Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 4
4 DV. MÁNUDAGUR 23. JULI1984. „Þaðgengur sæmilega, veiðst hafa um 300 laxar,” sagði Haukur Garðarsson, veiðivörður í Laxá í Leirársveit, í gærdag. „Hann var 18 punda sá stærsti og hann veiddi Islendingur á flugu. Þaö er töluvert af fiski en hann er heldur tregur að taka. Utlendingar, sem veiddu í ánni í morgun, fengu 3 laxa og misstu annað eins, en útlendingar eru við veiðar núna og nota flugu. Þetta er blanda af stórum og smáum laxi sem hefur veiðst,” sagði Haukur að lokum. Veitt er á 7 stangir. „Einn lax hefur veiöst svo ég viti,” sagði Sigurður Lárusson á Gilsá, sem er manna fróðastur um Breiödalsá. .JLitthvað hefur nú sésL Veiöimaöur sem renndi um daginn sá þrjá laxa á sveimi. Við vorum bjartsýnir í vor og áttum von á að eitthvað myndi þetta batna, en enga breytingu er aö sjá. Þetta er sami dauðinn og var síöustu sumur. Veiðimenn, sem rennt hafa á silungasvæöinu, hafa séð töluvert af bleikju en hún er treg,” sagði Sigurður að lokum. Þó mikið væri af laxi í Eliiöaánum í gærmorgun veiddist enginn iax. Nei, laxinn var með eindæmum Óshlídarvegur: Það vakti töluverða athygli á föstu- dag þegar Guðjón Hannesson veiddi 5,5 punda sjóbirting í Leirvogsá á maðk. En þetta er stærsti sjóbirting- ur sem veiðst hefur i ánni í mörg ár. Guöjón rennir fyrir sjóbirtinginn á stóru myndinni en fiskur er á minni myndinni. GV-mynd: G. Bender. Nú fer að ljúka vegaframkvæmdum á Oshlíðarvegi viðBolungarvík. Verkið hefur gengið mjög vel og eru verk- takar á undan áætlun. Að sögn Sig- urðar Hermannssonar verkstjóra hafa þeir þurft að sprengja minna en ætlaö var. Áburður var notaður, en þó í litlum mæli vegna bleytu í berginu. Verktakar voru heppnir með veður og var jarðvegur frekar þurr og því gott að vinna. En í síðustu viku rigndi í fjórar nætur og var þá mikill aur og grjóthrun og voru menn í mikilli lífs- hættu. Grjót lenti á einni vinnuvélinni og skemmdi hana nokkuð. Framkvæmdir hófust 18. júní sl. Um 8000 rúmmetrar af jarðefnum og grjóti voru fluttir til. Var áætlað að stórgrýti kæmi úr sprengingunum, en það varð ekki. Stórgrýtið átti að nota sem brimvöm fyrir neðan veginn. Framkvæmdir þessar munu kosta um 9 milljónir og á næsta ári verður einnig unnið fyrir 9 milljónir, en árið 1986 verða byggðar vegasvalir við svo- Ýtur og þungavinnuvélar á fullu við að breikka veginn. DV-myndir: Kristján Friðþjófsson, Bolungarvík. kaUaö „Hald” sem er rétt við krossinn. Vegurinn hefur veriö breikkaður og lækkaður. Einnig hefur beygja, sem er við Hólana, verið tekin af. Beygja þessi var mjög hættuleg og blind og munaði oft litlu að stórslys yrðu. Reiknað er með að verkinu verði lokiö um26. júlí. Veginum var lokað á nóttunni frá kl. 20.30 til 07.30 á morgnana. En.að sögn verkstjórans var vegurinn stundum opnaður fyrir fólki ef það hafði frambærilega ástæðu og voru því starfsmenn vel liðnir hér í Bolungar- vík. -KF. Erfitt hefur verið að aka á meðan vegurinn er opinn, en ef varlega er farið þá eraUtilagi. tregur og vildi ekki þaö sem honum var boðið. Aðeins veiddust tveir urriöar, annar 2 pund og hinn 1,5 pund. En þrátt fyrir þetta eru Elliða- ámar í hæsta flokki yfir ár sumarins og hafa gefið 626 laxa. Það verður gaman að sjá hvaöa á hefur þetta í lokin. Við fréttum að 4 laxar væru komnir á land í Geirlandsá og þykir VEIÐIVON Gunnar Bender það bara gott á þessum tíma þvílax- veiðin í henni er rétt að byrja. Af vatnasvæði Lýsu eru fréttir um töluverða laxveiði og veiddust á laugardag 3 laxar, föstudag 8 laxar og á fimmtudag 3 laxar. En fyrsti lax á vatnasvæðinu í sumar var 18 pund og veiddist hann 1. júli. Við renndum og ' fengum bleikjur en frekar voru þær í smærra lagi. Heildartölur um laxveiðina eru óljósar þar sem engin veiðibók er, en 20—30 laxar eru trúieg tala. ■G. Bender. Breiðdalsá: „ÞETTA ER SAMIDAUDINN OG SÍÐUSTU SUMUR” Fréttir úr Laxá í Leirársveit, Breiðdalsá, Elliðaánum, Geirlandsá og vatnasvæði Lýsu Blönduvirkjun: TILBOÐ OPNUÐ IBOTN- RÁSINA Tilboð hafa nú verið opnuö er gerð hafa verið í botnrás Blöndu- stíflu. Verk þetta er aö sprengja skurð, steypa botnrás og loku- virki. Kostnaðaráætlun við verkið er 65.100.000 kr. Ails bárust 7 tilboð og eitt frávikstilboð frá Hagvirki. Lægst var tilboð frá fyrirtækinu Arnardalur sf. og hljóðaði það upp á 54.968.900 kr. en hæsta tilboöiö barst frá fyrirtækinu Loftorku sf’ ogvarþað 61.964.690 kr. Ekki hefur enn verið ákveðiö hvaða tiiboði verður tekið. Stjóm Landsvirkjunar mun skýra frá því eftir að öll þessi tilboð hafa veriökönnuönánar. -APH. I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari I dag mælir Dagfari Bandarískir framsóknarmenn Flokksþing bandariska Demó- krataflokksins hefur veriö i fréttum aö undanfömu og hefur ekki farið framhjá neinum að Mondale valdi sér kvenmann sem varaforsetaefni sitt. Þykir það meiriháttar sigur fyr- ir kvenþjóðina enda hefur hún ekki átt innangengt í Hvita húsið öðm visi en i hlutverki hinnar dyggu eigin- konu, sem hefur staðið álengdar og brosað samkvæmt pöntun. Að vísu gerir enginn ráð fyrir að Mondale nái kjöri sem forseti og enginn hefur þar af leiðandi velt því alvarlega fyrir sér hvort Ferraro reynist verðug sem varaforseti. Ákvörðun um Ferr- aro sem varaforsetaefni demókrata er miklu fremur sölutrikk sem á að ganga í augun á karlþjóðinni. Þannlg vUja demókratar sanna að þeir séu betri viö konur en repúblikanar og er það í sjálfu sér ný aðferöafræöi í pólitík. Hingað tU hefur það ekki far- ið eftir flokkun eða pólitiskum skoð- unum hvaða karlar séu góðir við kon- ur og hverjir ekki. 1 væntanlegri kosningabaráttu vestra mun efiaust verða rifist og deUt um þessa kvensemi dcmókrata og ef að líkum lætur mun Demókrata- flokkurinn hvetja bandariska kjós- endur tU aö velja valdamesta mann veraidar í forsetakosningunum með þeirri röksemd að honum fylgi tveir kvenmenn i Hvíta húsið, eiginkona og varaforseti. Að vísu hefur því áður verið hvíslað að sumir ónafn- greindir forsetar i Bandaríkjunum hafi verið hressUega upp á kven- höndina en þetta mun vera i fyrsta skipti sem frambjóðandi býður sig fram og hefur það að opinberru stefnu að reynast kvenhoUur. Gott er að menn fara ekki lengur í felur með þá dyggð. Annars hefur margt fleira gerst á þingi demókrata og margir flelri komið þar við sögu en Mondale og Ferraro. Þangað mættu marijúana- neytendur, kynvUlingar, Ku Klux Klan, gleðikonur og fuUtrúar Fram- sóknarflokksins, bæði Haukur Ingibergsson og Steingrímur Her- mannsson. GreinUegt er af þessari upptalningu að víða liggja þræðir og margir telja sig eiga samleið með Demókrataflokknum bandaríska. Skýringar á nærveru kynvUlinga og eiturlyfjaneytenda eru sennUega þær að þessu fólki finnist það flokk- ast undir mannréttindi að fá að vera öfugur og neyta eiturlyfja. Ku Klux Klan telur það hinsvegar flokkast undir mannréttindi að vera á móti kynvUlingum en gleðikonurnar voru sjálfsagt mættar tU að bjóða kyn- systur sína velkomna í varaforseta- framboð. Sést af þessu að Demókrataflokk- urinn er frjálslyndur flokkur og op- inn fyrir ólíkum sjónarmiðum í lík- ingu við það sem Alþýðubandalagið vUl vera hér á landi. Þetta er skilj- anlegt hjá stjórnmálaflokkum sem þurfa á öUum tUtækum atkvæðum að halda, jafnvel þótt kynvUlingar og gleðikonur eigi í hlut. TUkoma formanns og fram- kvæmdastjóra Framsóknarflokksins á flokksþingi demókrata stafar hins vegar ekki af því að þeir vilji ganga í Demókrataflokkinn eins og kynvUl- ingarnir, eiturlyfjaneytendurnir og glcðikonumar. Þeir Steingrímur og Haukur Ingibergsson vom staddir vestra vegna þess að þeir em þeirrar skoðunar að Demókrataflokkurinn í Bandaríkjunum sé Framsóknar- flokkur. Utibú hjá Framsókn. Þann- ig var Kennedy heitinn góður fram- sóknarmaður, Humphrey og Carter og sennUega er Mondale sömuleiðis góður og gegn framsóknarmaður, sem Steingrími hefur þótt rétt að heUsa upp á. Það var líka kominn tími tU að Mondaie og Ferraro sæju formanninn í flokknum sem þau em í! Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.