Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Side 9
DV. MANUDAGUR 23. JUU1984.
9
Útlönd Útlönd
Demókratar
hafa meira
fylgi
Tímaritið greinir frá því um helgina
að niðurstöður könnunarinnar bendi til
þess að 48% kjósenda (eða að minnsta
kosti þeirra sem spurðir voru) styðji
nú framboð demókrata á meðan 46%
fylgi repúblikönum og Reagan sem
býöur sig fram til endurkjörs. 6% ætl-
uöu í könnuninni aö kjósa aðra eða
höfðu ekki gert upp hug sinn.
Þaö var Gallupstofnunin sem annað-
ist skoöanakönnunina í 1006 manna úr-
taki og eru skekkjumörkin ætluð 4%
svo að 2% munurinn á fylgi flokkanna
kann að vera 6% fyrir demókrata eða
2% fyrir repúblikana.
Könnunin var framkvæmd í gegnum
síma á fimmtudag á meðan flokks-
þingið stóð enn og á föstudaginn sem
var lokadagur þingsins, en þá höfðu
f jölmiölar allir verið uppfullir alla vik-
una af f réttum frá þinginu.
I könnuninni kom einnig fram aö 45%
töldu að það sem þeir hefðu séð af
flokksþinginu eða lesið um það kæmi
þeim frekar til að styöja demókrata.
52% sögöust þá fyrst hafa hallast á
sveif með demókrötum eftir að kunn-
gert hafði veriö valið á Geraldine Ferr-
aro sem varaforsetaefni.
Walter Mondale og Geraldine Ferr-
aro, frambjóðendur Demókrataflokks-
ins til forsetakosninganna, virðast nú
njóta meira kjósendafylgis en Ronald
Reagan og George Bush, samkvæmt
skoðanakönnun á vegum tímaritsins
News week er gerð var undir lok flokks-
þings demókrata.
52% sögðust hafa sveigst til fylgis við
demókrata eftir að Ferraro var valin
varaforsetaefni þeirra.
Mannræningj
v
arair teknir
þegar sækja
átti lausnar
gjaldið
Edith Rosenkranz, sem rænt var í
Washington á föstudag, var bjargað
aftur á laugardagskvöld um leið og
lögreglan handtók tvo menn sem voru
að sækja lausnargjaldið.
Sagði lögreglan aö konan væri heil á
húfi og lausnargjaldið hefði verið
endurheimt en ekkert var látið uppi
um hve miklir fjármunir það hefðu
verið eða hvar ræningjarnir hefðu
haldið fanga sínum.
Edith var rænt í neðanjaröarbíla-
geymslu Sheratonhótels þar sem hún
og hinn 68 ára gamli milljónamæring-
ur, George Rosenkranz, bjuggu. —
Rosenkranz er frægur bridgemeistari,
höfundur sagnkerfis með meiru. Voru
þau stödd í Washington vegna sumar-
meistaramóts Noröur-Ameríku. Hitt
er minna frægt að Rosenkranz, sem
býr annars í Mexíkó, var brautryðj-
andi í framleiðslu getnaðarvamarpill-
unnar og auðgaðist þar af.
Mennirnir tveir voru í sendibifreið
þegar þeir voru handteknir þar sem
þeir komu til þess að hirða lausnar-
gjaldið. Þriðji maðurinn var handtek-
inn síöar á hótelherbergi þar sem hann
hafðist við.
Lausnargjaldskrafan haföi borist á
hótelið til Rosenkranz þrem stundum
eftir að konu hans hafði verið rænt.
Edith (60 ára) var flutt í læknisskoð-
un en fékk strax að fara af sjúkrahús-
inu því að ræningjamir höföu ekki unn-
iðhennineittmein.
Umsjón:
Guðmundur Pétursson og
Gunnlaugur S. Gunnlaugsson
VERÐTILBOÐ
SUMAfíSINS
I • I
ÍXdQIO
ARMULA 38 iSelmula megini — 105 REVKJAVII'
SIMAR: 31133 83177- POSTHOLF 1366
Þetta fallega bíltæki, með LW—
MW—FM stereo og kassettu, á
aðeins
Kr. 3.985,-
Passar í flestar gerðir bifreiða og
aösjálfsögðu íSubaru.
10 aðrar gerðir af bíltækjum, kraft-
magnarar og mikiö úrval af há-
tölurum. ísetning á staðnum.
HÚSEIGENDUR
ATHUGIÐ!
Höfum viðurkennd efni. Veitum yður að kostnaðarlausu ráðgjöf um notkun
okkar efna. Komum jafnvel á staðinn ef óskað er yður að kostnaðarlausu.
Erum með bestu fáanleg efni á þökin og í sprungurnar, t.d. hina frábæru NU-
SENSATION, 100% akrílmálninguna, sem myndar sterka teygjanlega húð
sem andar og kemur í veg fyrir leka, frost- og steypuskemmdir og alumaglas
málningarborðann til sprunguviðgerða, fljótlegt og auðvelt í meðförum.
Alumanatiou 301 fljótandi álklæðninguna á pappaþökin, þétti- og ryðvarnarhúðina
Permaroof á þökin í litum.
Einnig Non-Skid-Veneer, hina þrælsterku sendnu gólfhúð, tilvalda á bílskúrs-
gólfið, stenst ágang nagladekkjanna vel, einnig heppileg á tröppumar og sval-
irnar.
Höfum einnig steinakrU, Solignum Architectural fúavara og Woodex ultra,
hörpusilki, hraunmáln. o.fl. o.fl.
Og auðvitað öll tilheyrandi verkfæri.
Útborgun allt niður í 20%
og lánstími allt að 6 mánuðir.
I
BYGGINGAVORUR
Byggingavöruverslun og ráðgjafarþjónusta
Kieppsmýrarvegi 8 — simi 81068
alla virka daga kl. 9 —18.
laugardaga kl. 9 —16.