Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 1
Frjálst, óháð dagblað
Markaregn hjá Vík-
ingum:
Skagamenn
með 10
stiga
forystu
— sjá iþróttir á átta
síðum, bls. 21-28
•
Úvenjufriðsæl
kosningabarátta
í Ísrael
— sjá bls. 10
Banka-
bókarblús
— sjá bls. 45
Verðlauna-
hafar í
heimilis-
bókhaldi DV
- sjá bls. 6
Skoðanakönnun
vestra:
Demókratar
hafa
meira fylgi
- sjá bls. 9
Fámennt á
Skálholts-
hátíð
— sjá bls. 40
Hafmeyjunni
misþyrmt
— sjá bls. 8
Sex metra löng rifa á bakborðssíðu Harðbaks:
Skipstjóraklefinn
var lagöur í rúst
—mesta mildi að enginn slasaðist við áreksturinn
Togarinn Haröbakur EA 303 og
sovéska skemmtiferðaskipið Estonia
lentu í árekstri á Strandagrunni
aðfaranótt síöastliðins laugardags.
Engin slys urðu á mönnum en skipin
skemmdust nokkuð, sérstaklega
Harðbakur. Kom sex metra löng rifa
á bakborðssíðu togarans og eyðilögð-
ust skipstjóraklefi og klefi vélstjóra.
Svartaþoka var er áreksturinn
varö og var Haröbakur aðtoga. Tals-
verður ís var á þessum slóöum og
hafði togarinn Skafti frá Sauðár-
króki tekið að sér að lóösa sovéska
skipið út úr ísnum áleiöis til Akur-
eyrar. Sögðust skipstjómarmenn
Estonia hafa verið að elta Skafta
þegar þeir urðu Haröbaks varir, en
þá var allt um seinan.
Við sjóprófin kom fram að skip-
stjóri Harðbaks taldi víst að Estonia
hefði breytt um stefnu og það orsak-
að áreksturinn en þessu þverneitaði
skipstjóriEstonia.
Estonia hélt frá Akureyri strax að
sjóprófunum loknum.
-SþS
sjá einnig bls. 5
Her var áður klefi Sigurðar Jónssonar, skipstjóra ó togaranum Harðbaki, en Sigurður var rótt ófarinn í koju þegar sovóska skipið skall á
togaranum. Menn geta rétt ímyndað sér hvernig hefði farið hefði Sigurður verið í klefanum við áreksturinn. DV-mynd ÞráinnLórusson.
Sjúkraflug til Grænlands í gærkvöldi:
Sóttu stúlku með
heilahimnubólgu
Flugvél frá FlUgskóla Helga Jóns-
sonar sótti í gær sjúkling til Nuuk á
Grænlandi, eins og hálfs árs gamla
stúlku sem haldin er heilahimnubólgu.
Læknir og hjúkrunarkona af Landspít-
alanum fóru með vélinni en Helgi Jóns-
son og Þórhallur Magnússon voru flug-
menn. Stúlkan var lögð inn á Land-
spítalann.
Þettaer tíunda flugið til Grænlands
á rúmri viku á vegum Flugskóla Helga
Jónssonar. Tvö flug voru farin fyrir
Flugfélag Norðurlands en vél þaðan,
sem verið hefur í leiguflugi til Græn-
lands, fékk fugl í hreyfil síðastliðinn
mánudag. Flugið til Nuuk í gær var
fyrsta sjúkraflugið en frá Reykjavík til
Nuuk tekur þrjá tíma að fljúga. Fjór-
um sinnum hefur verið flogið til Kulu-
suk, þrisvar til Meistaiavíkur, einu
sinni til Syðri-Straumsfjarðar og
tvisvartilNuuk. -pá
Barnið borið út úr flugvélinni rétt fyrir miðnætti í nótt.
DV-mynd: S