Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 24
24
DV. MÁNUDAGUR 23. JULÍ1984.
íþróttir
íþróttir
íþrótt
íþróttir
íþrói
„KA-menn
grímmastir
íl.deild
í dag”
- rætt við þjálfara KA og
Víkings og leikmenn
eftir markaleikinn í
Laugardal í gærkvöldi
Þeir komust sex sinnum inn í vítateig
okkar og náðu að skora sex sinnum. Það er
ekkert við þessu að gera. Þetta er einfald-
lega einn af þessum dögum,” sagði Gústaf
Baldvinsson, Eyjamaöurinn ungi sem
þjálfar KA frá Akureyri.
„Það gekk ekkcrt upp hjá okkur, sama
hvað við reyndum. Aftur á móti gckk flest
upp hjá Víkingum. Við vorum miklu meira
með boltann og þetta var allt of stór sigur.
Þessi markatala gefur ekki rétta mynd af
þessum leik,” sagði Gústaf.
„Mörkin öli falleg og vel
uppbyggð"
„Þessar úrslitatölur segja sina sögu. Að
mínu viti var það ekki vafamál hvort liðið
var betra hér í kvöld. Strákarnir skoruðu
gullfalleg mörk og það var mjög vel að
þeim öllum staöið. Þessi sigur okkar hér í
kvöld er einn áfangi af mörgum sem við
Vtkingar ætlum okkur að ná á næstunni.
Þaö verður haldið áfram og allt gert til aö
halda áfram á sömu braut,” sagði Björn
Árnason, þjálfari Víkings.
„KA-menn grimmastir í dag í 1.
deild"
„Þetta var mjög erfiður leikur. KA-
menn leika svakalega fast. Þeir eru mjög
grimmir. KA hefur á að skipa grimmasta
iiöinu i dag i 1. deild. Þessi sigur okkar var
mjög sanngjarn og stigin þrjé alveg ótrú-
Icga mikilvæg. Þetta voru stigúi sem við
máttum alls ekki tapa. Þessi stig geta gert
útslagið fyrir okkur i lokin. Ég er mjög
ánægður með þennan leik og núna kom
loks að því að við nýttum marktækifærin
sem við fengum í lciknum,” sagði Ömar
Torfason, Vikingi, eftir leikinn gegn KA í
gærkvöldi en Ömar skoraði tvö mörk og
lék mjög vel.
„Vona að þetta komi ekki fyrir
aftur"
„Ég veit það ekki. Ég held aö þetta hafi
ekki verið of stór sigur hjá þeim. Þeir unnu
þetta mjög sanngjarnt og þeir voru betri í
þetta sbin. Það eina sem við getum gert
núna er að reyna aö gleyma þessum leik
og það sem allra fyrst. Þetta var hryllileg-
ur leikur og ég vona bara að þetta komi
ekki fyrir okkur aftur,” sagði miðvörður
KA, Ertingur Kristjánsson. -SK.
Björn Árnason, þjálfari t'íkings, var
ánægður með sina menn.
Sigurðurog
Gunnarunnu
Samhliöa stigamótinu á Akureyri um
helgina fór fram opið mót, s vokallað Saab-
Toyota mót. Keppt var með og án forgjaf-
ar. I keppninni án forgjafar sigraði
Sigurður H. Ringstcd, GA, á 156 höggum,
Baldur Sveinbjörnsson, GA, varð annar á
159 höggum og Skúli Skúlason þriðji á 163
en hann keppir fyrir GH á Húsavik.
Gunnar Rafnsson, GA, vann keppnina
með forgjöf, lék á 138 höggum. Slgurður H.
Ringsted varð annar á 142 höggum og
þrlðji varð Baldur Sveinbjörnsson, GA, á
143 höggum. -SK
íþróttir
Hart
verður
barist
í kvöld
Einn leikur fer fram í 1. deild
íslandsmótsins i knattspyrnu í kvöld
og er það viöureign Fram og Breiða-
bliks. Leikið verður á Laugardalsvelli
og hefst leikurinn að venju kl. 20.
Leik liöanna í fyrri umferðinni í
Kópavogi lauk með naumum sigri
Fram, 1—0, og hyggjast Blikar nú
hefna ófaranna í kvöld á heimavelli
Framara.
Staða liðanna er svo til eins. Liðin
hafa bæöi 11 stig og mjög svipaða
markatölu. Leikir þessara tveggja liða
hafa oft verið skemmtilegir og hafa
talsmenn beggja liða lofaö hinu sama í
kvöld.
Þá á að reyna í kvöld að leika leik KS
og IBV sem fara átti fram í 2. deild á
Siglufiröi um helgina en ekki var flogið
frá Eyjum. Ef ekki tekst að fljúga í dag
verður leikurinn settur á þann 1. ágúst.
-SK.
Andri Marteinsson skoraði eitt marka Víkinga í gærkvöldi og hér sést hann sækja að miðverði KA, Erlingi Kristj
Skagamenn með 10
ustu eftir sigur í I
áttu lengi vel í vök að verjast en Bjarni Sigurðsson var snjs
Frá Magnúsi Gíslasyni, fréttamanni
DV á Suðurnesjum.
Það minnti margt í leik Keflavíkur
og Akraness í 1. deild í gær á leikina í
Evrópukeppninni í Frakklandi í sumar,
hraði og baráttuvilji. íslandsmeistar-
ar Skagamanna áttu þó í vök að verj-
ast í fyrri hálfleiknum og þá hefðu
Keflvíkingar jafnvel átt að gera út um
leikinn. En þeir mættu erfiðum mót-
herja þar sem Bjarni Sigurðsson,
markvörður Akraness, var. Hann
varði mjög vel — maður leiksins. i síð-
ari hálfleiknum náöu Akurnesingar sér
hins vegar vel á strik og tókst að
tryggja sér sigur þegar langt var liðið
á leikinn, 2—1. Keflavík hafði forustu í
hálfleik, 1—0.
Keflavíkurliðið lék skínandi vel í
fyrri hálfleiknum og fljótt varö mikil
hætta viö mark Akurnesinga. Á 12.
mín. skallaði Guðjón Þórðarson frá á
marklínu Akraness eftir hornspymu
Einars Ásbjöms Olafssonar og á 18.
mín. komst Ragnar Margeirsson einn
inn fyrir vöm Skagamanna. Bjama
tókst að slá knöttinn yfir þverslá.
Keflvíkingar unnu návígin í hálf-
leiknum, léku skemmtilegan stuttan
samleik en lítill kraftur var í Akurnes-
ingum, þeir fengu ekki gott færi í fyrri
hálfleiknum. En áfram buldu sóknar-
lotumar á vöm þeirra og á 19. mín.
skomðu heimamenn.
Hætta virtist þó ekki mikil þá. Gefið
var hátt inn í vítateiginn og Bjami
virtist eiga auðvelt með að verja. En
hann rann til í leðjunni og missti knött-
inn. Helgi Bentsson náði honum meö
harðfylgi, kominn niður á annað hnéð og
gat gefið inn á markteiginn. Þar skallaði
Einar Ásbjöm í markíð, 1—0.
Á 29. mín. voru Keflvíkingar enn á
ferðinni. Ragnar Margeirsson komst i
gott færi en Bjarni varði skot hans.
Hélt þó ekki knettinum sem féll til
Magnúsar Garðarssonar. Hann virtist
eiga greiða leið að skora en spyrnti
langt framhjá. Þar fór gott tækifæri
forgörðum. Á næstu mín. komst Ragn-
ar innfyrir, spymti en Bjami kom
tánni fyrir knöttinn og stýröi honum
framhjá stöng. Á 35. mín. átti Helgi
hörkuskot framhjá úr góöu færi. Rétt í
lokin kom eina færi Skagamanna, ef
færi er hægt aö kalla. Mikil þvaga í
vitateig Keflvíkinga, margir lágu þar,
en að lokum spyrnti Gísli Eyjólfsson
frá.
Skagamenn hressast
I síöari hálfleiknum léku Skagamenn
undan smá sunnangolu og þá fór að
rigna. Völlurinn varð mjög háll.
Skagamenn voru mun hressari en í
f.h. og fóru að sækja. Karl Þórðarson,
sem lítið hafði borið á, vaknaði eins og
af dvala. Lék upp og gaf fyrir. Þor-
steinn náði ekki tíl knattarins en eng-
inn Skagamanna fylgdi eftir. Síðan gaf
Árni Sveins laglega á Sigþór Omars-
son, sem skallaöi rétt yfir, og síðan fór
meiri harka að koma í leikinn. Júlíus
Ingólfsson, IA, hafði verið bókaður í
f.h. en síðan vom þeir Valþór, Kefla-
vík, og Guðjón Þórðarson bókaöir á
stuttum tíma.
Akumesingar fengu þrjú horn í röð
um miðjan hálfleikinn en í þriðja skipt-
ið tókst Þorsteini að ná knettinum.
Keflvíkingar náðu af og til skyndisókn-
um og á 71. mín. komst Helgi frír inn
fyrir. Bjarni varði snilldarlega, sendi
knöttinn fram á Karl, sem lék á einn
mótherja af öðmm í 30 metra rispu.
Spymti síðan yfir markið en loks korr
að því, sem margir heimamenn óttuð-
ust — aðrir fögnuðu, að Skagamenn
jöfnuðu. Aukaspyrna Jóns Áskelssonar
frá miðjum velii út við hliðarlínu sigldi
inn í vítateiginn. Það virtist auðvelt
fyrir Þorstein að handsama knöttinn.
En hann rann til og missti af honum.
Siggi Donna kom aðeins við hann áðui
British Openígolfi:
Einvíginu lauk með
sigri Ballesteros
„Þetta er dásamleg tilfmning. Annað bögg
mitt á 17. brautinni var lykillinn að sigrin-
um,” sagði Severiano Ballesteros, binn 27 ára
spánski golfmaður, eftir að hann hafði rennt
kúlunni í holuna á lokabrautinni af fimmtán
metra færi og sigrað fyrrverandi meistarann,
Tom Watson, Bandarikjunum, með tveggja
högga mun á opna breska meistaramóti á St.
Andrews, golfvellinum fræga á Skotiandi. í
annað sinn sem Ballesteros sigraði á „British
Open” en bann befur einnig orðið bandarískur
meistari tvívegis. Baliesteros sigraði 1979 á
breska mótinu, fyrsti stórsigur hans í golfi.
Hann lék holumar 72 á 276 höggum eða tólf
undir pari vallarins. Mjög jafn alla dagana,
lék á 69, 68, 70 og 69. Næstir komu Tom Wat-
son, sem fimm sinnum hefur sigrað á breska
opna mótinu, og Vestur-Þjóðverjinn Bem-
bard Langer. Báðir léku á 278 höggum. Síðan
komu j>eir Fred Couples og Lanny Wadkins,
báðir USA, á 281 höggi, Greg Norman,
Astralíu, sem hafði fomstu eftir fyrsta
keppnisdaginn, og Nick Faldo, Bretlandi,
léku á 282 böggum. Af frægum köppum má
nefna að Lee Trevino og Hale Irwin léku á 285
höggum og vom um 20. sætið og Jack
Nicklaus lék ásamt nokkmm öðmm á 228
höggum. Johnny Mlller, USA, einnig. Nickl-
aus byrjaði mjög illa, lék á 76 fyrsta daginn og
síðan 72 þann næsta.
Fyrir síðasta keppnisdaginn vom þeir og
Ian Baker Finch, 23 ára Astrali (endaði með
284 og lék síðustu 18 holumar á 79 höggum)
jafnir í efsta sæti með 205 högg. Langer og
Bailcsteros komu skammt á eftir með 207
högg en langt var í aðra. Nokkrir á 212, ma.
Treving. Watson hafði ekki byrjað vel. Lék á
71 fyrsta daginn, síðan 68 og bættl um betur
þriðja daginn. Lék þá frábærlega vel á 66
höggum. Baker-Finch hafði leikið á 68 og 66
tvo fyrstu keppnisdagana, síðan 71.
Lokadagínn, eða f gær, byrjaðl Watson
mjög vel og var einn með fomstu eftir þrjár
fyrstu holurnar. Allt gekk hins vegar á aftur-
fótunum hjá unga Astralíumanninum. Hann
tapaði fimm höggum á nfu fyrstu holunum.
Hins vegar þrípúttaði Watson á f jórðu holu og
Ballesteros lék á „birdie” og náði þar með
Bandarikjamanninum. Báðir 10 höggum und-
ir pari vallarins. Iarry Wadkíns fór að nálg-
ast fyrstu með þremur „birdies” í röð. Nor-
man cinnig — fimm birdie á 12 holum. En þeir
Ballesteros og Watson börðust greinílega um
meistaratitilinn og ailt gat skeð þar tii kom að
17. og næstsíðustu brautinní.
Þá fór ailt úrskeiðis hjá Watson. Hann sló
kúluna yfir veg og f steinvegg. Lék holuna yfir
pari eða fimm og meistaratitillinn var
Ballesteros, sem lék af miklu öryggi mikils
meistara. Honum hefur ekki gengið allt of vel
í Bandarikjunum að undanförnu og var þvf
mikið f mun að standa sig vel á St. Andrews.
Það tókst honum. hsím.
Iþróttir
íþróttir
íþróttir