Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Blaðsíða 7
DV. LAUGARDAGUR14. JOLl 1984.
7
Dolly
Parton:
Leik-
kona
og
r'rthöf
undur
Kántrísöngvarinn Dolly Parton, sem líka er
orðin kvikmyndastjarna, ræðir af ákefð
Broadwaysöngleikinn og bækurnar sem hún
er að skrifa. Líka nýja kvikmyndafyrirtækið,
næturklúbbinn og upptökuverið sem hún er
aðfara aðopna.
„Þú getur gáð undir hárkolluna mína og þá
sérðu viðskiptagáfur,” segir hún. „Ég var
fátæk þegar ég fæddist. Ég ólst upp viö erfið
kjör og ég er enginn agni.” Parton hefur verið
lýst sem eins og hálfs metra upptrekktri
dúkku. Hún er í vextinum eins og stundaglas
og notar ljósar hárkollur. Hún er komin út í
stórbisness.
„Mig langar til að græða peninga og ég hef
núna talsverðar tekjur af kvikmyndum. En
þaö eru ekki peningamir sem eru málið. Ef
mér finnst eitthvað skemmtilegt þá vinn ég
fyrir lægra kaupi ef þörf krefur til að koma
því íkring.
Um þessar mundir hefur hún gaman af að
sýsla viö næturklúbb sem hún ætlar að fara að
opna á Hawaiieyjunni Oahu þar sem hún
hefur átt heimili fyrir sjálfa sig og Carl Den,
hinn fjölmiðlafælna eiginmann sinn, í átján
ár. Carl er byggingarverktaki.
„Ég ætla að láta gera sjónvarpsþáttaröð
þar og svo ætla ég líka að byggja upptökuver
á sama stað,” segir hún.
20 lög á þremur vikum
„Fólk er líka að nauða í mér að setjast nið-
ur og klára söngleik sem ég vinn að og heitir
Villiblóm. Hann er um f jallabúa.
Ég er líka búin að stofna útgáfufyrirtæki
með Universal sem heitir Sandollar og ég er
að vinna að hugmyndum um sjónvarpsefni
þar sem ég væri ekki endilega leikari sjálf,”
segirhún.
„Svo er ég líka að vinna að bókaröð sem á
að heita „Ég er” og er um það sem fyrir mér
er aðferð til að gera sér grein fyrir eigin per-
sónu,” segir Dolly. „Þetta er nokkurs konar
jákvæður hugsunarháttur, sjálfshjálparvið-
horf sem ég hef predikaö svo mér fannst að ég
gæti allt eins skrifað það niöur. ”
Parton, sem er íklædd silkiblússu og
rúskinnspilsi með kábojsniði, kryddar frá-
sögn sína með ungmey jartísti.
„Allir mínir draumar hafa ræst,” segir
hún. „Ég tala eins og smákrakki en ég hef
verið ákaflega heppin. Þrjátíu og átta ára
gömul lifi ég góðu lífi og nýt vinnu minnar.”
Parton skrifaði tuttugu lög á þremur vikum
fyrir Rhinestone, nýjustu kvikmynd sína. I
myndinni leikur hún næturklúbbsstjömu í
New York sem reynir að gera Sylvester Stall-
one að söngvara.
„Þetta var auðvelt,” segir hún. „Það er
erfiðara að skrifa bækur.” Á meðan hún talar
hamrar hún á borðiö með fimm sentímetra
löngum fölskum nöglum, eldrauðum. „Þær
eru falskar og mér finnst gott að vera með
þær,” segir hún. „Ég breyti stuttum og feit-
um puttum í fallega með því að nota þær. ”
Þegar hún er spurð hvemig hún leiki á gítar
með löngum nöglum þá svarar hún með
glotti: „Baraágætlega.”
Enginn Rolls
Dolly var fjórða í röð tólf systkina og íbúðin
sem hún ólst upp í var tveggja herbergja. Hún
gerði fyrstu plötu sína þegar hún var tíu ára.
Eftir að hafa lengi verið í samvinnu við
kántrísöngvarann Porter Wagoner byrjaði
hún að skemmta ein og varð ein skærasta
stjarnan í kántrítónlistinni meö því sem hún
kallar háa og mjóa rödd sína.
„Við skulum orða það þannig að ég gæti
ekki sungið í söngleiknum Evitu,” segir hún.
Líf ið hefur ekki alltaf leikið við Parton. Árið
1982 varð hún að aflýsa nokkrum tónleikum
vegna þess að hún átti við vanheilsu að stríða.
„Þegar ég lék í myndinni The best little
whorehouse in Texas var ég veik og gekk í
gegnum alls kyns tilfinningaleg vandamál.
Það var ákaflega erfitt,” segir hún. „En það
er ekkert athugavert við mig að því leyti er
fólk getur séð,” segir hún og tístir. „Ég tala
bara of mikið og hlæ of hátt.”
Þegar hún er spurð um hvort hún hugsi ein-
hvem tímann aftur til tímanna þegar hún var
fátæk, segir hún: „Mér finnst erfitt að kasta
peningum á glæ vegna þess hvemig ég var al-
inupp.
Ég myndi miklu frekar kaupa mér helling
af ódýrum fötum heldur en eina stórglæsilega
kápu.
Ég leigi glæsivagna þegar ég fer eitthvað
sérstakt. Ég á ekki Rolls Royce, bara skutbíl.
Og ég hjálpa systkinum mínum og frændum
og frænkum. Eg gef f jölskyldu minni töluvert.
Ég er ekkert að sauma að sjálfri mér. Mér
finnst bara gott að hafa vit fyrir mér.”
Skurðgrafan sem beðið hefur verið
eftir:
• afkastamikil
• ódýr í innkaupi
• á auðvelt með að athafna sig þar sem þröngt er
• grefur á 2ja metra dýpi
• er mjög auðveld í meðförum
• kemst inn um hlið eða hurð liðlega 70 cm á breidd
• fáanlegur aukabúnaður til að tengja við vökvaknúnar dælur,
bora eða fleyga.
IMæsta sending væntanlega í byrjun ágúst.
lúiwmwmá
( MEIRA ÖRYGGI
Á VOTUM VECUM
STYTTRI VECALENGD VID HEMLUN
Þegar þú færð þér dekk undir bílinn, gerir þú
þér þá grein fyrir bremsueiginleikum og veg-
gripi dekksins?
GOODYEAR Grand Prix-S er þeim eiginleikum
búið að það er með 74% snertiflöt við veginn
á 90 km hraða í 2 mm vatnsborði.
Þetta er einn sá besti árangur sem náðst hefur
hvað varðar öryggi við varasöm akstursskilyrði.
Fullkomin hjólbarðaþjónusta
Tölvustýrð jafnvægisstilling
GOOD0YEAR
GEFUR ^RÉTTA GRIPIÐ