Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1984, Qupperneq 36
44 DV. FÖSTUDAGUR 8. JUNI1984. um viö nainið á laginu þeirra Michael Jaeksons og Mick Jagger. Það heitir : State Of Shock og útgáfudagur: 11. júní. Lagið verður að finna á breiðskífu Jacksons-bræðr- anna sem keinur út í júlí. . . Og fleiri stórstjörnur mynda dúetta. Hermt er að Diana Ross og Daryl Hall hafi nýlega sungið lag í ónefndu hljóðveri vestra og ætli sér engu minni frama en Willie Nelson og Julio Iglesias. Tví- söngstískan er sumsé rétt að byrja. . . Á mánudaginn kom út stóra platan með Elvis Costello, Goodbye Cruel World, og sama dag smáskífa með eina aðfengna lagi breið- skífunnar: I Wanna Be Loved en það mun vera tæp- lega aldarfjórðungsgamalt lag, sungið af Ricky Nelson árið 1960. í gestahlutverkum á breiðskífunni eru Daryl Hall (ekki Diana Ross) og Green úr Scritti Politti.- . . Bob Dylan efnir til hljóm- leika í Bretlandi á næstunni og nýtur fulltingis nokkurra harðjaxla úr breska rokkinu, meðal annarra Ian McLagan (var í Faces í gamla daga), Mick Taylor (fyrrum gítar- leikari Rolling Stones) og Collin Allen (var í Stone The Crowd). . . Hljótt hefur verið um giftingu tveggja stórlaxa rokksins, þeirra Chriss Hynde úr Pretenders og Jim Kerr úr Simple Minds. Lengi vel héldu inargir aö Ray Davies úr Kinks myndi leiða Hynde upp að altarinu en skoski söngvarinn hafði betur á lokasprettinufn. Gárungar telja næsta víst að hjónin ný- giftu stofni hljómsveit og leiki blöndu af skosku og bandarísku rokki. Og nafnið á sveitinni: Simple Hyndes. . Pallas stendur uppi söngvaralaus. Áhugasamir geta hringt í síma 01-439-2582 í Lundúnum. . . Ný sólóplata Tvær hugmyndir eru uppi um framtiðaraðstöðu fyrir Skautafélag Akureyrar. A, er sú eidrien þar er völlurinn nánast á sama stað og nú er en hlaupabraut gengur útí tjörnina sem er þar fyrir sunnar. Inni ihringnum er áfram gert ráð fyrir tjörn. Nýrri tíllagan, B. gerir ráð fyrir Hutningi svæðisins á Krókeyri og samkvæmt henniminnkar tjörnin verulega frá þvísem nú er. """"""^ Skautafélag Akureyrar hefur í hyggju að setja upp vélfryst skauta- svell í bænum svo fljótt sem mögu- legt er, jafnvel næsta vetur. Gallinn er sá að það strandar á skipulagsyf- irvöldum Akureyrarbæjar að veita félaginu framtíðarsvæði fyrir starf- semina. Skautafélagið var stofnað árið 1937 og því styttist í 50 ára afmæli. Hug- myndir um vélfryst svell skutu fyrst upp kollinum árið 1962 og fór málið þá fyrir bæjarstjórn en ekkert varö úrneinu. Árið 1976 fékk félagið aðstööu rétt fyrir sunnan Höpnersbryggju, vest- an Drottningarbrautar. Þrisvar sinnum var búið að velja milli svæða með vissu árabili áður en þetta var loks veitt til fjögurra ára. Árið 1980 telja félagar Skautafélagsins sig svo hafa fengið til frambúðar þetta svæði sem er um 30x60 metrar. Innan skipulagsnefndar var mælt með veit- ingu þess en bæjarstjóm afgreiddi ekki máliö. Islenski veturinn getur verið skautamönnum erfiður og hefur ver- ið það undanfarin ár. Stöðugir um- hleypingar gera drauma þeirra sem vilja stunda íshokkí reglulega að engu. Eitt kastið er rennislétt og fall- egt svell en áður en búið er að klæða sig í búninginn er komin suövestan rigning og blautur malarvöllur. Þetta hefur nánast drepiö íshokkí á Akureyri sem lengi hefur þó veriö býsna vinsælt þar. Vélfryst svell er því spuming um andlát og jarðarför þessarar íþróttagreinar eða hress- ingarlyf til bjargar. Félagar Skauta- félagsins hafa margsinnis gengið á fund bæjarfulltrúa til að fá endanlegt svar um varanlega aðstöðu en ekkert hefurgerst. Tveir möguleikar em nefndir í sambandi við þessa ósk skauta- manna. Annars vegar að setja þá niður þar sem þeir em eða fá þeim nýtt svæöi á Krókeyri. Skipulags- nefndinni þykir síðari kosturinn betri en þá þyrfti bærinn að kosta flutning- inn. Hugmyndin um aö vélfrysta skautasvell fékk byr undir báða vængi fyrir um tveimur mánuöum þegar stjórn Utgerðarfélags Akur- eyringa ákvað að gefa Skautafélag- inu frystivél með tilheyrandi búnaöi. I kostnaðaráætlun um vélfryst svell frá 1980 var gert ráð fyrir að kaup véla og uppsetning þeirra yrði helmingurinn. Eftir yrði þá að koma fyrir einangrun og kaupa vatnsrörin. Þegar hefur verið ákveðiö að kaupa íslenskplaströr og þarf þáallsl9kíló- metra í lögnina. Verö er milli tvö og þrjú hundruö þúsund krónur. Einangrunin er til að missa frostið ekki niöur og er verið að leita tilboða í hana. Kostnaður er talinn verða um ein milljón króna. Hugsun Skautafélagsmanna er aö leggja ekki út í dýra einangrun ef á „Eg held að hafi verið alveg ein- hugur innan skipulagsnefndar um að aöstaða Skautafélagsins væri betur komin inni á Krókeyri," sagði Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi sem á sæti í nefndinni. Siguröur sagði að mál þetta væri enn fyrir skipulagsnefnd og fjallað um það með innbæjarskipulaginu. Við frumhönnun þess hefði verið gert ráð fyrir aðstöðu Skautafélagsins þar sem það er nú en við meðhöndlun í nefndinni komiö upp sú skoöun aö hún væri betur komin á Krókeyri. Það stóra hús sem einhvem tíma í framtíðinni yrði reist myndi til dæmis falla betur inn í landslagiö aö flytja þá á Krókeyrina. Ekkiþykir taka því að kasta milljón í bráöa- birgðasvæði við Höpnersbryggju. Ef leyfi fengist samt þar til 5 eöa 6 ára væri þó ástæða til að koma vélfryst- ingunni í gang án einangrunar. Meg- inatriöið sé ákveðið svar hið fyrsta um hvar þeir megi vera. JBH/Akureyri þar heldur en á núverandi stað. Hönnuður innbæjarskipulagsins hefur nú þessa tillögu um færslu á skautasvellinu til athugunar, sagði Sigurður. Lokatillögur hans væru væntanlegar seint í sumar og þá fyrst yrði hægt að leggja skipulagiö fyrir bæjarstjórn. Sigurður taldi að sá möguleiki væri hugsanlegur að taka skautasvellið út úr núverandi skipulagstillögum svo hægt væri að byrja aö vinna við það. Framkvæmdir gætu þá allar miðast við væntanlegt skipulag með aðstöðu skautamanna á Krókeyri. -JBH/Akureyri. Sigurður Jóhannesson bæjarfulltrúi: Einhugur um að svellið verði flutt frá Eric Clapton er væntan- leg í haust. Phil Collins stjórnar upptökunni en meðan beðið er plötunnar ættu aðdáendur Klappans að hugga sig við safnplötu með 22 lögum sem er rétt ókomin. Ekki meira að sinni... Gsal. FÁ AKUREYRINGAR VÉLFRYST SKAUTA- SVELL NÆSTA VETUR? Stjórn Útgerðarfélags Akureyr- inga var svo rausnarleg að færa Skautafélaginu frystivél að gjöf. Eftír er að sjá hvenær hún fær tækifæri tíl að sjá Akureyringum fyrir svelli. Ekki er útílokað að það verðijafnvel næsta vetur. Héreru þrir stjórnarmenn Skautafélags Akureyrar hjá frystivélinni, Guð- mundur Pétursson, Ómar Stefánsson og Sigurður Baidurs- son. Aftan i dráttarvéiinni er Isman tæki sem Akureyrarbær festi kaup á tílað finslípa ísvelli. TJORN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.