Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Síða 33
DV. FÖSTUDAGUR 8. JUNI1984.
41
Menning
Menning
Lítill barnakór
(utan hátíðar)
Tónleikar Skólakórs Kársness í Kópavogs-
kirkju 2. júnf.
Stjórnandi: Pórunn Bjömsdóttir.
Varla getur það verið algjör
tilviljun að nú, réttum þremur
áratugum eftir að Gunnar Thor-
oddsen borgarstjóri lúðurvæddi tvo
hópa i nafni höfuöstaðarins og sá
þeiin fyrir ókeypis kennslu á hljóð-
færi, skuli kórsöngur og hljóðfæra-
leikur grunnskólabarna standa með
meiri blóma í sveitarfélögunum
kringum höfuðborgina en i henni
sjálfri. Nú er þessi fullyrðing aðeins
sett fram með hliösjón af músíkölsku
framlagi þessara hópa. Samanburð
á fjárveitingatölum hef ég ekki. Veit
aðeins að þær munu hvarvetna ótrú-
legalágar.
En árangur fer fyrst og fremst eft-
ir atorku og hæfni leiðbeinendanna
því útilokað tel ég að böm séu mis-
músíkölsk eftir búsetu. Við þekkjum
öll dæmi þess að stjómendur og
kennarar þessara hópa hafa fómað
þeim öllum sinum tíma og orku, oft-
ast án þess að fá nema hluta starfans
greiddan.
Alltof oft veröa samsöngvar og |
tónleikar þessara ungu músíkanta
útundan þegar skrifaö er um tónlist í
blöðin. Ekki vegna áhugaleysis
músíkskribentanna heldur hins að
gjarnan stendur svo á aö á sama
tíma eru einhverjir aðrir, „merki-
legri”, á öðrum stað að flytja sína
list. Það ber því vel í veiði að rétt i
þann mund að listahátíð gekk í garð
söng Skólakór Kársness í Kópavogs-
kirkju.
Kórinn skiptist gróft flokkað í
þrennt. Litla kór, sem er uppeldis-
stöð meö sönggleði fyrir aðalvið-
fangsefni, miðkór, þar sem markviss
uppbygging er hafin fyrir alvöru og
loks hinn opinbera Skólakór sem ber
hita og þunga starfans út á við.
Þórunn Björnsdóttir hefur á
skömmum tima komið upp ágætum
kór á Kársnesinu. EfnisvaÚð er svip-
að og hjá öörum kórum sömu tegund-
ar. Það er lögð rækt við íslensk lög,
þjóðlög, innlend sem erlend í góðum
útsetningum, negrasálma og madri-
gala. Áhersla er lögð á hreinan söng
og fágun en krafturinn sparaður til
að halda hreinu. Þó tekst þeim að fá
gott líf í sönginn svo að útkoman
verður vandaður og skemmtilegur
bamasöngur.
Þessi samsöngur Skólakórs Kárs-
ness varð mér tilefni þanka um,
hvort ekki hefði verið tilhlýðilegt að
bjóða að minnsta kosti einum okkar
ágætu bamakóra þátttöku í hátíöinni
miklu sem í hönd fór. Því meðal þátt-
takenda í okkar öfluga bamamúsík-
starfi er að finna — ef ekki listarinn-
Tónlist
Eyjólfur Melsted
ar flytjendur á komandi hátiöum —
þá að minnsta kosti hina menntuðu
neytendur listarinnar sem í framtíð-
inni munu mynda fjölmennan og
kröfuharðan flokk.
EM
Kvennalistinn
leggur land
undirfót
Kvennalistakonur lögðu fyrir
skömmu land undir fót í þeim tilgangi
að hitta konur úti um landiö og skiptast
á skoöunum.
„Þær ætla að fara hringinn í kring-
um landiö og þræða firðina bæði f)rir
austan og vestan,” sagði Kristín Ást-
geirsdóttir, starfsmaður Kvennalist-
ans. Þær byrjuðu í Vestmannaeyjum á
mánudagskvöld, síðan fóru þær til Sel-
foss, Vikur í Mýrdal og svo áfram. Um
hvítasunnuna verða þær á Egilsstöð-
um og þa r um kring.
Það sem af er hefur þeim verið tekið
1 vel og allt hefur gengið að óskum, fjöl-
sóttir fundir og skemmtilegir,” sagði
Kristín.
Hún sagði að á kvöidin héldu þær
fundi en á daginn heimsæktu þær
vinnustaði og spjölluöu við fólkið.
Fimmtán konur og sex börn eru með í
för. Þingkonur kvennalistans skiptast
á um að slást í hóoinn. —KÞ
Listsýning
Katrínar
á Selfossi
Katrín H. Ágústsdóttir opnaöi vatns-
litamyndasýningu í húsakynnum
Byggða- og listasafns Ámessýslu við
Tryggvagötu á Selfossi þann 2. júní sL
Mikið fjölmenni var við opnunina og
voru sýningargestir að sögn heillaöir
af þeim 45 myndum sem á sýningunni
eru.
„Þetta er fallegasta og best upp
setta sýningin sem ég hef séð á Sel-
fossi. Það sést á sýningu Katrínar að
hún hefur sinn sérstaka, fallega og
hreinlega stíl,” sagði gömul kona við
mig. „Mikið er nú gaman að sjá mynd-
ir eftir Katrínu, bæði eru þær mikil
listaverk og vel skiljanlegar.”
Regína/Selfossi
BLAÐBERA-
HAPPDRÆTTI
Dagana 1.—30. júní förum við öll í smáleik.
A. Ef þú selur DV í lausasölu færð þú einn
happdrættismiða fyrir hver 20 blöð sem þú
selur.
B. Ef þú berð DV kvartanalaust út í viku færð
þú sex happdrættismiða.
SELJIÐ DV 0G VANDIÐ YKKUR VIÐ BLAÐBURÐINN.
TAKIÐ ÞÁTT í SKEMMTILEGUM LEIK.
TIL MIKILS ER AÐ VINNA.
VINNINGAR:
~ = r
- ^
verðmœ«»<r-26-8W'
' '3.650,.
4 til 10 SONYtturC1H0Fs“. . kassa'
Wjömlrassettu ^ hver
að verðmæti *r.
vinningor.
Dregið verður 4. julí 1984.
Afgreiðslan,
Þverholti 11,
simi 91-27022.
■m
W
Lausar stöður
Við Fjölbrautaskólann á Akranesi eru lausar til umsóknar
stöður kennara í stærðfræði og eðlisfræði. Nánari upplýsingar
eru veittar í síma 93-2544. Umsóknir sendist menntamálaráðu-
neytinu fyrir 22. júní 1984.
Skólameistari.
Staðurinn þinn
Smiðjuvegi
Opið í kvöld, föstudag, frá kl. 22-03.
Aðgangseyrir kr. 250,-
Aldurstakmark '67.
Allir keyrðir heim:
Rúta 1. Breiðholt - Arbær - Mosfellssveit.
Rúta 2. Kópavogur - Garðabær - Hafnarfjörður.
Rúta 3. Um Reykjavík - Seltjarnarnes.
Nafnskírteini - snyrtilegur klæðnaður.
PS. BREAKAÐASTI STAÐURINN í BÆNUM.
ilMMN
Á ÖLLUM BLAÐSÖLUSTÖÐUM
LITMYNDIR AF
HOLLYWOOD-ÚR-
SLITAKVÖLDINU!
Það var mikið um dyrðir á úrslita-
kvöldinu um síðustu heigi er
stjarna Hollywood og sólarstúlka
Úrvals voru valdar. Við birtum
myndir af þátttakendum og sigur-
vegurunum.
ÉG NOTA EKKI
STROKLEOUR
segir Baltasar i opinskáu viðtali
við Vikuna. Hann segir þar frá
stærsta lífsverkinu sínu, draum-
um og hverju hann óskar að skilja
eftir sig að lokum.
VINNINGSBÍLL VIKUNNAR
TOYOTA TERCEL 4 WD!
Hann er ekkert slor afmælisbíll
Vikunnar og fer þar sem aðrir
festast. Seðill í pottinum gefur
heppnum áskrifanda möguleika á
að verða bíl rikari 19. júlí næst-
komandi.
PEYSA
I LÍKAMSRÆKT-
INAOG
SKOKKIÐ!
Að þessu sinni er uppskriftin að
þægilegri peysu úr náttúruefnum,
tilvaldri i sól og sumaryl.
ÁSKRIFTARSÍMINN ER
27022