Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1984, Qupperneq 26
34
DV. FOSTODAGUR13. ÁPRlL 1984
Andlát
Gunnar Kristjánsson, Móatúni 5,
Tálknafirði, lést í Landspítalanum 14.
apríl.
Geir Jón Helgason, White Rock. B.C.
Canada, lést þann 11. apríl.
Halldór Páisson, fyrrum búnaöar-
málastjóri, er látinn.
Kamilla Pedersen, Lindargötu 40, lést
í Borgarspítalanum fimmtudaginn 12.
apríl.
Gunnbjörg Sesselja Sigurðardóttir,
Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
lést ll.apríl.
EiðarViðar erlátinn.
Margrét Jónsdóttir frá Höskulds-
stöðum andaðist 11. apríl á Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Gunnar Kristófersson, Oldugötu 22,
Hafnarfirði, lést á Hrafnistu 10. apríl
sl. Útför hans verður gerð frá Þjóð-
kirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn
18. apríl kl. 15.00.
Sterún Árný Magnúsdóttir, Faxabraut
70, Keflavík, veröur jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 14.
apríl kl. 14.00.
AUGLÝSING
um styrk og lán til þýðinga
á erlendum bókmenntum.
Samkvæmt ósk Félags íslenskra bókaútgefenda hefur
frestur til aö sækja um lán og styrki úr Þýöingarsjóöi á þessu
ári verið framlengdur til 30. apríl nk.
Reykjavík 10. apríl 1984
Stjórn Þýöingarsjóðs.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU
Menntamálaráöuneytiö auglýsir hér meö lausar til umsóknar námsstjórastööur í
eftirtöldum greinum: f
íslensku, stæröfræöi, erlendum tungumálum (ensku, dönsku — ein staða eða tvær
hálfar), samfélagsgreinum (sögu, landafræöi, félagsfræöi o.fl.), náttúrufræði
(eölis-, efna-og iíffræöi),mynd-og handmennt, heimilisfræöi, tónmennt (tónmennt
og tónlistarfræöslu), kristinfræöi (hálf staða). Einnig stöðu námsstjóra fyrir byrj-
endakeunslu.
Ráðiö verður í stöðurnar frá 1. sept. nk.
Askilin eru kennsluréttindi og kennslureynsla svo og fagleg og kennslufræðileg
þekking í viökomandi grein eöa sviði.
Störfin taka flest til grunnskóla og skila grunnskóla- og framhaldsskólastigs.
Nánari upplýsingar veitir Menntamálaráöuneytiö, skólarannsóknadeild, sími
26866 eöa 25000.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar Mennta-
málaráöuneytinu, Hverfisgötu 4—6,101 Reykjavík, fyrir 20. maí nk.
UMBOÐSMENN ÓSKAST
HAFNIR
Upplýsingar hjá Magnúsi B. Einarssyni. Simi 92-6958.
BREIÐDALSVÍK
Uppiýsingar hjá Steinunni Arnardóttur, sími 97-5628.
DJÚPIVOGUR
Upplýsingar hjá Steinunni Jónsdóttur, sími 97-8916.
Einnig eru aiiar upplýsingar á afgreiðslu DV Þver-
holti 11, simi27022.
Smáauglýsingadeildin er
íÞverholtill
og síminn þar er27022
Opið alla virka daga frá kl. 9—22
Laugardaga Irá kl. 9—14
Sunnudaga fré kl. 18—22
Hulda Þ. Guðmundsdóttir lést 5. apríl
sl. Hún var fædd í Reykjavík 4.
febrúar 1911, dóttir hjónanna Mattínu
Helgadóttur og Guðmundar Guðna-
sonar. Hún giftist Jóhanni Hannessyni
og eignuðust þau þrjú börn. Hulda og
Jóhann slitu samvistum. Lengst af
starfaði Hulda hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur.
Guðlaugur Bjarnason, Giljum, lést 5.
apríl sl. Hann fæddist að Kröggólfs-
stööum í ölfusi 18. ágúst 1889. For-
eldrar hans voru Þorbjörg Einars-
dóttir og Bjarni Símonarson.'
Guðlaugur kvæntist Lárettu Sigurjóns-
dóttur en hún lést áriö 1978. Þeim
hjónum varð átta bama auöið, þar af
eru fimm á lífi. Otför Guðlaugs verður
gerð frá Stórólfshvolskirkju laugar-
daginn 14. apríl kl. 14.00.
MEIRA EN
500
HLEÐSLJUR
CADNICA
FÆST í VERSLUNUM
UM LAND ALLT
NYTSÖM
FERMINGARGJÖF
OKSELVtLAR HE., SUOURLANDSBRAUr II, SiMI M.
einhver besta lausn
orkusparnaðar.
Þeir margborga sig.
Danfoss ofnhitastillir
er svarið við hækkun á
verði heita vatnsins.
= HÉÐINN =
SEUAVEGI 2, REYKJAVÍK.
öm Ö. Johnson lést 7. apríl sl. Hann
var fæddur í Reykjavík 18. júlí 1915,
sonur hjónanna Helgu P. Thorsteinson
og Olafs Johnson. örn kom heim frá
Bandaríkjunum sem atvinnuflug-
maöur frá Boeing flugskólanum í
Kaliforníu meö flugkennarapróf. Þeg-
ar Flugfélag Islands var stofnað áriö
1946 varð öm forstjóri þess til ársins
1973 þegar flugfélögin tvö voru sam-
einuö. Hann varö svo einn af for-
stjórum Flugleiða, og svo stjórnarfor-
maöur til dauðadags. Eftirlifandi
eiginkona hans er Margrét Þorbjörg
Hauksdóttir Thors. Þau hjónin eign-
uðust fimm börn. Útför Amar verður
gerö f rá Dómkirkj unni í dag kl. 13.30.
Tilkynningar
Manngildi, sjálfsþekking og
sjálfsstjórn, ráðstefna
hjá Samhygð
Laugardaginn 14. apríl nk. kl. 13 stendur
menningarmáldeild Samhygðar fyrir ráð-
stefnu í Félagsstofnun stiidenta um
manngildi, sjáifsþekkingu og sjálfsstjórn á
sviðum menntunar, íþrótta og lista.
Á ráðstefnunni munu tala fulltrúar þess-
ara þriggja sviða.
FjaUað vérður um nauðsynlegt samspil
manngUdis, sjálfsþekkingar og sjálfsstjórn-
ar á ofangreindum sviðum. Á eftir ræðum
framsögumanna verða almennar umræður
og tillögur gerðar um úrbætur.
Ráðstefnan er haldin í tilefni nýútkominn-
ar bókar sem heitir Sjólfs-frelsun og er eftir
L.Á. Ammann og fleiri.
Þessi bék er bylting í skilningi á mannin-
um og hegðun hans. 1 henni eru settar fram
nýjar forsendur fyrir námi, útlistun með
æfingum á nauðsyn jafnvægis mUli hugar og
líkama i íþróttum og einnig fjaUar hún um
skilning, forsendur og undirrót listsköpunar.
Héraðsvaka 1984
10.—15. aprfl.
Föstudagur 13. aprU:
Skáldakynníng, héraðsskáld og hagyrðingar.
Kvöldvaka í ljóðum, tónum og lausu máli.
Fram koma: Ámi Isleifsson, Bjöm
Ágústsson, Einar Georg Einarsson, Einar
Eiríksson, Guörún Áöaisteinsdóttir, Hallveig
Guðjónsdóttir, Rögnvaldur Erlingsson,
Sigrún Björgvinsdóttir, Sigurður 0. Pálsson,
sem flytur eigið efni og les jafnframt ljóð eftir
Braga Björgvinsson og Stefán Bragason.
Hinn nýi Karlakór Fljótsdalshéraðs kemur
fram í fyrsta sinn og veitt verða verðlaun
fyrir snyrtilega umgengni, frágang lóðar eða
umhverfis á Héraði. Aðgangur kr. 200,-.
Laugardagur14. aprU:
Héraðskabarett og dansleikur í Valaskjálf kl.
20.30.
Efni í kabarettinn kemur úr öUum hreppum
á Héraði. Sem dæmi má nefna að úr Skriðdal
kemur innlegg í kvenréttindabaráttuna og frá
Egilsstöðum verður ,,ástands”-tíminn
rifjaður upp. Or Hjaltastaðaþinghá verða
fluttar gamanvísur, samlestur og skrítlur
o.s.frv.
ADgangur kr. 200,- fuUorðnir og kr. 100,-
börn.
Á dansleiknum leikur hjómsveitin Aþena tii
kl. 2.00, aðg.kr. 300,-.
Gestir á kabarettinn kaupa sig inn á bæði
atriðin kr. 400,- en fá endurgreitt við brottför,
verði þeir ekki á dansleiknum, kr. 200,-.
Borð verða í salnum bæði föstudags- og
laugardagskvöld og gestir geta fengið
keyptar veitingar.
Sunnudagur 15. aprU:
Vökulok. Skemmtun í Valaskjálf kl. 14.00, sér-
staklega ætluð öldruðum og öðrum þeim sem
óhægt eiga um sókn kvöldskemmtana: Valin
atriði úr Héraðsvöku 1984 endurflutt.
Aðgangur kr. 100,-.
Menningarsamtök Héraðsbúa.
Snæfellingar
og Hnappdælir
Hópferð á vorfagnað SnæfelUnga og Hnapp-
dæla í Reykjavík laugardaginn 14. apríl. Þeir
sem hafi áhuga hringi í s. 92-1619 eða 92-2294 í
dag. AlUr velkomnir.
Leiðrétting
I blaöinu í gær misritaðist föðurnafn
Bærings Þorbjörnssonar sem átti átt-
ræðisafmæli þann dag. Biðst blaðið
velvirðingar á þessum mistökum.
70 ára afmæli á í dag, 13. apríl, Einar
Sveinn Jóhannesson skipstjóri á Lóös-
inum í Vestmannaeyjum. Hann verður
í dag staddur á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar að Hvannhólmi 4 í Kópa-
vogi. Þar tekur hann á móti gestum
sínum eftir kl. 16 í dag.
Ókeypissendibílar
tæplegaum
þessa helgi
„Það verður ekki látiö uppi hvenær
þetta verður gert,” sagði Guðmundur
Sigurjónsson, sendibílstjóri á Sendi-
bílastööinni hf., þegar DV spurði hann
hvenær sendibílstjórar ætluðu að fjöl-
menna fyrir utan skemmtistaði og
bjóða fólki ókeypis akstur heim.
Guðmundur sagði þó að aðgerðimar
færu tæplega af stað um þessa helgi.
Meiningin væri að boða sendibílstjóra
saman áöur til fundar um málið.
„Þetta verður gert með skömmum fyr-
irvara,” sagði Guðmundur.
Mikill hugur virðist vera í bílstjór-
unum. Þótt félag þeirra standi ekki
sjálft að því að skipuleggja aðgerðirn-
ar gegn leigubílstjórum virðast all-
flestir bílstjórar reiðubúnir aö taka
þátt í þeim. -KMU.
Verkfalliflug-
freyjaaflýst
Verkfalli flugfreyja sem taka átti
gildi á miönætti síðastliðna nótt varaf-
lýst í gær og samþykkt að vísa deilunni
til gerðardóms. Verður skipuö fimm
manna nefnd til að taka afstööu til þess
hvort flugfreyjur í áhöfnum DC—8 63
vélum Flugleiða skuli vera sex eins og
flugfreyjur krefjast eöa fimm eins og
nú er. Nefndina skipa tveir fulltrúar
hvors aðila auk oddamanns. Nefndin á
að skila áliti fyrir 1. maí næstkomandi
og skuldbundu báðir aöilar sig til að
hlítaniöurstöðumhennar. -OEF.
Traffic heitir skemmtistaður sem verður opnaður i kvöid. Hann er ætlaður
16 ára unglingum og eidri. Verður boðið upp á gosdrykki', sam/okur og
diskótónlist á föstudags- og laugardagskvöldum tilað byrja með. Á mynd-
inni eru aðstandendur Traffic. Frá vinstri Þórarinn Kristinsson, Benedikt
Ólafsson, Gunnlaugur Ragnarsson, Viihjáimur Svan og Jón Axel.
-KÞ/DV-myndBj. Bj.