Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Page 31
DV. MÁNUDAGUR 23. JULÍ1984. 31 Loksins náðist afþeim mynd. horfumar eru ekki bjartar í atvinnu- málum Flateyringa í haust,” sagöi Kristján Jóhannesson sveitarstjóri á Flateyri. Börnin á Flateyri létu ekki neina svartsýni ná tökum á sér. Smástrákar rúntuöu um bæinn á hjólunum sínum og aðrir hlupu á eftir með kábojhatt á höfði. Algjört drengjagengi sem birtist hvað eftir annað þegar minnst varði á götum bæjarins þessa dagstund sem DV-fólk var á Flateyri. Við máttum til meö að festa þá á filmu en slíkur var krafturinn og fjöriö að það reyndist ill- gerlegt. Seint og um síðir tókst það þó. Skammt frá okkur, þar sem við stóð- um í þessum barningi, voru þeir Omar öm Magnússon og Einar Hafberg að leika sér við kirkjuna. Báðir voru þeir í iþróttagöllum, enda mikið íþróttalíf hjá krökkunum á Flateyri. Auðvitað þurftum viö að trufla þá líka því að við sáum þrjár kunnuglegar trjáplöntur þarna í kirkjutúninu. Þeir staðfestu það að þetta væm plöntumar sem Vig- dís forseti gróðursetti hérna um árið þegar hún heimsótti Flateyringa. „Það þyrfti helst aö setja girðingu ut- an um trén því annars komast rollum- ígi Kristján k/ippir og Jón slær. sögðu þeir og bentu á nokkra stráka sem vom að slá gras, greinilega meö öllum tiltækum ráðum. Kristján Vil- berg klippti grasið í gríö og erg með grasklippum en Jón vinur hans labbaði á eftir sláttuvélinni. Þeir sögðust skipt- ast á verkfærum af og til. — Eruö þið ánægðir í vinnunni, strákar? ,tJá, já, þetta er ágætt. Það er vel þess virði að gera bæinn fallegri. Það verður skemmtilegra að vera hér,” sögöu þeir og Kristján bætti við: „Viö erum héðan og bemrn hag bæjarins fyrirbrjósti.” Kristján og Jón litu varla upp frá starfa sínum meðan við töluöum við þá svo að við ákváðum að tmfla þá ekkert frekar en héldum að íþróttasvæðinu þar sem allt var á f ullu í Iþróttaskólan- um. 80 krakkar á aldrinum 6 til 14 ára eru í skólanum í sumar svo að þaö var líf og fjör á vellinum. Þau voru að keppa í langstökki og þess var ekki lengi að bíða að Guðrún Filippía svifi í metstökki dagsins sem reyndist 3,08 metrar. Hreint ekki slæmt eða eins og þjálfarinn sagði: „I mótvindi tók hún það létt. ” þjh Texti: Þórunn J. Hafstein Myndir: GunnarV. Andrésson ar i þau,” sögðu þeir. „Okkur þykir vænt um þessi tré, eða allavega viljum við ekki að þau deyi.” Trjáplöntumar virtust dafna ágæt- lega þarna viö kirkjuna. Ein plantan var að vísu dálítið veikluleg en strák- amir sýndu okkur lítinn sprota sem gægðist upp úr moldinni svo að ekki var allt líf úr plöntunni farið. — EraðþiðíVinnuskólanum? „Nei. Þeir em að vinna þarna,” Guðrún Filippía / metstökkinu. Útihandrid úr Oregon tré Fyrir tröppurnar, veröndina og svalirnar. Notið sumaríð og fullgerid húseignina meö Oregon pine handriöum frá Ár- felli. Handriöin eru med innbgggö- um raflögnum og lituö eftir gd- ar eigin vali. P°nd 78J1 Komum og mælurn erum verðtilboð OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 16.00 Armúla 20. Simar 84630 og 84635. T M Y N SUÐURLANDSBRAUT 2 S. 82219 I HÚSI HÖTEL ESJU Þú fylgist með litmyndum þínum framkallast og kópíerast á 60 mlnútum. Framköllun sem ger- ist vart betri. Á eftir getur þú ráðfært þig við okkur um útkomuna og hvernig þú getur tekið betri myndir. Opið frá kl. 8 — 18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.