Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Blaðsíða 26
26 DV. MÁNUDAGUR 23. JULI1984. fþróttir íþróttir íþróttir íþróttir NÚLL NÚLL ÍFIRÐ- INUM Isfiröingar gerðu þokkaiega ferð til Hafuarfjarðar um heigina er þeir léku gegn efsta liði 2. deildar, FH. Hvorugu liðinu tókst aö skora í ieiknum og frekar lítið var um marktœkifæri. Mikil barátta og ts- firðingar grimmari ef eitthvað var. -sk Svíar rass- skelltu Norðmenn tvisvar Frá Gtmniaugi A. Jónssyni, frétta- manni DVíSvíþjóð: „Það er öruggt mál að sænska iandsliðiö í handknattleik hefur aldrei verið eins vel undirbúið fyrir stórmót og nú,” sagði Roger Carlson, þjálfari sænska iandsliös- íns í handknattleik, þegar liðið hélt til Los Angeles á laugardaginn. Sænsku landsliðsmennirnir hafa leikið 15 landsleiki síðustu tvo mán- uöi og gengið vel í þeim flestum. Liöið hefur dvalið í æfingabúðum og leikmenn liðsins æft svo að seg ja daglega í 40 daga. Æfingaprógrammi sænska lands- liðsins lauk á laugardaginn með landsleik gegn Norðmönnum. Norðmenn komu mikið á óvart í Kaupmannahöfn fyrir nokkrum dögum er þeir sigruðu Dani á heimavelli þeirra. Búist var því við spennandi leikjum í Sviþjóð en þaö fór á annan veg. Svíar gersigruðu Norðmenn meö 27 mörkum gegn 19. Ekki fengu Norðmenn betri útreiö á föstudagskvöldið en þá léku þjóöirnar einnig í Svíþjóð. Svíar unnu þá 29—15 og höföu algera yfirburði. Eru Svíar mjög bjartsýnir á gengi sinna manna í Los Angeles og úrslitin úr leikj- unum gegn Norðmönnum gefa til kynna aö sænska liöiö sé á toppnum á réttum tíma. Bjöm Jilsen skoraöi 11 mörk fyrir Svía í hvorum leiknum fyrir sig, 22 mörk saman- lagt. -SK Fatlaðir áÓL Átta fatlaðir íþróttamenn héldu á föstudag til Englands, nánar tiltek- ið til Mandcville, til að taka þátt i ólympíulcikum fatlaðra sem þar fara fram um næstu mánaðamót. íslensku keppendumir eru: Elsa Stefánsdóttir, Guðný Guönadoctir og Viðar Guðnason í borðtennis, Andrés Viðarsson, Baldur Guðna- son og Reynir Kristófersson í frjálsum íþróttum og sundkonurn- ar Edda Bergmann og Anna Geirs- dóttir. Allir þessir þátttakendur hafa náð þeim lágmörkum scm alþjóöa ólympíunefndin setti vegna leik- anna. SK Stefán Jóhannsson, markvörður KR, grípur hér vel inn í en það gerði hann oftíleiknumgegnValálaugardag. DV-mynd: Oskar Öm Jónsson. Lítið var í Laugardal Ef hægt er að tala um að eitthvert'lið sé erkifjandi KR-inga þá eru það Vals- menn. Og ef hægt er að segja að eitt- hvert lið sé erkifjandi Valsmanna þá eru það KR-ingar. Það hefur því verið svo í gegnum árin að þegar þessi tvö lið mætast hefur úr orðið hin allra besta skemmtun og hefur þá ekki skipt máli hvar liðin eru stödd í deildinni. Það er gamli rígurinn sem heldur mönnum gangandi frekar en knatt- spyrauleg geta. En út frá leik KR og Vals á laugar- daginn mætti halda aö þessi rígur færi minnkandi. Bæði þessi liö höfðu alla ástæöu til að berjast af miklum krafti því aö eins og flest önnur lið deildar- innar eru þau í mikilli fallhættu. En knattspyrnan var ekki merkileg í Laugardalnum og var síöari hálf- leikurinn með því slakasta sem hægt er aö s já í knattspymu. Það tók heilar átta mínútur fyrir leikmenn að safna kröftum í fyrsta markskotið. Gunnar Gíslason tók aukaspymu fyrir KR rétt utan víta- teigs, skaut fram hjá vamarvegg Vals- manna og marki þeirra einnig. Tveimur mínútum síðar lék Guðmundur Þorbjömsson upp vinstri kantinn, gaf fyrir markið á Hilmar Sighvatsson sem var óvaldaður. Hilmar skaut frekar máttlausu en lúmsku skoti í hornið hægra megin. Stefán henti sér í veg fyrir tuðmna en tókst einhvem veginn að klúðra henni aftur fyrir sig en þaö kom þó ekki að sök því aö þessi snöggi markvörður var von bráðar kominn með lúkumar á boltann á ný og KR-ingar önduðu léttar. Næstu tuttugu mínútur voru tíöinda- lausar, KR-ingar fengu tvö tækifæri til aö skora á móti einu Valsmanna. Á þessum téðu tuttugu mínútum gerðist það reyndar einnig að Valsmenn, sem höfðu haft heldur betri tök á leiknum, tóku að missa völdin og KR-ingar voru þeir einú á vellinum sem gátu hirt þau, enda gerðu þeir þaö líka, barátta þeirra og einbeitni var mun meiri en Valsmanna. Á 32. mínútu heföu þeir meö smá- heppni og betri skilningi getað náð forystu. Sæbjöm fékk þá boltann, lék upp að vítateignum og sendi hann inn fyrir vöm Valsmanna, ætlaði hann greini- lega Oskari Ingimundarsyni, en hann var ekki alveg með á nótunum, náði þó boltanum og sendi hann áfram á Gunnar Gíslason, en Stefán Arnarson í markalaust hjá KR og Val Valsmarkinu náði boltanum áður. Á 36. mínútu skoraöu Valsmenn mark sem dæmt var af. Eitthvert þóf skapaðist vinstra megin við KR markið. Allt í einu skaust boltinn til Guðmundar Þorbjömssonar sem stóð óvaldaður á markteig og skallaði bolt- ann beint niöur, undir Stefán Jóh. og þaöan í markið, en ágætur dómari leiksins, Kjartan Tómasson, dæmdi hann rangstæðan. Valsmenn komu ákveðnari til seinni hálfleiks, greinilega búnir að fá tiltal frá Ian Ross, en það dugði ekki til, engin hættuleg marktækifæri voru sköpuð og ekkert annað markvert gerðist. Eina ljósið í tilverunni þessar mínúturnar voru hvatningarköll Kristins Hallssonar og félaga á menn sínaí Val. Á tuttugustu mínútu seinni hálfleiks geröist fyrsti stóratburöurinn af þremur, en þeir geröust á sjö mínútum. Fyrst f ór Oskar Ingimundarson út af fyrir Omar Ingvason í KR. Á næstu mínútu kom Jón Grétar Jónsson inn fyrir Hilmar Harðarson í Valsliðinu. Á Undarleg breyting í körfunni — nánast óþarfi orðið að íslandsmótið fari fram — úrslitakeppni um fall í 1. deild samþykkt Eins og ailir körfuknattleiksunnend- ur vita var í fyrra í fyrsta skipti reynd sérstök úrslitakeppni í úrvalsdeildinni í körfu. Mjög skiptar skoðanir eru uppi manna á meðal um réttmæti þessarar úrslitakeppni en á síðasta ársþingi var samþykkt að halda sama fyrirkomu- lagiog varífyrra. Ein breyting var þó gerð. Ákveöið var að tvö neöstu liðin í úrvalsdeildinni léku aukaleiki um fall í 1. deild. Verður þetta að teljast furöuleg viöbót svo ekki sé meira sagt. Með öðrum orðum þýðir þessi breyting það að lið getur leikið áfram í úrvalsdeildinni þrátt fyr- ir að þaö vinni ekki leik í deildakeppn- inni um veturinn, ef það vinnur tvo aukaleiki um fallið. Ef Valur myndi lenda í neðsta sæti úrvalsdeildar næsta vetur og ekki vinna leik og myndi leika gegn Njarðvík sem hefði hafnaö í næst- neösta sæti meö 14 stig í aukaleikjum um fallið og Valur myndi vinna þá báða væru Njarðvíkingar fallnir í 1. deild. Þaö er ekki heil brú í svona lög- uðu. -SK Þessi mynd var tekin úr viðureign Njarðvíkinga og Keflvíkinga í körf- unni. tuttugustu mínútu skiptu KR-ingar aftur um mann, Willum Þórsson kom inn fyrir Björn Rafnsson. Að þessum atburðum liðnum dottuðu áhorfendur aftur. Bestu tilþrif leiksins komu á 37. mínútu. Jón Grétar fékk boltann á vítateigslínu KR-inga og sendi hann aftur á öm Guðmundsson sem þramaði á markið en Stefán kastaði sér og varði vel. A 41. mínútu lék Valur Valsson skemmtilega á Jakob Pétursson út viö vinstra vítateigshornið og skaut á KR markið, en Stefán bjargaði í hom. Það er svo að segja vonlaust að tala um bestu menn í þessum leik en þó er hægt að reyna. Gunnar Gíslason átti ágætis fyrri hálfleik en hvarf í þeim seinni eins og flestir leikmenn vallarins. Sævar Leifsson er maður sem ekki gefur tommu eftir, Haraldur Haraldsson lék stööu Ottós Guðmundssonar sem lík- lega er úr leik það sem eftir er sumars. Þetta er geysileg blóötaka fyrir KR liðið, það gæti hæglega falliö núna eftir að hafa misst Ottó. En Haraldur er vanur maður í þessari stööu, lék hana með KA þannig aö útlitið er ekki eins slæmt og í fyrstu virtist. En slæmt er það engu að síður. Stefán Jóhannsson gerði vel það sem hann þurfti að gera, en það var ekki mikið. EnnminnafékkStefán Amansoní Valsmarkinu aö gera. Guðmundur Þorbjömsson átti ágætan fyrri hálfleik og sömuleiðis Hilmar Sighvatsson, en báðir höföu sig lítið frammi í seinni hálfleik. Þorgrímur Þráinsson var ágætur og Öm Guðmundsson átti sæmilegar tíu mínútur í lokin er hann hristi af sér slenið. Lítiö var, lokið er. Liðin: KR: Stefán Jóh., Sævar Leifs., Jakob Péturs., Haraldur, Jósteinn Einarsson (fyrirl.), Ágúst M. Jónsson, Gunnar Gísla., Sæbjörn Guömundsson, Jón G. Bjarnason, Björn Rafns. (Willum), Öskar Ingimundar. (Ömar Ingvason). Valur: Stefán Amarson, Grímur Sæmundsen, Þorgrímur, Öm Guömundsson, Guðmundur Kjartans- son, Hilmar Harðarson (Jón G. Jóns- son), Guöni Bergsson, Hilmar Sighvatsson, Valur Valsson, Bergþór Magnússon, Guömundur Þorbjörns- son. Maöur leiksins: Stefán Jóhannsson, KR. -SigA.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.