Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Page 5
DV. LAUGARDAGUR14. JOLl 1984. 5 „HÚN Á EIN- STAKLEGA AUÐVELT MED AÐ LÆRA’r — segir Þórunn Geirsdóttir, móðir Bryndísar Hólm „Bryndís er ákaflega sjálfstæð og dugleg og ég tel það hennar stærstu kosti,” sagði móðir hennar, Þórunn Geirsdóttir, í samtali við DV. „Bryndís hefui' alla tíð tekiö alla hluti alvarlega og hefur þá einu gilt hvað hún hefur tekið sér fyrir hendur. Iþróttirnar stundar hún af miklu kappi en þaö hefur aldrei komið niður á náminu hjá henni. Hún stundar sinn skóla af mikilli eljusemi og á alveg ein- staklega auðvelt meö að læra. Hún þarf ekki nema rétt að líta í bók og þá kann hún allt.” Er Bryndís dugleg við að aðstoða þig viö heimilisstörfin ? „Það hefur ekki staðið á henni að hjálpa mér þegar ég hef beðið hana um það. En ég veit að hún hefur lítinn tíma til þess að hjálpa mér hér heima. Allur hennar tími fer í íþróttir og námið. ” Nú hefur þaö oft verið sagt um frjálsíþróttafólk að það borði meira en góðu hófi gegni.Er þessu þannig fariö með Bryndisi? „Nei, ekki get ég sagt það. Hún borðar ekki mikið og passar sig á því að borða rétta fæðu. Hún borðar ekkert nema hollan mat og tekur lýsi. Mér skilst að hún veröi að boröa ákveöinn mat ætli hún aö standa sig í íþróttunum. Og ég er handviss um að hún á eftir aö gera það.” Fylgist þú með henni á vellinum þeg- arhúneraðkeppa? „Nei, ég verð að viðurkenna að það geri ég ekki. Ég er ekki viss um að hún vilji það. Það gæti er til vill haft slæm áhrif á hana ef ég væri viðstödd þegar hún er að keppa. Þetta er einstaklings- bundið,” sagði Þórunn Geirsdóttir. —SK. SMÁAUGLÝSINGADEILD, ÞVERHOLTI 11, SÍMI 27022. • Afsöl og sölutilkynningar bifreiða • Húsaleigusamningar (löggiltir) • Tekið á móti skriflegum tilboðum Við viljum vekja athygli á að þú getur látið okkur sjá um að svara fyrir þig simanum. Við tökum á móti upplýsingum og þú getur siðanfarið yfir þær i góðu tómi 09 ferðalagið! -sækjum við í bensinstöðwar ESSO Primus-os srillvörur Ofiufélagið hf Suóurlandsbraut 18 ✓ Bryndísi Hólm langaði að spyrja Ingólf Hannesson, sem nú er mættur til starfa á sjón- varpinu á nýjan leik, að því hvort sýnt yrði beint frá ólympíuleikunum í Los Angeles. Svar Ingólfs Hannessonar: „Ég á ekki von á því að sýnt verði beint og aðalástæðan fyrir því er tímamismunur milli Islands og Bandaríkjanna. En ég get fullyrt aö þjónusta sjón- varpsins við landsmenn verður betri núna en hún hefur áður verið. Það er verið að athuga núna um möguleika á að sýna úrslitakeppni spjótkastsins beint en of snemmt er að segja um hvort af því verður. ’ ’ • FULLT NAFN: Bryndís Hólm * Karlsdóttir. • HÆÐ OG ÞYNGD: 174 cm og 57 • kg. • GÆLUNAFN: Ekkert sérstakt. • BIFREH); Engin. • UPPÁHALDSFÉLAG ÍSLENSKT: • ÍRogVíkingur. • UPPAHALDSÍÞROTTAMAÐUR • ÍSLENSKUR: Einar Vilhjálms- 2 son. • UPPÁHALDSÍÞROTTAMAÐUR • ERLENDUR: Carl Lewis. J MESTU VONBRIGÐI í IÞRÖTT- • UM: Þegar ég féll úr keppni í 7- • þraut. Átti mjög góðan fyrri dag J en gerði öll stökk mín ógild í lang- • stökkinu og féll úr keppni þess • vegna. J MESTA GLEÐISTUND í • ÍÞRÓTTUM: Þegar ég stökk í • fyrsta skipti yfir sex metra. J ÖNNUR UPPÁHALDSÍÞRÓTT • EN FRJÁLSAR: Handknattleik- • ur. J UPPÁHALDSMATUR: Lamba- • hryggurmeðöllu. • UPPÁHALDSDRYKKUR: J Norskur bjór. • UPPÁHALDSSJÓNVARPS- • ÞÁTTUR: Íþróttir. J UPPÁHALDSLEIKARI ÍS- • LENSKUR: Laddi. J UPPÁHALDSLEIKARI ER- J LENDUR: Richard Gere. • UPPÁHALDSHLJÓMSVEIT: J Genesis. J UPPÁHALDSBLAÐ: DV. • LÍKAR VERST í SAMBANDI J VIÐ ÍÞRÖTTIR: Rigur milli fél- J aga. BESTI VINUR: AUir mínir vinir i íþróttum. ERFHÍASTIANDSTÆÐINGUR: Enginn sérstakur. HELSTA METNAÐARMÁL í LÍFINU: Að standa mig vel i öUu sem ég geri. HVAÐA PERSÓNU LANGAR ÞIG MEST TIL AÐ HITTA? J.R. RÁÐ TIL UNGS FRJÁLS- ÍÞRÓTTAFÓLKS: Æfa vel og rétt. HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA EFTIR AÐ FERLINUM LÝKUR? Ekki hugsað svo langt því hann er nýbyrjaður. HELSTI KOSTUR ÞINN: Stund- vísi. HELSTI VEIKLEIKI: Of upp- stökk, fljót að reiðast. FRAMTÍÐARFRJÁLS- ÍÞRÓTTAMAÐUR Á ÍSLANDI: Súsanna Helgadóttir, FH. BESTI ÞJÁLFARI SEM ÞU HEFUR HAFT? Gísli Sigurðs- son. YRÐIR ÞÚ HELSTIRÁÐAMAÐ- UR ÞJÓÐARINNAR Á MORG- UN, HVERT YRÐI ÞITT FYRSTA VERK? Að reisa glæsi- legan leikvang í Laugardal. ANNAÐ VERK? Lækka aldurs- takmarkið í 18 ár á skemmtistöö- um. Bryndisi langar mest til að hitta J.R. 'ta AUGLYSENDUR ATHUGIÐ! AUKABLAÐ, Innlent ferðablað II kemur út laugardaginn 28. júlí helgina fyrir verslunarmannahelgina. Þeir auglýsendur sem áhuga hafa á að aug- lýsa í blaðinu vörur sínar og þjónustu vinsam- legast hafi samband við auglýsingadeild DV, Siðumúla 33, Reykjavík, eða í símum 82260 og 27022 kl. 9-17 v'irka daga, í síðasta lagi fimmtudaginn 19. júli. AUGLÝSINGADEILD SÍÐUMÚLA 33. SÍMAR 82260 OG 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.