Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 10
10 DV. MIDVIKUDAGUR18. APRIL1984. ,,Ég fékk áhugann snemma á skellinöðrum og mótorhjglum. Eldri bræður minir áttu skellinöðrur og þannig kviknaði neistinn." Lina er hér á Hondumótorhjóli. Hún er 28 ára og siðustu 14 árin hafa farkostir hennar meira og minna veríð skellinöðrur og mótorhjól. Sagt hefur verið að hún sé með fyrstu konunum hér á landi sem tóku próf á mótorhjól. Og eins og sjá má fær poodle-hundurinn hennar oft að fliót##ieð i mótorhjólaferðir. DV-myndir: Heiðar Baldursson. r Líney Kjartansdóttir, 28 ára, lyf jatæknir: Hætti í apótekinu og hóf að senda leigu- bíla hingað og þangað — nú er hún eina konan á íslandi sem gegnir starfi slökkviliðsmanns Margir í Keflavík hafa þekkt Línu Kjartansdóttur sem „snaggaralegu stúlkuna í apótekinu sem þeysist um á mótorhjólum.” Hún er menntaður lyfjatæknir. En eftir rúmlega tíu ára starf í apótekinu í Keflavík sagði hún þar skyndilega upp. Ekki að henni leiddist. Hún vildi bara breyta til. Nú vinnur hún í slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli. Eina stúlkan á Islandi sem gegnir starfi slökkviliðs- manns. Hún hóf þar störf 14. nóvem- ber síöastliðinn. Varla var hægt að hefja rabbið án þess að spyrja hvemig karlmennirnir hefðu tekið því aðfá konu í slökkviliðið. , ,Jú, jú, þeir hafa bara tekið mér vel. Þetta er góður vinnustaöur og mér hefur liðið ágætlega hér,” svaraði hún að bragði og hressilega. — En hvernig bar það til að hún fór að vinna sem slökkviliðsmaður ? „Eg sá starfið auglýst og sótti um. Og í framhaldi af því var ég ráðin. ’ ’ Úr apótekinu í prins póló Leið Línu lá þó ekki beint úr apótekinu og í slökkviliö. Þegar hún sagöi upp í apótekinu réði hún sig á Aðalstööina í Keflavík. Þar fór hún að selja sælgæti, meöal annars þjóðar- réttinn sjálfan, kók og prins póló. Og þá fólst starfið í því að senda leigubíla hingaö og þangað. „Eftir þetta færöi ég mig yfir í bensíniö, ef svo má segja, fór að afgreiða bensín. Þar var ég í níu mánuði eða þar til ég fór í slökkvi- liöið.” Við fórum aðeins að gantast meö níu mánuöina. „Já, er það ekki gjald- gengur tími, hvar sem er?” var strax svarað. Nú ert þú þekkt fyrir að þeysa um á mótorhjólum. — Hvenær fékkstu mótorhjóladelluna? Fékk skellinöðruleyfi 14 ára „Eg fékk áhugann snemma. Eldri bræöur mínir áttu skellinöðrur og þannig kviknaði neistinn. Þeir höfðu. sig hins vegar aldrei upp úr skelli- nöðrunum.” „Það var svo þegar ég var 14 ára sem ég fékk æfingaleyfi á skellinöðru. Síðan tóku mótorhjólin við. En ég hef einnig átt bila inn á milli. Eg segi oft í gríni að ég hafi byrjaö í 50 kúbíkunum og fikraðrnig upp í 750 kúbíkin.” Ohætt er aö taka undir þau orö hennar. Því fyrsta hjólið var Honda 50. Síðan komu Hondu-mótorhjólin hvert af öðru. Þau fyrstu voru 350 kúbíka og þá tóku 500 kúbíkin við. „Það síðasta sem ég átti var Honda 750, en ég seldi það á siöasta ári er ég fjárfestiínýjum bíl.” Saknar 750 kúbkanna — Saknarðu 750 kúbíkanna? „Já, það geri ég. Það er viss tegund af frelsi aö aka um á mótorhjólum. Maður tekur meira eftir umhverfinu við að feröast þannig. Það er eins og vera ein í heiminum.” — En nú eru hættumar margar og mörg mótorhjólaslysin ? „Það er vissulega rétt. En aðal- atriðið á mótorhjólum er það að treysta engum. Treysta engum öðrum i umferðinni. Það er númer eitt.” Þaö hafa margir orðiö hissa að sjá Línu þeysast um á mótorfákunum, ekki síst þegar hún er með Tönju Tucker með sér. „Tanja er hundurinn minn, skírð í höfuðið á kántrísöng- konunni. Þetta er lítill poodle.” Tanja Tucker á bögglaberanum — Hvar kemurðu henni fyrir á hjólinu? „Eg hef hana innan á mér og læt höfuöið standa upp úr. Það þýðir ekkert annað en leyfa henni aö njóta útsýnisins.” — Hvaö um að binda hana á bögglaberann? „Nei, það held ég að gangi ekki upp. Eigum við ekki að seg ja að hún tolli illa þar.” — ErtuíHundavinafélaginu? „Já, þaö dugir ekkert annaö. Eg er hverfastjóri hundavinafélagsins í Keflavík. Reyndar hef ég mikinn áhuga á að fara út i að læra hunda- tamningar í framtíðinni. Það eru góðir hundatamningaskólar i Bandaríkj- unum og Englandi sem ég reikna með að sækja um inngöngu í. Þaö er bara verst að þeir vilja ekki nema hermenn og lögreglur í þessa skóla.” Og áhugamálin eru fleiri. Lína er í Skotíþróttafélagi Keflavikur, þá er hún í skíðasportinu og hefur stundaö dans, jassballett og líkamsrækt. Að finna sér tíma fyrir áhugamálin — Ekkertvandamálaðfinnatíma? „Það er með mig eins og marga aðra, að ég hef stundum orð á því að sólarhringurinn dugi ekki. En aðal- atriðið er bara að finna sér tíma. Þetta gengur allt saman einhvem veginn upp, hafi maður áhuga á því.” Talið barst næst að Keflavíkinni, hvernig væri að búa þar og svo framvegis. I rælni spuröi ég sísvona hvort hún væri ættuð úr Keflavík. „Ekki beinlínis. Eg er stranda- glópur. Steig mín fyrstu skref á Vansleysuströndinni en hef lengst af búið í borginni suöur með sjó.” Blæs á móti á Suðurnesjum — Hvaðmeðrokiðumtalaða? „Það blæs jú oft vel á móti, það er rétt. Sumir Suöumesjabúar segjast reyndar merkja viö á almanakinu, sjái þeir logn hér á veðurkortinu í sjón- varpinu. En hér er gott aö búa og fullt af skemmtilegu fólki.” Undir þessu síðustu orð Línu gátum við tekið. Vel að merkja, svo framar- lega sem hún er dæmigerður Keflvík- ingur. -JGH. Lina tekur sig óneitanlega vel út i búningnum. Hún hóf störf í slökkviliðinu á Keflavikurflugvelli 14. nóvember siðastliðinn. „Ég sá starfið auglýst og sótti um." Þess má geta að Lina starfaði i yfir tíu ár sem lyfjatæknir í apótekinu í Keflavik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.