Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 12
12 DV. MÁNUDAGUR 23. JULl 1984. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON. Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON. Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM. Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON. Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON. Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON. Ritstjórn: SÍÐUMÚLA 12—14. SÍMI 686611. Auglýsingar: SÍÐUMÚLA 33. SÍMI 27022. Afgreiðsla, áskriftir, smáauglýsingar, skrifstofa: ÞVERHOLTI 11. SÍMI 27022. Sími ritstjórnar: 686611. Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ SÍÐUMÚLA 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 19. Áskriftarverðá mánuði 275 kr. Verð í lausasölu 25 kr. Helgarblað28 kr. Ekki er allt gull sem glóir Verslunarráö Islands hefur sent frá sér tillögur um næstu skref í efnahagsmálum. Þar kennir margra grasa og sumra ágætra. I meginatriöum er lagt út af auknu frjálsræði og minni ríkisafskiptum. Undir þá stefnu er hægt að taka, enda er frjálst atvinnulíf og sterkur at- vinnurekstur algjör forsenda framfara og bættra lífs- kjara. I þessum efnum eru stjórnvöld á réttri leið með því að losa um í gjaldeyris-, verðlags- og skattamálum en ennþá er langt í land. Erlendar lántökur og þensla í ríkis- umsvifum til þess að halda uppi óbreyttum lífskjörum eru ráðstafanir þar sem tjaldað er til einnar nætur. Öarð- bær atvinnustarfsemi og dulbúið atvinnuleysi kemur okk- ur í koll fyrr eða síöar. Á þetta bendir Verslunarráðiö með réttu og tillögur þess ganga út á næstu aðgerðir og eru þar efstar á blaði uppstokkun í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum, frjálsir vextir og frjálst verðlag og samningar við erlenda aðila um raforkusölu. Mesta athygli vekur að Verslunarráðið leggur til að vanskilaskipum verði lagt eöa þau seld úr landi og tekinn veröi upp auðlindaskattur. I landbúnaðarmálum er lagt til að niöurgreiðslur verði felldar niður og frjálst verð- myndunarkerfi taki við, með lágmarksverði til bænda. Hætt verði að offramleiða og flytja út landbúnaðarvörur. Opinberir sjóðir eiga samkvæmt tillögunum að samein- ast í þrjá sjóði og þeim breytt í hlutafélög sem starfi á grundvelli arðsemi. Byggingasjóði veröi breytt þannig að lánin verði endurkeypt af lánastofnunum eftir ákveðnum reglum. Ríkisbankamir verði seldir og óþarfa afskipti ríkis- ins af atvinnustarfsemi afnumin. Ekki verður annaö sagt en að Verslunarráðið lýsi að mörgu leyti skoðunum sem mikið hafa til síns máls og aðrir þora ekki að segja upphátt. Þar er tæpitungulaust talað en svo þaulhugsað að allar aðgerðir eru tímasettar, rétt eins og ekkert annað sé eftir en að hefjast handa, einn, tveir, þrír. Því miður er málið ekki svo einfalt, enda verða efna- hagsmál íslendinga ekki leyst með patentlausnum nú frekar en áöur. Þar skortir bæði pólitískar forsendur, skilning hagsmunahópa og það sem ef till ræður mestu, þolinmæöi og vilja þeirra sem stjórna stærstu almanna- samtökunum, þ.e. verkalýðshreyfingu, atvinnuvegum, sveitarfélögum. Núverandi stjórnmálaflokkar eru háöir þessum samtökum í bak og fyrir og fulltrúar þeirra á al- þingi draga dám af þeim. Pólitíkin er list hins mögulega, og meðan Verslunarráðið kann að setja fram klipptar og skornar tillögur á það eftir að vefjast fyrir þingi og ríkis- stjórn að vinna samkvæmt hinum einföldu formúlum við- skiptaheimsins. Það vakir sjálfsagt gott eitt fyrir Verslunarráöinu þeg- ar það leggur fram tillögur sínar. Ráðið hefur fullan rétt á að hafa sínar skoðanir og setja þær fram. En þessi tillöguflutningur er engu að síður óþægilegur fyrir stjórn- málaflokkana og þá sérstaklega Sjálfstæðisflokkinn. Þessa dagana er verið að hefjast handa um endurskoðun stjórnarsáttmálans og tillögur Verslunarráðsins verða ekki túlkaðar öðruvísi en svo að hér sé verið að gefa Sjálf- stæðisflokknum línuna. Ekki er víst að allir séu ánægðir meö það og þá einkum þeir sem þurfa á því að halda að hrista af sér þann áróöur að þeir séu handbendi hinnar hörðu markaðshyggju og köldu lögmála viðskiptalífsins. Það er ekki allt gull sem glóir í pólitískri list hins mögu- lega. ebs Öryggisútbúnaði er ábótavant I viðtali DV vi> s.'ökkviliösstjóra 18. júlí kemur fram að það sé mesta firra að öryggisbúnaði sé ábótavant á Kefla- víkurflugvelli þegar rýma þarf breið- þotu í skyndingu vegna sprengjuhótun- ar. Það vekur furðu mína að slökkvi- liðsstjóri skuli vera að reyna, að vísu af veikum mætti, að réttlæta þau mis- tök sem búin eru að enóurtaka sig á Keflavíkurflugvelli varöandi móttöku farþega niður öryggissleöa á breiðþot- um. Rangt 1. Það er rangt hjá slökkviliösstjóra að öryggissleöar á t.d. DC-10 nái til jarðar. Sjálfur hef ég verið við mót- töku á farþegum frá slíkri flugvél á Keflavíkurflugvelli þar sem nokkuð vantaði upp á að sleðamir næðu til jarðar. I það skipti neitaði slökkvi- liðsstjóri að láta starfsmenn sína aöstoða við móttöku farþega frá boröi um öryggissleöa. 2. Það er rangt hjá slökkviliðsstjóra að reikna með því sem sjálfsögöum hlut aö ekki vinnist tími til að fara með dýnur á staðinn. Hvað tekur langan tíma aö henda átta dýnum á bílpall ef þær eru til staðar? Varla meira en 20—30 sekúndur. Það er að sjálfsögðu ákaflega mismunandi langur fyrirvari sem björgunaraðil- um gefst vegna sprengihótana, m.a. hvar vélin er á flugi er sprengi- hótunin kemur fram, hvers eðlis hótunin er o.fl. Orðrétt segir í um- ræddu viðtali við slökkviliðsstjóra: „Það á að vera hægt að rýma breið- þotu á 90 sek. þannig að ég fæ ekki séð aö dýnum veröi komið við.” Skilur nokkur maður svona bull? Þaö eiga aö vera a.m.k. 2—4 menn við hvern öryggissleða en ekki einn slökkviliösmaöur eins og mér var skýrt frá að verið hefði í umrætt sinn. Það er ódýr lausn á þessu stóra vandamáli slökkviliðsstjóra að kenna áhöfn vélarinnar um mis- tökin. Eg held að hann sé þess engan veginn umkominn að dæma um né meta ástand farþega í vélinni undir þessum kringumstæðum fremur en aö dæma um framkvæmd áhafnar að koma farþegum frá borði við mjög erfiðar aðstæöur. „Langfyrstur" Það sem vekur þó hvaö mesta Kjallartnn KRISTJÁN PÉTURSSON 7EILDARSTJÓRI VIÐ TOLLGÆSL- UNA Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI athygli í viðtalinu við slökkviliðsstjóra er sú staðhæfing að það hafi tekið hann 7 mín. aö komast á staðinn frá því kall- ið barst og að 30—40 farþegar hafi þá verið komnir frá borði er hann kom á staöinn og hafði hann þó veriö „lang- fyrstur”. Það tók semsé slökkviliðs- stjóra 7 mín. að aka 2—3 km leið. Eru þessi tímamörk dæmigerð fyrir við- bragðsflýti slökkviliðsins á Kefla- víkurflugvelli? I lok viötalsins viðurkennir slökkvi- liðsstjóri að það standi hvergi í reglum að slökkviliösmenn eigi að taka á móti farþegum niöur öryggissleða vegna sprengihótunar og jafnframt að hættu- legt sé aö slökkviliðsmenn séu svo ná- lægt vélinni ef í henni kviknar og eng- inn verði þá eftir til að stjóma slökkvi- tækjum. Mér virðast þessi ummæli slökkviliðsstjóra vera einhvers konar fyrirboði um aö hann telji ástæöu til að setja ákveðnar reglur um björgunar- aðgerðir farþega frá borði í slíkum neyðartilvikum eins og ég hef ítrekað bent viðkomandi yfirvöldum á og jafn- framt gert tillögur um þar að lútandi. Kristján Pétursson. „Það vekur furðu mína að slökkviliðs- ^ stjóri skuli vera að reyna, að vísu af veikum mætti, að réttlæta þau mistök sem búin að endurtaka sig á Keflavíkurflugvelli eru varðandi móttöku farþega niður öryggissleða á breiðþotum.” Er skipulag verka- lýðshreyfingarinnar gengið sér til húðar? Skipulag verkalýðshreyfingarinn- ar hefur nokkuð verið til umræöu síð- ustu mánuði. Á síðasta þingi ASI í desember 1980 var kosin milliþinga- nefnd sem gera skyldi ítarlega úttekt á skipulagi samtakanna. Nefndin vann gott starf og sendi frá sér ítar- legan gagnapakka þar sem settir voru fram ýmsir valkostir í skipu- lagsmálum. Sl. vor var síðan haldin skipulagsmálaráóstefna. Niðurstaða ráðstefnunnar kom ýmsum á óvart því að niðurstöður hennar voru til- tölulega óbreytt skipulag. M.ö.o. þá taldi ráðstefnan verulegar grund- vallarbreytingar á skipulaginu ekki raunhæfar heldur væri fýsilegri kost- ur að stefna að smærri endurbótum á grundvelli núverandi skipulags. Umræða um skipulagsmál verka- lýðshreyfingarinnar er ekki ný af nálinni. Hún hefur annað slagið verið að skjóta upp kollinum. Misvitrir pólitíkusar hafa stundum verið að gera sig merkilega með því að leggja fram lagafrumvörp um breytingar á skipulagi verkalýöshreyfingarinnar. Nægir þar aö minna á frumvarp Vilmundar heitins Gylfasonar þar sem gert var ráð fyrir því að sérhver vinnustaður, bæði stór og smár, hefði sinn sjálfstæða samningsrétt. Slík breyting hefði þýtt óbeislað frum- skógarlögmál og verkalýðshreyfing- in brotin upp í frumeindir. Ymsar aðrar tilraunir hafa verið gerðar til aö þrengja réttindi verka- lýðssamtakanna. I því sambandi má nefna lög frá 1977 um aukið vald sáttasemjara. I dag er afar rík til- hneiging meðal voldugra afla í þjóö- félaginu að þrengja þann samnings- og verkfallsrétt sem hvert stéttarfé- lag hefur. I því sambandi má benda á ræöu Þorvalds Gylfasonar frá því í vor í verslunarráöinu þar sem mikil áhersla var lögö á að takmarka yrði rétt einstakra stéttarfélaga til gegn- umbrota þegar heildarhreyfingin hefði samið. Grundvallarsjónarmið verkalýðs- hreyfingarinnar í þessum málum hefur verið að það sé málefni sam- takanna sjálfra að taka ákvarðanir um sín innri mál og á þeirri forsendu hefur öllum slíkum inngripum utan- aðkomandi aðila í skipulagsmál samtakanna verið hafnað. Sjálfstæðl samtakanna gagnvart ríklsvaldinu er einfaldlega í húf I. Skipulag á gömlum merg Skipulag verkalýðshreyfingarinn- ar hvílir vægast sagt á gömlum merg, þ.e.a.s. staöbundin félög starfsgreina eða þá blandaðri félög, s.s. mörg almennu verkalýösfélögin og sum þeirra deildaskipt. Þessi fé- lög eru annaðhvort með beina aðild aö ASI eða aðild í gegnum starfs- greinasamböndin. Þó að flest aðild- arfélaga ASI séu aðilar að starfs- greinasamböndum þá er aðildin aö

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.