Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Side 8
8 DV. LAUGARDAGUR14. JULl 1984. Sumar- leyfís- lesning Þó eru sumarfríin í hámarki og kominn tími til aö huga aö sumar- leyfislesningunni. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem viö höfum úr bókabúöunum, gerist þaö enn, þrátt fyrir myndbönd og vasa- diskó, aö fólk grípur meö sér reyfara- söguífríiö. Annars er það margt fleira en reyfarar sem selst að sumarlagi. Ut- lendingar þyrpast í bókabúöimar og kaupa fornsögumar, Laxness og fleira sem er til á þeirra máli í íslenskum bókabúðum. Landinn kaupir á sumrin bækur sem tengjast göröum og gróöri og svo auðvitaö eitthvað um veiöiskap og ferðalög. Þá selja bókabúöirnar einnig kort af landinu okkar. Veröið á íslenskum skáldsögum hefur mörgum þótt fyrirstaða. Þær kosta gjaman á sjöunda hundrað krónur og þaö er f remur lítil hreyfing á þeim um þessar mundir. Þaö er meiri ásókn í erlendar bækur og svo mun vera allan ársins hring. Viö gengum einn rúnt um miöbæ Reykjavíkur og fórum í Snæbjöm, Sig- fús Eymundsson og Bókabúö Máls og menningar. 1 búöunum er aö finna helstu nýjar metsölubækur og svo má finna eitt og annaö með grúski í hillum. Viö fengum tvær kiljur í hveri búö og hér er afrakstur rannsókna fimm blaða- manna á innihaldi þeirra. Vonandi geta umsagnirnar orðiö mönnum sem leita sér að sumarlesningu til glöggv- unar. The name of the rose og The little sister eru úr Snæbimi, The little drummer girl og Eleni eru frá Sigfúsi Eym. og Iee og Christine frá Bókabúö máls og menningar. Þetta þýðir ekki aö viðkomandi bækur fáist eingöngu í bókabúöunum sem þær eru fengnar hjá. Líklega fást þær flestar í mörgum bókabúðum. Af bamabókunum sem eru nauðsyn- legar í aftursætiö í velheppnaðri sumarferö er þaö aö segja aö þar eru engar ákveðnar metsölubækur. Smekkurinn er misjafn eftir aldri og þroska. Þó mun áhugi á teiknimynda- sögum heldur hafa dalaö frá gullaldar- árum Tinna í íslenskri þýöingu. SGV REKIST Á 38 KALÍ- BERA KÚLUR lce eftir Ed McBain Þær eru orðnar býsna margar bækurnar sem bandariski rit- höfundurinn Evan Hunter hefur skrifaö undir dulnefninu Ed McBain. Bækur þessar fjalla um lögreglumenn- ina á lögreglustöðinni í 87. umdæmi og sú nýjasta sem f jallar um þessa kappa heitir „Ice” og er gefin út á þessu ári. Bókin er með þeim lengri sem hann hefur skrifaö, nákvæmlega 317 blaösíöur. Segja veröur eins og er aö þessa bók skorti þann kraft sem ein- kennir eldri bækurnar og læöist að manni sá grunur aö McBain sé orðinn þreytturá Carella ogfélögumhans. Flestar McBain-sögumar eru byggöar upp á hinu svokallaða „Who- dunnit” plotti, og er sá morðgátustíll einkennandi fyrir þessa bók. Þegar sagan hefst er þegar búiö aö skjóta einn dópsala í tvennt og er öllum sama. Hins vegar fara hjólin aö snúast eftir aö undurfögur dansmey hefur átt blóðugt stefnumót viö dauöann. Les- endur fylgjast meö því þegar þetta tilvonandi lík rekst á tvær 38 kalibera skammbyssukúlur og þaö sem einu sinni var brosandi stúlkuandlit er nú gapandi blóðug und. I fyrstu virðast þessi morö alger- lega óskyld en brátt bætast fleiri lík í hópinn sem eiga það sameiginlegt, fyrir utan þaö aö vera dauð, aö hafa gleypt glóandi blý úr 38 kalíbera Smith og Wesson skammbyssu. Brátt hafa Carella og félagar í nógu aö snúast því samhliða morðgátunni er annar söguþráður sem í fyrstu virðist óskyldur. En allt smellur þetta saman ílokin. Þaö er einkennandi fyrir McBain bækurnar aö þar koma engir ofurlög- reglumenn við sögu sem sjá allt í hendi sér eins og ekkert sé. Lesandinn fær aö fylgjast meö rannsóknarstarfinu frá upphafi. Lögreglumennirnir rölta frá einu vitninu til annars og taka hverja gagnslausu skýrsluna á fætur annarri. Lesandanum finnst hann hafa úr jafn- litlu að moöa og lögreglumennirnir. Rannsókninni miöar sýnilega ekkert á- fram og sífellt fjölgar á líkhúsinu, en þetta eykur allt á spennuna og leikar æsast þegar allt smellur saman i bókarlok. Þaö gefur þessum bókum einnig skemmtilegan svip aö sömu per- sónumar koma fyrir í hverri bókinni á fæturannarri. Dyggir lesendur hafa fylgst með gamla kjamanum frá upphafi, misvel heppnuöum hjónaböndum þeirra, fylliríum og subbulegum dauöa sumra í skuggsýnum rottubælum. Fyrir þá sem eru aö grípa í sinn fyrsta McBainreyfara þá er það kostur aö þessir föstu menn eru alltaf kynntir í hverri bók. Fyrir þá sem em aö gípa í sinn þrítugasta og fyrsta McBain reyfara er orðið nokkuö þreytandi þeg- ar gömlu þrælarnir eru kynntir eins í hverri bókinni á fætur annarri. Fyrir þá sem kunna aö meta góðar lögreglusögur, þá eru sögur Ed McBain um strákana í áttugastaogsjöunda lögregluumdæmi ómissandi í safniö. -SLS.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.