Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Qupperneq 40
40
DV. MÁNUDAGUR 23. JULI1984.
Andlát
Jón VUberg Jónsson lést 12. júlí sl.
Hann fæddist í Reykjavík 22. desember
1922. Foreldrar hans voru hjónin Jón
Diörik Hannesson og Jónína Margrét
Jónsdóttir. Jón starfaöi lengst af í Stál-
smiðjunni. Utför hans veröur gerö frá
Fossvogskirkju í dag.
Ágúst Lindal Pétursson lést í sjúkra-
húsi Keflavíkur þann 20. þ.m.
Sæmundur Þóröarson trésmíöameist-
ari, Barónsstíg 16, lést 18. þessa mán-
aðar. Jarðarförin ákveöin síöar.
Gyöa Gunnarsdóttir, Drápuhlíö 31,
andaðist 11. júlí. Jaröarförin hefur far-
iö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu.
Elísabet Hjálmarsdóttir, Dvalarheim-
ilinu Höföa Akranesi, verður jarösung-
in frá Akraneskirkju mánudaginn 23.
júli kl. 14.
Jóna Sigríður Benónýsdóttir, Baldurs-
garöi 8 Keflavík, lést á gjörgæsludeild
Landspítalans 20. júli.
Eggertína M. Smith, Snorrabraut 87,
er látin.
Jón Pálsson, Ægissíöu 86, lést í Borgar-
spítalanum þann 20. júlí.
Jóhanna Jónasdóttir, Einarsnesi 54,
lést í Borgarspítalanum föstudaginn
20. júlí.
Guðrún Jóhannesdóttir, Mávahlíö 4
Reykjavík, veröur jarösungin frá
Fossvogskirkju í dag, mánudaginn 23.
júlíkl. 13.30.
Svanhildur Gissurardóttir, Bræöra-
borgarstíg 5, veröur jarösungin frá
Fossvogskirkju á morgun, þriöjudag-
inn 24. júlí, kl. 15.
Brynjólfur Þorsteinsson skipstjóri er
látinn. Jaröarförin hefur fariö fram í
kyrrþey aö ósk hins látna.
Gunnar Tryggvason frá Skrauthólum,
Teigaseli 5 Reykjavík, veröur jarö-
sunginn frá Bústaöakirkju miðviku-
daginn 25. júlí kl. 13.30.
Kristbjörg Kristjánsdóttir frá Jódísar-
stööum andaðist á heimili sínu,
Höskuldsstööum, sunnudaginn 15. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Munkaþver-
árkirkju þriöjudaginn 24. júlí kl. 14.
Evald Christensen veröur jarösunginn
frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 24.
júlíkl. 10.30.
Þorsteinn B. Jónsson málari, Njaröar-
götu 61, verður jarösunginn frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag, mánudag-
inn 23. júlí, kl. 13.30.
Siglingar
HULL/GOOLE: GAUTABORG:
Dísarfell .23/7 Jan .17/7
Dísarfell ..6/8 Jan .31/7
Disarfell .20/8 Jan .14/8
DisarfeU ..3/9 Jan .28/6
ROTTERDAM: KAUPMANNAHÖFN:
Dísarfell .24/7 Jan .18/7
Dísarfel! ..9/8 Jan ..1/8
Dísarfell .21/8 Jan .15/8
DisarfeU ..5/9 Jan .29/8
ANTWERPEN: SVENDBORG:
Dísarfell .29/7
DísarfeU .10/8 Jan . .2/8
Dísarfell .22/8 Jan .16/8
Dísarfell ..6/9 Jan .30/8
HAMBORG: AARHUS:
DísarfeU .27/7 Jan .20/7
Dísarfell ..8/8 Jan ..3/8
Dísarfeli .24/8 Jan .17/8
Dísarfell ..7/9 Jan .31/8
HELSINKl/TURKU: LENINGRAD:
HvassafeU .23/7 HvassafeU .25/7
Hvassafell .18/8 GLOUCESTER;
MASS.:
LARVIK: Jökulfell ..3/8
Jan 30/7 HALIFAX,
Jan 13/8 KANADA:
Jan .27/8 Jökulfell ..5/8
Tilkynningar
Ættarmót að Laugum
í Sælingsdal
Dagana 28. og29. júlí nk. verður haldið ættar-
Um helgina Um helgina
Léleg sagnfræði
Útvarp, sjónvarp helgarinnar —
þokkalegt bara. Fyrir þá sem heima
sitja yfir sjónvarpi björt sumarkvöld
voru nokkrir molar á dagskránni.
Danska sjónvarpsmyndin Island —
frjálst undan oki Dana í 40 ár — á
föstudagskvöldiö var mjög góö —
nema ummæli fyrrverandi þing-
mannsins um hernám Islands fram
til dagsins í dag. Léleg sagnfræöi,
sem erfitt var aö sitja undir og leitt
aö sjónvarpsmennimir dönsku
skyldu ekki láta fleiri raddir heyrast
um hemámið.. .
Gimsteinaþjófamir í föstudags-
myndinni voru af C eöa D gráðunni,
huggulegasta fólk en myndin tækni-
lega illa gerö og frekar leiöinleg. En
þau eru hress bresku miðaldra hjón-
in sem ætla aö skemmta okkur næstu
laugardagskvöld í staö bandarísku
hjónanna sem voru sammála og
ósammála í bliðu og stríðu — þau
bresku veröa í fullu fjöri. Laugar-
dagsmyndin með gömlu góðu leikur-
unum, um skipstjórann afturgengna
og ekkjuna blíöu, þótti víst mikil
spennumynd í sínum bernskuárum,
en ósköp hugljúf ástarsaga í dag.
Það sem áður var og gilti veröur af-
stætt í dag. Ekki verður þaö meö
sanni sagt um söngrödd Petulu Clark
sem hélt upp á 40 ára afmæli í
skemmti-„bransanum” meö okkur á
laugardagskvöldiö. En ég hafði á til-
finningunni aö hún sjálf væri orðin
þreytt á sviöinu og prjálinu í kring-
um þaö. Kannski ástæöa til líka.
Af sjónvarpi í gærkvöldi voru
Stiklur Omars og hans félaga þaö
eina sem héldu mér við tækiö. Þessir
þættir eru viðurkenndir af alþjóð —
viröast næstum vera orönir þjóöar-
eign. Omar á þakkir skildar fyrir
þættina en þaö eiga lika kvikmynda-
tökumennimir. Eitt vantar í
Stiklumar, sem hugsanlega mætti
lagfæra, og þaö er að sýna á Islands-
kortinu hvar Stikluhópurinn er
staddur hverju sinni og hvaöa leið
hann fer.
Þaö eina sem eftir situr í huganum
af útvarpshlustun helgarinnar, fyrir
utan fréttir, er listapopp Gunnars
Salvarssonar, sem er alltaf
afbragösgóöur.
Þórunn Gestsdóttir.
mót að Laugum í Sælingsdal. Þar koma sam-
an niðjar Samúels Guðmundssonar (1862—
1939) sem bjó í Miðdalsgröf í Tungusveit í
Strandasýslu um síðustu aldamót. Með 3 kon-
um átti Samúel 16 böm en af þeim eru 3 enn á
lífi. Verið er að útbúa skrá um alla afkom-
endur Samúels og annast það Jón O. Edwald.
Væru allar upplýsingar vel þegnar í síma
30918.
Við komu á laugardag þyrftu menn að gefa
sig fram við Snorra og skrá sig. Þá hittast
menn, kynnast og ræða saman en formleg
dagskrá verður á sunnudegi og þá verður
sameiginlegur hádegisverður. Nánari dag-
skrá verður sett upp í móttöku hótelsins.
Verði þess þörf, munu verða sætaferðir frá
Reykjavík og/eða Isafirði laugardaginn 28.
júli og til baka að móti loknu. Þeir sem til-
kynna vilja þátttöku sína eða leita upp-
lýsinga hafi samband við Richard Björgvins-
son í síma 14531 (eða 11419 heima) eða Grím
Samúelsson í síma 94-3523.
Tónleikar í IMorræna húsinu
Arnaldur Arnarson gítarleikari heldur tón-
leika í Norræna húsinu á morgun, briðjudag-
inn 24. júU og í Menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg fimmtudaginn 26. júlí. Hefjast
báðir tónleikarnir kl. 20.30. A efnisskrá eru
verk eftir John Dowland, Benjamin Britten,
Alexandre Tansman og Joaquin Rodrigo.
Arnaldur hóf gítarnám tíu ára að aldri í Sví-
þjóð. Hann hélt áframhjáGunnari H. Jónssyni
við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar í
Reykjavik og við Konunglega tónUstarskól-
ann í Manchester. Þar var Gordon Crosskey
kennari hans í gítarleik. I vetur var hann við
framhaldsnám hjá José Tomás í Alicante á
Spáni. Hann er nú búsettur í Barcelona og
starfar þar við tónUst.
A tónleikunum leikur Arnaldur tónUst John
Dowlands á ellefu strengja altgítar sem sér-
staklega er hannaður til flutnings á lútutón-
Ust.
Ferðalög
Ferðir um verslunarmannahelgma.
3.-7. ágúst
1. Kl. 8.30 Hornstrandir — Hornvík. 5 dagar.
2. KI. 20.00 öræfi - SkaftafeU. Tjaldað í
SkaftafeUi.
3. Kl. 20.00 öræfi - Vatnajökull. Dagsferð
með snjóbíl í Mávabyggðir.
4. Kl. 20.00 Þórsmörk. Góð gistiaðstaða í
Utvistarskálanum í Básum.
5. Kl. 20.00 Lakagígar — Eldgjá — Laugar.
Tjaldferð.
6. Kl. 20.00 Kjölur — KerlingarfjöU. Gist í
húsi.
7. Kl. 20.00 Purkey — Breiðaf jarðareyjar.
4.— 7. ágúst.
8. Kl. 8.00 Þórsmörk, 3 dagar.
Uppl. og farmiðar á skrifst. Lækarg. 6a.
Ferð safnaðar Áskirkju vest-
ur á Snæfellsnes 28.-29. júlí
Laugardaginn 28. júlí verður safnaðarferð á
vegum AsprestakaUs vestur á Snæfellsnes.
Lagt verður af stað frá Askirkju við Vestur-
brún kl. 10 og ekið vestur undir Jökul þar sem
víða verður komið við á athygUsverðum slóð-
um. Aðfaranótt sunnudags verður gist í
Grunnskólanum í Olafsvík.
EfBr messu í Oiafsvikurkirkju, sem veröur
kl 11 á sunnudagsmorgninum, verða merkis-
staðir utan Olafsvíkurennis skoðaðir og síðan
haldið suður á bóginn á ný og komið til
Reykjavíkur um kvöldiö.
Þátttakendur eru beðnir að hafa með sér
nesti, svefnpoka og vindsæng og áríðandi er
að þeir tilkynni þátttöku sína í síma 685377 eða
hjá Þuríði, síma 81742, og sóknarpresti, síma
33944 og 84035, fyrir 25. júlí og veita þau allar
nánari upplýsingar. Safnaðarstjóm.
Stærsti sigur Bolvíkinga ííþróttum
Frá Kristjáni Friöþjófssyni, fréttarit-
ara DV á Bolungarvík:
Bolvíkingar unnu sinn stærsta sigur í
íþróttum er þeir sigruöu á aldurs-
flokkameistaramótinu í sundi sem háö
var í Vestmannaeyjum um helgina.
Hlutu Bolvíkingar 180,5 stig en í ööru
sæti varð sundsveit Ægis meö 160,8
stig.
Bolvíkingar sigruöu í fjórum
greinum einstaklinga á mótinu. Flagg-
aö var á hverri stöng í Bolungarvík
eftir að úrslitin lágu ljós fyrir og í
kvöld verður móttaka fyrir íþrótta-
mennina í f élagsheimilinu Arbæ.
FÁMENNT Á
SKÁLHOLTSHÁTÍD
Þaö er oröinn árviss viöburöur í
Skálholti aö halda svokallaöa Skál-
holtshátíö og var sú tuttugasta og
fyrsta haldin í gær.
Veðriö var ekki sem best í uppsveit-
um Suðurlands á þessari hátíö en aö
sögn Sveinbjörns Finnssonar staðar-
ráðsmanns „hefur aUtaf verið sól
nema núna, hún kemur bara seinna”.
Hátíöin sjálf hófst kl. 14.00 meö
messu í kirkjunni en um morguninn
var fluttur helgileikur sem nefnist
„Spámaöur og smiður”. Þaö var
danskur hópur, Sonderjydsk Forsogs-
scenes KirkespUgruppe sem flutti.
Frekar fámennt var í kirkjunni en
flutningur Dananna á þessu sérstæöa
verki heUlaöi viöstadda.
I hádeginu snæddu síðan prestamir
og gestir hátíðarinnar í SkáUioltsskóla
en þar er rekið gistiheimiU á sumrin
undir stjórn sr. Gylfa Jónssonar, rekt-
ors skólans.
Klukkum SkáUioltskirkju var síðan
hringt kl. 13.30 og skömmu seinna hófst
orgeUeikur í kirkjunni á meöan gestir
gengu í kirkju. Messan hófst meö því
aö prestar og biskupar gengu inn kirkj-
una undir trompetleik þeirra Jóns
Sigurðssonar og Ásgeirs H. Stein-
grímssonar. Haföi gestum hátíöarinn-
ar nú fjölgað, þó að venjulega sé mun
fjölmennara á þessum hátíöum.
Kannski að veöriö hafi spUað þar inn i
því dumbungur var enn yfir staönum.
Seinna atriðið á dagskrá SkáUiolts-
hátíöar var samkoma í kirkjunni sem
hófst eftir kaffi. Þar var fjölbreytt
dagskrá, söngur, orgeUeikur og sr.
Jónas Gíslason lektor flutti ræöu. Sam-
komunni lauk síöan meö aimennum
söng þar-----ir nr. 56 var sung-
inn. sj
Sonderjydsk Forsogsscenes Kirkespilgruppe að flytja helgileikinn Spámaö-
ur og smiður, en nauðsynlegt er að flytja verkið í kirkju meö altarið sem
miðpunkt og ábeyrendur sem söfnuð.
DV-mynd: EinarÓlason.
gengur til fara. Bara til að láta
taka eftir sér.
SAGA OLYMPIU-
LEIKANNA
ÓLYMPÍULEIKARNIR
BANNAÐIR:
í aldanna rás uröu leikarnir sífellt
meiri gróðalind, umvafðir sjónar-
spili og lágkúru. Margir lifðu hátt á
feröamannagróöa og íþróttaandinn
fór þverrandi.