Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Blaðsíða 4
DV. FÖSTUD AGUR 8. JÚNl 1984. Vatnið rann um vanga og kinn, yfir brjóst og niður eftir. DÁSAMLEG HLÝINDI HAFA ÞETTA VERIÐ - EN NÚ KÓLNAR VERULEGA UM HELGINA Strendurnar á Mallorca komast ekki i hálfkvisti við þetta. Striður straumur af svölu vatni og yfir skin islensk sumarsól eins og hún gerist best. Mannlíf hefur verið með bjartasta móti undanfama daga enda ekki skrýtið þar sem hitinn á miðvikudag fór upp í 19,3 gráður og í gær mældist hann 19,1. En allt hefur sinn enda — góða veðrið líka. Það fer að kólna á morgun og þó sólin haldi áfram að skína eitthvað á höfuðborgarbúa sem aðra þá fer hita- stigið vart yfir 10 gráður og á sunnu- dag verður komin norð-vestanátt, haf- gola að degi en logn um nætur. Þaö veröur kyrrt, bjart og kalt eins og veðurfræðingamir segja. Þó geta Reykvíkingar huggað sig við það að veðrið verður síst betra hjá Akureyr- ingum.. . -EIR. Það eru fleiri veiðar en laxveiðar, bara 'ann biti. DV-mynd: G. Bender. Það ergottað fara úrskón- um þegar hitinn fer yfir 20 stig og ekki verra þegar elskan tekur utan um mann i leiðinni. Hún naut sólarinnar fá- klædd og fin en hvort hún var að teikna mynd af manni i fullum herklæðum skal ósagt látið. D V-myndir: Aðalbjörn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.