Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 20
20 u » * » ar • MOIIHOT. .8 HUOAÖUTSÖ'1.70 ÖV. PÖSTUÐASUftft íUí«4984í . íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Draumariðill — sagði formaður sænska handknattleikssambandsins „Þetta er draumariöUl fyrir okkur, við höfum möguleika é að sigra alla mótherja okkar í riölinum,” sagði formaður sænska handknattleikssambandsins eftir að dregið hafði veriö í riðla í handknattleiknum á óiympíuleikunum í Los Angeles. Svíar eru þar i riðli með Danmörku, Vestur-Þýskalandi, Spáni, Suður-Kóreu og Bandaríkjunum. Svíar gera sér jafnvei vonir um að komast í úrslit um ólympíumeistaratitllinn eftir góðan árangur í landsieikjum síðustu mánuði. -hsim. Sá sovéski fer ekki til Kanada Frægasti markvörður heims í íshokkey, Vladisslav Tretjak, hefur ákveðið að hætta keppni, 32 ára að aldri. Að áliti sérfræðinga er hann besti markvörður sem nokkru sinni hefur leikið í íþróttinni. Siðustu þrettán árin hefur hann verið aðaimarkvörður sovéska landsliðsins og þrisvar orðið ólympískur meistari. Auk þess oft heimsmeistari. Á ólympíuleikunum í Sarajevo í vetur var Tretjak mjög i fréttum. Þá hafði hann gert samning við bandariskt félag og ætlaði að gerast atvinnumaður þar. Hafði að sögn fengiö samþykki sovéskra stjórnvalda til þess. Síðan hljóp snurða á þráðinn og mark- vörðurinn ákvað þá að hætta sem keppnis- maður. -hsim. íslandsmet hjá SiggaT. — stökk 5,31 m á mótiíÞýskalandi Sígurður T. Sigurðsson, stangar- stökkvarinn góðkunni í KR, sem nú stundar nám í Vestur-Þýskalandi, settl í síðustu viku nýtt islandsmet. Stökk 5,31 m þar á móti og bætti íslandsmet sitt um sex sentímetra. Átti nokkuð góðar tilraunir við 5,40 metra. Diisseldorf í TOTO-keppnina Atli Eðvaldsson og félagar hans hjá Fortuna Dusseldorf taka þátt í TOTO-getrauna- keppninni í knattspyrnu i sumar. Diisseldorf verður í riðli með Bröndby frá Danmörku, Roda, Hollandi og FC Liege, Belgiu. Diissel- dorf leikur fyrst gegn FC Liege í Belgíu. -SOS. Ólympíumiðar endurgreiddir „Við munum balda eftir einum dollara af hverjum miða sem söiuþóknun,” sagði Harry Usher, aðalframkvæmdastjóri ólympiunefnd- ar Los Angeies, þegar hann tilkynnti i gær að þær 14 þjóðir sem ákveðið hefðu með Sovét- ríkjunum að taka ekki þátt í ólympíuleikun- um fengju aðgöngumiða þá sem þær hefðu greitt fyrir endurgreidda. Þéssar 14 þjóðir höfðu greitt rúmlega 100 þúsund dollara fyrir aðgöngumiða á leikina — fyrir á annan tug þúsunda. miða. Að sögn Usher, sem brosti breltt þegar bann sagði að einum dollara af hverjum mlða yrði haldið eftir, verða 86 þúsund dollarar sendir til sovésku ólympiunefndarinnar á einu bretti og væntanlega verður peningunum síðan dreift til annarra landa, sem greitt höfðu fyrir miða. Þeir aðgöngumiðar sem nú eru á lausu vegna þessa máls verða eingöngu seldir innan Bandarikjanna. Ekki til annarra landa. Enn er mikið af óseldum miðum — yfir ein milljón á hinar ýmsu iþróttagreinar. Aðgöngumiðar í allt að átta milljónir. Yfirleitt er uppselt á alla úrslitaleíki svo og á nokkra daga frjálsíþrótta- keppninnar. Ýmsar íþróttagreinar, sem verða á leikunum, draga hins vegar að sér litla at- hygli Bandaríkjamanna. -hsim. „Einungfs ánægður með stigin þrjú” — sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Fram, eftir að Fram hafði sigrað Þór Ak. 1:0—Þórsarar hafa ekki skorað mark í 1. deild í425 mínútur Elton John. Njósnarar f rá Elton John í Laugar- dalnum Hér á landi eru nú staddir tveir menn frá enska knattspyrnufélaginu Watford, sem Elton John á, og eru þeir að leita að knattspyrnumönnum. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um DV hafa þeir mestan áhuga á Ömari Rafnssyni, bakverðinum sterka í Breiðabliki. Fleiri leflonenn munu nú vera í sigti þeirra félaga. Þeir voru meðal áhorfenda á leik Fram og Þórs í Laugardalnum í gærkvöldi og spurðust fyrir um leikmenn. -SK. „Ég er mjög ánægður með að hafa náð í öll þrjú stigin í þessum leik en það er líka það eina sem ég er ánægður með,” sagði Jóhannes Atlason, þjálfari Fram, eftir að Fram hafði sigrað Þór frá Akureyri 1—0 á islandsmóti 1. deildar í knatt- spyrnu á Laugardalsvelli í gærkvöldi. „Við vorum betri aðilinn í fyrri hálfleik en Þórsarar í þeim síðari. Þeir náðu tökum á miðjunni í síðari hálfleik og þessi leikur gat endað á hvorn veginn sem var,” sagði Jóhannes. Leikurinn í heild var nokkuö slakur en þó brá fyrir skemmtilegum leik- köflum hjá báðum liðum og nokkuð var um góð marktækifæri sem skiptust jafnt á liðin. Þórsarar hafa ekki skorað mark í 1. deildinni í 425 mínútnr og lið Dúfnadrit olli þakskemmdunum — talið að viðgerð á áhorfendastúkunni á Laugardalsvelli „Þetta hefur gengið ágætlega og við reiknum með að klára þetta verk um eða eftir næstu helgi, það er um 17. júní,” sagði Eyþór G. Hauksson starfs- maður hjá Sandfell S/F í samtali við DVígær. Þaö hefur ekki farið fram hjá nein- um sem lagt hefur leið sína á aöalleik- vanginn í Laugardal að þar hafa um nokkurt skeiö staðið yfir framkvæmdir viö þak stúkunnar. Stálbitar i þakinu kosti umeina milljón hafa ryðgað og eins hefur dúfnaskítur haft mjög slæm áhrif á járnið en eins og flestir vita hefur verið mikið um dúfur í þaki stúkunnar og margir oft farið heim í skreyttum fötum að leik loknum. I dúfnaskítnum eru efni sem fara mjög illa með jámið og á hann mikinn þátt í því hvemig komið er. Til að koma í veg fyrir að þetta „skítverk” endurtaki sig hafa starfsmenn Sand- fells S/F unnið aö því baki brotnu nú síöustu daga að festa neti undir sjálft þak stúkunnar þannig að Dúfugreyin komist ekki aftur til fyrri heimkynna. Um sex ár eru frá því að byggt var aö fullu yfir stúkuna og er reiknað með að þessar viðgerðir kosti um eina millj- ón króna. Island leikur sem kunnugt er lands- leik gegn Noregi í knattspyrnu 20. júní og er talið öruggt að framkvæmdum verðilokiðfyrirþanntíma. -SK. Eins og sjá má standa yfir miklar framkvæmdir við þak áhorfendastúkunnar á Laugardalsvelli. Nær öruggt er talið að verkinu verði lokið fyrir landsleik islands og Noregs sem fram á að fara 20. júní. DV-mynd Brynjar Gauti Sveinsson. sem ekki skorar vinnur ekki leik. Sigurmark leiksins kom á 29. mínútu. Dæmd var aukaspyrna á Þór og hana tók Ómar Jóhannsson. Spyrnti hann vel fyrir markið á Guömund Steinsson sem skoraði með' góðu skoti og átti Þorsteinn Ólafsson sem lék í marki Þórs ekki möguleika á að verja skot Guömundar. Á 30. mínútu fékk Guðjón Guðmundsson, Þór, gulliö tækifæri til að jafna metin en skot hans sleikti stöngina. Guðmundur Steinsson hafði næstum skoraö fyrir Fram rétt áður þegar hann af harðfylgi braust inn fyrir vörn Þórsara og átti Þorstein einan eftir í marki Þórs en lét hann verja frá sér. I síðari hálfleik var sem allur vindur væri úr Fram-liðinu og Þórsar- ar tóku öll völd á miöjum vellinum og sóttu stíft án þess þó að skora. Hættu Þórsarar sér stundum heldur framar- lega því Framarar náðu nokkrum hættulegum skyndisóknum sem sköpuöu hættu. Til að mynda á 39. mínútu, þegar Guðmundur Torfason fékk stungusendingu inn fyrir vörn Þórs. Þorsteinn hljóp út úr markinu, Guðmundur lék á hann en skot hans hafnaði ofan á markslánni. Þórsarar áttu líka sín færi en inn vildi tuöran ekki. Og ekki bætti það úr skák fyrir Norðanmenn að Guðmundur Baldurs- son var í fínu formi í marki Fram og varði mjög vel. Þegar á heildina er litið má segja að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit í þessum leik. Liðin: Fram. Guðmundur, Trausti (Jón Sveinsson), Þorsteinn, Ómar, Sverrir, Kristinn, Bragi (Viðar Þor- kelsson), Guðmundur S., Steinn, Guðmundur T. og Þorsteinn V. Lið Þórs. Þorsteinn, Jónas, Sigur- björn, Nói, Óskar, Einar Arason, Hall- dór, Guðjón, Sigurður Pálsson, (Bjarni Sveinbjömsson); Óli Þér, Kristján (Júlíus Tryggvason). Leikinn dæmdi Þorvarður Björas- son og sýndi hann Óla Þór gult spjald. Áhorfendur voru 504. Maður leiksins: Guðmundur Steinsson, Fram. -SK. Souness til Samp- doria? Hinn 31 árs gamli fyrirliði ensku meistaranna Liverpool í knattspyrau, Graeme Souness, hefur nú vakið áhuga ítalska 1. deildarliðsins Sampdoria og hefur félagið gert Liverpool tilboð í kappann. Einn af forráðamönnum Liv- erpool, Peter Robinson, sagði i gær- kvöldi: „Engu tilboði hefur enn verið tekið og engu hafnað. Við munum ræða málin við Souness, stöðuna og fleira, um leið og hann kemur aftur til Eng- iands úr keppnisferð Liverpool er- lendis.” -SK. Mark eftir 28 sek. Júgóslavía og Spánn léku í gær- kvöldi vináttulandsleik í knattspyrau og lauk leiknum með sigri Júgóslava sem skoraðu eitt mark en Spánverjar að sjálfsögðu ekkert. Mark Júgóslava skoraði Safet Susic eftir aðeins 28 sek- úndur. -SK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.