Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1984, Side 45
DV. MÁNUDAGUR 23. JULl 1984.
45
Sviðsljósið
Sviðsljósið
iiw. 1» ■■■ m mh i-i mmt ■■■ mnra —
Bankabókar-
blús
(höfundur ókunnur)
Hann afi minn átti sér bankabók,
hann baslaði og dó svo í elli.
Skiptaráðandinn skrudduna tók,
ískúffuna stakk henni í hvelli.
Eg spurði um arfinn, en ekki fékkst svar,
og áfram hélt tíminn, si svona,
en órór og spenntur ég auðvitað var
og alltafað bíða og vona.
Og dagarnir liðu, svo urðu þeir ár,
ég ekkert um bókina frétti,
ég beið þarna og beið og var svolítið sár
og samt var ég erfinginn rétti.
En loks kom á daginn, hve lánið er valt,
og Ijótt var það ólán er henti,
að bókin var horfin og úr henni allt
og enginn veit nú hvar það lenti.
Á fógetabúllunni fékk ég það svar
að fólar tveir væru t haldi,
þá sá ég hann afa, hann sat inniþar
og seðlana og krónurnar taldi.
Selina sjónvarpskona, sem heillaói Andrew prins upp úr skónum, og
Andrew prins, glaðbeitturá svip.
Hvert er síma-
númerið þitt?
— spurði Andrew prins
Andrew prins, litli bróðir hans Kalla,
sem á í erfiðleikum með uppeldi sonar
síns, er ekki banginn við að beita kon-
unglegum töfrum sínum til þess að ná
sér í vinstúlkur. Nýlega var hann í við-
tali í breska sjónvarpinu hjá frægri
sjónvarpskonu, Selinu að nafni. Þau
spjölluðu saman i þætti sem kallast
Morgunveröarviðtalið og eftir að upp-
töku lauk var pilturinn ekkert aö draga
nánari kynni og spurði hana um síma-
númerið heima hjá henni. Hvort hann
fékk það fylgir að vísu ekki sögunni. Sú
síðasta sem kveikti í litla prinsinum,
Koo Stark, er á hraðleið í hjónaband
með vellauðugum tuttugu og tveggja
ára Breta, Tim Jeffers, sem ekki
treystir stúlkunni alltof vel og vill láta
hana rita nafn sitt undir nákvæman
hjónabandssáttmála.
MÁLSHÁ TTUR DA GSINS
Pað komast ekki allir uppá krambúðarloftið
Mike og Jim með systur sína, Jennifer, á milli sín en hún er meðal-
manneskja á hæð.
Tvö stykki Boy George? Nei, vit-
laust. Annar er vaxmynd sem kom-
ið verður fyrir i vaxmyndasafni
Madame Tussaud i London. En
hvor er sá raunverulegi?
r
Þeir voru ósköp litlir þegar þeir
fæddust fyrir fjórtán árum, en i dag
em þeir Mike og Jim líklega heims-
ins stærstu eineggja tviburar, og
eru enn að stækka. Núna eru þeir
orðnir hvorki meira né minna en
tveir metrar og tólf sentímetrar á
hæð og segja foreldrar drengjanna
þá vera ósköp venjulega unglinga, en
vegna stærðar sinnar geta þeir ekki
farið í fataverslanir og keypt sér föt
heldur verður móðir þeirra að
sauma allt á þá. Þeir þurfa líka sér-
smíðuð rúm því að þau venjulegu
vilja brotna. Strákunum finnst
stundum erfitt að vera svona stórir
og sumum kunningjum þeirra er illa
við að vera í f élagsskap þeirra því að
þeim finnst þeir vera dvergar við
hlið þeirra, og skal engan undra.
Eins og alkunna er kemur það sér vel
i þeirri frómu iþrótt körfuknattleik
að vera í stærra lagi og eru atvinnu-
mannalið i Bandaríkjunum nú þegar
farin að sækjast eftir þessum há-
vöxnutvíburum.
„Egþarf ekkertá
þéraðhalda”
— sagði BoyGeorge
Michael Jackson neitaði Boy
George nýlega um að syngja með
honum inn á plötu. Boy var ekki í vand-
ræðum með að svara og sagði einfald-
lega: „Ég þarf ekkert á þó- að halda og
hef heldur engan áhuga.” Michael
varð víst ansi hissa þegar hann fékk
þetta harkalega svar. En svona er
lífið, hart á móti hörðu.