Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Blaðsíða 14
DVt K ÖSTODAQUR8.''JtirNl') 984I 14 at Spurningin Hvað ætlarðu að gera um hvítasunnuhelgina? Kristján Helgason, nemi: Ég ætla aö slappa at í sveitasælunni á Akranesi. Þorsteinn Arnason, nemi: Eg verö heima hjá mér í Borgarfirði og tek það rólega. Andri Ólason, nemi: Þaö getur veríö aö ég fari út úr bænum — kannski til Hveragerðis. Svala Vestmann, afgreiðslustúlka: Eg ætla ekki aö gera neitt sérstakt, bara hafa þaö huggulegt heima hjá mér. Drífa Geirsdóttir, atvinnulaus: Eg ætla að vera heima hjá mér, en hef frétt að straumurinn liggi í Þjórsárdal. Jón Júlíusson, verkamaöur: 0, ætli I maöur slappi ekki af og taki þaö ró- lega. Þaö getur veriö að ég fái mér góöan göngutúr. Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur i Flugmenn og vagnstjórar — sama ábyrgð, sama kaup? „Annar farþegi” skrifar: Ég skrifa í tilefni lesendabréfs um vagnstjóra hjá SVR sem birtist í DV 30. maí. Enginn viröist vita af hverju honum var vikiö úr starfi. Mér finnst þessi uppsögn ansi gruggug og er í einu og öllu sammála lesendabréfinu frá 30. maí. Eg er bæði undrandi og hneyksluö yfir þvi aö unnt sé að víkja mönnum úr starfi á þennan hátt. Hvar er réttlætið? Eg bara spyr. Mér finnst Magnús góö- ur, tillitssamur og öruggur bílstjóri. Hann var alltaf jafnöruggur og þolin- móöur í vetur, hvernig svo sem færöin var. Þessu starfi fylgir ekki svo lítil ábyrgð — sama ábyrgö og hjá flug- mönnum nema hvaö umferð er senni- lega minni þama uppi í háloftunum. (Hvað þetta varðar væri gaman aö bera saman laun flugmanna og vagn- stjóra: sama ábyrgö, sama kaup?) Magnús hefur alla kosti góös bílstjóra og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar. Eg sendi honum baráttu- kveðjur og vona aö hann veröi fljótlega aftur kominn undir stýriö hjá SVR. Veit einhver um stólinn eða körfuna? 5633—0658 hringdi: Frá henni haföi veriö stolið reiöhjóli fyrir utan Sundhöllina miðvikudaginn 30. maí. Hjólið fannst aftur viö Nesti í Fossvogi og hafði þá öllu verið stoliö af því sem hægt var. Þar á meöal voru barnastóll og ný karfa. Hún er aö von- um leið yfir þessum missi og biður þá sem vita eitthvaö um málið aö láta lög- regluna í Reykjavík eöa Kópavogi vita. fíugfarþegi bendir á að mjög hafi haiiað undan fæti hjá þeim f/ugfélögum sem fíugieiöir voru hvattar tH að taka sér tii fyrirmyndar fyrir nokkrum árum og að eitt þeirra hafi farið á hausinn. „Árangurinn af uppbyggingarstarfi innan fíugleiða er hins vegar góður og reksturinn farinn að skila hagnaði," segir fíugfarþegi. Sókn Flugleiða —vekur mikla athygli Flugfarþegi skrifar: A lesendasiöu DV 5. júní sl. birtist lítt skiljanleg bullgrein undir fyrir- sögninni .^Afskipti-samskipti”, skrif- uö af manni sem kallast „skattborg- ari”. Eftir því sem hægt er að ráöa í efnisatriði greinarinnar, er bréfrit- ari á móti því aö Matthias Bjamason ráðherra stöövaöi verkfall flug- manna. .^kattborgari” telur að Flugleiöir tapi peningum og eignum í sífellu og minnast eflaust einhverjir fyrri lesendabréfa Skattborgara um sama efni á undanförnumárum. Ekki er ástæöa til aö fjölyrða um ástæöur þess að samgönguráðherra stöðvaöi verkfall flugmanna. Aðdragandi lagasetningarinnar er öllum í fersku minni sem á annaö borð fylgjast með fréttum. Þar kom skýrt fram aö lögin voru ekki sett aö ósk Flugleiöa, en óhætt aö fullyrða aö ÖU þjóðin stóð einhuga aö baki ráöherra í þessu máli. Þegar erfiöleikar Fiugieiöa voru sem mestir hvöttu ýmsir forráða- menn félagsins tU að taka þrjú flug- félög sér tU fyrirmyndar. Hér var um að ræða Air Florida, Cargolux og Laker, en þau voru þá öU í miklum uppgangi. Stjórn og starfslið Flugleiöa meö Sigurö Helgason í broddi fylkingar komu Flugleiðum aftur á réttan kjöl og fengu stuðning frá ríkisstjómum tslands og Lúxem- borgar til aö halda Amerikufluginu áfram. Þar réö ekki góösemi i garð Flugleiða heldur fyrst og fremst blá- kaldir viðskiptahagsmunir þessara landa. En hvernig hefur fyrirmynd- arfélögunum þremur vegnaö? Air Florida gat á siðustu stundu bjargað sér frá gjaldþroti fyrir nokkrum mánuöum. Umtalsverður samdráttur hefur orðið í rekstri félagsins og nýlega var upplýst að óvist væri hvort félagið gæti staðið viö skuldbindingar sínar. Stjóm Cargolux neyddist til aö afskrifa hlutafé félagsins um 75% og þar hefur nánast veriö um gegndar- lausan taprekstur aö ræöa um langan tíma. Félagið er búiö aö selja allar „áttumar” sem það rak og á nú bara tvær Júmbóþotur. Laker fór á hvínandi hausinn eins og allir vita. Árangurinn af uppbyggingarstarfi innan Flugleiöa er hins vegar góður og reksturinn farinn aö skila hagnaði. Framsókn Flugleiða hefur vakið mikla athygli, heima og er- lendis. Aö lokum er rétt aö hvetja „skatt- borgara” til aö kynna sér f jarskipta- tækni nútímans, til dæmis síma og telex. Hægt er að hafa samskipti landa og heimsálfa á milli og þar með afskipti af öllum mögulegum málum án nokkurra erfiöleika. Til em handhægar bækur ætlaöar börn- um þar sem tækni nútímans er skýrð á einfaldan hátt og væri ráö fyrir „skattborgara” aö verða sér úti um eintak. ar'-: Bréfritari viU að Bandarikjaher borgi fyrir aðstöðu sina hér og að tekin verði upp herskylda á íslandi. Bandaríkja- menn borgi 15-20 millj. Tryggvi Hermannsson segir að atvinnuöryggi vagnstjóra hafi verið litið fyrir, ensénú minna en ekkert eftir uppsögn eins þeirra fyrir skömmu. Tefltí tvísýnu - hjá SVR fyriraðstöðu sína Láms Lárusson skrifar: Eg tel sjálfsagt aö Bandarikjaher borgi fyrir aöstööu sína tslandi. Einnig þyrfti aö koma á herskyldu hér svo aö ungir menn afli sér þeirrar sér- þekkingar sem nauðsynleg er til aö, geta fylgst meö því sem fram fer á Miðnesheiði og víðar. Flest lönd láta Bandarikjamenn borga fyrir afnot af herstöövum. AUtaf þurfum við aö borga ef viö þurfum afnot af einhverju. Af hverju eiga þeir ekki að borga fyrir aö fá aö vera hér? Bandaríkjaher ætti ekki að borga minna en 15 til 20 miUjónir króna á ári fyrir veru sína. Þetta fé mætti nota tU aö borga erlendar skuldir, reisa verk- smiöjur, leggja vegi. Mér er sagt aö Nató sé búiö að malbika meirihlutann af vegakerfinu í Noröur-Noregi. Þannig fara Norömenn ao þessu. Aö lokum er rétt aö hvetja til hörku í samningaviöræöum viö Bandaríkja- menn út af skipaflutningum fyrir varnarliöiö. Viö eigum aö setja hnefann í boröiö og tryggja okkur þessa flutninga í eitt skipti fyrir ÖU. P.S.: Hvernig væri aö DV efndi til skoðanakönnunar um hvort Bandarík j- her eigi aö borga eöa ekki? Tryggvi Hermannsson, vagnstjóri hjá SVR, skrifar: Nú er nýafstaðið skákmót starfs- manna SVR. Þátttakendur voru margir knáir skákmenn, þar á meðal forstjóri SVR. Var hann vel Uötækur á þessu móti þótt ekki hlyti hann fyrsta sæti. Það kom í hlut vagnstjóra. Menn hugleiöa nú hvort forstjórinn eigi erfitt meö að sætta sig viö þessi úrslit þar sem hann, í skjóU stöðu sinnar og meirihlutafylgis í stjórn SVR, teflir í tvísýnu því góöa samstarfi sem verið hefur, þann stutta tíma sem hann hefur gegnt forstjórastööu sinni, meö því aö fóma okkar besta manni og okkar einu von um aö vagnstjórar gætu látið skoöun sína i ljós án þess aö það teldist alvarlegt brot í starfi. Atvinnuöryggi vagnstjóra var lítið fyrir en er núna minna en ekkert. Þeir sem mannganginn kunna telja þessa taflmennsku forstjórans helst Ukjast refskák. Og hætt er viö aö hann tefU af sér nema borgarstjóri leyfi honum að notast við Hamars-vörnina. En sem kunnugt er byggist hún á því aö tefla fram eitruðum peöum sem hægt er aö breyta í eftirlitsmenn, vakta - formenn eða bara trúnaðarmenn eftir þörfum. Hljóta menn nú að sjá aö for- stjórinn á í mjög vafasömu valdatafU. Og ef hann verður ekki mát á því einu þá mun hann tapa á tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.