Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1984, Qupperneq 8
8
DV. FÖSTUDAGUR13. APRtL 1984.
Neytendur
Neytendur
Neytendur
Neytendur
HEIMILISBÓKHALD DV
SVEIFLUR A TÖLUNUM
Sveiflur eru í bókhaldstölum
febrúarménaðar hringinn í kringum
landiö. Meðaltal í heimilisbókhaldinu
hefur ýmist hækkað eða lækkaö á hin-
um ýmsu stöðum samkvæmt niður-
stööum innsendra upplýsingaseðla. Ef
við förum einn hring i huganum og
byrjum á Akranesi þá er meðaltal
matarkostnaðar í febrúar 6,8% hærra
þar en í janúar. í Stykkishólmi er það
23% hærra og á Hellissandi 14,4%
hærra en í janúar. Á Isafirði er heldur
betur hækkun eða 57,4% á mUli mán-
aða. Tæplega 20% hækkun er á meðal-
talinu á Blönduósi en um 14% lækkun á
Hvammstanga.
Meðaltal matarkostnaðar er um 10%
hærra á Akureyri í febrúar en það var í
janúar. Á Húsavík var lækkun en hún
er innan við 1%. Á Egilsstöðum nemur
hækkunin rúmlega 12% á milli tveggja
síöustu uppgjörsmánaöa og rúmlega
4% á Eskifiröi. Á Neskaupstað er
meöaltalið um 34% hærra í febrúar en
það var í janúar. Meðaltalið á Nes-
kaupstaö var ótrúlega lágt í janúar eöa
1.179 krónur á einstakling, í febrúar er
þaö enn lágt eöa 1.587 krónur þó aö pró-
sentuhækkunin sé há.
Hærra meðaltal í Reykjavík
Og við höldum áfram hringinn og
staðnæmumst á Höfn í Homafirði þá
hefur meöaltaliö þar svo til staðiö í
stað. Við gerumst nú stórstíg og stað-
næmumst næst á Hvolsvelli, þar er
meöaltaliö 8,3% hærra í febrúar en það
var í janúar.
Á Hellu lækkaöi meðaltaliö örlítiö
eöa innan viö eitt prósent. Á Self ossi er
það um 4% hærra nú en mánuðinn á
undan.
1 Grindavík, Sandgerði og Keflavík
er meðaltalið lægra í febrúar en í janú-
ar, á öllum þremur stöðunum, í Sand-
gerði er lækkunin mest um 34%.
Þá er komið að höfuðborgarsvæðinu.
I Hafnarfirði er meðaltaliö 37% hærra í
febrúar en í janúar, í Garöabæ 48,7%
hærra, í Kópavogi 42,9% hærra og í
Reykjavík 9,6% hærra.
Skýringar óljósar
Það eru greinilega sveiflur í bók-
haldstölum febrúarmánaöar. Heildar-
hækkun á landsmeðaltali á milli mán-
aöa er 8,25% sem áður hefur veriö
greint frá. Hvort fólk hefur dregið við
sig í matarkaupum í janúar eftir jóla-,
hátíðina og síðan bætt það upp í febrú-
ar vitum viö ekki. En staðreynd er að
færri dagar voru í febrúar en í janúar.
I marsbyrjun kom búvöruhækkun sem
kunnugt er svo reikna má meö tölu-
verðri hækkun á heimilisbókhaldi í
mars. En það furöa sig eflaust margir
á hækkun á mat- og hreinlætisvörum,
sérstaklega á höfuöborgarsvæðinu þar
sem fyrir liggur að mörg hagstæð til-
boð voru í verslunum og „verðstríö”
hefur geisaö á milli sumra verslana.
Skýringamar eru eflaust margar, ein
til dæmis einfaldlega sú að meira hafi
verið keypt til heimilanna í febrúar en
í janúar.
Úr bréfum
En fátt virðist vera óskeikult í þessu
máli og erfitt að finna skýringar. Þær
verða bókhaldarar sem sundurliöa
bókhald að finna hver hjá sér en fróð-
legt væri aö fá frekari sundurliöun á
matarinnkaupum með marsseðlunum.
I einu bréfi sem kom með febrúarseðli
segir: „Matarkostnaðurinn í febrúar
var nokkru hærri en í janúar. Þó var
enginn kjötmatur keyptur, bara gengiö
á forða frystikistunnar.” Og í öðru
en flestar
hækka
bréfi kemur fram að matariiðnum hafi
verið reynt að halda niöri. . . „en ég
býst við aö í mars veröi talan þó nokk-
uö hærri. Þá þarf ég að kaupa sekkja-
vörur og kjöt og það er alltaf keypt í
stónun einingum.”
-ÞG
MEÐALTAL VIÐS
VEGAR UM LANDIÐ
Við birtum hér með töflu yfir meðaltalstölur frá nokkrum stöðum á
landinu. Talan í fremri dálkinum er meðaltal febrúar og til samanburðar
meðaltal í janúar.
Á flestum stöðum á landinu hækkaði meðaltalið í febrúar, hvar skýringanna er
að leita vitum við ekki. Það finnur hver bókhaldari við sundurliðun á sínu
heimilisbókhaldi og hvort meira hefur verið keypt eða verðlagið hækkað
þrátt fyrir tilboð og „verðstríð”.
Staðir: Febrúar Janúar
Kr. Kr.
Akranes 2.277,- 1 2.133,-
Akureyri 2.331,- 2.118,-
Blönduós 2.499,- 2.090,-
Djúpivogur 2.004,- 1.745,-
Egilsstaðir 2.124,- 1.887,-
Eyrarbakki 2.067,- 1.937,-
Garðabær 2.552,- 1.716,-
Grindavík 1.551,- 1.794,-
Hafnarfjörður 2.713,- 1.980,-
Hellissandur 2.933,- 2.564,-
Húsavík 2.099,- 2.107,-
Hvammstangi 2.470,- 2.876,-
Hveragerði 1.784,- 1.955,-
Höfn 1.738,- 1.795,-
ísafjörður 3.870,- 2.458,-
Keflavík 2.240,- 2.595,-
Kópavogur 2.879,- 2.015,-
Mosfellssv. 2.581,- 2.166,-
Reykjavík 2.353,- 2.146,-
Sandgerði 1.366,- 2.032,-
Sauðárkrókur 2.134,- 2.564,-
Selfoss 1.950,- 1.867,-
Siglufjörður 1.826,- 1.353,-
Skagaströnd 2.072,- 1.785,-
Stokkseyri 2.656,- 2.506,-
Stykkishólmur 3.288,- 2.673,-
Vestmannaeyjar 2.104,- 2.242,-
Vopnafjörður 2.450,- 2.271,-
Þorlákshöfn 2,854,- 1.829,-
UÓSIN k ALLAN
SÓLARHRINGINN
A Alþingi liggur nú fyrir frumvarp
til laga þar sem kveðið er á um að
skylda ökumenn til þess að nota öku-
ljós allan sólarhringinn.
I fréttatilkynningu frá Umferðar-
ráði segir að það sé margsannað að
bilarsemaka meöfullum ljósumsjá-
ist mún fyrr þó aö um hábjartan dag
sé ekið. Að þessu geti ökumenn sjálf-
ir komist með því að líta í baksýnis-
spegilinn og sjá hversu vel bílar
sjást, sem ekið er með fullum ljósum
um bjartan dag. Þetta skiptir einnig
miklu máli þegar ekið er framúr.
Þaö kemur einnig að miklum not-
um fyrir gangandi vegfarendur og
hjólreiðamenn að bílar séu meö full
Ijós á öllum tímum sólarhringsins.
Sérstaklega kemur það að gagni fyr-
ir börn sem ekki hafa náð fullum
sjónþroska, aldraða, sjónskerta og
heymardaufa. Fyrir þessa hópa eru
ljósin tákn þess að ökutæki nálgist.
Frændur okkar Svíar hafa tekið upp
skyldunotkun ökuljósa allan sólar-
hringinn. Eftir að því var komið á
þar í landi hafa rannsóknir leitt í ljós
að slysum hef ur fækkaö verulega.
I fréttatilkynningu Umferðarráös
segir ennfremur að ef 85% bíla væri
ekiö að staöaldri með f ullum ökuljós-.
um allan sólarhringinn væri líklegt
að slysum myndi fækka um 80—90 á
ári og þar af gætu verið eitt til tvö
banaslys.
Áhrifaríkasta aðferðin til að fækka
slysum er talin vera almenn notkun
á bílbeltum og notkun ökuljósa
hvernig sem viðrar eða hvemig sem
birtuskilyrði eru. -APH
Raddirneytenda:
HÆTTUM NIÐURGREIÐSLUM
OG AUKUM VERÐSKYNIÐ
Kaupandi skrifar:
Margt hefur veriö ritað og rætt um
verðlagningu landbúnaðarafurða,
niðurgreiöslur og styrki til þeirra og
sýnist þar sitt hver jum.
Nú hafa verðlagsyfirvöld lýst því
yfir aö nauðsyn sé að efla verðskyn
kaupenda á vörum í verslunum og þar
á meðal á landbúnaðarafurðum. 1
þessu sambandi hafa verölagsyfirvöld
gert og gefið út margar verökannanir í
verslunum. Við samanburð á þeim,
sem mjög er fróðlegur, kemur í ljós að
verð á landbúnaöarafurðum er alls
staðar svo til þaö sama. Astæðan fyrir
því er föst verðlagning þeirra sam-
kvæmt opinberum fyrirmælum. Inni í
verðlagningunni er ákveöinn hluti
niðurgreiðslur og uppbætur úr ríkis-
sjóöi. A þessari verðlagningu er ekki
að sjá að nokkurt tillit sé tekið til hag-
kvæmni í verslun, verðið er það sama
jafnt hjá stórri sem smárri verslun,
sama hversu langt eða stutt þarf að
flytja vöruna til seljanda.
Þessi fasta verðlagning land-
búnaðarafurða stríðir á móti yfirlýs-
ingu verðlagsyfirvalda um eflingu
verðskyns kaupanda, því hún
falsar raunverulegt verð þessara
vara. Kaupandinn greiðir í raun mun
hærra verð fyrir þessar vörur en þaö
sem hann greiöir við búöarborðið því
hann greiöir í sköttum sínum til ríkis-
sjóðs niðurgreiöslur á framleiðslu-
vörum landbúnaöarins og síðan út-
flutningsbætur.
Ef raunverulega á að gefa kaupand-
anum kost á að efla verðskyn sitt þá
verður að hætta öllum niöurgreiðslum
úr ríkissjóði til landbúnaöarfram-
leiðslunnar. Þá fyrst geta kaupendur
gert sér ljóst raunverulegt verð þess-
ara afurða og haldið áfram aö kaupa
þær ef það er hagkvæmt en annars
leitaö annaö.
Að hætta þessu myndi auk þess
lækka skatta þegnanna og þar sem
skattaherrarnir segja aö sköttum sé
réttlátlega niður deilt þá mun skatta-
lækkunin meö sömu ráttlátu niður-
dreifingu koma landbúnaðinum einnig
tilgóöa.
V í R N
JL. -12. MAÍ
ÁSKRIFEN DAFERÐ
OG (1TCO<VTIK
Fjölskylduhótel kr. 15.900,-
Lúxushótel kr. 18.400,-
Innifalið: Beint flug og gisting — íslensk fararstjórn
skoðunarferð um Vín og óperumiði.
(TTCOVTI*
FERÐASKRIFSTOFA. Iönaöarhúsinu Hallveigarstigl.Símar 28388 og 28580