Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Blaðsíða 15
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984. 15 fyrir þessu, eins og góöri sveit sæmir, og höföu ekki annan söng í pokahorn- inu en lagiö um Heiöu breiðu sem bar þaö meö sér aö vera frá upphafi ferils þeirra. Þá er komiö að þætti Djelly-systra sem einhverra hluta vegna er alltaf titluö — úr Kópavoginum — og veit ég ekki betur en þaö sé rakinn þvætting- ur. Edda söngvari leiöir þá sveit, hún hefur örugga sviösframkomu og skemmtilega. Hún var jafnfjörug á sviðinu og hiö litla pláss sem þar var leyföi. Lögin eru æðimisjöfn, bæði' að gæðumoggerð. Sveitin er hrikalega mistæk og illa samstillt. Þær áttu þaö til aö missa taktinn allar í einu, svo illa aö maöur greip næstum um höfuðið. En svo náðu þær sér aftur á strik og rauiíar mjög vel í laginu Marilyn Monroe. Það er söngur sem hægt er aö gera virkiiega mikiö úr með hinni fallegu rödd Eddu og engilblíðri bakröddun Sigurbjargar bassaleikara. Raunar var ég hrifnastur af söng þeirra tveggja því hljóðfæraleikurinn var ekki í hærri kantinum nema ef vera skyldi bassaleikurinn. Gítar- leikarinn sigldi að vísu nokkuð lygnan sjó en verri sögu fer af hljómborði og trommuslætti. Sá fyrmefndi var til- viljanakenndur, kom inn i á skökkum stööum og annaö slíkt sem lagfæra ber. Trommuleikurinn ber þess merki aö sú sem um hann sér hefur aðeins verið í sveitinni í viku. Hún lamdi bæöi fast og vitlaust, en engin ástæöa til að vera bera þaö á torg. Þetta kemur allt. I heildina var ég nokkuö sáttur viö Djeiliiö, enda óx þeim ásmegin með hverju laginu. Þær fengu klapp og tóku aukalag sem var alltof nýtt, geröu greinilega ekki heldur ráö fyrir slíkum móttökum. Svo var komið að þeirri sveit er kall- ar sig Dá. Eg hlustaði á ein tvö lög og var svo farinn. Þessi tónlist höföar alls ekki til mín, fer hreint og beint í taug- arnar á mér og ég ætla ekkert um hana aðsegja. I heildina séö voru þetta bara nokkuð áheyrilegir tónleikar og raunar rós í hnappagat umsjónarmanna þeirra. Meira af svo góöu. SigA Peningar gólfhjáungu flæða ekki um öll fólki sem er að væru gólfteppi nánastóþöri. Staðgreiðsluverð:kr.488.-pr.m2af rúllu. Ég ætla að fá mér KRÓNÝ > y þegar ég verð stór! VESTURGÖTU2/S:22090 ÁLAFOSSBÚÐIN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.