Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Side 8
8
DV. FÖSTUDAGUR 8. JUNI1984.
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
y, Þrjátíu manns féllu á Indlandi í gær:
Oeirdir eftír fréttír af
dauða Bhindranwale
Aö minnsta kosti tuttugu manns
hafa falliö í átökum sem urðu á Ind-
landi í kjölfar frétta um að Jamail
Singh Bhindranwale, leiðtogi sikka,
heföi fallið í innrás hermanna inn í
gullna musterið í Amritsar.
Fréttin um að sundurskotið lík
Bhindranwales hefði fundist inni í
musterinu hleypti af staö átökum í
mörgum borgum á Indlandi. Víða
gerðu öfgamenn sikka árásir á fólk.
Lögreglan segir að til átaka hafi
komið í Delí, Bombay og fleiri borg-
um. Þá hafi sikkar drepið fólk í
Punjab-fylki.
I Delí greip lögreglan til skotvopna
gegn mótmælendum úr röðum sikka
eftir að þrír lögregluþjónar höfðu
særst. Indverska fréttastofan PTI
sagði að tveir menn hefðu látið lifið
þar.
I þeim tilgangi að draga úr ofbeld-
inu sýndi indverska sjónvarpið í
gærkvöldi mynd frá gullna must-
erinu. Þaö virtist óskaðað eftir bar-
dagana sem þar urðu. Fréttamaður
indverska útvarpsins, sá fyrsti sem
fékk að fara inn í musterið þar eftir
átökin, sagði aö aðalhelgidómurinn í
miðju musterinu hefði ekki orðið
fyrir neinum skemmdum í átök-
unum. Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði einnig að þessi helgasti trúar-
staður sikka hefði ekki orðið fyrir
skemmdum.
Talsmaður stjórnarinnar sagði
einnig að annað stig baráttu hersins
gegn ofbeldismönnum sikka væri nú
að hef jast með því að herinn héldi út
á landsbyggðina til að leita uppi
vopnaða hryðjuverkamenn sikka og
til að gera vopn þeirra upptæk.
Bhindranwale var 37 ára gamall,
leiðtogi öfgamanna í hópi sikka sem
börðust með hryðjuverkum fyrir
sjálfstæði Punjab-fylkis. Hann
fannst í gærmorgun látinn inni í
gullna musterinu ásamt tveimur
nánustu samstarfsmönnum sínum.
Duarte setturinn í embstti.
Larry Speakes, fréttafulltrúi Hvíta
hússins, sagði að Bandaríkjastjóm
hefðu borist þessar upplýsingar eftir
„hljóðlátlegum diplómatískum
leiöum.”
Hávær orðrómur var á kreiki í síð-
ustu viku um að Sakharov hefði látist
eftir að hann var fluttur úr íbúö sinni í
Gorkí þar sem hann hef ur verið í nokk-
urs konar útlegð undanfarin ár.
Speakes sagði einnig að Bandaríkja-
stjórn hefðu borist upplýsingar — eftir
óopinberum leiðum — um að Yelena
Bonner, eiginkona Sakharovs, væri
einnig á lifi vegna þess að hún hefði
sést á svölum íbúöar þeirra. Hann
sagði einnig að Efrem Yankelevich,
tengdasonur Bonner, hefði haft sam-
Mótmæli til stuðnings sovéska vísinda- og andófsmanninum Andrei Sakharov eiga sér nú stað víða um heim. Myndin hér að ofan er tekin af mótmælum sem
áttu sér stað fyrir utan sovésku ræðismannsskrifstofuna í New York.
Bandaríkjamenn fá upplýsingar um Sakharov
Sovéska rikisstjórnin hefur upplýst band við Richard Burt, aöstoðarutan- hálfu bandarískra stjórnvalda til þess vikum mótmælasvelti til að knýja á aö
Bandaríkin um aö andófsmaöurinn ríkisráöherra Bandaríkjanna, og aðfáupplýsingarumSakharov. kona hans fengi að fara úr landi til að
Andrei Sakharov sé lifandi, að því er óskað eftir ákveönum tilraunum af Andrei Sakharov hóf fyrir nokkrum leita sér læknishjálpar.
einn embættismanna Bandaríkja-
stjórnar tjáði fréttamönnum í gær-
kvöldi.
Verða tveir stjómmála-
f lokkar ísraels bannaðir?
Svo kann aö fara aö tveir af þeim
27 stjórnmálaflokkum sem hafa
boðað framboð vegna þingkosninga í
Israel, hinn 23. júlí næstkomandi,
verði bannaðir.
Moshe Arens varnarmálaráðherra
ihugar, með aðstoö breskra herlaga-
frá 1945, aö stöðva framboð Fram-
sækna friðarlistans sem er rót-
tæk arabísk-gyðingleg hreyfing.
Flokkurinn ,Jíach” sem er and-
arabísk hreyfing undir forystu Meir
Kahanas rabbína kann sömuleiðis að
verða stöðvaður þar sem stefnuskrá
hans hefur að geyma hvatningu til
lögbrota.
I efsta sæti á Framsækna friðar-
listanum er arabískur lögfræðingur
að nafni Mohammen Moari og næstir
á eftir honum koma israelski hers-
höfðinginn Matti Peled og blaðaút-
gefandinn kunni Uri Avenri. Bæði
leyniþjónustan Shabak og lögfræði-
legir ráðgjafar vamarmálaráðu-
neytisins hafa varað Arens við því að
slík samsetning stjómmálaflokks
feli í sér hættu fyrir öryggi Israels.
Að áliti þessara aðila er hin
nýstofnaöa hreyfing ekkert annað en
palestínski þjóðemisflokkurinn Al-
Ard í dularklæðum. En Al-Ard var
bannaður fyrir tuttugu árum. Hæsta-
réttardómarinn Gavriel Bach, for-
maöur í kjörnefnd ríkisins, sem tek-
ur afstööu til umsókna flokkanna um
að fá að taka þátt í kosningunum,
andmælir slíkum fullyrðingum og
segir að ríkisstjórnin hafi ekki neinn
lagalegan rétt til að banna umrædda
flokka.
Segja að
Duarte hafi
útilokað
viðræður
Leiötogar skæruliöa í E1 Salvador
eru þeirrar skoðunar að Jose Napoleon
Duarte, hinn nýkjörni forseti landsins,
hafl útilokað friðarviðræður og því sé
ekki önnur lausn fyrir hendi á fjögurra
ára gamalli borgarstyrjöld í landinu
en sú hernaðarlega.
Salvador Samayoa skæruliðaforingi
hafði eftirfarandi að segja um innsetn-
ingarræðu Duartes forseta: „Efræðan
var alvarlega hugsuð þá skiljum við
það svo að ekki verði neinar viðræður.
Ef engar viðræður em þá er aöeins hin
hernaöarlegalausnfyrirhendi.” '
I ræðu sinni hafði Duarte meöal
annars sagt að því aðeins gætu
viðræður átt sér stað aö FMLN-hreyf-
ingin (regnhlífarsamtök skæruliða)
legði niður vopn.
Hart telur sig eiga
góða sigurmöguleika
Walter Mondaie snæðir með Art Torres, þingmanni frá Kalífomíu. Mondale
tapaði i því fylki fyrir Gary Hart. * r
Gary Hart harðneitar því að Walter
Mondale sé búinn að sigra í for-
kosningum Demókrataflokksins. Hann
kveðst munu berjast áfram fyrir út-
nefningu til forsetaframboðs á flokks-
þinginu i næsta mánuði.
Svo virðist sem Mondale hafi
tryggt sér stuðning nægilega margra
fulltrúa á flokksþinginu til að ná kjöri
en til þess þarf hann 1.967 atkvæði.
Barátta Harts lýtur helst að því að
tryggja sér stuðning þeirra sem koma
óákveðnir til þingsins og ennfremur
mun hann leita til þeirra stuönings-
fyllilega sannfærðir um að hann sé
besti kosturinn.
Hart neitaði því í gær að Mondale
hefði tryggt sér stuðning nægilega
margra fulltrúa en bætti því við að þó
svo væri þá væri um svo nauman
meirihluta að ræða að Hart hefði góða
möguleika á að snúa dæminu við sér í
hag. Nýtt kosningafyrirkomulag
Demókrataflokksins kann að styðja
þessa skoðun Harts. Hingaö til hafa
fulltrúar á flokksþinginu verið skuld-
bundnir til að styðja þann
frambjóðanda sem þeir studdu í for-
kosningunum en nú hefur þeim
manna Mondales sem. . ekki eru reglum verið.breytt.
„Eftir sigurinn í Kaliforníu tel ég
mig eiga góða möguleika á að sigra á
flokksþinginu og ég hef ótvírætt sama
rétt og Mondale til að há lokabar-
áttuna,” sagði Hart við fréttamenn í
gær.
Leiötogar Demókrataflokksins hafa
lýst yfir áhyggjum sínum um að
flokkurinn mimi fara halloka í bar-
áttunni við Reagan í haust ef ekki náist
samstaöa um einn frambjóðanda.
Hafa þeir því margir hvatt Hart til að
láta af þrjósku sinni og styðja
Mondale. Hart hafnar þessum skoðun-
um og segir að hér sé um að ræða á-
ii nrf>önrshrapó úr herhúðnm Mnnriak-.