Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.1984, Page 23
DV. MIÐVIKUDAGUR18. APRIL1984. 23 V' í eina tíð voru flestar hljómsveittr dsmdar út frá mælikvarða fram- sækninnar sem upp á útlensku var einlægt nefnd: prógressív. Það þótti afskaplega fínt að vera prógressívur og þvi flóknari sem tónlistin var og meira í hana spunnið af tónlistarleg- um flækjum því merkilegri voru flytjendurnir. Seinna festist þetta hugtak við ákveðna tegund rokktón- listar sem Genesis var nokkurs kon- ar samnefnari fyrir. En það er langt siðan. Samt hafa margir ungir rokkar- ar gengið með Genesisdrauma fram á þennan dag. Það er ekki víst þeir viðurkenni það opinberlega en tónlist i ætt viö gömlu Genesis fellur enn vel í kramið og virðist eiga vísan stað í hjörtunum ungu. (Æ, hvað þetta var fallegasagt!) Flestir hafa ugglaust heyrt getið um bresku hljómsveitina Marillion en þeirri sveit helgum við helgar- poppið að þessu sinni. A þeim bæ er foringi sem gegnir ekki öðru nafni en Fish. Hann málar sig eins og Goggi í Culture Club og Marilyn en á samt fátt sameiginlegt með þeim „vinkon- unum” og hefur raunar megnustu óbeit á þeim bæöi hvað tónlist og útlit áhrærir. Sjálfur er hann dreki stór og karlmannlegur eftir því eins og myndin héma af honum sýnir dæma- laustvel. r ish finnst alveg makalaust hvað blöðin eru iðin við að hampa gaur eins og Marilyn en honum sárnaði fyrst þegar bandariskir blaðamenn tóku upp á þvi að bera þá saman: Boy George og Fish. Marillion var á hljómleikaferð í Bandaríkjunum fyr- ir skömmu og lék meöal annars á Rhode Island og þar gerðist það: sumir áheyrenda töldu þar kominn sjálfan Boy George og höfðu það eitt til marks að söngvarinn hafði klínt málningu í fésið á sér! Fish var yfir sig hneykslaður, tuttugu sentímetr- um stærri en Goggi og ólíkari hljóm- sveitir tæpast aö finna: Culture Club og Marillion. Marillion hefur einlægt verið líkt við Genesis og skrifari þessara lína gerðist sekur um þá samlíkingu i upphafi pistilsins. Fish myndi senni- lega reyna að snúa mig úr hálsliðn- um næði hann til mín því þó hann hafi ýmugust á Boy George og Mar- illion rennur honum hreinlega í skap þegar samanburðaráráttan spyröir saman Genesis og Marillion. „Fyrst var þetta bara til skapraunar,” segir hann, „en seinna meir varð þessi; samlíking gersamlega óþolandi, barnaleg og tilgangslaus.” Hver hef- ur sinn djöful að draga segir máltæk- ið og hvað Marillion áhrærir er Gen- esis í hlutverki fjandans og með hann ætla þeir að burðast hvað sem á dyn- ur. „Við ætlum ekki að gefast upp og segjast leggja upp laupana vegna þessara Genesisálaga,” segir Fish. M arillion er komin á gott skrið. Síöasta ár var ákaflega viðburðaríkt hjá hljómsveitinni. Snemma ársins kom smáskífa með laginu He Knows You Know sem komst í 35. sæti smá- skífulistans og fyrsta breiðskífan, Script For A Jester’s Tear, var út- gefin í marsmánuði í fyrra og komst í sjöunda sæti breiðskifulistans svo við höldum okkur við þessar tölfræði- legu niðurstöður. Eftir útgáfu plöt- unnar var farið i hljómleikaferð eins og stórhljómsveita er siður og hús- fyllir víöa. Sorgarfrétt ársins var á hinn bóginn brottför trymbilsins Mike Pointer. En hann er alténd úr sögunni. Um mitt sumar í fyrra var þriðju smáskifunni ýtt úr vör og laginu val- iö nafn sem Mezzoforte okkar hafði kynnt vel og rækilega: Garden Party. Hvort sem það var nafnið eða lagið þá þarf ekki aö orðlengja: Garden Party fór inn á topp tuttugu, i sextánda sæti, og síðla sumarsins tróð Marillion upp á hljómleikum á hátíðinni sem kennd er við Glaston- bury. Þá lá leiðin vestur um haf, til Bandarikjanna og Kanada og heim aftur til þess eins að stela senunni á Reading-hátíðinni á ágúst. Þá var haldið vestur um haf á nýjan leik í fylgd með Rush að þessu sinni og eft- ir stutta ferð beið hljóðver reiðubúið heima í Bretlandi, — og það sem meira var: trymbill eins og þeir geta bestir orðið, Ian Mosley, sem hafði áöur barið húðir með Steve Hackett. w ögu Marillion má rekja aUt aftur til ársins 1978 þó hljómsveitin hafi raunar ekki komist á legg fyrr en í lok ársins 1980. Framan af voru mannaskipti í hljómsveitinni nokkur eins og títt er um hljómsveitir í gerj- un. Hljómleikar urðu strax þeirra ær og kýr og hvert tækifæri nýtt sem bauöst tU upptroðslu. Eitt hundrað hljómleikar árið 1981 og nýir aðdá- endur bættust í hópinn í hvert sinn sem troðiðvarupp. En það eru ekki aUir jafnánægðir með velgengni MariUion. Móðir Fish er ekki upprifin og bíður þess tíma þegar sonurinn byrjar aö semja til- finningaríka ástarsöngva eins og Hallóið hans Lionel Richie. Fish er einn fárra rokkara nú til dags sem kýs að nota tónlistina tU þess að koma skoðunum sínum á framfæri; lætur sumsé ekki nægja aö tralla eitt- h vert buU meö tónlistinni. Sjálfur má hann muna timana tvenna, skugga- hUöar lífsins oftar verið i aðalhlut- verki fremur en þær björtu og um tíma lá við að taugamar gæfu sig; lífið bauð ekki upp á neitt sem var þess virðiaðlifaþví. „Eg var á góðri leið meö að næla mér í eitthvert þægilegt starf þar sem ég gæti dólað mér næstu fimm- tíu árin þangað til ég myndi smeyg ja mér í flókaskóna í elUnni og oma mér við eldinn. En innst inni vissi ég að ég gat bæði sungiö og leikið og það varð ofan á að ég gaf hæfileikunum tækifæri,” segir hann. Þegar læknar höfðu sett drenginn á lyf við þunglyndi og hann búinn að sitja dögum saman fyrir framan sjónvarpið eins og heUalaus hálfviti gerði hann uppgjör við sjálfan sig og stofnaöi MarUUon. Nafnið fékk hann úr sögu eftir Tolkein. g eftir linnulausan barning við hljóöfæraslátt og söng í hljómleika- sölum vítt og breitt um Bretland tók EMI hljómsveitina upp á sína arma. Árið 1982 gaf hljómsveitin út sína fyrstu smáskífu, Market Square Heroes, og í desember sama ár var hafist handa um fyrstu stóru plötuna sem áður var minnst á. Nú fyrir skemmstu kom svo út önnur breiðskífa MarUUon, Fugazi að nafni, og er vísun í Víetnamstríðið þar sem bandarískir hermenn römb- uðu á barmi geggjunar árum saman. Raunar er Víetnamstríðið Fish ákaf- Iega hugleikið og klæðnaður hans minnir einatt á búninga hermanna í kvikmyndinni Apocalypse Now. Fish er einlægur andstæðingur vopna- skaks og hemaðarbrölts eins og glöggt kemur fram í lagínu Forgott- en Sons, en það lag ku verá sérstak- lega vinsælt í höfuðborg Falklands- eyja, Port Stanley, og raunar er plat- an frá í fyrra mest selda platan á Falklandseyjum. Og þriðja besta platan að dómi pólskra gagnrýn- enda í fyrra. Og tónUstin er prógressív. -Gsal.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.