Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Side 2
2 DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. Veggjald á bfla til umræðu vegna f járlagagatsins: Verður krónu- gjaldið túkall? Eftir aö Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra dró upp úr skúffunni áform um veggjald sem nýja skatt- heimtu vegna f járlagagatsins hafa bif- reiðaeigendur tekiö fastar um pyngjur sínar. Veggjaldið er nefnilega visst gjald á hvert kíló í ökutæki. Ef það væri króna á kíló þyrftu bifreiðaeig- endur að borga nærri 140 milljónir króna í ár í þetta nýja veggjald. I þeim hugmyndum sem upphaflega voru lagðar fyrir um lokun fjárlaga- gatsins voru áform um álag á bensín-: gjald, 2,50 kr. á litra, sem gæfi 200 milljónir í ár og hækkun sjúkra- tryggingagjalds sem gæfi aðrar 200 milljónir. Forsætisráðherra vill fremur veggjaldið en þessa skatta. En þar sem króna á kíló i ökutæki gæfi ekki nema 140 milljónir í allt á árinu er spurningin sú hvort því verði, ekki einfaldlega breytt í túkall á kíló og þar með reyttar upp 280 milljónir. En auðvitað kemur einhver millivegur til greina, auk þess sem þetta veggjald hefur ekki frekar en annað upp í gatið hlotið samþykki á viðeigandi stööum. Bílafloti landsmanna er nærri 110.000 bílar, en líklega hátt í 140.000 tonn að eigin þyngd. Meöalfólksbíll er tonn og krónugjaldið þýddi þúsund króna skatt fyrir eigandann. Stærri vörubílar eru að meðaltali um fimm tonn og eigandi slíks bíls þyrfti því að greiöa 5.000 krónur í veggjald — ef krónug jaldið yrði króna en ekki túkall. HERB Fálki hefur að undanförnu verið á þvælingi í kringum Kögursel í Breiðholti. Hefur hann valdið nokkrum ugg hjá dúfum þar í hverfi en fleiri fuglar munu hafa átt í útistöðum við hann, þar á meðal nokkrir hrafnar. Fálkinn er frekar spakur og lætur sér ekki bregða þótt ljósmyndarar komi og smelli af honum myndum. DV-mynd S. Húsnæðisstofnun: Marklausar yfirlýsingar yfirmanna — segir húsbyggjandi „Mér finnst þaö vægast sagt furðulegt að þær yfirlýsingar, sem yfirmenn Húsnæðisstofnunar hafa verið að gefa í blöðunum um afgreiðslu lána, skuli ekki eiga sér neina stoð í raunveruleikanum,” segir össur Stefánsson, einn þeirra húsbyggjenda sem bíða eftir afgreiðslu láns frá Húsnæðisstofnun. Ossur er í hópi þeirra sem áttu að fá annan hluta láns síns í kringum 5. mars síðastliðinn en það dróst. Þegar leitað var upplýsinga fengust svör þess efnis að lánið kæmi von bráðar og þegar DV kannaði málið á sínum tíma hjá þeim Sigurði E. Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Húsnæðis- stofnunar, og Jóhanni Einvarðssyni, aðstoðarmanni féiagsmálaráðherra, fengust sömu svör og sagt var að byrjaö yrði að afgreiða lánin til þessa fólks eftir þá helgi sem fram undan var. Þegar Össur kom svo á mánudag að vitja lánsins hafði starfsfólk stofnunarinnar ekki minnstu hugmynd um hvernig ætti að standa við yfirlýsingar yf irmanna sinna því engir peningar væru til. Nokkrum dögum síðar birtust fréttir i blöðum um að peningar væru fundnir og afgreiðsla lána gæti hafist. Þá fékk Ossur og þaö fólk, sem átti að fá lán á sama tima og hann, tilkynningu um að það fengi úr- lausn sinna mála eftir næstu mánaða- mót. „Svona nokkuð getur auövitað ekki gengiö. Fólk tekur jú mark á því sem þessir menn segja og margir miöa sínar framkvæmdir við það að þeirra yfiriýsingar standist,” segir össur. ,,Eg hef ekki fylgst svo náið með þessu en þaö hefur staöið yfir útborgun lána á hverjum degi að mér er sagt,” segir Alexander Stefánsson félags- málaráðherra þegar hann er spurður umþessimál. Hann segir að erfiðlega hafi gengið að útvega peninga til þessara mála en um daginn hafi því sem vantaði upp á marsáætlunina verið bjargað og því ættu þessir peningar að fást. Hann bætir því við að nú sé verið að ganga frá áætlun fyrir hvern þann flokk hús- byggjenda sem bíður afgreiöslu og samkvæmt henni ættu afgreiöslur lána til þessara hópa að ganga eðlilega fyrir sig. -SþS. Tundurdufl sprengd Sprengjusérfræðingar Landheigis- gæslunnar fóru í vikunni austur á Star- mýrarf jörur í Álftafirði og gengu þar frá virkum og óvirkum tundurduflum sem þar hafa legiö i sandinum siöan á stríðsárunum. Tundurdufiin hafa grafist þar í sand- inn en koma upp af og til og sér- fræðingamir fóru austur til að sprengja þau sem þegar hafa verið í loft upp gerð óvirk og vitað var um. Sprengdu þeir átta belgi en auk þess fundu þeir eitt tundurdufl sem enn var virkt og gengu þeir frá því. Tundurdufl frá stríðsárunum er enn að finna í söndunum fyrir sunnan og austan land og víða annars staðar. Eru þau gerð óvirk um leið og þau finnast og belgirnir sprengdir svo að engin hætta staf i af þeim. SVR að Hótel Loftleiðum Nú um mánaðamótin verða breyt- ingar á leið 1 hjá Strætisvögnum Reykjavíkur. Þessi leið er gamla Njálsgata-Gunnarsbraut, núverandi Lækjartorg-Norðurmýri. A hálftímafresti verður ekið út að Hótel Loftleiðum og síðan niður á Lækjartorg fram hjá Umferðarmið- stöðinni. Undanfarin ár hafa Land- leiðir séð um áætlunarakstur út að Hótel Loftleiðum en nú verður sá akstur framvegis á vegum SVR. Strætisvagnaferðir hafa verið á milli Breiðholts- og Árbæjarhverfis kvölds og morgna. Nú hefur verið ákveðið að bæta einnig við tveimur ferðum síðdegis aö loknum almennum vinnu- tíma virka daga. I vögnum á þessum leiðum er ókeypis bæklingur fyrir farþega sem hefur verið gefinn út af SVR. Hann liggur einnig frammi í miðasölum fyrirtækisins. -ÞG Risa-spútnik í Hólmadrang — stærsta botntroll sem um getur hérlendis Stærsta botntroll, sem um getur hérlendis, verður eftir rúman mánuö sett í togarann Hólmadrang. Trollið er 3 þúsund möskva af gerðinni Spút- nik. Stærsta trollið, sem nú er um borö í íslensku fiskiskipi, er um 2 þúsund möskvar, einnig af gerðinni Spútnik. Að sögn Jóns G. Sveinssonar neta- gerðarmanns sem er að hef ja gerð 3 þúsund möskva trollsins er Hólma- drangur nú með tvö troll, 1800 möskva Spútnik og 2200 möskva Kálut. Hólmadrangur er á rækjuveiðum. Reiknað er með að skipið fari á veiðar við Svalbarða þegar trolliö stóra verður komið í skipiö. Við Sval- barða eru góðar aðstæður fyrir stór troll. Þar er góður botn og stórar ræk jur, um 90 til 120 rækjur í kílóinu. Þess má geta að Hólmadrangur fékk nýlega 100 tonn af rækjum í einniveiðiferð. -JGH Kynningar- daguríStýri- mannaskólanum Stýrimannaskólinn í Reykjavík gengst fyrir kynningu á starfsemi sinni laugardaginn 31. mars og verður skólinn opinn gestum til sýningar frá klukkan 13.30 til 17.00. Þar sýna kennarar og nemendur notkun siglinga- og fiskileitartækja og veita upplýsingar um námið og inn- tökuskilyrði i skólann. Auk þess sem upplýsingabæklingi um skólann verður dreift verða sjó- setningarbúnaðir Sigmundar og Olsens sýndir. Slysavarnafélagið verður með kynningu á fluglínu- tækjum og sýnd verður björgun úr þyrlu Landhelgisgæslunnar. Kvikmynda- og videosýningar verða í gangi allan tímann og verða sýndar ýmsar fræðslumyndir um sjómennsku og slysavarnir. Fleira verður einnig við að vera og má þar nefna aö tölvur skólans verða kynntar og ýmsum hliðum á námmu gerð skil auk þess sem kaffiveitingar veröa í boöi. SigA iffil BYGGINGARSAMVINNUFELAGIÐ BSAB AÐALBÚL í REYKJAVÍK auglýsir 19 íbúðir til úthlutunar í nýjum byggingar- flokki. íbúðirnar eru i sambýlis- og raðhúsum i nýjum miðbæ í Kringlumýri. Umsóknir skulu ber- ast félaginu í síðasta lagi 13. apríl nk. ALLAR UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU FÉLAGSINS, LÁGMÚLA 7 í REYKJAVÍK, SÍMAR 82966 OG 33699. Athugið að B.S.A.B. er öllum opið. Stjórnin. MaMUMnniuamMrsm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.