Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VÍSIR 40.000 EINTÖK PRENTUÐ í DAG. RITSTJORN SÍMI 686611 * AUGLYSINGAR OG AFGREIDSLA SIMI 27022 131. TBL. — 74. og 10. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 8. JUNI 1984. Kona tekin til yfirheyrslu í „skotmálinu” vegna ábendingar fyrrum sambýlismanns: „EG ER SAKLAUS AF ÞESSU MÁLT — hafði f ullgilda f jarvistarsönnun — Var ekki um neitt skot að ræða? „Eg er alsaklaus af þessu máli. Þess vegna varð ég mjög hissa og miður mín er rannsóknarlögreglan kom og færöi mig til yfirheyrslu vegna þessa máls. En skýringin á því er komin. Fyrrum sambýlis- maður minn, sem er vinnufélagi þess sem ók vörubílnum, benti á mig.” Þetta sagði kona í samtali við DV í gær. Hún var yfirheyrð í gærmorgun fyrir að hafa hugsanlega skotið á vörubílinn hjá Steypustöðinni í fyrra- dag. „Fyrir mér er þetta allt hið undar- legasta mál. Það kom strax fram í yfirheyrslunum að ég hafði fullgilda fjarvistarsönnun. Um þaö gátu vinnuveitandi minn og fleiri borið vitni. Fyrrum sambýlismaður minn hef- ur verið mjög ósáttur við að sam- bandi okkar lauk. Síðan þá hefur hann verið með leiðinlega hegöun í minn garð, sem ég vil ekki ræða frekarnú. Hann vissi sem var aö ég átti gráan bíl. Þennan bíl seldi ég vinnuveit- anda mínum fyrir um mánuöi og hef ekkert veriö á bílnum síöan. Eg held aö það sé ýmsum spumingum ósvarað í þessu máli. Sjálf vona ég að þetta sé allt einn mikill misskilningur, því ef svo er ekki þá er hér alvarlegt mál á ferðinni.” Er DV hafði samband við rann- sóknarlögregluna í morgun fengust þær upplýsingar að konan sem yfir- heyrð var hefði haft góöa fjarvistar- sönnun. „Það beinist enginn grunur aöhenni.” Ennfremur fékkst staðfest að verið væri nú að kanna þann möguleika hvort um hvell úr bíl hefði verið að ræða. Sjá nánar um það efni á baksíðu. -JGH. Þaö verður vist ekki hægt að njóta sólarinnar um helgina eins og þessi stúlka gerði i Nauthólsvikinniþvispáð er litlu sólskini um helgina. Sjá nán- arábls. 4. DV-mynd Aðalbjörn. A LEIÐINNI Náttúrudýrkendum og öðrum ferðalöngum hvitasunriuhelgarinnar sem framundan er skulu sorgleg tiðindi sögð. Samkvæmt upplýsingum veðurstofunnar mun liklega rigna hér sunnanlands og vestan i hini hægu SA-átt sem um helgina verður. ibúar Norður- og Austurlands fá þurrt veður en óvist er um sól. Á sunnudeginum og mánudeginum mun golan halda áfram að standa af suðaustri en sjálfsagt verður stytt upp sunnan- og vest- anlands með hitann í kringum 8—11 stig en svipað veður verður á Norðausturlandi með hita sem gæti farið upp i 18 stig eða jafnvel meira. SigA. Leit að trillu Leitaö var í gærkvöldi og nótt að lítilli trillu út af Seltjarnamesi en um borð var sjötugur maður. Var trillan mjög vanbúin tækjum, ljóslaus og merkjalaus. Það var björgunarsveitin Albert á Seltjamarnesi sem fann trilluna um miðnætti skammt út af Suðurnesi og fylgdi henni inntilReykjavíkur en þá höfðu björgunarskipið Gísli J. Johnsen og tveir bátar frá Snarfara leitaö að trillunni hér út á flóanum. —FRI á \festurlandi? — sjá Veiðivon á bls. 30 Uppskriftir íörbylgjuofninn — sjá Neytendur ábls.6og7 Nýfíugvél ítlotann — sjá bls. 2 150prósent dýraraísólina fráReykjavík enStokkhólmi — sjá bls. 2 FramvannÞór — sjá íþróttir í opnu Nígeríumenn skuldaenn milljaröfyrir skreiöina — sjá bls.:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.