Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1984, Side 40
Fréttaskotið
68-78-58
SÍMINN
SEM
ALDREI
SEFUR
Hafir þú ábendingu
eða vitneskju um
frétt — hringdu þá i
sima 68-78-58. Fyrir
hvert fréttaskot,
sem birtist eða er
notað i DV, greið-
ast 1.000 krónur og
3.000 krónur fyrir
besta fréttaskotið i
hverri viku.
Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum
við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 3. MAI 1984.
Maraþon-
fundirá Alþingi
Maraþonfundir voru í neðrí deild Al-
þingis í gær. Stóöu fundir með hléum
frá klukkan 14 til klukkan rúmlega 3 í
nótt.
Á kvöldfundunum var eingöngu til
umræðu stjórnarfrumvarp um Hús-
næðisstofnun ríkisins. Það er eitt
þeirra mála sem ríkisstjórnin leggur
áherslu á að veröi samþykkt fyrir
þinglok. I gær lauk annarri og þriðju
umræðu í neðri deild og verður at-
kvæðagreiðsla um frumvarpiö í dag.
>á veröur því visað til afgreiðslu í efri
deild. ÓEF
Gamalt vín
hækkar
Flaskan af gömlu brennivíni og
gömlu ákavíti hækkaði skyndilega í
gærdag úr 470 krónum í 530. Var þetta
gert til að leiðrétta mistök sem urðu
við síöustu verðbreytingar þegar
gleymdist að gera verðmun í verði á
nýju víni og gömlu. -EIR.
Chandler slak-
aráklónni
Sænski stórmeistarinn Ulf Anderson
tapaði þriðju skák sinni í röð á skák-
mótinu í Lundúnum í gær og virðist
alveg heillum horfinn á þessu móti, er
nú næstneöstur, með 1,5 vinninga eftir
sex umferðir. Þeir Karpov og Polu-
gaevski eru efstir með 5 vinninga og
enski stórmeistarinn Chandler, sem
slakaöi ögn á klónni i sjöttu umferðinni
og gerði jafntc-fli við Timman, er nú
meö 4,5 vinninga í þriðja sæti. Seira-
wan er með 4 vinninga og Timman og
Vaganian með 3,5. Þar fyrir neðan eru
kempur eins og Ribli, Kortsnoi, Nunn,
Anderson og Miles.
LUKKUDAGAR
1. maí
45415
Datsun Micra bifreið frá Ingv-
ari Helgasyni hf. að verðmæti
ca kr. 300.000,-
2. mai
16927
Hljómplata frá Fálkanum að
verðmæti kr. 400,-
3. maí
57970
Leikfangatafl frá Ingvari
Helgasyni hf. að verðmæti kr.
1000,-
Vinningshafar hringi í síma 20068
LOKI
Ætii það só grafarþögn í
tannlæknadeiidinni núna?
Ráðherrar sjálfstæðismanna „gleymdu” þingflokknum
Ráðherrar Sjálfstæöisflokksins
virðast hafa „gleymt” að bera undir
þingflokk sjálfstæðismanna ákvæði
um heimild fyrir ríkisstjómina til aö
taka upp á ný 10% „sveigjanlega
bindisskyldu” innlánsstofnana í
Seðlabankcuum til viðbótar þeirri
bindingu sem fyrir er, að sögn eins
þingmannsins í morgun. Akvæöi um
þetta veröur í stjórnarfrumvarpi um
ráöstafanir í ríkis- og lánsfjár-
málum, sem væntanlegt er í dag.
Þingflokkur sjálfstæðismanna
hefur enn ekki fjaliað um þetta at-
riði.
Þingmenn töldu í morgun að
vaxtahækkun einhvem tíma á
næstunni væri líkleg í kjölfar bindis-
skyldunnar.
Mikið ójafnvægi væri í peninga-
málum og útlán of mikil. Aðalorsökin
væri hallarekstur ríkissjóðs. Þá
hefðu menn ráðist í miklar fjárfest-
ingar í húsnæðismálum í kjölfar yfir-
lýsinga ráðamanna en peningar til
þess væru ekki til staöar.
-HH.
Prófverkef niö fór
ígröfina:
Ættingjar
hafa leyft
að graf a
konuna upp
„Ættingjar gáfu að fyrra bragði
munnlegt leyfi til þess að graf a konuna
upp,” sagði Rannveig Axfjörð tann-
læknanemi.
Landið sem hér um ræðir markast af Suðurlandsvegi að austan, Keidum að vestan og Grafarholtslandi að
sunnan. DV-mynd Loftur.
Meira vildi hún ekki segja um sér-
kennilegt ágreiningsmál sem upp er
komiö í tannlæknadeild Háskólans.
„Eg hef ákveöið að loka mig alg jörlega
frá þessu öllu. Eg er í mjög ströngum
próflestri,” sagði Rannveig.
Hún hafði vonast til að ljúka námi í
vor. Nú lítur út fyrir að námslokin
dragist fram á.næsta ár því prófess-
orar neita að sögn að viðurkenna próf-
verkefni hennar sem var smiði heil-
Voru stöövaðar með
hótun um lögbann!
Framkvæmdir verkamanna frá
Reykjavikurborg á mörkum maka-
skiptalandsins svokallaða, það er á
milli Keldna og Grafarvogs, voru
stöðvaðar með hótun um lögbann þar
sem verkamennimir voru að grafa
þarna á eignarlandi án leyfis.
Umrætt land, sem er rúmir 13 ha.
aö stærö, liggur á þeim hluta lands
sem borgin lét ríkinu í té í maka-
skiptasamningum enerhinsvegarí
einkaeign. Borgin hefur skuldbundiö
sig til að láta ríkinu þaö í té fyrir árs-
byrjun 1986.
Að sögn Þórðar Þorbjarnarsonar
borgarverkfræðings voru það mistok
aö framkvæmdir voru hafnar á
þessu landi en þar var byrjað aö
grafa fyrir hitaveituæð.
„Viö vorum búnir að grafa eina
smárispu i landið er viö stöðvuðum
framkvæmdir,” sagði hann og bætti
því við að hitaveituæöin heföi nú ver-
ið flutt 30—40 m ofar þannig að hún
fer framhjá landinu.
Þóröur sagði að viðræður hefðu
átt sér stað milli eigenda landsins og
borgarinnar um kaup á því, borgin
vildi kaupa það á fasteignamats-
veröi en eigendumir vildu meira fyr-
irþað.
Einn af aöstandendum þessa
lands sagði í samtali við DV að að-
eins heföi veríö rætt þrisvar við þá á
sl. 2 árum vegna kaupanna en vildi
aö Öðru leyti ekkert tjá sig um þetta
mál.
Hvað næstu skref í þessu máli
varðar sagöi Þórður að hann heföi
enn ekki gefið samninga upp á bátinn
enda væri tími til ársloka 1985 að
koma þeim í gegn, annars þyrfti
sennilega að gripa til eignarnáms.
-FRI.
goms.
Gómurinn fór nefnilega í gröfina
með notandanum, gamalli konu, sem
lést áður en prófessorar skoðuðu
smiöina og gæfu vottorð um að verk-
efninu væri lokið.
Rannveig hefur fengið sér lögmann,
Jón Oddsson. Hann hefur kært málið til
menntamálaráðherra. Þess er krafist
að tannlæknadeild viðurkenni góminn.
Þvi er haldiö fram aö prófessorar hafi
fylgst með verkefninu og verið kunn-
ugtumaðþvihafi veriðlokið.
„Máliö snýst alls ekki um þennan
gervigóm,” sagði Sigfús Þór Elíasson,
deildarst jóri tannlæknadeildar.
, JCennarar segja mér aö þeir telji
Rannveigu ekki hæfa til að útskrifast
núna í þessu fagi. Hún hefur staðiö sig
vel í bóklegum greinum en miður í
verklegum,” sagðiSigfús Þór.
Mál þetta var kynnt menntamála-
ráðherra i gærmorgun. „Það er í
athugun í ráöuneytinu,” sagöi Ragn-
hildur Helgadóttir. Ráðuneytið hefur
sent þaö háskólarektor til umsagnar.
-KMU.
Áreksturinn út af Stokkseyri í morgun:
„ Vorum fjórir niðri í koju"
„Viö vorum fjórir niðri í koju er
skipin skullu saman,” sagði
Guömundur Sæmundsson, 2. stýri-
maður á Kára VE 95 í morgun.
Guðmundur var þá kominn heim til
sín á Eyrarbakka og sagði að sér heils-
aðist vel eftir volkið.
„Við komumst allir upp og gátum
sett gúmmíbátinn á flot. Síðan syntum
viö að honum. Þetta mátti ekki tæpara
standa því báturinn sökk á aöeins einni
til tveimur minútum.
Báturinn var þaö þungur að framan
aö stefnið byrjaði þegar að síga niöur
eftir að gatið kom á hann.”
Sjá nánar í frétt á forsíðu
Guðmundur sagði ennfremur að
þeir hefðu verið á trollveiðum út af
Skarðsfjöruvita. „Við lögðum af stað
til Þorlákshafnar um klukkan fjögur til
fimm í gær og höfðum skipst á að
standa vaktir.”
-JGH