Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1984, Qupperneq 38
38
DV. LAUGARDAGUR 31. MARS1984.
Undirbúningur álvers við Eyjaf jörð í fullum gangi:
Staðarvalsnefnd
myndar samráðshóp
heimamanna
Komiö hefur veriö á fót samráöshópi
um gerö dreifingarspár frá hugsan-
legu álveri við Eyjaf jörö. Att er við spá
um dreifingu á mengunarefnum. Pétur
Stefánsson hjá Almennu verkfræðistof-
unni í Reykjavík er verkefnastjóri
staðarvalsnefndar og hann var á
fyrsta fundi þessa hóps sem haldinn
var á Akureyri miövikudaginn 21.
mars sl. Pétur sagði aö það mætti
rekja tilurð þessa hóps til þess aö
iðnaðarráðherra fól staðarvalsnefnd-
inni, 22. nóvember 1983, að láta fram-
kvæma athugun á umfangi og dreif-
ingu loftmengunar frá hugsanlegri ál-
verksmiöju viö Eyjafjörð. Oskaði ráð-
herra eftir að staöarvalsnefnd stjórn-
aði verkinu og hefði sem nánast sam-
band við stóriöjunefnd og þær íslensku
stofnanir sem hafa verkefni á þessu
sviöi. Einnig var talað um að aöilar
heima í héraði þyrftu aö fylgjast með
verkinu. Þetta síöasta er kveikjan aö
samráðshópnum. Hér er ekki um að
ræða formlega nefnd heldur hóp
manna sem staðarvalsnefndin hefur
hvatt til að fylgjast með undirbúningi
verksins, framkvæmdinni og taka við
niðurstöðum.
I samráðshópnum eru oddvitar og
sveitarstjórar úr Amarneshreppi og
irin í innstu hreppa Eyjafjarðar,
beggja vegna fjarðarins. Skriðuhrepp-
ur í Hörgárdal á fulltrúa en öxnadalur
ekki. Síðan eru fulltrúar frá f jórðungs-
sambandinu, ýmsum félögum sem
sinna náttúruvernd og náttúrufræði-
rannsóknum við Eyjafjörð, búnaðar-
sambandinu, iðnþróunarfélaginu, heil-
brigðisyfirvöldum í héraðinu, Veður-
stofunni, Hollustuvemd ríkisins og
stóriöjunefnd. Yfir 20 manns vom á
fundinum í síðustu viku.
Pétur sagði að fyrir dymm stæði að
fá erlendan, sérhæföan ráðgjafa til að
gera dreifingarspána. Hún byggist
fyrst og fremst á tölvumódeli þar sem
reynt er að kortleggja eftir veðurfars-
upplýsingum og landfræðilegum
aðstæöum hvemig mengun muni dreif-
ast frá slíku iðjuveri. Stefnt er aö því
að þessi aðili verði hér við störf frá
september til áramóta. Hann ynni úr
þeim upplýsingum sem þá yrði búið að
safna um veðurfar og náttúrlegar
aðstæður í Eyjafirðinum.
Búið er að hafa samband við 7 aðila í
heiminum vegna gerðar þessarar
spár. Hefur verið staönæmst við tvo,
norskan og bandarískan. Pétur bjóst
við að gerður yrði samningur við
annan hvom innan fárra vikna.
I sumar er stefnt að því að ljúka því
sem Pétur kallar fyrsta áfanga í rann-
sóknum vegna álversins, þ.e. nægjan-
lega mikiö til að gera dreifingarspána.
Staöarvalsnefnd hefur staöið fyrir
ýmsum veðurfarsathugunum við
Eyjaf jörö, t.d. vind- og hitamælingum.
Hitamælingarnar hafa einkum beinst
að því að mæla stöðugleika loftsins,
hvernig hitinn breytist frá jörðu og upp
á við. Niðurstöður úr öllum þeim
athugunum sem unnið hefur verið að
og verður gert í sumar verða uppi-
staöan í þeim gögnum sem hinn erlendi
ráðgjafi munnota.
Pétur sagði að staðarvalsnefnd hefði
í öUu sínu starfi reynt að hafa gott
samband við heimamenn til að nýta
staðarþekkingu þeirra. Einnig til að
kynna sér sjónarmið þeirra til ýmissa
mála og í þriðja lagi væri nefndin að
uppfyUa þaö sem hún teldi sjálfsagða
upplýsingaskyldu.
-JBH/Akureyri.
Vé/akostur nýja frystihússins i Rifi er a/lur af nýjustu gerð og sjálfvirkni er
þar mikil. Hér eru starfsstúlkur að vinna að pökkun fisksins.
D V-myndir Ægir Þórðarson.
Nýtt f rystihús íRifi:
„Frystingin
á mikla framtíð”
— segir eigandinn, Hringur Hjörleifsson
I aflahrotunni hérna á Breiðafiröi í
síöustu viku tók tU starfa nýtt
hraðfrystihús í Rifi, og er það eign
Hrings Hjörleifssonar o.fl. I húsi þessu
hafði áður verið rekið frystihús, en það
varð að hætta rekstri vegna ýmissa
örðugleika og var húsið því selt sl.
haust.
Eftir að hinir nýju eigendur tóku viö
var fljótlega hafist handa um algera
endumýjun hússins og hefur verið
unnið af fullum krafti við það síðan.
Þarna hefur tekist mjög vel til og er
nýting húsnæðisins afrek í hönnun út
af fyrir sig. Sem dæmi má nefna að áð-
ur var mest hægt að snyrta fisk á 6
II
SOLUSYNING
á notuðum MAZDA bílum
Laugardag frá kl. 10-4
Meö hækkandi sól höldum viö
sýningu á landsins besta úrvali af notuöum bílum.
Bílarnir eru allir gaumgæfilega yfirfarnir á verkstæöi
okkar, þeir eru í 1. flokks ástandi og þeim fylgir 6
mánaöa ábyrgð frá söludegi.
Komiö á sýninguna í dag og tryggið ykkur 1. flokks
MAZDA bíl fyrir sumariö.
Hagstæð kjör.
Athugið: Okkur hefur loksins tekist að fá til sölu örfáa
MAZDA 323
Sýnishorn úr söluskrá:
Gerö Árg. Ekínn
929 LTD 2 dyra HT '83 23.000
323 1500 4dyraSaloon '82 22.000
626 2000 5 dyra vökvast. 83 36.000
929 LTD 4 dyra vökvast. '82 11.000
929 SDX 4 vökvast. '82 10.800
626 2000 4 dyra. '82 10.000
626 2000 4 dyra sj.sk. '82 26.000
626 1600 4 dyra '81 20.000
626 2000 4 dyra '80 60.000
929 Station '80 63.000
6 mánaða ábyrgð á notuðum bílum
Öryggi í stað áhættu
BÍLABORG HF
Smiðshöföa 23 simi 812 99
borðum, en núna á 18 boröum í sama
húsrými, allur vélakostur er af nýjustu
gerð og er sjálfvirkni mikil, ásamt
tölvuvinnslu. Inni hjá verkstjóra eru
tæki, sem eru í sambandi við tölvu-
vogirnar í vinnslusalnum, og er þaðan
hægt að fýlgjast nákvæmlega meö
hvernig vinnslan gengur, þyngd pakk-
anna og nýtingu fisksins. Allt rennur
þetta í gegnum vinnslukerfið á nýjustu
geröum færibanda, en ekki voru allar
tölvuvogirnar komnar ennþá.
Eg spurði Hring Hjörleifsson hvort
honum fyndist þetta ekki fullmikil
bjartsýni núna á þessum siðustu og
verstu tímum í sjávarútvegi að leggja
út í svona dýrt fyrirtæki?
„Bjartsýni, ég veit það ekki. Eg hef
alltaf haft mikla trú á frystingu og ég
held að hún eigi mikla framtíð fyrir
sér, og í sambandi við svartsýnina í
sjávarútvegi þá held ég að það sé langt
frá því að fiskstofnamir við landið séu
uppumir.”
— Nú eru bátar þegar búnir að fylla
kvótann, hvað er til ráða?
,,Eg held að þeir hafi farið fullgeyst í
þetta í þessari stööu, verið með full-
mikið af netum. Við verðum að sætta
okkur við þetta kvótakerfi í ár. Við
hérna við Breiðafjörð getum snúið
okkur að öðrum fiskstofnum en þorski,
til dæmis kola, það er nóg af honum
hémaífirðinum.”
Hringur kvaðst vera mjög ánægður
með allar framkvæmdir við endur-
byggingu frystihússins. Að visu heföi
þetta dregist heldur lengur en búist
hefði verið við í fyrstu og vinnsla gat
þess vegna ekki hafist fyrr en vertíð
var komin í fullan gang og erfitt að fá
fólk í vinnu. Kvað hann sig helst vanta
stúlkur í snyrtingu til þess að fullnýta
aöstööuna i vinnslukeðjunni.
Skipulagningu í húsinu kvaöst hann
vera mjög ánægður með, þar sem allt
rými er gjörnýtt á hinn hagkvæmasta
hátt.
Verktakar við þessa endurbyggingu
hafa verið þeir Omar og Smári
Lúðvíkssynir sem unnið hafa allt tré-
verk, Jón Arngrímsson, rafvirkja-
meistari í Olafsvík, sá um allar raf-
lagnir, Ámi Þór Arnason, Reykjavík
hefur séð um allar uppsetningar á
frystitækjum og búnaði þeirra, en
pipulagnir hefur annast Asgeir
Valdimarsson Grundarfirði. Einnig
hefur Sæþór Þórðarson bygginga-
meistari verið Hring til aöstoðar frá
upphafi en þeir unnu saman að upp-
byggingu Hraðfrystihúss Grundar-
fjarðar á sínum tíma.
-Hafsteinn Jónsson/Hellissandi.
Hringur Hjörleifsson, eigandi nýja
frystihússins i Rifi.