Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1984, Blaðsíða 28
28 Andlát Guðnl Kristinn Gunnarsson verk- smiðjustjóri er látinn. Hann var fædd- ur 25. október 1925 í Vestmannaeyjum. Sonur hjónanna Gunnars Marels Jónsscn- ar og Sigurlaugar Páisdóttur. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólan- um í Reykjavík hélt Guðni til náms í Kanada og lauk meistaragráöu í efna- fræði áriö 1952. Árið 1954 réöst Guðni til starfa hjá verksmiðju Coldwater í Nanticoke, Maryland, dótturfyrirtæki Sölumiöstöðvar hraöfrystihúsanna og starfaði hann frá þeim tíma nær óslitið hjá Coldwater. Eftiriifandi kona Guðna er Eygló Jónsdóttir. Þau eign- uðust tvö böm. titför Guðna verður gert frá Landakirkju í Vestmanna- eyjumídagkl. 14. Einar Jóhannesson skipstjóri lést 10. júlí sl. Hann var fæddur í Reykjavík 27. mars 1921. Foreldrar hans voru hjónin Jóhann Gíslason og Lovísa Brynjólfs- dóttir. Þegar Einar var þriggja ára drukknaði faðir hans og var honum þá komið í fóstur til Kristins Brynjólfs- sonar og önnu Guðmundsdóttur. Einar lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1944. Hann starfaði lengst af við sjóinn. Eftirlifandi kona hans er Elísabet F. Clegg. Þau hjónin eignuð- ust fimm börn. Otför Einars verður gerð frá Isafjarðarkirkju í dag kl. 14. Gunnar Sigurður Ástvaldsson, Suður- götu 53, Hafnarfirði, andaöist að kvöldi 13. júlí í Borgarspítalanum. Gunnar Tryggvason frá Skrauthólum, Teigaseli 5, Reykjavík, lést í Land- spítalanum 15. júlí. Gunnar Ægir Tegner, lést á dvalar- heimilinu Ási, Hveragerði, aðfaranótt 15. þessa mánaöar. Jarðarförin auglýstsíðar. Jóhanna Benónýsdóttir frá Isafiröi, andaðist á Hrafnistu 15. júli. Reinald Reinaldsson, Suöurgötu 87, Hafnarfirði, lést í Freiburg, Þýska- landi, 11. júlí. Þorsteinn B. Jónsson málari, Njarðar- götu 61, lést í Borgarspítalanum aö morgni 16. júlí. Jakob Alfreð Stefánsson, Ásvallagötu 10, verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni fimmtudaginn 19. júli kl. 13.30. Helga Kristjánsdóttir, sem andaðist 11. júlí, verður jarðsungin frá Hauka- daiskirkju í Biskupstungum miöviku- daginn 18. júlíkl. 14. Magnús Pálsson járnsmiöur, Sólheim- um 27, verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 18. júlí kL 13.30. Tilkynningar Dregið í sumargetraun Umferðarráðs Uraferðarráð efndi til getraunar meðal al- mennings til þess að vekja athygli á nokkrum mikilvægum atriðum er aukið geta umferðar- öryggi. Spumingamar voru um umferðarmerki, ökuhraöa, tillitssemi, bílbelti og stefnuljós. Dregið hefur verið úr réttum lausnum og eru vinningshafar eftirfarandi: 1. Hringmiðar með sérleyfisbifreiðum/BSl: Ari Leó Sigurðsson, Hátúni 3, Keflavík. 2. Dvöl á Hótel Valhöll: Sturlaugur Bjöms- son, Lyngholti 20, Keflavík. 3. „Helsport” svefnpoki/Utilíf hf.: Loftur Baldvinsson, Efstasundi 21, Reykjavik. 4. „Britax”-barnastóll/Skeljungur hf.: Elva B. Jónmundsdóttir, Hólum, Hjaltadal. 5. Dvöl á Edduhóteli: Sigrún Guðjónsdóttir, Nesbakka 14, Neskaupstað. 6. „Tudor”-rafgeymir/Skorri hf.: Haukur Jóhannsson, Oddeyrargötu 8, Akureyri. 7. „Chloride”-rafgeymir/Pólar hf.: Ragna Gestsdóttir, Rauðarárstíg 5, Reykjavík. 8. Bílbelti í aftursæti/Bílanaust hf.: Helga Eð- valdsdóttir, Aðalgötu 33, Olafsfirði. 9. —15. Hljómplata eða kassetta/Steinar hf.: Ema Ruth Konráðsdóttir, Þórunnarstræti 83, Akureyri. Herdís Ormarsdóttir, Móatúni 11, Tálknafirði. Asta Oladóttir, Kvistalandi 7, Reykjavík. Harpa Hauksdóttir, Herjólfsgötu 34, Hafnarfirði. Ágúst Guðmundsson, Heggs- stöðum, Kolbeinsstaðahreppi. Guðrún Sigur- finnsdóttir, Réttarholtsvegi 3, Reykjavík. Matthildur B. Björnsdóttir, Lyngholti 20, Keflavik. Námskeið í skyndihjálp Rauða kross deild Kópavogs gefur bæjarbú- um og öðrum sem hafa áhuga kost á nám- skeiði i almennri skyndihjálp. Námskeiöiö verður í sal sem er í kjallara Sunnuhliðar, hjúkrunarheimilis aldraðra, Kópavogsbraut 1. Það hefst miðvikudaginn 18. júll kl. 20 og lýkur 26. júlí. Það verður 5 kvöld. Námskeiösgjald er kr. 500. Þátttaka tilkynnist í sima 46626 kl. 14—19 dagana 12., 13.,14.ogl5.júli. A námskeiðinu verður farið í skyndihjálp við ýmiss konar slys og óhöpp. Auk þessa' verður blástursaöferðin kennd og farið í hjálp viðýmsum bamaslysum í heimahúsum. Nú er gott tækifæri til að afla sér undir-l stöðuþekkingar í skyndihjálp áður en haldið er í sumarleyfisferðina eða rifja upp fyrri þekkingu í þessum fræðum og læra til hlítar meginatriði skyndihjálpar. Námskeiðinu lýkur með verkefni sem hægt er að fá metið i fjölbrautaskólum og iðnskól- um. Þess má að lokum geta að Kópavogsdeild RKI getur haldið námskeið í skyndihjálp fyrir félagasamtök, fyrirtæki og aöra sem þess óska á starfssvæði deildarinnar eins og aðrar deildir RKl um landið. DV. ÞRJÐJUDAGUR.17-J.OLl 1984. í gærkvöldi__________ I gærkvöldi VITLAUS RÖD Það voru margir sem töldu að bamaefni sjónvarpsins væri á röng- um tíma þegar það var sýnt eftir fréttir og auglýsingar. Forráðamenn sjónvarpsins hafa nú komiö til móts við þessar óánægjuraddir og fært barnaefnið fram fyrir fréttimar. Og nú er komin reynsla á þessa tilfær- ingu og er ég viss um að þetta var viturleg breyting. Þau börn sem horfa á þetta efni eru nú orðin vön þessari staðsetningu. Sjónvarpið í gærkveldi var með nokkuð hefðbundnum hætti. Sjón- varpskvikmynd, fræðslumynd og íþróttir. Það er nú varla hægt að biðja um meira. Allt var þetta ágætis sjónvarpsefni og ætla ég ekki aö f jalla um hvern einstakan þátt núna. Það sem mér fannst að var að niðurröðum dagsskrárliðanna var ekki rétt. Fyrst var kvikmyndin svo fræðslumyndin og síðast íþróttirnar. Ég held að í þessu tilfelli hefði mátt snúa þessari röö algjörlega viö. Iþróttirnar hefðu mátt vera fyrstar á dagskrá. Þetta tel ég að sjónvarps- menn ættu aö hugieiöa nánar. Ámar Páll Hauksson. Minnst hálfrar aldar vígsluaf- mælis Dagverðarneskirkju í Dölum Sunnudaginn 22. júli nk. verður minnst 50 ára afmælis Dagverðameskirkju í Dalasýslu, en hún var vígð 22. júlíi 1934, og af þessu tilefni fer fram hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni kl. 2 e.h. Þar mun sr. Þórir Stephensen dómkirkju- prestur prédika, en hann þjónaði kirkjunni áður um sex ára skeið, en sóknarpresturinn, sr. Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli, flytur ávarp og þjónar fyrir altari ásamt sr. Gísla H. Kolbeins í Stykkishólmi og sr. Frið- rik J. Hjartarí Búðardal. Dagverðameskirkja stendur á eyðijörð og vegarsamband þangað er ekki upp á það besta, en þó er þokkalegt að komast leiðar sinnar þegar þurrast er og best að sumarlagi. Kirkjan var staðsett í Dagverðarnesi á sínum tíma meðan nærliggjandi eyjar voru í byggð, en nú er öldin önnur, og kirkjan því orðin nokkuð úr leið fyrir sóknarfólk til reglulegra nota, enda sóknin fámenn orðin. Þess er vænst að velunnarar kirkjunnar og brottfluttir sveitungar sjái sér fært að koma aö Dagverðamesi sunnudaginn 22. júlí nk. og eiga þar góða stund í húsi Guðs auk þess að njóta þess unaðar íslenskrar náttúra, sem óvíða ber með sér meiri fegurð en í Dag- verðarnesi á björtum og fögrum sumardegi. Á.RBÓK ' 83 HINS ÍSLENZKA FOHNLEIFAFÉLACÍS . . , Y'-i —'—r—tr Klni;tiúj:i þrlrgtn tmjja þ jtidng- nt; pi.uc Itnúpmnln fm t millí op fjcTmiio ' *?i Gestsson, fv. safnvörð. Skýrsla um ferð Einars Brynjólfssonar yfir Sprengisand búin til prentunar af Jakob Benediktssyni dr. phil. Islenskt trafakefli í Englandi eftir Guðrúnu Sveinbjarnardóttur fomleifafræðing. Forn grafreitur á Hofi í Hjaltadal eftir Guðmund Ölafsson safnvörð. Katrinarkelda eftir Þórð Tómasson safnvörð. Skýrsla um Þjóðminja- safnið 1983. Frá Fornleifafélaginu. Og síðast en ekki síst ritaskrá dr. Kristjáns Eldjárns í samantekt Halldórs J. Jónssonar safnvarðar. En Kristján var ritstjóri Arbókarinnar frá 1949—82. Bókin er 190 bls., innbundin og prýdd fjölda mynda og teikninga. Ritstjóri Árbókar Hins íslenzka fomleifafélags er Inga Lára Baldvinsdóttir cand. mag. Skrifstofa félags einstæðra foreldra veröur lokuö allan júlímánuö vegna sumar- leyfa. Tapað -fundið sex metra langur, er horfinn af lóðinni við Snorrabraut 65. Þetta er keppnissvifdreki, mjög hraðskreiður og erfiður í meðhöndlun. Það er glapræði fyrir óreynda að reyna aðfljúga honum. Svifdrekinn er rúmlega 6 metrar að lengd, hann var í svörtum pakka með rauðum rönd- um, þegar hann var tekinn frá eiganda, aðfaranótt laugardags. Þeir sem kynnu að hafa séð til svifdrekans ný- lega eða einhverra mannaferða og getaein- hverjar upplýsingar gefið eru vinsamlega beðnir að hafa samband í síma 15422 eða láta lögregluna vita. Ferðalög Sumarleyfisferðir Útivistar: 1. Borgarfjörður eystri-Loðmundarfjörður 8 dagar 22.—29. júlí. Fararstj. Jón J. Elíasson. 2. Landmannalaugar — Þórsmörk 5 dagar 25.-29. júlí. Bakpokaferð um Hrafntinnusker — Álftavatn og Emstrur í Þórsmörk. 3. Eldgjá — Þórsmörk 7 dagar 27. júlí — 2. ágúst. Skemmtileg bakpokaferð m.a. að Strútslaug (bað). Fararstj. Trausti Sig- urðsson. 4. Hálendishringur: Kverkfjöll — Askja — Gæsavötn og margt fleira áhugavert skoðað. 9 dagar 4,—12. ágúst. Fararstj.: Kristján M. Baldursson. Hornstrandir: 1. Hornvik — Reykjafjörður 10 dagar 20.—29. :júlí. Gengið á fjórum dögum í Reykjafjörð og síðan dvalir þar. M.a. ganga á Drangajökul. 2. Reykjafjörður 10 dagar 20.—29. júlí. Tjald- bækistöð með gönguferðum. 3. Hrafnsfjörður — Ingólfsfjöröur 8 dagar 25. júli — 1. ágúst. Bakpokaferð. 4. Hornvík — Hornstrandir 10 dagar 3.—12. ágúst. Uppl. og farmiðar á skrifst. Lækjarg. 6a, símar 14606 og 23732. Sjáumst. Otivist. BELLA Við getum fengið leyfi til að fram- lengja fríið um nokkra daga ... svo fremi við getum komist af án matar í september. UEYKJAVlK 1984 Árbók hins íslenzka forn- leifafélags er komin út Arbókin hefur verið gefin út frá 1880 og er fræðilegt rit um ýmis menningarsöguleg efni, einkum íslenska fornleifafræði, alþýðulist, Ustiðnir, þjóöhætti og fleira. Efni Arbókarinn- araðþessusinnier: Kumlateigur í Hrífunesi við Skaftártungu eftir Gísla Gestsson, fv. safnvörð, Guðrúnu Larsen jarðfræðing, dr. Kristján Eldjárn, Sig- urð Þórarinsson jarðfræðing og Þór Magnús- son þjóðminjaförð. Frjógreining tveggja jarð- vegssniða á Heimaey eftir Margréti Halls- dóttur jarðfræðing. Smalabúsreiö eftir Áma Björnsson þjóðháttafræðing. Athugasemd um lágmynd í norsku safni eftir Selmu Jónsdótt- ur, forstööumann Listasafns lslands. Eyvindarkofi og Innra-Hreysi eftir Gísla Útivistarferðir Símar 14606 og 23732 Helgarferðlr 20.-22. júlí. 1. Þórsmörk. Gist í skála og tjöldum í Básum. Gönguferðir við allra hæfi. Fararstj. Anton Björnsson. 2. Kjölur-Kerlingarfjöll. Gengið á Snækoll, í HveradaU og víðar. Gist í góðu húsi. Fararstj. EgUl Einarsson. Uppl. og farmiðar á skrifst. Lækjargötu 6a. Sjáumst. Útlvist. Útivistarferðir Símar 14606 og 23732 Miövlkudagur 18. júli kl. 20. BúrfeUsgjá. Létt kvöldganga. FaUeg hraun- tröð. Verð 200 kr., frítt f. börn m. fuUorðnum. Brottför frá BSI, bensínsölu. Fararstj. Einar EgUsson. Sjáumst. Ferðafélagið Utivist. Dýrin kunna ekki umferðarreglur. Þess vegna þarf að sýna aðgæslu í nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn að kunna umferðar- reglur og ríða hægra megin og sýna bílstjórum sams konar við- mót og þeir ætlast til af þeim. UMFERÐAR RÁÐ SAGA ÓLYMPÍU- LEIKANNA KRINGLU-OG SPJÓTKAST Til forna var kringlukastmetið 60 metrar. Ein af frægustu styttum frá þessum tímum var af Myrons, kringlukastaranum, en hún var mm gerð um árið 450 f. Kr. Engin náði að kasta spjóti lengra en 50 metra svo líklega hafa spjótin verið þyngri en kringlurnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.