Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Blaðsíða 11
11 DV. LAUGARDAGUR14. JULl 1984. upprunninn í einhverri menningar- miöstöð, þó hann kæmi úr Olafsvík á Snæfellsnesi einu versta fátæktar- bæli á landinu. Hugarheimur hans allur var einn samhaldinn skáldleg- ur draumur. Dimmur gullbryddur málrómur hans tjáöi sálarlíf hans ekki síður en ljóðabrotin sem hann var ævinlega að dunda við. I augum hans bar mest á grænum lit; var augnaráöið í senn aðlaðandi og geig- vænlegt, undir miklu brúnastæði.” Þannig hljóðar lýsing Halldórs Lax- ness. Meðan móðir hans lifði skrifaði ég fyrir hana öll bréf til Jóhanns og naut þess að lesa hans. Jóhann fór í Menntaskólann og eft- ir það er öðrum ævi hans kunnari. Mér þykir þó ólíklegt, að embættis- færsla hefði orðið honum að skapi. Ég hef heyrt mann minnast þess, er hann kom á málfundi í Mennta- skólanum. Alltaf talaði hann blaða- laust og varð ekki orðs vant. Stöku sinnum kom hann vestur og hélt konserta meðan hin gullna rödd hélzt. Eg leyfi mér hér með að blað- setja smákafla úr, að mig minnir síð- asta bréfinu til móður hans. Einung- is þennan smákafla þykist ég muna orðrétt, því hann greiptist í huga minn. „Nú er röddin brostin og allt frá mér tekið. Þó er unaðslegt að sitja úti í garðinum, allt umvafið blóm- skrúöi og angan þess töfrar. Þýðir ómar berast hvaöanæva, allt um kring. Og þögnin. Og nú er blessuö Elísabet min að koma út i garðinn með miðdegisdrykkinn. Og það er dúkur á borði—móðir jörð.” Allt leitar síns upphafs. Þrátt fyrir hinn þrönga kost Jóhanns á Snæfells- nesi, lagði hann það fyrir, að hinztu leifar hans yrðu fluttar þangað. Þar mun hann hafa talið sína Valhöll standa meðal vætta og bergbúa hins ókrýnda konungs, Snæfellsjökuls. Þama var hans móðurskaut í tvennum skilningi. Elísabet, ástkona hans, flutti ösku hans heim og var hún jarðsett á Snæfellsnesi.” Því má svo bæta við þessa frásögn Þorbjargar að Jóhann var kennari á Djúpavogi einn vetur, veturinn 1920— 1921. Siöan fór hann til náms i Þýska- landi og kom aldrei í lifanda lifi heim til Islands aftur. I Þýskalandi nam hann germönsk fræði og bókmenntir í Leipzig og Berlín í fjögur ár en lauk ekki prófi. Jóhann kvæntist 1921 Nikólínu Henríette Katrínu Arnadóttur kaupmanns frá IsafirðiSveinssonar, en þau skildu. Sjúkdómur Jóhanns setti nú æ meira mark á hann og var hann oft þungt haldinn. Hann dvaldist mest í Þýska- landi eins og fyrr getur en einnig í Sviss, á Italíu og eitt sumar á Norður- löndum. Hann dvaldist oft á heilsu- hælum. Jóhann Jónsson andaöist i Leipzig 1932, aðeins 36 ára aö aldri. Eftir Jóhann lágu mörg gullfalleg ljóð, svo og ritgerðir. En þessum verk- um hans var ekki safnað saman fyrr en árið 1953 er Heimskringla gaf þau út. Halldór Laxness sá um þessa útgáfu á verkum Jóhanns og skrifaði formála að bókinni. -SþS ÁSTIN OG SORGIN - ÆVINTÝRIEFTIR JÓHANN JÓNSSON, SKÁLD FRÁ ÓLAFSVÍK Þú hefur alla tíma elskað fögur ævintýri. Þú hefur elskað fegurðina svo heitt, sem nokkur hefur elskað hana. Þess vegna ætla ég að segja þér ævintýri, sem er fagurt eins og hljómar hörpunnar og blóm vorsins, sem er fagurt eins og fjarlægðin, þegar hún er fegurst. Haf hægt um þig hjarta! þótt heyrir þú aftur þín eigin hjartaslög, þegar dýpsta gleði líf s þíns titraði um þig. Það var á þeim tímum, þegar him- inn guös var ekki eins fjarlægur mönnunum og nú er hann. Á hverju kvöldi sofnuðu jarðarbörnin út af við himneska söngva og hljóöfæraslátt góðu englanna, sem vöktu við hvílu þeirra, meðan þau sváfu. Og friður og gleði draup yfir sálu þeirra, eins og döggin drýpur yfir blómin og dreypir þau lífi og svala. Á hverjum morgni vöknuðu jaröarinnar börn við það, að vemdarenglar þeirra buðu þeim góðan dag i morgunblænum, sem þaut hljóðlega í ilmandi skógar- runnunum fyrir utan gluggana. Á þeim tímum voru börn jarðarinnar ennþá eins og böm, sem elskuðu hvort annað saklausri systkinaást. Þetta var áður en eigingimin fæddist. Og nú er svo langt síðan, að þeirra tíma sést ekki getið í elstu bókum. Þá var það, aö ungmær nokkur kom gangandi gegnum dimman og hávaxinn skóg. Engin orð fá lýst feg- urð hennar, og öllu því, sem fegurst er, fá engin orð sagt frá. Andlit hennar var bjartara en bjartasta mjöllin, roðinn á vöngum hennar var rauðari en rauðasta rósin. Hár hennar lýsti eins og mán- inn á dimmbláu hafinu. Og yfir öllum vexti hennar og limaburði lá himn- eskogsigranditign. En fegurst af öllu vom þó augun. Þau vora blárri en hafið, þegar him- inninn er alheiður, og þau voru dýpri en dýpsti vor himinn. Og það var eins og hún sæi um allan heim með augum sinum, stórum, bláum og undrandi. Úr augum ungu meyjarinnar lýsti ósegjanleg þrá, — þrá, — þrá. En það kynlegasta af öllu var þaö, að fagra mærin var blind, — steinbUnd. Og fagra mærin gekk hægt og há- tíðlega gegnum skóginn og söng und- ur fögur ljóð og söngur hennar titraði af þrá, — ósegjanlegri þrá. Skógar- trén lutu laufkrónum sínum við söng hennar, og laufið skalf á greinunum. Rósirnar og blómin luku upp krónum sínum, — eins og þau vildu heyra sönginn betur, og það var sem þau öll yrðu gripin sömu þránni, sömu ósegjanlegu þránni og var í söng ungumeyjarinnar. Unga mærin hafði gengið lengi, lengi um skóginn. Hún haföi gengið þar allt sitt líf. Hún vissi ekki hvaðan hún kom og heldur vissi hún ekki hvert hún fór, en alltaf var hún knúin af sömu þránni, þránni eftir aö finna sjálfa sig og þránni eftir að sjá, — sjá sjálfa sig — allra helst. Hún var fædd blind, og móðir hennar hafði gert hana að olnbogabami sínu, sökum þess aö hún var blind. Fagra mærin hét Ást og móðir hennar hét Viska, og þegar hún fæddist sagði móðir hennar: ,,Eg sendi þig frá mér einfeldningurinn þinn! og gef þér ekkert í heiman- mund nema ljóð, sem þú skalt syngja ár og síð, ég sendi þig til að leita systur þinnar, en hún heitir Sorg. Og þar til, er þú finnur hana, verður þú blind og öll heimsins dýrð verður þér dulin nema þín eigin ljóð. En systir þín mun gefa þér s jónina, og hún skal fylgja þér frá þeim degi, er þið mætist, eins og skugginn þinn. Og henni verðurðu háð alla daga, — og þú skalt óttast hana meira en nokkuð annaö, en hún mun þó verða hin eina vera á jarðríki, sem ann þér að fullu og gefur gaum að söng þinum og ljóöum. Farðu og leitaðu hennar þar til þú finnur hana.” Og Viskan hratt dóttur sinni Ást frá sér, og fagra bamið hrökklaðist grátandi út í heiminn og söng ljóðin sín yndis- fögm, sem vöktu blómin af dvala, og sem skógartrén hneigðu í lotningu og hrifni. ,,Alla daga munt þú gefa mönn- unum meiri og betri gjafir en laun þeirra verða,” sagði Viskan, um leið og hún hvarf frá dóttur sinni, en það heyrði fagra mærin ekki og þaö var þaö besta fyrir hana. Og árin liðu, — liðu. Eitt sinn heyrði Astin allt í einu þungan nið, eins og vötn féllu fram í lítilli fjarlægð. Hún nam staðar, hætti að syngja og hlustaði eftir hinum þunga nið. Svo hélt blinda bamið áfram og vissi ekki hvar það fór. Skömmu síðar var Ástin komin fram á fljótsbakkann. Brjóst hennar þrútnaði af þrá og hófst í þungum og djúpum bylgjum. 0, nú ætiaði hún að syngja fegurstu ljóðin, sem hún kunni, — en — ó, vei! Hún kom ekki upp nokkm hljóði. Röddin drukknaði í hálsi hennar. Haf hægt um þig hjarta! ,^)g heyri hin ósungnu ljóð þín best. Fegurstu perlumar falla í öldur mínar. Fegurstu Ijóð þín eiga að stíga niður í djúp mín. Þar verða þau best geymd.” Unga mærin hrökk við. Hún heyrði, að einhver sagði þetta niðri í bárunum. Röddin var djúp og blíö, — eins og niður fallandi linda. Og tárin fóm aö streyma úr augum hennar, — hin fyrstu tár, er hún hafði fellt í mörg mörg ár, eldheit tár, — brennandi tár. Og á sömu stundu litu augu hennar dagsins ljós. Og hið fyrsta sem hún sá, var undurfögur kona, ung mær sem sveif upp úr myrkbláum öld- unum. Það varSorg systir hennar. Andlit hennar var marmarahvítt, augu hennar vom svört eins og vetr- arnóttin, og streymdu höfug tár niður vanga hennar og féllu niður í öldurnar eins og leiftrandi perlur. Og Sorgin steig upp úr djúpinu og þrýsti systur sinni, Ást, í faðm sér, og köld tár Sorgarinnar drupu niður á brjóst hennar. En Ástin varð óttaslegin og vildi rífa sig úr fangi systur sinnar. En Sorgin talaði til hennar, mildum orðum og sagði: „Ég hefi gefið þér sjónina, systir mín; — og æðstu launin fyrir söng þinn muntu fyrst finna í perlusafni mínu þama niðri í öldunum. Og hönd í hönd gengu þær til mannanna. Ástin söng þeim svanasöngva sína, og Sorgin felldi tár, köld og hljóð, og fól sig undir hul- iðshjálmi að baki Ástarinnar. Og þegar Ástin söng, þá gleymdi hún systur sinni, en aldrei fann hún að fullu unað söngs síns, fyrr en hana bar að hafströnd systur sinnar Sorg- ar. En í djúpunum er hennar veldi. Og tár hennar eru skuggsjá mannanna. I þeirri skuggsjá sjá þeir alla dýrð veraldar. Og komi Ástin eitt sinn til þín, þá ljúktu upp hjarta þínu fyrir ljúflingnum unaðsfagra og gef þú gaum aö söng hennar. En hún mun blinda augu þín. Og sjálf er hún blind, — en systir hennar Sorg, mun opna augu þín og augu hennar, og þá hlýtur þú perlur hennar að gjöf. Þannig vill móðir þeirra Viska að það sé. Og Sorgin og Ástin ganga um alla eilífð hönd við hönd og gefa hjörtum mannanna æöstu gjafir lifsins, ljúfl- ingamir unaösgóöu og yndisfögru, olnbogabarn og augasteinn Viskunn- ar. A ox^OJia t*i /LOJúJ)u-*{a A-/ní+-,. tSJ jytjt- &bciA**1. Jv'Vl /7 -J fc,0-ó£-OOo-joriÁ c/o I /%3 Z . aíta Í~c**ia> do U. Jjú hjLjiu* íMÍíílÍ 'JiW Iv-iitj JC*+t -UirtcJuu faju-t c/aÍL l j ^ CíJ-i-Q £uj CL$ jíúl CLj/L**lLj’t4., ^ >, <-*-**-d yJuA. * dLcjib ílU*Uk . tfUu/ t-H 'J C*1 /vcí-U 'o-c/a / 'ít JtAU CA, JojjLQiJ- U-Lts y /a-c §'-+*, ,} C.J ■Ol U-flQUA- C7L-0./ U**' /Jt-6 f-Wj ■ /./ ,/ /. 'J/ lu j u ajUu jjc+i í-j i-t-, 'aA/a-iíÁj, j OiJ, Li/d ^hi-UQ C f. ■ , . '/. / / . ý6 O-t rJ'Cs-X. Q o Cu-l+í /-i-**t-<tUvu, Jtý+t -i<—,/** .-UA. U-+1-4 jj jA-í-cp i-l '■■j oiv iua.yu. ijta pj •-oj'f- 'Í ------ - u ,'+4**U**U*4, ouj La. /ux+m. o$- j fcvvldj ou i ít/i****-\ uj-xj -t:icJ /u*-t.yic ijta 'íjíxj-.'Q Uj-AAtA/ÍÓÍi- ' j • r f svt-i/ 'tvvj-tu Jua d vcijc. ó/ jáu, ■jaú.4 ■■■ ÍL xut+i i"* I lícs/ ’. t xfvata- ■ óu V I i’+tai L.' t i.t •> Vxyict Jr+t*t ! UJtLb iAJU-u-yt. c/a. cUyn'HA yji "/// V ■ 'fÍUULCu f‘ V . V , / o-o •vni .uLuc i-VL+f.a: /cit'i-Q tJi-siu , • t AA++Í.Í.4.. •• trt.'l *.<ir.Ja . /■ /■.ÍÓl/u y </*+’ -J/Loj a-t iAL*+* cc+i ijrUy-y/ ($/ p tu*i HMtlt**. V O-íaa þo Lt+c-i jy {ot-ti, -dc-*** c-í / ííjÍ L-clua j xf J t'k-uytc, u-j fc"* S.+A (.ty .-tiyu+iu-i UduldtÁV. IW .'z Oít 'Luttf/ JíJu+4, jíujL'lu {<++19 . -L/ e. k-kj ■ ■ \ <- , / / jJu 'V'.<A /JU-C. Uo lUHf L+iu) j TÍJU-t (f(*+L(,<++<dt t fC.cn <+*H jfcjttt l+l u *.*< O', Áu ■itQyé+f/ía/oíýJ/ ' < <J [rt/.u j oí' O * **’/-'J HA-sf Ju-jf jt-á ,4. / ivt-a-ttiA+n Oi i Q ujlaa-i+a Ltc*-* rt—lL' Lu—a, -f Cn.ei'uti. <+ /J .<v ■—4 -p <. yktA ,' /£*+-*+< /UA+WUA/, J <C<f ftf Uti / H-f é'/U /£yt U J ' ? Joau v ■U kt+ic I+jsaJ' .-***• /f •7r-o-l u-t ÓLj-i-ts t u .yt -/U-ttUVU cJtt-A*. i- * .'V* C+At J tf ,Ut-U z+f^. •j i'fi-tu -j0 Qejyc t* ■C‘> .LajsJy t/a llCiju-l, Of /lUi u-t+t T jsyis<++*, -yusy / Q-'lí+*+tQ » niu+i +-i , 'V" '7~' Z- í 'ftts-u-r ivt-t-u a tsftu+' Cfj u-urloa*+d!t' a++ýu+ /ím í>c*ti ntýtx-ÍtýXdfa 5'’1 L ‘ ‘/ ÚU-X lat-l A-M i-L-UrC, J {c<++ OþJajca n-ut- ‘ L * J-týU U-ut <Jn.'j Of . ' : :-t+A ,U‘ Oifju+ta.j < j cM hct. //} iUtUý Uja r Úr handriti Oddfríöar Sæmundsdóttur, frá Elliða á Snæfellsnesi, að ævintýri Jóhanns. TRYGGIR ÞBR ÞÆGINDIFYRSTA SPOLINN Bill fra Hreyfli flytur þig þægilega og a rettum tima a flugvollinn. Pu pantar fyrirfram viö hja Hrevfli erum tilbunir aö flytja þig a Keflavikur- flugvoll a rettum tima i mjukri limosinu Malið er einfalt pu hringir i sima 85522 og greihirfra dvalarstað og brottfarartima Við segjum þer hvenær billinn kemur Eitt gjald fyrir hvern farþega Við flytjum þig a notalegan og odyran hatt a flugvoliinn Hver farþegi borgar fast gjald Jafnvel þott þu sert einn a ferð borgarðu aðeins fastagjaldið. Viö vekjum þig Ef tyottfarartimi er að morgni þarftu að hafa samband við okkur milli kl 20 00 og 23 00 kvoidið aður. Við getum seð um að vekja þig með goðum fyrirvara, ef þu oskar Þegar brottfarartimi er siðdegis eða að kvoidi næqir aö hafa samband við okkur milli kl 10 00 og 12 00 sama dag WREMFILL 685522

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.