Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Qupperneq 11

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Qupperneq 11
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. 11 Hreindýrin ieita oft tii byggða i fæðuieit þegar að þrengist á heiðunum. verður þess ekki vart að dýrin bíti plöntur niður írót.” — Er þá engin hætta á ofbeit eða eyðileggingu á gróðri? „Nei, ekki við eðlilegar aðstæður. Lítil beit á hverri plöntu og tiltölulega stutt viðstaða á hverjum stað minnkar mjög þá hættu. Það er meira að segja talið að hreindýr umgangist beiti- landið betur en flest önnur klaufdýr. ” —Hvemig gengur dýrunum að afla sér fæðu yfir háveturinn þegar snjór eryfiröllu? „Hreindýr hafa háþróað lyktarskyn og þau nota það til að finna þá staði undir snjónum þar sem besta beitar- landið er að finna hverju sinni. Til þess að ná fæðunni undan snjónum krafsa dýrin holur í snjóinn með framfótunum. Hafa mælst allt að 40 sentímetra krafsholur í harðfenni og um 100 sentímetra holur í lausamjöll.” Mikilvægt að dýrin fái að vera í friði — Hvar halda dýrin sig helst? ,,Á sumrin halda dýrin sig flest á Vesturöræfum og undir Fellum, svo og í Kringilssárrana og Sauðafelli, vestan Jökulsár á Dal. Á vetuma eru „Það er taiið að hreindýr umgang- ist beitiiandið betur en fiest önnur klaufdýr." Kristbjöm Egiisson Hffræð- ingur. iDV-mynd Bj. Bj.j. þau á Fljótsdalsheiöi og Jökuldals- heiði.” — Er ekki hætta á að dýrin verði hungurmorða ef þau eru of mörg í sumarhögunum? „Nei, ekki er það. Hins vegar veldur samkeppni um bestu fæðuna því að dýrin ná ekki að safna nægum forða fyrir veturinn þegar um þrengist í sumarhögunum. Þau verða því verr undir hann búinn og falla ef vetrarhag- arnir eru lélegir og illa vorar. A vorin er það svo Háls á Vesturör- æfum sem er hreindýrunum mikilvægt fæöuforðabúr. Þetta er snjóléttasta svæðið á hreindýraslóðum. Þar safnast kýmar saman til að bera en á þeim tíma em oft jarðbönn annars staðar vegna snjóa. Til að kýmar mjólki vel og kálfadauði verði lítill þurfa fæðuskilyrði að vera góð eins og gefur að skilja. Mikilvægt er að dýrin fái að vera þarna í f riði. Á haustin og vetuma, svo og á vorin, eru dýrin á Fljótsdals- og Jökuidals- heiðum þótt hluti hausts og vors lari í ferðir til og frá sumar- og vetrarhög- unum. A vetuma eru að meðaltali 550 dýr á hvorri heiði.” — Nú þurfa hreindýrahjarðimar tiltölulega stór landsvæði til að ekki verði hætta á ofnýtingu gróðursins. Hvað er gert til að sporna við því? „Eg tel til dæmis aö grávíðiflesj- umar í Hálsi standi ekki undir beitinni nú og myndu ekki vera færar um að taka við auknu beitarálagi sem gæti komið upp ef dýrunum f jölgaöi. Ef sh'k staða kæmi upp er mun skynsamlegra að fækka dýrunum að ákveðnu marki og leyfa þeim svo að fjölga sér aftur þegar ástæða er til heldur en að láta gróöur skemmast. Hann er lengi að ná sér og þarf oft miklu að kosta til þegar skaöinn er skeður sem dæmi um allt landsýna. Þá má geta þess aö við rannsóknir á fæðu dýranna á Fljótsdalsheiði kom í ljós að fæðusamsetningin bendir til lélegs ástands haganna. Þó era hrein- dýrin þar í góðu líkamlegu ástandi en fléttur sem eru besta fæða dýranna að vetram era horfnar að mestu. Hreindýrin geta hins vegar lifað af veturinn án fléttna ef bau ná eóðum Kýr með káifa. holdum í sumarhögunum. Miðað við reynslu frá öðrum löndum er ólíklegt að fléttuflóran nái sér upp þannig að hún veröi nýtanleg til beitar í vetrar- högunum nema algjör friðun komi til í áratuei. Því má búast við svipuðu ástandi gróöurs á Fljótsdalsheiði. Jökulsdalsheiðin, hitt svæðið þar sem hreindýrin era á vetrum, er hæfilega nýtt í dag og að því er virðist er það nægilegt magn af fléttum. Nauðsynlegt er aö fylgjast náið með f jölda dýra á svæðinu og breytingum sem kunna að verða á gróðurfarinu þannig að tryggt verði að ekki komi til ofnýtingarhaganna,” sagði Kristbjörn Egilsson. -KÞ. (HUSHUSGAGNAVERSLUNARINNAR Eldhús-, baðinnréttingar og fataskápar frá STAR og MARBODAL; Eldhústæki frá BLOMBERG Innihurðir frá IDÉ Inni- og útihurðir frá SVENSKA DÖRR JI-TE og SCADANIA DÖRE Parketfrá KÁHRS og JUNCERS Futura — handföngin frá ROSTI Vönduð vara á vægu verði. ■MaWBWWWraWHWHWWÍIIWBWÍIBWHfflllWllWMWfBÍillffHWBllWWIWBI^^ *aBKBSÖ!*iS® fe1M (H_ — ^BMMBMBIBBaHIIIMMIMilliBHMBffiiílllilililliÍlllililHyillWMMBHHMWIHIHWWWHHHWMIMBMHHBi BMlMHMRHHKHi WSHSSMSESs i | IHHHI mmsmmmm m wmm, t mmi \ ■ SMIÐJUVEGI 6 SÍMAR 44544 og 45670 11111 HMi 8 ___________

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.