar ég og félagi minn, Tom Maloney, komum á vettvang sáum viö að Coulson hafði strengt reipi umhverfis morðstaðinn til aö halda forvitnum frá. Leigubíllinn stóð á svæði sem var allt eitt moldarflag og því líklegt að hægt væri að greina þar fótspor moröingjans. Eg bað því einn af sérfræöingum okkar að ljósmynda allt svæðið af ýtrustu nákvæmni. Eftir að því verki var lokiö gengum við hinir inn á svæðið og hófum okkar starf. Skriðið í leit að vísbendingum Við sáum að líkiö var af suður- amerískum manni og í vasa hans fundum við persónuskilríki sem stað- festu að hann væri Rodrigo Chaves, 43 ára. Hann hafði greinilega látist fyrir nokkrum stundum. Það vakti undrun okkar að hendur hans voru handjámaðar fyrir aftan bak en sá sem það gerði hafði þó augljóslega ekki lært tæknina af vörðum laganna því lófarnir sneru saman. Bíllyklam- ir vom enn í kveikjulásnum og gjald- mælirinn gekk enn.Gjaldið var orðið 72,03 dollarar, við skráðum það niður ef það gæti komið okkur aö gagni. I veski sem var í vasa innan á buxunum fundum við 324 dollara í reiðufé. Við létum líkskoðarana fjarlægja líkiö og hófum rannsókn okkar á bíln- um. Hann var fyrst fluttur í bílskúr tæknideildarinnar. Síðan hóf flokkur lögreglumanna að kanna svæðið nákvæmlega. Áhorfandi sem ekki vissi hvað um væri að vera myndi áætla að þarna væra á feröinni áhugasamir fornleifafræöingar þar sem við skriðum á fjórum fótum í drallunni. En með þessu móti fundum við greinileg fótspor sem lágu frá staðnum þar sem bíllinn hafði staðið. Við mældum lengdina á milli þeirra, stærð þeirra, tókum af þeim Ijósmyndir og gerðum af þeim nákvæmar teikningar. Okkur virtist sem þau væra eftir einhvers konar strigaskó. Lik leigubilstjórans, Rodrigo Chaves, fannst i bilnum utan vegar. Bílstjórinn hafði verið handjárnaður og stungsnn til bana með hnífi. Lítil sönnunargögn Við lukum rannsókninni á morö- staðnum rétt fyrir sólarupprás. Þá fórum viö nokkrir í líkhúsið til að fylgjast með krufningunni. Það er að vísu ekki minn uppáhaldsstaður en ég hef komist aö því að með því aö fylgjast með líkskoöun getur maður komist að mikilsverðum upplýsing- um sem ekki koma fram í krafn- ingarskýrslu. Það kom í ljós að leigu- bílstjórinn hafði verið stunginn með hnífi með 20 sentímetra löngu blaöi. I líkama hans voru 13 hnífstungur. Svo virtist sem Rodrigo Chaves hefði verið rólegur í handjárnunum allan tímann og jafnvel eftir að farið var að stinga hann með hnífnum. Eg get mér þess til að hann hafi haldiö að morðinginn ætlaði aðeins að fremja rán. Sjálfur var hann með megnið af peningum sínum í vasa innan á buxunum sem morðinginn hafði ekki fundið og hafði því ástæðu til að kæt- ast ögn þótt einhverju hefði verið stolið. En niðurstaðan varð þó dapur- legri en hann átti von á. eftir á morðstað skósólann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.