Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Qupperneq 8
8 Áleið til Græn- lands tilað gerast fjárbóndi — Guðmundur Þorsteinsson, verkamaður í Straumsvík, er heldur betur að breyta um starf „Jú, þaö ætti að vera hægt. Annars hef ég lúmskt gaman af því aö þaö er sama hvar ég kem, þegar menn heyra aö ég sé aö fara til Grænlands til aö hefja fjárbúskap, þá segja þeir strax: „Hvernig er það, get ég ekki fengið heimilisfangið hjá ykkur í Græn- landi?” Nokkuö var liöíð á heimsókn okkar Bjamleifs ljósmyndara til þeirra hjóna Guömundar Þorsteinssonar og Benediktu Christiansen, er viö impruö- um á því viö þau aö fá nýja heimilis- fangiö hjá þeim við Einarsfjöröinn í Grænlandi. Við höföum þá skoðað ljósmyndir frá bænum þar sem þau ætla að setjast aö og hvílík náttúrufegurö. Það hlýtur líka aö vera spennandi aö sjá hvemig verkamanni í Straumsvík, sem ákveö- ið hefur aö gerast fjárbóndi í Græn- landi, reiðir af við búskapinn. Langar að breyta til „Aöalástæöan fyrir því aö við ætlum aö gera þetta er sú, aö okkur langar til aö breyta til. Tengdafaöir minn er meö stórt fjárbú í Einarsfirði og þegar hann bauö okkuraökoma ákváöumviö að slá til. Eg veit ekki hvemig mér reiöir af sem fjárbónda en ég ætla aö gera heiöarlega tilraun. Eitt er víst, aö ég er aö fara til frjálsasta manns í heimi, þar sem tendafaðir minn er. Hann hefur byggt upp gott bú af miklum dugnaði og ég hlakka til aö fá að spreyta mig meö honum. Fá að læra af honum.” Eqaluit heitir bærinn sem tengdafaö- ir Guömundar býr á. Þar ólst konan hans, Benedikta, upp, þannig aö hún er aö snúa heim í átthagana er hún yfir- gef ur Breiöholtið eftir nokkra daga. Kynntumst í Danmörku Þaö var í október árið 1970 sem þau Guömundur kynntust í Kaupmanna- höfn. Hún var þá þar viö nám en Guö- mundur að vinna. Þau felldu strax hugi saman og ekki leið á löngu þar til þau voru komin til Islands. Fjölskyld- DV MIÐVIKÚDAGUR18. APRÍL Í984. Oq ekki ber á öðru en sprettan sé góð. Það er Inga Dóra sem hleypur um i grasinu. fegurð við Einarsfjörð er óhemju mikil. Guðmundur Þorsteinsson ásamt konu sinni Benediktu Christiansen og börnum. Eftir nokkra daga halda þau til foreldra Benediktu i Einarsfirði i Grænlandi þar sem þau ætla að setjast að og hefja fjárbúskap. Þess má geta að Benedikta talar óaðfinnanlega íslensku. IVýlega tók hún sig til og þýddi grænlenska bók yfir á íslensku. an hefur líka stækkað. Bömin era orðin þrjú, hvert ööru myndarlegra. Og þrátt fyrir að Guðmundur segist ætla aö vera Islendingur áfram, þótt hann setjist aö í Grænlandi, finnst manni sem Benedikta sé orðin tals- verður Islendingur í sér eftir nær fjórtán ára búsetu hér. Þaö gerir ís- lenskan hennar. Hún talar hana lýta- laust, óvenjulega vel af útlendingi aö vera. Þegar heimurinn opnaðist Nýlega tók hún sig líka til og þýddi grænlenska bók yfir á íslensku. „Þeg- ar heimurinn opnaöist”, nefnist bókin á islensku. Hún er eftir grænlenska rit- höfundinn Inoraq Olsen. Bókin fjallar um líf Grænlendinga i Danmörku. Meö bros á vör leiddum við taliö inn á álframleiðslu. — Helduröu ekki aö þú eigir einfaldlega eftir aö reisa álverk- smiöju í Einarsfiröi? „Nei, það ætla ég aö vona aö verði ekki. Þykist nokkuö viss um aö sú veröi ekki raunin. Til þess er náttúru- feguröin í Grænlandi líka svo stórkost- leg að ég vona aö henni veröi ekki spillt meö skarkala sem fylgir stóriðju.” — Hvar er Einarsfjörður á landa- kortinu? „Einarsfjöröur er næsti fjöröur viö Eiríksfjörð. Og það þorp sem styst er í, er Qaqortoq (Julianeháb). Þá er þorp- Guðlaugur Leósson, 28 ára Kópavogsbúi: Hefur haldið hátt í tvö hundruð nám- skeið í skyndihjálp Rúmlega eitt prósent af þjóöinni hefur sótt námskeið hjá honum í skyndihjálp, sem hann hefur haldiö á vegum Rauöa krossins. Og þaö er enginn smáfjöldi námskeiöa sem hann hefur haldiö. Þau eru nú komin háttítvöhundruö. Viökunnanlegur er maðurinn. Hann heitir Guðlaugur Leósson, býr í Kópa- voginum og er 28 ára að aldri. Við litum inn til hans á námskeiö eitt kvöldiö í kjallara Hjúkranarheimilis aldraöra í Kópavoginum fyrir stuttu. „Er ekki rétt aö gera örstutt kaffihlé núna,” sagöi hann brosandi, er viö birtumst. Hann átti von á okkur, haföi gefiö vilyrði fyrir stuttu spjalli daginn áöur. ,3g byrjaði á að halda þessi námskeið áriö 1976. En þaö eru nú um 10 ár síðan ég gerðist félagi í Rauða krossinum, þar af hef ég veriö félagi í Rauða kross-deildinni í Kópavoginum síöustu 8 árin.” — Er áhugi fólks á þessum námskeiðum alltaf jafnmikill? „Áhuginn gengur mikiö í bylgjum. Hafi til dæmis veriö sagt frá síysi í blööunum þar sem skyndihjálp eins og blástursaöferðin er notuö, veröur mikill áhugi á námskeiðunum á eftir. Þá er þaö áberandi að lendi fólk í því aö einhver deyr í nálægö þess, þar sem hefði verið hægt að bjarga meö kunn- áttu í skyndihjálp, þá kemur þaö á námskeið stuttu á eftir. Þaö segir þá gjarnan sem svo: „Eg hef alltaf vitaö af þessumnámskeiöum en bara aldrei látið veröa af því aö drífa mig á þau.” Og oft bætir það viö aö í rauninni ætti að skylda alla að fara á skyndihjálpamámskeiö.” Flest námskeiðanna hefur Guölaugur haldiö á Reykjavíkur- svæðinu. En hann hefur einnig farið út á land og haldið námskeiö. „Þá hefur þaö komið fyrir aö ég hafi veriö beðinn aö koma í fyrirtæki og halda námskeiö.” Skyndihjálpamámskeiðin sem boöiö er upp á era þrenns konar. Þaö er námskeið í almennri skyndihjálp, námskeið í aukinni skyndihjálp og að síðustu er námskeið í hjartahnoöi. — Nú hefur farið mikill tími í þetta hjá þér, ætlarðu eitthvaö að fara aö minnka viö þig í námskeiðahaldinu? Guðlaugur leiðbeinir hér á námskeiði i skyndihjálp hjá Rauða kross-deild- inni i Kópavogi nýlega. Maðurinn við hlið Guðlaugs sagðist vera kominn á námskeiðið þar sem hann hefði len t i þvi n ýlega að maður dó i höndunum á honum. „ Var oft búinn að hugsa um að fara á svona námskeið en dreifmig eftirað ég varð eftir þessari lifsreynslu," sagði hann við okkur. „Ekki á meðan ég hef gaman af þessu. Þessi námskeið eru einn af homsteinum Rauða kross-starfsins og ég sé ekki eftir einni einustu mínútu í þau.” A námskeiðinu hjá Guðlaugi þetta kvöld, voru nokkrir nemendur í fram- haldsskólum. „Okkurfinnstaöþaöeigi aö kenna skyndihjálp í skólunum. Og ef þaö næst ekki í gegn, þá aö kenna þetta er fólk tekur bílpróf,” sagöi ein í hópnum. Og bætti viö: ,,Á námskeiöunum er kennt hvemig fólk eigi aö bregöast viö, er þaö kemur á slysstað. Slysin gera ekki boö á undan sér og þaö veit enginn hvenær hann getur lent í því aö koma fyrsturaðslysi. Á meöal þess sem kennt er á námskeiðinu Almenn skyndihjálp er blástursaðferöin, meðferð brunasára,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.