Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 16
16
DV. MÁNUDAGUR 23. JULI1984.
Spurningin
| Lesendur Lesendur Lesendur Lesendur
Hver er uppáhaldsfuglinn
þinn?
(Spurt á Hornafirði)
Camiilus Rafnsson málari: Páfagauk-
urinn Gulli geggjaði. Hann syngur og
fer í sturtu svona við og við. Hann læröi
líka að mjálma hjá kettinum. Starrinn
er leiðinlegastur fugla.
Stella Gunnarsdóttir húsmóðir: Þeir
sem syngja á morgnana þegar við
vöknum. Krumminn finnst mér leiðin-
legastur.
Viðir Jóhannsson málari: Kjúklingur-
inn. Hann er svo góður vel grillaður.
Krían er leiðinleg, hún dritar á mann
þegar maður er að veiöa.
Ásþór Guðmundsson málarasveinn:
Páfagaukarnir eru skemmtilegastir,
krían er leiðinlegust vegna gargsins og
hávaðans.
Siðhúið svar frá Danskennarasambandi ísiands við bréfi sem birtistþann 29. júnisl.
Frá Danskennara-
sambandi íslands
Frá Danskennarasambandi ís-
lands:
Vegna bréfs Huldu G. Hallsdóttur,
sem birtist í DV 29. júní síðastliðinn,
vill prófnefnd Danskennarasam-
bands Islands taka eftirfarandi
fram.
Að danskennarapróf skiptist í eins
konar sveinspróf og meistarpróf er
út í hött. Danskennarapróf er annars
vegar í suður-amerískum dönsum og
hinsvegarí „Ballroom-dönsum”.
Ariö 1971, þegar fyrst er farið að
prófa danskennara hérlendis, var
einkunnagjöf þannig: Staðið (6,5—
7,5), gott (8,0-8,5), ágætt (9,0-
10,0).
Frá 1972 er gefin einkunnagjöfin
1—10. Frá 1979 er einkunnagjöf tví-
skipt, þ.e. séreinkunnfyrir dans og
séreinkunn fyrir tækni.
Nemar hafa áður komist upp í
einkunnina 9,9. Kristný Vilmundar-
dóttir fékk 30.maí 1980 9,8 í dansi og
9,9 í tækni. Hún var nemi í Dansskóla
Heiðars Astvaldssonar, prófnefnd
skipuðu þá Sigurður Hákonarson,
Iben Sonne og Guðrún Pálsdóttir.
Fleiri en einn nemi hafa fengið eink-
unnina9,8.
30. maí 1984 fær Viðar Völundarson
einkunnina 9,8 fyrir dans og 10 fyrir
tækni. Hann fékk 10 fyrir tækni því
allt sem hann sagöi og gerði var upp
á 10. Dómnefnd var sammála um
einkunnagjöf sína, en í dómnefnd
voru örn Guðmundsson, Iben Sonne
og Guðrún Pálsdóttir.
Ef Huldu Hallsdóttur er enn í dag
ekki kunnugt um einkunnagjöf sína
getur hún að sjálfsögðu fengið að
vita hana en við birtum hana ekki í
blöðunum.
Hvorki prófnefnd DSI né Dans-
kennarasamband Islands komu á
nokkurn hátt nálægt því viðtali sem
birtist í N.T. við Viðar Völundarson.
Varðandi sprenginguna í DSI þá er
þaö rétt að 9 meölimir af 42 sögðu sig
úr sambandinu, en þaö er ekki ný
bóla að sumir geta ekki sætt sig við
lýðræðislegar leikreglur.
Frá Heiðari Ástvaidssyni dans-
kennara:
Eg undirritaður var viðstaddur
þegar Viðar Völundarson tók síðari
hluta danskennaraprófs. Eg er full-
komlega samþykkur einkunnagjöf
prófnefndar. Sign
Góður mat-
ur i Spies-
ferðum
Spiesari skrifar:
Ég var aö horfa á umræðuþáttinn í
sjónvarpinu um sólarlandaferöirnar.
Þar sagði Ingóifur Guðbrandsson m.a.
aö ferðirnar hjá erlendu ferðaskrifstof-
unum væru mun verri en hans, m.a.
fyrir þaö að þröngt væri á milli sæta í
flugvélinni og að fólk fengi aðeins te-
bolla og eitthvaö með á leiðinni.
Þar sem ég ferðaðist nýlega með
ferðaskrifstofu Spies verð ég að leið-
rétta þetta. Það er aö vísu frekar
þröngt á milli sæta en maturinn sem ég
fékk á leiðinni var mjög góður, enginn
tebolli og rúnnstykki.
Brekdans
frekar en
skrykkur
Páll Bergþórsson hringdi:
Breakdance er mikið til umræðu
þessa dagana og hefur íslenska orðiö
skrykkur verið notað yfir þennan dans.
Mig langar að koma meö aöra betri
tillögu um íslenskt orð yfir break-
dance. Þetta er brekdans. Orðið brek
er íslensk og þýðir brot samanber
breksjór=brotsjór. Orðið hefur því
marga kosti. Þaö er íslenskt, er bein
þýðing á break og hljómar einnig svip-
aö og orðið break.
Stend með
Steindóri
8414-8806 skrifar:
Ég var aö kom að utan og sá þá í
blööunum að Steindórsmenn höfðu ver-
ið sviptir leyfi sínu til aö reka stöðina
og akstursleyfinu einnig.
Mér finnst þetta mjög miöur því oft-
ar en ekki hafa þeir Steindórsmenn
orðið til gagns þarna í miðbænum,
komiö upp um innbrot og veriö vak-
andi yfir því sem hefur verið að gerast
þarna í hjarta borgarinnar.
Daniel Sigurösson málarasveinn:
Lundinn, hann er svo fallegur. Fýllinn
er leiðinlegur því hann ælir á mann
þegar maður kemur nálægt honum.
Læla Ingvarsdóttir húsmóðir: Dúfan,
mér finnst hún svo vinaleg. Hana vant-
ar alveg á Homafirði. Starrinn er
ógeðslegur.
Allir
geta
breikað
Anna, 14 ára, skrifar:
Eg var mjög óánægö með greinina,
sem birtist þann 12. júlí, skrifuð af hin-
um neikvæða Brandi. Brandur minn,
fyrst þér líkar ekki þetta svokallaða
breik þá skil ég ekki hvernig í ósköpun-
um þú gast álpast inn í bíó þegar verið
var að sýna breikdans-mynd þar.
Ég hefði ekki komið nálægt bíóhús-
inu á meöan breiksýningar stóðu yfir
ef ég væri svona lítið hrifin af breiki
eins ogþú.
Kannast þú ekki við málsháttinn: æf-
ingin skapar meistarann? Þetta á vel
viö krakkana hér heima á Islandi sem
eru að taka sín fyrstu breikspor. Og
svo finnst mér alls ekki hægt að bera
saman krakkana hérna á Islandi og
fólkiö sem búiö er að æfa lengi og þar
aö auki eru bestu dansararnir valdir í
hlutverkin.
Mér dettur helst í hug aö þú sért
svona afbrýðisamur út í krakkana sem
geta breikað. Ég er meö góöa uppá-
stungu. Spurðu ísienska breikdans-
meistarann, Stefán Baxter, hvort þú
getir ekki fengiö að fara í danstíma hjá
honum. Hann breikar virkilega vel og
samt er hann hvítur.
Allir menn eru jafnir, hvort sem þeir
eru svartir, hvítir, rauðir eöa gulir.
Allir geta þeir dansað gömlu dansana
og diskó og þeir geta líka breikaö.
Hörundsliturinn ætti ekki að vera
nein fyrirstaöa. Vertu bara jákvæður,
Brandur, og brostu, þá gengur allt
betur.