Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1984, Blaðsíða 9
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. MARS1984. 9 Útlönd Útlönd Yfir tuttugu útlendar vörubifreiðir hafa verið brenndar á Spáni: SPÆNSKA STJORNIN LOFAR AÐ VERNDA VÖRUBÍLSTJÓRA Aðgerðir Spánverja hafa bitnað á fleirum en Frökkum. Á myndinni eru tveir norskir vörubílstjórar fyrir framan brunna bifreið: „Við höfum vissan skilning á aðgerðum Spánver janna og okkur finnst ekki að þeim sé beint gegn okkur,” sögðu þeir. BORGARSTJÓRINEW YORK STYÐUR WALTER MONDALE — yfirlýsing hans þýðingarmikil vegna mikils f jölda gyðinga f borginni Spænska stjórnin hefur heitið að grípa til ráðstafana til varnar útlend- um vörubílst jórum eftir að sex vörubíl- ar voru brenndir á Spáni í gærmorgun. Það var franska utanríkisráöuneytið sem skýrði frá þessu loforöi spænsku stjómarinnar. Nú hafa yfir tuttugu vörubifreiðir verið brenndar eftir að hafa farið inn yfir landamæri Spánar. Með þessu hafa ýmsir róttækir Spánverjar viljað mótmæla því að franskur fallbyssu- bátur réðst á tvo spænska togara sem voru að ólöglegum veiðum í franskri landhelgi 7. mars síðastliöinn. Eftir atburðina i gærmorgun, þar sem franskar vörubifreiðir voru brenndar, bað franska stjórnin spænsk stjórnvöld um að sjá til þess að franskir vörubílstjórar yrðu ekki fyrir áreitni og að tryggja eðUlega umferð um landamærin. Ríkisstjóm Spánar lofaði því í svari sínu að útlendar vörubifreiðú- myndu fá lögreglufylgd. Franskir vörubíl- stjórar svöruöu aðgeröum Spánverja í gærmorgun meö því að leggja bif- reiðum sínum þannig við landamærin að þær hindruöu eðlUega umferð. Þrír Pólverjar flúðuígám ToUverðir fundu þrjá laumufarþega í innsigluðum gámi um borð í skipi sem kom frá PóUandi tU Bretlands í gær. Það vom breskir stuðningsmenn pólskra andófsmanna sem skýrðu frá þessu. Lögreglan í hafnarbænum Grays við mynni Thamesár neitaði ekki fréttinni en kvaðst hafa fengið fyrirmæU um aö seg ja ekki neitt um málið. Tadek Jarski, formaður samtak- anna Eining með Einingu, sagði í sam- tali við Reuter að mennimir þrír væru Pólverjar sem hefðu falið sig í gámn- um tU þess að komast frá Póllandi. Hann kvaðst hafa af því áhyggjur að breska stjórnin kynni að neita þeim um landvistarleyfi í Bretlandi og senda þá aftur tU PóUands. Barn Treholtsí Tékkó- slóvakíu var uppspuni .p'uUyrðing um að við eigum böm saman á sér enga stoð í raun- veruleikanum,” segir kona sú sem Arne Treholt hefur fuUyrt í yfir- heyrslum að sé barnsmóðir hans í Tékkóslóvakíu. Hún segir þetta í viðtali við Verdens Gang, stærsta blaö Noregs, í morgun, Ame Treholt hafði sagt til nafns hennar í yfir- heyrslum. I veðri hafði verið látið vaka að Rússar hefðu þvingað Treholt upp- haflega tU njósna fyrir sig með því að hóta hvorutveggju, að ljóstra upp um þess „barneign” meðal heimamanna hans og gera baminu og móðurinni eitthvað tU miska. Jón Einar, Osló Edward Koch, borgarstjóri í New York, hefur lýst yfir stuðningi sínum við Walter Mondale sem forsetafram- bjóðanda Demókrataflokksins. Samtímis réöst hann að Jesse Jackson fyrir að hafa faömað að sér „morðingj- ann Arafat”. Þessi stuðningsyfirlýsing Kochs við Mondale og fyrirlitningaryfirlýsing í garð Jacksons kemur tveimur vikum fyrir forkosningamar í New York sem ætíð eru taldar mjög þýðingarmUdar. „Eg vel Walter Mondale... Eg þekki hann. Eg er ekki sammála honum um aUt... en ég á meira sameiginlegt með honum heldur en Hart öldunga- deUdarþingmanni,” sagöi Koch borgarstjóri. Koch hrósaði afstöðu Mondales til Israels en kvaðst hins vegar ekki skilja afstööu Harts. Þá gerði hann að umtalsefni fund Jesse Jacksons meö Yasser Arafat árið 1979 og sagði að Jackson heföi „faðmað moröingjann Arafat sem vildi eyða gyöingaþjóöinni i Israelsríki”. Koch borgarstjóri er sjálfur gyðingur. Fyrir tveimur mánuðum lýsti Jack- son því yfir í New York að hann hefði aðeins faðmað Arafat í kurteisisskyni. Faðmlagið hefði ekki falið í sér stuðn- ing við PLO. Jackson hefur átt í erfiðleikum síð- ustu vikur vegna ógætUegra ummæla sinna um gyðinga. Gyðingar eru mjög fjölmennir í New York, um þriðjungur allra kjósenda. Stuðningsyfirlýsing Kochs er því talin mjög mikilvæg fyrir Mondale en aUs er barist um 295 fulltrúaíNewYork. Nauðungaruppboð annað og síðasta á hluta í Hverfisgötu 108, þingl. eign Sigurvalda R. Bafsteinssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, Sigríður Thorlacius hdl., Baldurs Guðlaugssonar hdl., Guðmundar Öla Guðmundssonar hdl., Utvegsbanka Islands, Landsbanka tslands, Róberts Arna Hreiðarssonar hdl., Brynjólfs Kjartanssonar hrl., Spari- sjóðs Reykjavíkur og nágrennis, Iðnaðarbanka Islands hf., Arnar Clausen hrl., Ævars Guðmundssonar hdl., Gísla B. Garðarssonar, hdl., Hafsteins Sigurðssonar hrl., Veðdeildar Landsbankans og Jóns Ingólfssonar á eigninni sjálfri föstudaginn 23. mars 1984 kl. 11.30. Borgarf ógetaembættið i Reykjavik. Sparneytnir bílar þurfa ekki að vera þröngir og óþægilegir. Það sannar MAZDA 323 MAZDA 323 er rúmgóður og sparneytinn alvörubíll á smábílaverði. Þú fórnar allt of miklu í rými og þægindum, ef þú kaupir suma af þessum „smábílum “ sem eru á markaðnum og endar með að borga allt of mikið fyrir allt of lítið. Hugsaðu þig því tvisvar um, því að MAZDA 323 kostar aðeins Kr. 273.000 í Deluxe útgáfu, með ryðvörn og 6 ára ryðvarnarábyrgð. MAZDA 323 Sættu þig ekki við neitt minna! 7 ; ma^oa BILABORGHF Smiðshöfða 23. sími 812 99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.