Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Page 7
DV. FÖSTUDAGUR 8. JUNl 1984.
7
Neytendur Neytendur
Ein leiðin til að horast kvað vera að borða trefjaríkt brauð og drekka mikið
vatn. DV-mynd Bj. Bj.
0
Er trefjabrauðkúr
leiðin tilað horast?
„Grenntu þig með brauökúmum,”
stendur efst á blaði sem fylgir trefja-
brauði sem selt er í Breiðholtsbakar-
íinu í Völvufelli. Þá er svo að skilja að
brauð sé ekki lengur bannvara fyrir þá
semfaraímegrun.
DV hafði samband við annan eig-
anda Breiðholtsbakaris, Guömund
Hlyn Guðmundsson, og spurðist frekar
um „megrunarbrauðið” og þær skrif-
legu upplýsingar sem því fylg ja.
„Við sáum grein í Hjemmet þar sem
sagt er frá Fiber Trim brauði.
Trefjamar í brauðinu drekka í sig
vatn, þenjast út og gefa þar með lang-
varandi saöningartilfinningu. Haft var
samband við myllumar í Danmörku
sem þessu hafa komið á framfæri í
Hjemmet. Þeir senda nú reglulega í
Breiðholtsbakarí allt efni sem þarf i
brauðið, að undanskildu pressugeri og
vatni sem bætt er í hér á landi. Brauðið
hefur ekkert verið auglýst því það er
tímafrekt í bakstri og erfitt í vinnslu,”
sagði Guömundur Hlynur í samtali við
DV.
I danska blaðinu Hjemmet þar sem
sagt er frá þessu trefjaríka brauði er
fólk tekið tali sem hefur verulega lést
og það á skömmum tíma. Þar er m.a.
rætt viö 16 ára strák sem var afmynd-
aður af spiki. Hann vó 112 kíló og er
182 cm á hæð. Hann var rúma tvo
mánuöi í brauðkúrnum og náði af sér
35 kílóum. Kvaðst hann hafa farið í
sumarbústaö með foreldrum sínum í 3
vikur. Daglega borðaöi hann trefja-
brauðið hann hélt áfram að léttast og
þegar heim kom gengu kunningjar
hans framhjá honum í fýrstu, því svo
mikið hafði hann breyst.
Hve mikið trefjamagn
er æski/egt að borða?
Þá segir meðal annars í upplýs-
ingum þeim sem brauðinu fylgja að
dagleg trefjaþörf manns sem vegur 70
kíló er 35 g yfir daginn, eða 1/2 g
fyrir hvert kíló af líkamsþyngd. Þrjár
brauösneiöar af þessu trefjabrauði
vegal50goginnihaldal7g aftrefjum
sem er helmingur af dagsþörf þess
manns sem vegur 70 kíló. Sex brauð-
sneiðar ættu því að nægja til að full-
nægja trefjaþörf likamans en allt í 10
brauðsneiðar af Fiber-Trim brauði er
óhætt að borða yfir daginn og það
hjálpar að drekka mikið vatn. Það er
mælt með aö drekka kaffi og te auk
vatnsins. Ohætt er að nota álegg á
brauðið og síðan er mælt með að fólk
borði þann kvöldmat sem á heimilinu
er en neyti brauðsins jafnframt með
matnum.
Mælingar á trefjaefnum í brauði sem
geröar voru í Háskólanum í Lundi sýna
að í 100 gr af franskbrauöi eru trefjar
uml,8g ,6—8g í grófumbrauðum en
11 g trefjaefna eru í Fiber-Trim
brauðinu. Hið umrædda megrunar-
brauð kostar í dag 39 krónur og 10
sneiðarí pakka kosta 20 krónur.
-RR
Aldur
mjólkur
„Hvað er mjólkin gömul þegar
hún er komin til neytandans?”
spuröi neytandi sem haföi sam-
band við DV. Stuttlega var rætt um
mjólkina í grein um mjóikurum-
búðir sem nýlega birtist á neyt-
endasíðu. Lesandi hringdi til okkar
og vildi hann gjöra nánari skil á
aldri mjólkur þegar hún endanlega
er til neytenda komin.
Ef mjólkin er sótt á mánudegi til
bóndans þá er elsti hluti þeirrar
mjólkur frá föstudegi. Stór hluti
hennar er sendur til mjólkusam-'
lags, þar sem hún er gerilsneydd.
Þá er henni pakkaö og hún
stimpluð fram á föstudag. Elsti
hluti hennar er þá orðinn 7 daga
gamall.
Annaö dæmi. Ef mjólk er sótt á
miðvikudegi til bóndans þá er elsti
hluti hennar frá mánudegi. Hún er
gerilsneydd og pökkuö á fimmtu-
degi og síðan stimpluð 5 daga fram
í tímann. Að þeim tíma liðnum er
hún orðin 9 daga gömul þó enn í
góðu lagi og neysluhæf fáeina daga
framyfirsíðastasöludag. -RR
—mBílabú&
Benna
Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir
VAGNHJ@LIÐ
Vélaupptekningar
Vagnhöfða 23
110 Reykjavík
Sími 685825
Vatnskassar og vélahlutlr |
I amerlska blla ð lager.
Ujög hagstœtt verö.
snvnviMHH
^OLUBOÐ
...vöruverð
í lágmarki
KANGOL
Mikið úrval af fílthöttum
• Ennfremur alpahúfur, þrjár stærðir.
• Angórahúfur og margar gerðir af derhúfum.
• Ennfremur svartar leðurhúfur.
M.B. húfurnar
komnar aftur
HATTABUÐIN
Frakkastíg 13, sími 29560. PÓSTSENDUM
TAKIÐ EFTIR
Höfum tekið að
okkur sölu á ofnum
fyrir PANELOFNA hf
Kópavogi.
Gerum tilboð samkvæmt
teikningum yður að
kostnaðarlausu.
Sími sölumanns er 28693.
Einstakir greiðsluskilmálar á öllum byggingarvörum. 1
Allt niður í 20% útborgun og lánstími allt að sex t i
mánuðum.
J1 L BYGGINGAVORURl
1 Byggingpwörur. 28-600 Harðviðarsala 28- Gólfteppi 28-603 Málningarvörur og verkfæri. 28- Flísar og hreinlætistæki. . . 28- 604 Sölustjóri -605 Skrifstofa 430 . 28-693 . 28-620 1
HRINGBRAUT 120 (Aökeyrsla frá Sólvallagötu)
Afmælishappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
26 glæsilegir ferðavinningar
að verðmæti um 1.000.000 kr.
Dregið á morgun
Vinsamlega gerið skil á heimsendum miðum
í Reykjavík er afgreiðsla happdrættisins í Valhöll Háaleitisbraut 1
Sími 82900 opið 8.00 - 22.00
Sækjum — Sendum Sjálfstæðkflokkurinn