Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 20
20 DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. Fimmtán morð Sérstæð sakamál — Sérstæð sakamál — „Eg tel það skyldu mína að aðvara yður. Við þetta mál eigið þér eftir aö heyra frásagnir með lýsingum sem eru sérlega viðbjóðslegar, hneyksla og vekjaóhug...” Með þessum oröum, sem beint var til kviðdómsins, átta karla og fjögurra kvenna, opnaöi dómarinn Crom- Johnson réttinn í Old Bailey þann 24. október 1983. Málið var gegn hinum 37 ára gamla Dennis Nilsen sem var ákærður fyrir sex morð og tvær morð- tilraunir. Hann hafði hins vegar játað f immtán morð en lögreglan haf ði ekki getað bor- ið kennsl á fleiri en sex lík eftir þeim líkamsleifum sem fundust. Og án corpus delicti, það er að segja sýni- legra sannana fyrir því að afbrot hafi verið framið, er ekki hægt að höfða ákæru fyrir morð samkvæmt enskum lögum. Máliö gegn „slátraranum frá Cranley” vakti mikla athygli og ekki bara vegna svakalegra og óhugnan- legra aðferða. Vann fyrir drottningu Það kom fram aö Dennis Nilsen hafði um tíma verið nokkurs konar hjálparkokkur i eldhúsi Englands- drottningar í höllinni í Balmoral íSkot- landi þegar hann sem hermaður þjónaði meðal annars í The Queens Guard í Ballater sem er nálægt höll- inni. Og það var þegar hann vann í eldhúsinu sem hann lærði að fara með öxi og hnifa sem hann síðan notaöi til að hluta í sundur fórnarlömb sín. Fyrir Lundúnalögregluna þróaðist þetta mál nánast út í hneyksli. Hið óhugnanlega atferli Dennis Nilsens hefði mátt stööva löngu áöur en hann var loks afhjúpaöur af blikksmiði nokkrum. Nóvemberkvöld 1980 sat Nilsen, eins og hann átti vanda til, og drakk á bjór- krá sem nefndist Golden Lion og er í Dean Street í Soho. Hann fór að spjalla við annan einmana gest. Þaö var Douglas Steward, 26 ára gamall og at- vinnulaus. Eftir tvær ölkrúsir urðu þeir sammála um að fara heim í íbúð Nilsens við Melrose Avenue. Þar hlust- uðu þeir á rokktónlist og drukku viskí þangaö til Steward sofnaði. „Eg sat í stórum gömlum leður- hægindastól,” sagöi hann í vitnastúk- unni í Old Bailey. „Og ég vaknaði við köfnunartilfinningu. Dennis þrýsti mér niður í stólinn með hné á brjósti mér á meöan hann strengdi eitthvað um háls- inn á mér. Eg baröist um til að losna og mér tókst aö reka finguma upp i augun á honum. Hann féll með ópi á gólfið. Það var hálsbindi sem hann haföi not- að til að reyna að kyrkja mig með og ég uppgötvaði að fætur mínir voru einnig bundnir saman með bindi! Eg kastaði mér yfir hann á gólfinu og hélt handleggjum hans föstum með hnjám mínum og sló hann tvisvar. Þá stóö ég upp og ætlaði aö fara en áður en ég var kominn að dyrunum stökk hann upp og greip í mig. Þá var hann skyndilega kominn með hníf í hönd. Eg sagði viö hann að við skyldum gleyma þessu öllu og að ég myndi að minnsta kosti ekki ákæra hann. Hann lagði frá sér hnífinn tók viskíflöskuna og við skiptum síðasta slattanum á milli okk- ar. Á meðan hann sneri baki í mig eitt augnablik læddist ég út um dyrnar. Eg hringdi í lögregluna frá leigubílastöð og sagði að reynt hefði verið að drepa mig. Fimm mínútum síðar voru tveir lögregluþjónar komnir og við fylgd- umst að til íbúðar Dennis. En hann neitaöi öllu og hélt því fram að ég hefði ráðist á sig. Til sannindamerkis sýndi hann lögreglumönnunum tvær rispur á andliti sínu. Þeir spuröu hvar ég byggi og ég gaf þeim heimilsfang mitt. Þeir sögðu mér aö ég myndi heyra frá þeim. Þeir höfðu aldrei samband...” Hefði átt að nást fyrr prian Spar, sem var annar lögreglu- mannanna, staðfesti fyrir réttinum að Steward hefði skýrt satt og rétt frá. Hann bætti því við aö hann heföi spurt bæði Steward og Nilsen hvort þeir væru hommar. Báðir hefðu neitað þvi. Samt sem áður höfðu hann og félagi hans orðið sammála um það að þetta mál væri áreiöanlega þessi „venjulegu læti” miili tveggja slíkra og þeir höfðu ekki gert neitt meira í málinu. Ef þeir hefðu gert eitthvaö meh-a í málinu, til dæmis með því að skoða íbúðina aðeins nánar, heföu þeir áreiöanlega fundið ýmislegt. Inni á baðherbergi geymdi Nilsen nefnilega líkamsleifar tveggja ungra manna sem hann haf ði myrt skömmu áöur. Carl Stotter, ungur maöur, bar vitni fyrir réttinum, frásögn hans svipaði nokkuö til þess sem Steward hafði sagt. Eini munurinn var sá að Nilsen hafði ekki bara reynt að kyrkja hann. Þegar það haföi mistekist hafði hann líka reynt aö drekkja honum í baðkari íbúðarinnar. Báðir höfðu þeir verið dauöadrukknir og hvemig hann hafði sloppið og hvers vegna Nilsen hafði gefist upp við ætlunarverk sitt hafði hann ekki hugmynd um. Hann hafði vaknað á gólfinu í baðherberg- inu, rennblautur og með bindi hert um hálsinn, við það aö Bleep, hundur Nilsens, stóö og sleikti hann í framan. Þetta gerðist í maí 1982. Stotter, sem viðurkenndi að hann væri kynhverfur, hafði af þeirri ástæðu ekki þorað að kæra. En lögreglan hafði eitt tækifæri í við- bót til að afhjúpa Dennis Nilsen. I ágústmánuöi 1981 kom ungur lækna- nemi, Robert Wilson að nafni, inn á lögreglustöðina í Kilbum og afhenti poka með beinum, sem hundur hans hafði grafið upp, á byggingar- svæði við Melrose Avenue, bak við hús- ið þar sem Nilsen bjó. Wilson taldi að beinin væm úr manni og jafnvel úr tveimur eða þremur mönnum. , Douglas Steward sem Dennis Nilsen reyndi að myrða. Hann stendur fyrir framan krána þar sem þeir hittust. I þessu var heldur ekkert gert. Þegar Dennis Nilsen kom fyrir rétt, þann 12. febrúar 1983, var pokinn með beinunum horfinn. Sjálfur hafði hann árið áður flutt í íbúð í húsi í Cranley Gardens 23. Óhamingjusöm œska I janúar 1983 fóm allir í húsinu að kvarta yfir hræðilegri fýlu sem varð verri og verri og kom greinilega úr klóaki hússins. Dennis Nilsen kvartaöi einnig skriflega til eiganda hússins. Eftir langa mæðu kpm^blikksmiður-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.