Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.1984, Qupperneq 14
14 DV. LAUGARDAGUR14. JULl 1984. Úvænt atvik w a ólympíu- leikum Eftir tœpan mánud hefjast 23. ólympíuleikarnir í Los Anyeles í Bandaríkjunum. Ól- ympíuleikarnir eru allajafna mesta íþróttahátíd heims hverju sinni og þar eru oftast nœr unnin mörg gód afrek. Á síðari árum hafa leikarnir sett lítillega niður vegna pólitískra deilna sem hafa haft það í för með sér að frá 1972 hafa alltaf einhverjar þjóðir hœtt við þátt- töku í mótmœla- skyni. Ekki œtlum við að fjalla um þennan leiða þátt leikanna hér heldur um óvœnt atvik á ólympíuleikum fyrri ára. Frásagnirnar, sem fara hér á eftir, eru fengnar úr hók Þorsteins heitins Jósefssonar, í djörfum leik, og hirtar með góðfús- legu leyfi af- komenda hans. -SþS. MARAÞONHLAUPIÐ IAÞENU 1896: TÓK SÉR HVÍLD EN SIGRAÐI SAMT Gríski geitahirðirinn og hlauparinn Spiridon Luis. Meöan á Olympíuleikunum í Berlín stóð, var umferðin á fjölfömustu götum borgarinnar svo mikil, að þar varð naumast þverfótað. Ut yfir tók, ef einhver hinna frægu íþróttamanna átti þar leið um, því að þá hópaðist mannfjöldinn umhverfis hann til að taka af honum ljósmyndir eða fá rit- hönd hans, og svo mátti heita, að um- ferðin stöðvaðist alveg á köflum. Auk hinna frægu íþróttamanna eins og Owens, Lovelocks, Salmin- ens, o.fL, sem hvergi höfðu friðland fyrir ljósmyndurum og rithandasöfn- urum, var einn fátækur, grískur bóndi, sem aldrei fékk stundlegan frið, hvert sem hann fór eða hvar sem hann sást, fyrr en þýzka stjómin var búin að leggja honum til bifreið, og i henni ók hann síöustu dagana, sem hann dvaldist í Berlin. Það var 2. ágúst, að ég var á gangi niöur í Neue Kantstrasse og sá þá, hvar hópur fólks stóð í þyrpingu um- hverfis miðaldra mann, hrukkóttan í andliti, en með dökk, skær og fjörleg augu. Fólkið var með vasabækur og bréfspjöld á lofti og beið þess, að maðurinn skrifaði þar nafn sitt, enda virtist hann vera góðvildin sjálf og lét enga óþolinmæði á sér sjá. Eg leit á eitt bréfspjaldið, sem hann hafði skrifað á, og þar stóð með ljótu, kræklóttu letri nafnið LUIS. — Það var allt, sem maðurinn kunni aö skrifa. Hver er þessi frægi Luis? verður mérá aðspyrja. Það er Spiridon Luis. Þannig hljóðar svarið. Spiridon Luis var Grikkinn, sem daginn áður, við setningu Olympíu- leikanna, færði Adolf Hitler olíu- viðarsveig að gjöf. Oliuviðarsveigur- inn var frá hinu helga Olympsfjalli og var gjöf grisku þjóðarinnar til ríkiskanzlarans þýzka. Hann var tákn friðar og einingar, — ekki aðeins milli þessara tveggja þjóöa, heldur á milli allra landa og allra þjóða, sem þátt tóku í leikunum. Þýzka þjóðin heiðrar Luis Spiridon Luis — þessi fátæki griski bóndi — var boðsgestur þýzka ríkisins á Olympíuleikunum í Berlín. Og þaö var hátíðleg stund, þegar hann viö setningu leikanna kom inn um Maraþonhliöiö með olíuviðar- sveiginn í hendinni, og þó enn hátíð- legra, þegar hann stóð augliti til aug- litis við einvaldinn þýzka og biöur hann aö taka móti sveignum sem friðarósk allra landa og allra þjóöa. En hver er Spiridon Luis? Og hví er honum fengiö svo mikilvægt hlut- verk í hendur? Það er einn dagur, eitt stutt atvik úr lifi þessa manns, sem getur gefiö fullnægjandi svar viö báðum þessum spumingum. — En til þess verðum við að hverfa f jörutíu ár aftur í tím- ann, hverfa suöur til Grikklands áriö 1896. Maraþonhlaupið Arið 1896, þegar Olympíuleikamir voru endurvaktir og ákveðið var aö halda þá í Aþenu — höfuöborg Grikk- lands — varð þjóðarfögnuður um endilangt landið. Með sérhverjum Grikkja tendraðist áhugi á íþróttum, hverrar stéttar, sem hann var, og hvort sem hann bjó í sveit eða við sjó. Langmestan áhuga höfðu menn þó á Maraþonhlaupinu, hinu 42.2 km langa hlaupi, sem fara átti fram á milli Maraþon og Aþenu og heyja átti í minningu um það hlaup, sem fræg- ast er allra. Maraþonhlaupið, þegar hlauparinn griski færði Aþenubúum sigurfregnirnar frá Maraþon. Þetta var erfiðasta og veigamesta raun Olympíuleikanna og jafnframt sú þrautin sem mest og ákafast var rætt um manna á meöal. Þaö var meiri sigur að vinna Maraþon- hlaupið eitt heldur en allar aðrar íþróttir leikanna til samans. Hins vegar stóð mönnum stuggur af þessu langa hlaupi. Eini maðurinn, sem hlaupið hafði alla þessa vegalengd, síðan sögur hófust, féll niður dauöur á áfangastaönum. Var þetta hlaup ekki ofraun fyrir mannlegan mátt? Voru ekki líkur til, að hlaupararnir gæfust annaðhvort upp á leiðinni eða dyttu niöur dauðir við endamarkið? Olympíunefndin var ekki alllítið hikandi, þegar hún ákvaö að keppa skyldi i Maraþon- hlaupi. Geitahirðirinn Hinn 28. marz 1896 fóru 25 menn frá ýmsum löndum til Maraþon til að taka þátt i Maraþonhiaupinu, sem átti að hefjast þar daginn eftir og enda á leikvanginum í Aþenu. Einn hlauparanna dró sig alltaf út úr, því að hann var óframfærinn, enda óvanur að umgangast ókunnuga menn. Honum fannst hann ekki eiga samstöðu meö þessum frægu hlaupurum, sem víðfrægir voru um þvera og endilanga jörðina. Þessi óframfæmi Maraþon- hlaupari var grískur geitasmali, óþekktur og einmana, sem öllum stóð á sama um og enginn virtist treysta til neins. Nafn hans var ógriskt og óvenjulegt — hann hét Spiridon Luis — en þó mun ekki nokkur Grikki hafa verið grískari í lund en einmitt hann. Spiridon Luis var sérstæður meðal iþróttamanna, hinna venjulegu iþróttamanna, sem lifa íþróttanna vegna og keppast um met. Hann var fæddur í sveit, alinn upp í sveit og hafði aldrei á ævi sinni komiö til nokkurs stórbæjar. Hann vissi bók- staflega ekkert um íþróttir, hafði aldrei horft á iþróttakappleik, hafði aldrei notið neinnar tilsagnar í íþróttum, aldrei lesið íþróttabækur né blöð, aldrei borið við aö æfa sig, fyrr en honum haföi dottið í hug að taka þátt í Maraþonhlaupinu, og hann vissi engin deili á heilsufræði og líkamsrækt, svo sem nuddi eða BOÐFLENNUR Á ÓLYMPÍULEIKUM Um ólympískar boðflennur í crðsins eiginlegasta skilningi getur ekki verið að ræða, því að á Olympiuleikunum fær enginn maöur að keppa, sem ekki er skráður þátttakandi frá iþróttasam- bandi ættjarðar sinnar eöa heima- lands. En þótt því sé á yfirborðinu svo farið, að alir ólymfKskir þátttakendur séu sendir frá iþróttasamböndum hlut • aðaleigandi landa, ber þó stundum við, að þau skrá keppendur, sem þeim er þvert um geð aö fari og þau vænta einskis af — eða verra en einskis. — Það eru þessir menn, sem ég kalla ólympiskar boðflennur. Að þessu sinni skal getið um tvö slík dæmi, sem orðið hafa fræg vegna þess, hve sérstæð þau eru. Hið fyrra skeði í sambandi viö Ólympíuleikana i Stokk- hólmi árið 1912, en hið siöari við Olymp- íuleikana í Los Angeles 1932. Stúdentinn þrjóski Þegar brezku prófkeppninni í frjáls- um íþróttum fyrir Stokkhólmsleikana var fyrir nokkru lokið og brezka íþróttasambandið var í þann veginn að senda keppendaskrána til alþjóöa- Ölympíuráðsins, kom nýbakaður stúdent, Jackson að nafni, inn á skrif- stofu sambandsins og fór þess á leit aö vera skráður sem keppandi í 1500 metra hlaupi á Olympiuleikunum. Er stjóm íþróttasambandsins fór að grennslast eftir sigrum og afrekum hins unga manns, var hvorugu til að dreifa. Hann haföi a'.drei tekið þátt í íþróttakeppni, aldrei unnið verðlaun og því síður sigur. Hann var ekkert annað en venjulegur Jackson, sem engin afrek hafði unnið og ekkert hafði annað til síns ágætis en löngunina tii að skjóta hlaupaúrvali jarðarinnar ref fyrir rass. Hinir „háu herrar” — meölimir íþróttasambandsins — brostu fuliir meðaumkunar hverjir til annarra. Þeir vissu svo sem, hvar hann átti heima, náunginn sá ama, en þeir hlífðu honum við að síma eftir geðveikralækni eða lögreglu, því að hann leit aö minnsta kosti ekki út fyrir að vera bandóður. Og til þess að æsa hann ekki upp að óþörfu vora þeir prúðmennskan sjálf. Þeir lýstu því með fögram og hluttekningarfullum orðum, hve sárt þá tæki það að geta ekki notið „hæfileika” hans á Ólympíu- leikunum, en það væri nú einu sinni oröiö of seint aö láta skrásetja sig, og við því yrði ekki gert héðan af. Þeir opnuðu fyrir honum hurðina með djúpri hneigingu og báðu hann vel að lifa. En Jackson tók ekkert eftir því, að hurðin var opin, og hann var heldur ekki kominn þangað til þess að láta reka sig á dyr. Hann var kominn þangað til þess að láta skrá sig sem þátttakanda á Olympíuleikana og til annars ekki. Hann stóð óralengi kyrr í sömu sporam og beitti allri þeirri mælsku, sem hann bjó yfir, til að leiða þessum þverhausum fyrir sjónir, að hann vildi keppa fyrir ættjöröina og geta sér og henni orðstír um gervallan heim. Fór fram í mæisku „Kæri Jackson!” kallaði einn stjómarmeðlimanna, sem oröinn var í hæsta máta óþolinmóður, „komiö þér fyrir næstu Olympíuleika og sýniö okkur þá lista yfir sigra yöar ogafrek.” „Nú eða aldrei,” svaraði Jackson. „Því miður ekki hægt — því miður,” svöraðu stjórnendur íþrótta- sambandsins einum rómi og voru óhagganlegir sem bjarg. Daginn eftir og hvem dag úr því fór Jackson á fund stjómar íþrótta- sambandsins og bar upp við hana sama erindið. Hann gætti þess vand- lega, að enginn dagur félli úr, og hann hélt hverja ræðuna annarri snjallari yfir þessum þrákálfum, sem aldrei létu sannfærast. Hann tók daglegum f ramförum í mælsku. „Ef þér eruð eins liðugur í fótunum og í málbeininu, þá skulum við senda yður,” sagði sá, sem varð fyrir svörum eitt sinn, þegar þolinmæðin var alveg á þrotum. „Eg er það,” svaraði Jackson. ..Sannanir?” En þær vora ekki til. Menn heimta sannanir — eilífa sannanir við sönnu og lognu, en Jackson fyrirleit þær allar. Eða hvað hefur sá maður við sannanir að gera, sem finnur sann- leikann í sjálfum sér? Er hann ekki hafinn yfir allar sannanir ? Jackson var snúinn út af laginu. Hann gat ekki fundiö upp á neinu, sem komið gæti í staöinn fyrir sann- anir, og gafst hreinlega upp. Friður og eining rikti að nýju á skrifstofum brezka íþróttasambandsins, því þangaðkom enginn Jackson framar. Skráður á síðustu stundu Nú leiö að því, að Olympíuleikamir hæfust í Stokkhólmi. Þátttakendaskrár vora allar komnar í hendur alþjóöa- Olympíuráöinu og brezka kappliðið, ásamt Ólympíunefndinni, komið til Svíþjóðar fyrir nokkrum dögum: Þá allt í einu skýtur Jackson þar upp eins og fjandanum úr sauðarleggnum. Hann haföi tekið sér far með skipi á eigin kostnað til þess aö velgja löndum sínum þar nyðra, ef þeir skrásettu hann ekki sem keppanda á leikunum. Og hann lét ekki heldur sitja við fyrir- ætlanirnar einar. Á hverjum degi, sem guð gaf yfir og eftir var til mótsins, fór Jackson á fund brezku Olympíu- nefndarinnar til þess að bera fram ósk sína. Og það var sama, hve harðorð af- svör og hve alvarlegar áminningar hann fékk um „ógentlemanlega” og óbrezka framkomu, alltaf kom hann aftur og þá hálfu svæsnari en daginn áður. Dag eftir dag kaldhamraði hann ósk sína með illu eöa góðu, með grát- beiðni, bölbænum eða jafnvel hótun- um. Loks, þegar Olympíunefndin brezka hafði ekki stundlegan frið leng- ur, ekki matfrið, ekki svefnfrið, enga hvíld og enga möguleika til að sinna störfum sínum fyrir þessum bandóða Jackson, lét hún undan og skráði hann á síðustu stundu, en með því skilyrði þó, að hann léti hvorki heyra sig né sjá uppfrá þessu. Nokkrum dögum seinna sigraði Jackson þessi í 1500 metra hlaupinu á Olympíuleikvanginum með glæsileik og yfirburðum, sem vakti aödáun alls heimsins, en fádæma furðu Breta, er vora sem steini lostnir og gláptu á Jackson eins og naut á ný nývirki. Hástökkvarinn hugumstóri Hliöstætt atvik kom fyrir í sambandi viö Olympíuleikana í Los Angeles 1932. Söguhetjan þar var lítt þekktur kanad- iskur stúdent, D. Marc Naughton að nafni. Hann stundaöi nám við háskóla í Los Anglees einmitt um þær mundir, sem Ólympiuleikarn’r fóru þar fram.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.